Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1015/2023:

Ákæruvaldið

(Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)

Einkaréttarkrafa. Nauðgun. Sýkna.

Akærðu sýknaðir af kynferðisbroti og einkaréttarkröfu vísað frá dómi.

Mál þetta, sem dómtekið var 23. október 2023, að lokinni aðalmeðferð, er höfðað af héraðssaksóknara með ákæru dags. 30. mars 2023 á hendur ákærðu X, […], og Y, kt. 000000-0000, […].

Ákærðu er gefin að sök nauðgun, með því að hafa aðfararnótt sunnudagsins 8. mars 2020 á þáverandi heimili ákærða X að […], með ofbeldi og ólögmætri nauðung, í félagi haft önnur kynferðismök en samræði við A, kt. 000000-0000, án hennar samþykkis, en ákærði X kleip í handlegg A, hélt höndum hennar föstum og reif endurtekið í hár hennar og tók hana hálstaki, og ákærðu báðir settu fingur sína upp í munn hennar og settu getnaðarlimi sína inn í munn hennar og þvinguðu hana til að hafa við þá munnmök og meðan á þessu stóð þukluðu ákærðu báðir á brjóstum hennar innanklæða og kynfærum hennar utan klæða, og þvinguðu hana til að taka kókaín, allt með þeim afleiðingum að A hlaut þreifieymsli í hársverði og yfir vöðvum á hálsi beggja vegna og marbletti á vinstri upphandlegg.

Telst þetta varða við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa: Af hálfu A, kt. 000000-0000, er þess krafist að ákærðu verði in solidum gert að greiða henni miskabætur að fjárhæð 4.000.000 kr. auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, sbr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, frá 8. mars 2020, en með dráttarvöxtum skv. 9. gr. vaxtalaga, sbr. 1. gr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi er mánuður er liðinn frá því að bótakrafa þessi er birt til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærðu verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun.

Verjendur beggja ákærðu krefjast þess aðallega að þeir verði sýknaðir en til vara, komi til sakfellingar, er krafist vægustu refsingar sem lög frekast leyfa og verjandi ákærða Y krefst þess að refsingin verði þá skilorðsbundin að öllu leyti. Þá er þess aðallega krafist af báðum ákærðu að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi en til vara að dæmdar bætur verði verulega lægri en krafist er. Loks er þess krafist af báðum ákærðu að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð þ.m.t málsvarnarlaun verjendanna samkvæmt málskostnaðarreikningum.

Ákæruvaldið krafðist þess að ákærðu myndu víkja úr sal þegar meðákærði gæfi skýrslu við aðalmeðferð málsins. Ákærðu mótmæltu þeirri kröfu og með úrskurði dómsins 4. september 2023 var kröfu ákæruvaldsins hafnað.

II

Málavextir.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var kl. 04:48 sunnudaginn 8. mars 2020 tilkynnt um meint kynferðisbrot og óskað eftir lögreglu að […] í […]. Þar hittu lögreglumenn brotaþola, A, og foreldra hennar B og C. C lýsti því að brotaþoli hafi komið heim og C þá séð að eitthvað væri að og brotaþoli hafi viljað fara í sturtu.

Brotaþoli sat grátandi og í hnipri í kjallaratröppum íbúðarinnar og var greinilega mikið niðri fyrir. Mátti enginn koma nálægt henni en lögreglumaður fékk síðan að ræða við hana. Hún kvaðst hafa verið í samkvæmi ásamt vinkonu sinni, D, og kærasta hennar X. Þau hafi verið heima hjá þeim ásamt dreng að nafni Y og stúlku að nafni E. Strákarnir hafi látið eins og þeir væru mjög góðir. D og E hafi farið heim til hennar til að sækja sígarettur og þegar þær hafi verið farnar hafi strákarnir sagt hvað brotaþoli væri ,,heit“. Annar þeirra hafi síðan rifið í hár brotaþola og látið hana ,,totta“ þá báða og hafi X verið mun harðhentari. Brotaþoli hafi frosið og ekki getað sagt neitt. Annar strákanna hafi sleikt brjóstin á brotaþola og kreist þau. Um leið hafi hann snert hana ,,þarna niðri.“ Strákarnir hafi rifið í hár brotaþola, látið kókaín á kreditkort og látið brotaþola sjúga það upp og á meðan hafi annar þeirra haldið fyrir nösina á brotaþola. Þetta hafi staðið yfir í skamma stund og því hafi drengirnir ekki fengið sáðlát. Þegar D og E hafi komið aftur hafi þær séð hvað brotaþola hafi liðið illa og farið með hana inn á baðherbergi. Brotaþoli hafi viljað fara heim og D hafi hringt á leigubifreið fyrir brotaþola. Hún kvaðst hafa farið heim til sín og móðir hennar þá gengið á hana. Fram kemur í skýrslu lögreglu að brotaþoli hafi átt erfitt með að segja frá þessu og rödd hennar verið titrandi.

Brotaþoli átti erfitt með að muna hvar hún hafði verið en hún kvaðst hafa verið í fjölbýlishúsi og síðan mundi hún götunafnið […]. Athugun lögreglu leiddi í ljós að maður að nafni X byggi að […], íbúð […].

Að […] hittu lögreglumenn fyrir X og Y ákærðu í máli þessu. Ákærði X tók á móti lögreglumönnunum en ákærði Y sat í stofusófa ásamt D og E. Kannabislykt var í íbúðinni. Ákærðu voru báðir handteknir og fluttir á lögreglustöð.

Brotaþola var dregið blóð kl. 06:03 og 07:03 og hún gaf þvagsýni til rannsóknar kl. 07:01. Í fjórum blóðsýnum, sem voru tekin kl. 06:03, mældist ekki alkóhól en í þvagsýninu mældist það 0,29 o/oo. Í blóðsýninu mældist flúoxetín 60 ng/ml og norflúoxetín 125 ng/ml og í þvagsýninu fannst umbrotsefni kókaíns. Í matsgerð segir að niðurstöður alkóhólmælinga í þvagi og blóði bendi til þess að brotaþoli hafi neytt einhvers áfengis en ekki verið undir áhrifum þegar sýnin hafi verið tekin. Flúoxetín sé þunglyndislyf og norflúoxetín sé virkt umbrotsefni þess. Styrkur þess í blóðinu sé eins og eftir töku lyfsins í lágum lækningalegum skömmtum. Umbrotsefni kókaíns í þvagi bendi til neyslu kókaíns.

Tekin voru blóðsýni úr ákærðu og þeir gáfu þvagsýni til rannsóknar. Blóðsýni var dregið úr ákærða X um kl. 08:50 og hann gaf þvagsýni um kl. 09:20. Í blóðsýninu mældist alkóhól 1,22 o/oo og í þvagsýninu 1,72 o/oo. Samkvæmt matsgerð mældust í blóðsýni ákærða X benzóýlekgónin 160 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 4,8 ng/ml. Í þvagsýni fannst kókaín, umbrotsefni kókaíns og tetrahýdrókannabínólsýra. Þá segir í matsgerðinni að benzóýlekgónin sé umbrotsefni kókaíns og tetrahýdrókannabínólsýra sé umbrotsefni tetrahýdrókannabínóls. Kókaín hafi ekki verið í mælanlegu magni í blóðinu þegar sýnið hafi verið tekið. Niðurstöður alkóhólmælinga í blóði bendi til þess að ákærði X hafi verið ölvaður þegar sýnið hafi verið tekið.

Blóðsýni var dregið úr ákærða Y um kl. 09:55 og hann gaf þvagsýni um kl. 10:20. Í blóðsýninu mældist alkóhól 0,55 o/oo og í þvagsýninu 1,03 o/oo. Samkvæmt matsgerð mældist benzóýlekgónin 80 ng/ml í blóðsýninu. Í þvagsýninu fannst umbrotsefni kókaíns, kókaín og tetrahýdrókannabínólsýra. Þá segir í matsgerðinni að benzóýlekgónin sé umbrotsefni kókaíns og tetrahýdrókannabínólsýra sé umbrotsefni tetrahýdrókannabínóls. Hvorki kókaín né tetrahýdrókannabínól hafi verið í mælanlegu magni í blóðinu þegar sýnið hafi verið tekið. Niðurstöður alkóhólmælinga í blóði bendi til þess að ákærði Y hafi verið undir áhrifum áfengis þegar sýnið hafi verið tekið.

Réttarlæknisfræðileg skoðun á ákærða X hófst kl. 08:50. Í vottorði um hana segir að hann hafi ekki lyktað af áfengi og ekki verið drafandi. Ofarlega á hægri framhandlegg var grunn rispa um sex cm og lá hún niður eftir handleggnum og virtist ný. Ákærði gat ekki gefið skýringu á rispunni. Rétt ofan við vinstri úlnlið voru tvær grunnar mjög stuttar rispur eða um eins cm langar sem ákærði sagði að væru eftir lögregluhund. Annað var ekki athugavert.

Réttarlæknisfræðileg skoðun á ákærða Y hófst kl. 09:55. Í vottorði um hana segir að hann hafi verið vel vakandi og ekki virst undir áhrifum. Ekkert var athugavert við skoðunina.

Samkvæmt skýrslu tæknideildar fundust engin lífsýni á vettvangi og því voru engin sýni tekin. Engin merki voru um átök. Á stofuborði voru leifar af hvítu dufti sem gaf svörun sem kókaín.

Tekin voru stroksýni af getnaðarlimum beggja ákærðu og þau ásamt samburðarsýnum frá þeim og brotaþola voru send til DNA rannsóknar hjá Nationellt Forensiskt Centrum (NFC) í Svíþjóð. Greining á sýni ákærða Y gaf ekki niðurstöðu þar sem í því kom ekki fram neitt DNA sem hægt var að samkenna við einstakling. Greining á sýni ákærða X leiddi í ljós að DNA snið sýnisins var eins og DNA snið hans sjálfs.

Samkvæmt skýrslu tæknideildar lögreglu um sýnatöku fundust tvö löng, ljósleit hár á nærbuxum ákærða Y. Annað hafi verið vinstra megin á framhlið strengsins en hitt hafi legið lóðrétt fyrir miðju á innanverðri framhlið. Hárin voru skoðuð í smásjá og báru smásjáreinkenni mennskra höfuðhára. Rót, sem var á stigi anagen hárvaxtar, var til staðar í báðum hárunum sem bendi til þess að þeim hafi verið kippt úr hársverðinum. Hárin voru send til rannsóknar hjá NFC. Niðurstaða DNA greiningar á lífsýnum úr hárunum leiddi í ljós að DNA snið þeirra var eins og DNA snið brotaþola.

Brotaþoli fór á Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á LSH. Samkvæmt skýrslu hjúkrunarfræðings lýsti brotaþoli því að hún hafi verið í samkvæmi með tveimur stúlkum, vinnufélögum sínum, kærasta annarrar þeirra og vini hans. Brotaþoli hafi neytt áfengis í samkvæminu og vinnufélagar hennar hafi farið út til að ná í sígarettur. Þá hafi strákarnir breyst og rifið í hárið á brotaþola. Hún hafi sagt þeim að hætta en þeir hafi ekki gert það. Þeir hafi reynt að fá hana til að samþykkja það sem þeir hafi viljað en hún hafi verið mjög drukkin og fundist eins og hún væri að deyja áfengisdauða. Hún hafi verið alveg frosin og ekki getað sagt neitt. Strákarnir hafi tekið í hárið á henni, látið hana totta fingurna og typpið á sér, fyrst annar og svo hinn. Þeir hafi einnig látið hana drekka eitthvað og taka kókaín. Meðan hún hafi tekið kókaínið hafi annar drengjanna haldið í hárið á henni en hinn haldið fyrir aðra nösina á henni. Annar þeirra hafi síðan tekið utan um hana og sagt fyrirgefðu en hinn hafi á meðan verið í tölvu. Þegar hinar stúlkurnar hafi komið til baka hafi þær séð að eitthvað væri að brotaþola en hún hafi ekki þorað að segja þeim hvað hafði gerst. Þá segir í skýrslunni að brotaþoli hafi verið með marblett á vinstri upphandlegg og hún hafi munað að annar strákurinn hafi klipið hana. Þá hafi brotaþoli verið aum í hársverði en roði hafi ekki verið sjáanlegur. Hún hafi verið snertiaum á hálsi en roði hafi ekki verið sjáanlegur. Þá segir að brotaþoli hafi þolað illa snertingu, haldið litlu augnsambandi og vanlíðan hennar hafi verið mikil. Í skýrslu hjúkrunarfræðingsins þar sem krossað er við atriði varðandi andlegt og líkamlegt ástand brotaþola er merkt við dofin, fjarræn, óraunveruleikakennd, eirðarlaus/óróleg, grátköst/tárast, óttaslegin/kvíðin, endurlifun árásar og þolir ekki snertingu.

Í læknisvottorði LSH varðandi brotaþola segir að væg eymsli hafi verið við þreifingu á hársverði og yfir vöðvum á hálsi beggja vegna og marblettir á vinstri upphandlegg. Þessi áverkar hafi samrýmst lýsingum brotaþola.

Ákærði, X, gaf skýrslu hjá lögreglu daginn eftir atvikið eða 8. mars 2020. Ákærði kvaðst hafa verið drukkinn og verið búinn að taka kókaín í samkvæminu. Hann neitaði sök og sagði að það hefði ekkert gerst nema á milli brotaþola og ákærða Y en ákærði X kvaðst ekki alveg vita hvað það hafi verið. Hann kvaðst hafa verið heima hjá sér ásamt D kærustu sinni, brotaþola sem sé vinkona D, ákærða Y og E sem ákærði X kvaðst ekki hafa hitt áður. D og E hafi farið að sækja sígarettur heim til E en þangað hafi líklega verið um fimm mínútna gangur. Ákærði X kvaðst þá hafa verið í sófanum en síðan farið í tölvu þegar brotaþoli og ákærði Y hafi farið að ,,kela“. Það sem þeim hafi farið á milli hafi ákærði ekki séð annað en það hafi verið með samþykki brotaþola. Hún, sem hafi verið drukkin, hafi ekki beðið ákærða Y að hætta heldur frekar þveröfugt. Ákærði X kvaðst hafa séð að ákærði Y hafi haldið utan um brotaþola en hann hafi ekki séð að eitthvað rangt hafi verið gert gagnvart henni. Ákærði X sagðist ekki hafa rifið í hár brotaþola, ekki klipið hana, ekki sleikt á henni brjóstin, ekki lamið hana í andlitið né á rassinn og ekki látið hana ,,totta“ ákærðu. Hann sagði að ákærðu hafi ekki nuddað klofið á brotaþola né tekið hana hálstaki eða lokað fyrir nefið á henni. Ákærði X kvaðst alla vega ekki hafa tekið þátt í þessu og ákærðu hafi ekki látið brotaþola taka kókaín en ákærðu hafi verið með kókaín sem þeir hafi átt saman. Ákærði X kvaðst ekki vita til þess að þau sem voru í íbúðinni hafi tekið kókaín á meðan D og E hafi verið í burtu.

Ákærði, Y, gaf einnig skýrslu hjá lögreglu daginn eftir atvikið eða 8. mars 2020. Hann kvaðst hafa verið í samkvæmi hjá X vini sínum og D kærustu hans. Þar hafi einnig verið E vinkona þeirra, brotaþoli og ein stúlka til viðbótar. Ákærði kvaðst hafa hitt brotaþola áður í samkvæmi. Í umrætt sinn kvaðst ákærði Y hafa drukkið vodka og tekið inn kókaín. D og stúlkan, sem hann vissi ekki hvað hét, hafi farið út til að sækja sígarettur en hann vissi ekki hvað þær hafi verið lengi úti. Þá hafi brotaþoli og ákærði Y verið í stofusófa og hún þá farið að liggja utan í ákærða, þau hafi síðan kúrað, káfað hvort á öðru og farið í sleik. Þessi kynferðislegu samskipti hafi verið með samþykki brotaþola og hún hafi byrjað að liggja ofan á ákærða og þau síðan farið í sleik. Hún hafi aldrei beðið ákærða að hætta hvorki með skilaboðum eða látbragði. Ákærði kvaðst hafa upplifað það þannig að brotaþoli hafi haft áhuga á honum og það hafi einnig verið þannig þegar hann hafi hitt hana í fyrra skiptið. Ákærði kvaðst hafa káfað á brjóstum brotaþola og hún hafi káfað á lærum ákærða. Þetta hafi þau gert bæði með höndum og fótum. Ákærði kvaðst ekki hafa gert eitthvað rangt gagnvart brotaþola. Hann kvaðst ekki hafa rifið í hárið á henni, ekki klipið hana, ekki sleikt á henni brjóstin, ekki lamið hana í andlitið eða á rassinn, ekki látið hana ,,totta“ ákærðu, ekki nuddað á henni klofið, ekki tekið hana hálstaki eða lokað fyrir nefið á henni. Brotaþoli hafi ekki farið úr fötunum. Ákærði Y kvaðst hafa verið með kókaín sem hann hafi átt og hann hafi ekki gefið brotaþola af efninu. Hann kvaðst ekki vita hvers vegna brotaþoli væri að bera þessar sakir á hann.

Ákærði Y gaf aftur skýrslu hjá lögreglu 20. nóvember 2020. Þá kvaðst hann engu vilja breyta frá fyrri framburði sínum. Hann sagði að hann og brotaþoli hafi aðeins ,,kelað“ en það hafi ekki farið lengra. Ákærði kvaðst ekki hafa beitt brotaþola ofbeldi og ekki þvingað kókaíni ofan í hana. Þau hafi aðeins verið að kyssast og káfa á hvort öðru. Hann hafi káfað á brjóstum og rassi brotaþola. Hann kvaðst halda að brotaþoli hafi snert kynfæri ákærða. Þegar þau hafi verið að ,,kela“ hafi ákærði X verið inn á baðherbergi eða í tölvu. Ákærði Y kvaðst ekki hafa séð ákærða X beita brotaþola ofbeldi.

Brotaþoli lagði fram kæru hjá lögreglu 17. mars 2020. Þar lýsti hún því að hún og tvær aðrar stúlkur, sem hafi unnið saman, hafi ákveðið að hittast heima hjá D, sem sé kærasta ákærða X. Þangað hafi ákærði Y einnig komið og brotaþoli verið að spjalla við ákærðu X og Y ásamt stúlkunum. Henni hafi virst ákærði X vera venjulegur strákur og hann hafi sagt við brotaþola að hún ætti að passa sig á strákum þar sem hún væri ,,heit“ og sumir strákar gætu farið illa með hana. D og E hafi þá farið inn á bað og brotaþoli og ákærði X hafi þá setið við hliðina á ákærða Y. Ákærði X hafi þá tekið í hárið á brotaþola en hún sagt honum að hætta. Hann hafi þá sagt að það væri satt sem hann hafi verið að segja við hana og hann hafi verið að tala um stráka eins og hann. Þegar D og E hafi komið út af baðinu hafi ákærði X sleppt hárinu á brotaþola en hún hafi þá verið frosin af hræðslu vegna þess að hún hafi haldið að hann myndi gera eitthvað við brotaþola. D og E hafi síðan sagst ætla heim til E til að sækja sígarettur. Þær hafi síðan farið og brotaþoli hafi þá lamast af hræðslu. Hún hafi vitað svona innst inni að eitthvað myndi gerast en hún hafi verið mjög ölvuð. Brotaþoli hafi legið og haldið að ákærðu væru að hlusta á tónlist. Ákærði X hafi þá sagt brotaþola að koma nær sér en hún hafi ekki gert það. Hann hafi þá sett putta upp í munn brotaþola, tekið í hár hennar og haldið báðum höndum hennar. Ákærði X hafi síðan þvingað brotaþola til að hafa við sig munnmök og haldið henni á meðan. Ákærði Y hafi séð að brotaþoli hafi ekki viljað þetta og spurt af hverju. X hafi þá slegið brotaþola í framan og haldið höndunum á henni. Hann hafi sett putta aftur upp í munn brotaþola og á meðan hafi ákærði Y káfað á brjóstum hennar og reyndar þeir báðir. Þeir hafi einhvern veginn alveg stjórnað brotaþola og sagt setjum hana á magann. Ákærði X hafi síðan dregið bol brotaþola niður og sagt að hann yrði að gera þetta. Ákærðu báðir hafi káfað á brjóstum brotaþola og ákærði X kysst brjóstin og káfað á henni ,,niðri“ en á meðan hafi ákærði Y sett putta í munn brotaþola og káfað á brjóstum hennar. Meðan á þessu hafi staðið hafi ákærði X ,,kyrkt“ brotaþola nokkrum sinnum. Ákærði Y hafi spurt hvort brotaþoli vildi þetta en hún hafi ekki getað svarað. Hann hafi síðan farið með brotaþola inn á bað og þar hafi hún dottið í gólfið en hún hafi verið ölvuð en ekki verið vön að drekka áfengi. Þar sem brotaþoli hafi legið á bakinu inn á baðinu hafi ákærði Y spurt hana hvort hún vildi þetta ekki. Hún hafi neitað því og hann þá spurt af hverju hún hafi þá ekki sagt nei. Ákærði Y hafi síðan hjálpað brotaþola fram og þau farið í sófann. Hún hafi legið þar, eiginlega bara dauð, en þá hafi ákærði X rifið í hárið á henni og haldið henni uppi. Hann hafi komið með kreditkort með hvítu efni á og sagt það vera kókaín. Brotaþoli hafi ekki viljað taka þetta en ákærði Y þá haldið í hana og ákærði X haldið henni og þeir hafi látið brotaþola taka kókaínið. Hún hafi þá ,,fríkað út“ og verið skíthrædd. Þá hafi D og E komið aftur og séð að eitthvað væri að brotaþola en hún hafi verið í áfalli. Hún hafi ekki getað sagt hvað hefði komið fyrir og farið inn á bað með D og E og þær hafi reynt að róa brotaþola. Hún hafi síðan farið heim til sín og þegar þangað hafi komið hafi móðir hennar séð að eitthvað hefði komið fyrir brotaþola.

Síðar í yfirheyrslunni sagði brotaþoli að ákærðu hafi einnig látið brotaþola hafa munnmök við ákærða Y og meðan það hafi verið að gerast hafi ákærði X eiginlega horft á. Brotaþoli kvaðst ekki hafa sagt neitt meðan á öllu þessu hafi staðið en hún hafi verið ,,hálf dauð“. Ákærði Y hafi káfað á brjóstum brotaþola innan og utan klæða og kynfærum utan klæða. Hún kvaðst hafa verið hrædd við ákærða X þegar hann hafi verið að meiða brotaþola en hún hafi ekki þorað að gera neitt. Brotaþoli sagði að hún og ákærði Y hafi verið að kyssast en hún mundi ekki á hvaða tímapunkti.

III

Vottorð um andlega heilsu brotaþola.

Meðal rannsóknargagna málsins eru tvo vottorð F sálfræðings dags. 3. apríl 2020 og 12. febrúar 2021 vegna brotaþola. Í eldra vottorðinu segir að henni hafi verið vísað í sálfræðilegt mat og áfallahjálp hjá sálfræðiþjónustu Neyðarmóttökunnar. Sálfræðingurinn hitti brotaþola tvisvar 13. og 19. mars 2020. Í kjölfar þess hafi verið metið í samráði við hennar sálfræðing að áframhaldandi þjónusta vegna afleiðingar meints kynferðisbrots færi fram hjá sálfræðingi brotaþola á Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL). Í viðtölunum hafi verið lögð áhersla á að veita áfallahjálp og sálrænan stuðning ásamt því að byrja að meta afleiðingar meints kynferðisbrots. Sálræn einkenni brotaþola í kjölfar áfallsins hafi samsvarað einkennum sem þekkt séu hjá fólki sem hafi upplifað alvarleg áföll eins og líkamsárás, nauðgun, stórslys eða hamfarir. Hún hafi virst trúverðug og samkvæm sjálfri sér. Lögð hafi verið áhersla á að styrkja bjargráð brotaþola og draga úr forðunareinkennum hennar með því að auka getu hennar til að takast á við minningar og aðstæður sem minnt hafi hana á meint kynferðisbrot. Áfallastreitueinkenni hennar hafi mælst alvarleg og þunglyndis-, kvíða- og streitueinkenni hennar mjög alvarleg.

Í vottorðinu frá febrúar 2021 segir að sálfræðingurinn hafi tekið aftur við máli brotaþola 18. maí 2020 og frá þeim degi til 11. janúar 2021 hitt hana 20 sinnum. Í vottorðinu kemur fram að gert hafi verið ítarlegt endurmat á einkennum áfallastreituröskunar brotaþola 26. maí 2020 eða rúmum 11 vikum eftir meint brot. Brotaþoli greindi frá endurupplifunareinkennum, þá sérstaklega tíðum ágengum minningum og martröðum um meint brot og sterkum tilfinninga- og líkamlegum viðbrögðum þegar eitthvað minnti hana á meint brot. Þá greindi brotaþoli frá áberandi forðunareinkennum en hún hafi forðast að hugsa og tala um atburðinn og aðstæður sem minntu hana á hann. Þessi og fleiri einkenni hafi valdið brotaþola miklu uppnámi og truflun í daglegu lífi. Matið hafi leitt í ljós að brotaþoli hafi uppfyllt öll greiningaskilmerki áfallastreituröskunar. Einkenni áfallastreitu hjá henni hafi haldist há og yfir greiningarmörkum þar til í viðtali 30. október 2020. Þá hafi einkennin tekið að minnka og bataferli virst hafið. Í eftirfylgdarviðtali 18. desember 2020 hafi áfallaeinkenni verið undir greiningarmörkum en brotaþoli lýsti aukningu á endurupplifunareinkennum. Meðferð hafi verið talin fullreynd 11. janúar 2021 og þá hafi einkenni áfallastreitu verið talsvert minni en í upphafi meðferðar en þó talsverð. Í síðustu viðtölunum höfðu einkenni þunglyndis lækkað úr alvarlegum einkennum og að lokum hafi þau verið innan eðlilegra marka. Einkenni kvíða og streitu hafi lækkað úr alvarlegum og mjög alvarlegum yfir í miðlungs alvarleg einkenni.

Í vottorði BUGL frá 31. mars 2020 segir að brotaþoli hafi verið skjólstæðingur göngudeildar BUGL frá 22. janúar 2015. Hún hafi glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun en náð góðum bata af þeim sjúkdómi. Þegar hún hafi verið 18 ára hafi hún glímt við áfallastreituröskun í kjölfar þess að fyrrverandi kærasti hennar hafi beitt hana ofbeldi. Hún hafi síðan orðið fyrir áfalli þ.e. ofbeldi tveggja karlmanna 7. mars 2020. Eftir það hafi hún verið í áfallalosti eða í bráðri streitusvörun samkvæmt lýsingu móður hennar. Við skoðun hafi brotaþoli verið frosin og náföl. Hún hafi starað út um gluggann og verið einstaklega viðbrigðin. Hún hafi ekki sagt orð fyrr en í lok viðtalsins og þá hafi aðeins létt yfir henni og hún hafi sagst vilja fara heim. Ákveðið hafi verið að brotaþoli fengi áframhaldandi áfallameðferð á BUGL þar til hún hefði komist í gegnum síðasta áfallið. Gert hafi verið ráð fyrir vikulegum viðtölum í nokkra mánuði til viðbótar.

Þá er meðal rannsóknargagna málsins vottorð G sálfræðings hjá Heilsuklasanum frá 11. október 2023. Þar kemur fram að brotaþoli hafi mætt í sex viðtöl hjá sálfræðingnum frá 24. maí 2023 vegna meints kynferðisbrots í mars 2020. Brotaþoli hafi fengið sálrænan stuðning og meðferð við afleiðingum hins meinta brots. Þá hafi verið fylgst með andlegu ástandi hennar þ.m.t. einkennum áfallastreituröskunar. Í fyrsta viðtalinu hafi brotaþoli greint frá mikilli streitu og vanlíðan. Hún hafi átt erfitt með svefn, fengið endurupplifanir um atburðinn og átt erfitt með að vera ein. Hún hafi virst einlæg í frásögn. Einkenni brotaþola hafi samsvarað áfallastreituröskun og í upphafi meðferðar hafi þau valdið brotaþola miklu uppnámi og truflun í daglegu lífi. Flestir tímar hafi farið í að finna stöðugleika og kenna henni bjargráð til að takast á við einkenni og hún eigi nokkuð í land með það að fara í áfallaúrvinnslu. Fyrir brotaþola hafi verið lagðir þrír staðlaðir sjálfsmatskvarðar. Hún hafi svarað sjálfsmatslista til að meta áfallastreitu 1. júní 2023 og þá hafi hún verið með mikil einkenni áfallastreitu. Þá sýndi sjálfsmatskvarði, sem mælir þunglyndi, vísbendingu um alvarleg einkenni. Loks sýndi sjálfsmatskvarði, sem metur kvíðaeinkenni, einnig vísbendingu um alvarleg einkenni. Niðurstöður sjálfsmatskvarðanna hafi verið í samræmi við mat sálfræðingsins sjálfs á einkennum brotaþola. Í samantekt vottorðsins segir að einkenni brotaþola séu enn mikil og allt viðmót hennar bendi til þess að hún hafi upplifað mikla ógn og ofsaótta í kjölfar meints kynferðisbrots. Niðurstöður skimunarlista bendi til að hún þjáist af kvíða, þunglyndi og áfallastreituröskun. Ekki sé hægt að segja til með vissu hver áhrif meints kynferðisbrots verði þegar til lengri tíma sé litið en ljóst þyki að meintur atburður hafi haft víðtæk áhrif á brotaþola.

Í læknisvottorði LSH frá 17. október 2023 er lýst komu brotaþola á bráðamóttöku LSH aðfararnótt 28. maí 2023 en hún kom þangað með sjúkrabifreið. Móðir brotaþola hafi komið með henni á LSH og lýst atvikum þannig að brotaþoli hafi verið að skemmta sér í miðbænum ásamt bróður sínum. Hún hafi verið búin að neyta áfengis en hún sé ekki vön áfengisneyslu. Hún hafi síðan sýnt ,,paranoid hegðun.“ Talið að menn væru að elta hana og ætlað henni illt. Brotaþoli hafi komist í mikla geðshræringu, öskrað, ofandað og ekki verið viðræðuhæf. Móðir brotaþola hafi talið að þetta tengdist alvarlegu kynferðisofbeldi fyrir þremur árum og áfallastreituröskun í kjölfarið. Fjallað hafi verið um málið í fréttamiðlum sjö dögum áður og það hafi valdið brotaþola mikilli vanlíðan. Einnig segir í vottorðinu að brotaþoli hafi verið æst, í miklu uppnámi og ekki samvinnuþýð. Ekki áttuð á stað og stund en áttuð á persónu. Hún hafi ekki haldið þræði í samtali og endurtekið sig í sífellu. Hjá brotaþola hafi komið fram ranghugmyndir um að menn væru að elta hana. Við skoðun á dagvakt hafi verið fullt meðvitundarstig og ekki borið á rugli eða óáttun. Einkenni hafi þá verið að mestu yfirstaðin og brotaþola treyst til að fara heim. Álitið var að brotaþoli hafi fengið frekar svæsið kvíðakast í bland við ölvun. Talið að það gæti vel komið heim og saman að rótin að kvíðakastinu hafi verið áfallastreituröskun eftir alvarlegt kynferðisofbeldi og nýlega fréttir um málið en ölvun og aðstæður á skemmtistað hafi átt sinn þátt í því að leysa það úr læðingi.

IV

Framburður ákærðu og vitna fyrir dómi.

Ákærði, X, neitaði því alfarið að hafa beitt brotaþola ofbeldi eins og lýst er í ákæru. Hann sagði að þau hafi verið fimm í samkvæmi á heimili hans í umrætt sinn en það hafi staðið frá kvöldi og fram á nótt. Auk hans hafi verið þar D sambýliskona ákærða X, vinkonur hennar E og A brotaþoli og ákærði Y en hann og ákærði X séu vinir. Ákærði X hafi ekki þekkt brotaþola en hitt hana einu sinni áður með D. Ákærði sagði að D og E hafi farið úr samkvæminu heim til E til að sækja sígarettur en komið aftur til baka eftir um 10-15 mínútur. Þegar þær hafi verið farnar hafi brotaþoli og ákærði Y farið að kela þ.e. faðmast og kyssast í stofusófa. Ákærði X hafi þá farið í tölvu sem hafi verið á bak við stofusófann og snúið baki í brotaþola og ákærða Y. Þau hafi verið búin að vera nálægt hvort öðru meira og minna allt kvöldið og ákærði X hafi ákveðið að gefa þeim næði þegar hann hafi farið í tölvuna. Ákærði X kvaðst ekkert hafa gert við brotaþola og ákærði X hafi ekki séð ákærða Y beita brotaþola ofbeldi. Ákærði X sagði að brotaþoli hafi verið búin að fá sér í glas en hún hafi ekki verið ofurölvi. Ákærði X sagði að það hafi einnig verið kókaín á stofuborði og hann hafi fengið sér þrisvar litla skammta af því líklega um eða eftir miðnætti. Hann hafi ekki séð brotaþola fá sér kókaín. Ákærði X sagði að brotaþoli hafi beðið hann að hringja í ákærða Y og fá hann í samkvæmið en þau hefðu hist áður. Það hafi allir verið glaðir í samkvæminu og þegar D og E hafi komið aftur eftir að hafa sótt sígaretturnar hafi verið reykt og tekið fram nýtt spil. Þá hafi síminn hjá brotaþola hringt mikið og hún sagt að það væri faðir hennar sem væri reiður. Ákærði kvaðst ekki vita hvers vegna faðir brotaþola hafi verið að hringja í hana en við það hafi brotaþoli breyst og komist í uppnám. Þetta gæti hafa verið um kl. 04:00 um nóttina og þá hafi brotaþoli farið heim til sín. Það hafi verið stutt frá því að brotaþola hafi farið og þar til lögreglan hafi komið á vettvang.

Ákærði, Y, sagði að ákærði X hafi hringt í ákærða Y og boðið honum í samkvæmi vegna þess að brotaþoli hafi viljað það. Þetta hafi verið um kl. 23:00 kvöldið áður en atvik urðu. Í samkvæminu hafi verið spilað og haft gaman og allir hafi verið ölvaðir. Ákærði kvaðst hafa tekið kókaín einu sinni eða tvisvar líklega milli kl. 02:00 og 03:00. Hann vissi ekki hvort brotaþoli hafi tekið kókaín. D og E hafi farið til að sækja sígarettur og líklega verið í burtu í 10-15 mínútur. Bæði fyrir og eftir það hafi ákærði Y og brotaþoli verið að kyssast og kela. Ákærði kvaðst hafa hitt brotaþola einu sinni áður og þá hafi þau aðeins verið í samskiptum á samfélagsmiðlinum Snapchat tveimur til fjórum vikum fyrir samkvæmið. Ákærði Y kvaðst ekki hafa brotið á brotaþola og hann hafi ekki þuklað á kynfærum hennar og ákærði Y mundi ekki hvort brotaþoli hafi snert kynfæri ákærða Y. Samskiptin hafi verið saklaus í byrjun en brotaþoli hafi alltaf verið utan í ákærða Y. Þegar D og E hafi verið farnar hafi brotaþoli sest klofvega ofan á ákærða Y, þau farið að kyssast og hann hafi þuklað á brjóstum brotaþola utan og innan klæða og einnig sleikt þau. Þau hafi þá setið í stofusófanum og þau hafi verið þar þegar D og E hafi komið aftur. Ákærði Y mundi ekki hvort brotaþoli hafi farið með hendi inn fyrir buxur ákærða Y. Í fyrstu eftir að D og E hafi farið hafi ákærði X einnig verið í sófanum en síðan hafi hann farið í tölvu. Aldrei hafi verði uppnám í samkvæminu. Ákærði Y kvaðst ekki hafa þvingað brotaþola til að taka kókaín. Ákærði Y sagði að það hafi ekki liðið langur tími frá því að brotaþoli hafi yfirgefið samkvæmið og þar til lögreglan hafi komið á vettvang.

Vitnið og brotaþolinn, A, kvaðst hafa unnið með D kærustu ákærða X og E. Fyrir umrætt kvöld kvaðst brotaþoli hafa hitt ákærðu einu sinni og þá líklega á veitingastað. Þá hafi hún líklega kysst ákærða Y. Árshátíð hafi fallið niður vegna covid faraldurs og ákveðið hafi verið að halda samkvæmi. Þar hafi auk brotaþola verið báðir ákærðu, D og E. Það hafi verið spjallað og drukkið og þetta hafi verið í annað skiptið sem brotaþoli hafi drukkið áfengi. Í fyrstu hafi verið gaman í samkvæminu en þegar D og E hafi farið inn á baðherbergi hafi ákærði X rifið í hár brotaþola og sagt henni að gæta sín á strákum eins og honum. Brotaþoli hafi sagt ákærða X að hætta og hún orðið hrædd. Síðan hafi D og E farið út til að sækja sígarettur en þær hafi ekki spurt hvort brotaþoli vildi fara með þeim. Ákærði X hafi þá sett fingur í munn brotaþola en hún mundi ekki hvort ákærði Y hafi einnig gert það. Þeir hafi síðan báðir káfað á brotaþola innan klæða og tekið niður um sig buxurnar og látið brotaþola hafa við sig munnmök. Þeir hafi haldið brotaþola og látið hana færa sig á milli ákærðu. Þeir hafi einnig rifið í hár brotaþola og ákærði X hafi lamið hana í andlitið og tekið um háls hennar. Ákærðu báðir hafi snert á kynfærum brotaþola utan klæða og ákærði X hafi tekið hana hálstaki en hún mundi ekki hvort ákærði Y hafi einnig gert það. Brotaþoli kvaðst ekki alveg muna röðina á því sem hefði gerst. Síðan hafi ákærði Y farið með brotaþola inn á baðherbergi og spurt hana þar hvort hún vildi þetta en hún hefði engu svarað. Þegar þau hafi komið fram aftur hafi ákærðu sett hvítt efni á greiðslukort og látið brotaþola sjúga það upp í nefið. Annar ákærðu, líklega X, hafi rifið í hárið á brotaþola og haldið henni fastri á meðan ákærði Y hafi haldið um aðra nösina á brotaþola og sett kortið upp að nefi hennar. Við það hafi hún ,,fríkað út“ vegna þess að hún sé með hjartagalla og hún hafi aldrei áður tekið inn fíkniefni. Eftir það hafi ákærði X farið í tölvu en ákærði Y verið í sófanum. Meðan ákærðu hafi verið að brjóta gegn brotaþola hafi hún verið frosin af hræðslu og ekki getað hreyft sig né ýtt þeim frá sér. Ákærðu hafi ekki spurt hvort þeir mættu gera það sem þeir gerðu við brotaþola. Brotaþoli kvaðst hafa fundist ákærði X verri og hann hafi stjórnað. Meðan á þessu hafi staðið hafi ákærði Y spurt hvort hann mætti kyssa brotaþola en hún hafi ekki getað svarað vegna hræðslu.

Brotaþoli sagði að síðan hafi D og E komið aftur en brotaþoli myndi ekki hvað langur tími hafi liðið frá því að ákærðu hafi látið hana taka kókaínið og þar til þær komu. Þegar þær hafi komið kvaðst brotaþoli hafi brotnað saman og þær hafi allar farið saman inn á baðherbergi. Þar hafi D sagt brotaþola að faðir D hafi misnotað hana en brotaþoli vissi ekki af hverju D hafi verið að segja þetta. Brotaþoli kvaðst síðan hafa farið heim til sín og þá hafi móðir hennar verið vakandi en hún hafi vitað að brotaþoli hafi verið hjá vinnufélögum sínum. Hún hafi sagt móður sinni í stuttu máli hvað hafði gerst og hún hefði einnig látið móður sína vita af sér um nóttina.

Brotaþoli kvaðst ekki muna eftir því að hún hafi óskað eftir því að ákærði Y kæmi í samkvæmið. Þá hafi hann og brotaþoli ekki verið að ,,kela“ í stofusófanum en hún hafi kysst hann eða þau farið í sleik inn í eldhúsi. Þegar þau hafi hist fyrst hafi þau ,,kelað“.

Brotaþoli kvaðst ganga til sálfræðings og hún hafi einnig fengið hjálp frá einkaþjálfara og bræðrum sínum. Hún hafi þurft að hætta í vinnu vegna atviksins og átt erfitt með að mæta í skóla. Hún kvaðst hafa fengið taugaáfall í maí 2023 í kjölfar þess að fjallað hafi verið um málið í DV. Hún kvaðst ekki vera hún sjálf í dag og t.d. gæti hún ekki faðmað fólk og hún eigi erfitt með að segja frá atvikinu.

Vitnið, D sambýliskona ákærða X, sagði að það hafi átt að vera árshátíð hjá […] en henni hafi verið aflýst. Þá hafi vitnið og brotaþoli ákveðið að halda samkvæmi heima hjá vitninu og ákærða X. Ákærði Y hafi komið seinna en aðrir í samkvæmið en brotaþoli hafi verið spennt að fá hann þangað en þau hefðu hist áður. Þetta hafi átt að vera stelpukvöld en það hafi breyst og mikið verið hlustað á tónlist. Áfengisneysla hafi verið í hófi og vitnið hafi ekki verið ofurölvi. Ákærðu hafi tekið inn kókaín og vitnið hafi tekið smávegis af því og einnig E inni á baðherbergi. Vitnið mundi ekki hvort brotaþoli hafi þá verið með þeim eða hvort hún hafi tekið kókaín. Vitnið og E hafi síðan farið heim til hennar til að sækja sígarettur en vitnið kvaðst ekki hafa hugmynd um hvað þær hafi verið lengi. Vitnið kvaðst ekki hafa séð neitt athugavert við það að brotaþoli yrði eftir hjá ákærðu. Þegar vitnið og E hafi komið til baka hafi líklega ákærðu og brotaþoli verið inn í stofu og ákærði X í tölvu. Ekkert hafi verið athugavert við ástandið og eftir það hafi verið spjallað, spilað og hlustað á tónlist. Síðan hafi vitnið, brotaþoli og E farið saman inn á baðherbergi og þar hafi brotaþoli farið að gráta en vitnið vissi ekki hvers vegna. Vitnið kvaðst hafa spurt brotaþola hvers vegna hún væri að gráta en hún hafi ekki svarað því. Vitnið kvaðst ekki hafa tengt grátinn við eitthvað sem hefði gerst í samkvæminu. Brotaþoli hafi jafnað sig eftir grátinn og þær hafi sest aftur inn í stofu. Vitnið kvaðst síðan hafa hringt á leigubifreið fyrir brotaþola líklega vegna þess að hún hafi ekki getað það. Vitnið hafi haft áhyggjur af brotaþola þar sem hún hafi verið ung, ölvuð og foreldrar hennar hafi einnig haft áhyggjur af áfengisneyslu hennar. Vitninu kvaðst reyndar hafa skilist að brotaþoli hafi ekki viljað fara heim. Vitnið sagði að í samkvæminu hafi brotaþoli og ákærði Y ,,kelað“ í stofusófanum og vitninu hafi fundist gott á milli þeirra allt kvöldið.

Vitnið, E, kvaðst ekki hafa þekkt ákærðu fyrir umrætt atvik og hún þekki þá lítið í dag. Vitnið kvaðst hafa verið að vinna með brotaþola hjá […] og árshátíð […] hafi verið blásin af. Þá hafi nokkrar ákveðið að hittast heima hjá D kærustu ákærða X. Þar hafi verið spilað, drukkið og haft gaman. Allir hafi neytt áfengis þ.m.t. vitnið og verið undir áhrifum. Þá hafi einnig verið reykt gras og tekið inn kókaín. D hafi boðið vitninu kókaín og þær hafi tekið kókaín líklega á milli kl. 02:00 og 03:00 og einnig brotaþoli. Í samkvæminu hafi brotaþoli og ákærði Y verið að kyssast og knúsast inn í stofu meðan spilað var. Vitnið og D hafi síðan farið heim til vitnisins til að sækja sígarettur en farið síðan aftur til baka í samkvæmið. Vitnið sagði að það og D hafi líklega verið úti í um 20- 30 mínútur. Þegar þær hafi farið hafi brotaþoli og ákærði Y líklega verið í stofusófa en ákærði X úti á svölum að reykja. Vitnið kvaðst hafa talið það í lagi að brotaþoli yrði eftir hjá ákærðu. Þegar vitnið og D hafi komið aftur hafi brotaþoli og ákærði Y verið sitjandi eða liggjandi í sófanum en ákærði X hafi verið annars staðar. Vitnið kvaðst ekki hafa orðið vart við að andrúmsloftið hafi breyst meðan vitnið og D hafi verið fjarverandi. Eftir það hafi brotaþoli og ákærði Y ekki ,,kelað“. Þegar vitnið og D hafi komið til baka hafi þær sest inn í stofu en brotaþola hafi liðið illa líklega vegna þess að hún hafi verið of drukkin. Líklega hafi liðið um klukkustund frá því að vitnið hafi komið til baka og þar til það hafi hringt á leigubifreið fyrir brotaþola og hún farið heim til sín. Vitnið, C móðir brotaþola, sagði að það hafi átt að vera árshátíð í vinnunni hjá brotaþola en henni hafi verið frestað. Þá hafi nokkrir starfsmenn verið með samkvæmi og brotaþoli hafi líklega farið þangað um kl. 22:00. Vitnið kvaðst hafa sofið illa umrædda nótt og verið með varann á sér. Vitnið hafi ekki hringt í brotaþola um nóttina en ef til vill hafi vitnið sent henni skilaboð. Þegar brotaþoli hafi komið heim hafi vitnið spurt hana hvort ekki væri allt í lagi og hún hafi þá sagst ætla í sturtu. Hún hafi þá hnigið niður í stiga og verið í uppnámi. Brotaþoli hafi sagt að ákæru hafi neytt hann til að totta sig, tekið hana kyrkingartaki og káfað á henni utan klæða. Þeir hafi einnig neytt brotaþola til að taka kókaín. Hún hafi reyndar ekki lýst þessu ítarlega þar sem hún hafi verið í uppnámi. Faðir brotaþola hafi þá komið og hringt í lögreglu og lögreglumenn komið heim til þeirra. Brotaþoli og faðir hennar hafi farið með lögreglu á Neyðarmóttöku. Eftir þetta sé brotaþoli ekki eins og hún hafi átt að sér að vera og hún hafi ekki getað unnið sumarið eftir atvikið. Hún hafi sofið upp í rúmi hjá vitninu í þrjár vikur eftir atvikið, hún geti ekki enn þá sofið ein og hún sé snertifælin. Þá hafi brotaþoli m.a. hætt að spila á gítar og syngja. Brotaþoli hafi fengið taugaáfall í maí 2023 þegar hún hafi verið niður í bæ með bróður sínum. Vitnið sagði að brotaþoli hafi sjaldan drukkið áfengi og aldrei neytt fíkniefna. Fyrir þetta hafi brotaþoli átt erfitt andlega en hún hafi verið í ofbeldissambandi þegar hún hafi verið 17 ára sem hafi haft slæm áhrif á hana.

Vitnið, B faðir brotaþola, sagði að brotaþoli hafi farið umrætt kvöld út að skemmta sér með vinnufélögum og verið spennt fyrir því en árshátíð hjá þeim hafi verið frestað. Móðir brotaþola hafi vakið vitnið þegar hún hafi komið heim um nóttina. Þegar vitnið hafi komið fram hafi brotaþoli setið í hnipri á stigagangi. Hún hafi sagt í stuttu máli hvað hefði gerst en vitnið mundi ekki í smáatriðum hvað hafi verið sagt en brotaþoli hafi sagt að hún hafi verið neydd til að hafa munnmök við ákærðu og þeir látið hana taka inn kókaín. Reyndar hafi nöfn ákærðu ekki komið fram þá en þau hafi komið seinna. Vitnið kvaðst hafa áttað sig á því að eitthvað alvarlegt hafi gerst því ástandið á brotaþola hafi verið hræðilegt, henni hafi liðið mjög illa, verið í áfalli og hrædd. Vitnið mundi ekki hvenær brotaþoli hafi komið heim en það hafi hringt á lögreglu skömmu síðar og lögreglumenn komið á staðinn. Vitnið kvaðst ekki hafa verið í sambandi við brotaþola um nóttina áður en hún hafi komið heim. Vitnið sagði að brotaþoli hafi breyst mikið við þetta og hún sé m.a. hrædd um að rekast á ákærðu og hún hafi ekki getað unnið fyrst eftir atvikið. Brotaþoli hafi sagt að hún geti ekki lifað með þessu. Vitnið sagði að brotaþoli hafi verið í ofbeldissambandi þegar hún hafi verið 17 eða 18 ára en hún hafi verið ágætlega stödd áður en umrætt atvik varð. Hún hafi lítið notað áfengi og ekki fíkniefni. Vitnið kvaðst lítið hafa rætt um þetta við brotaþola en hún hafi meira rætt þetta við móður sína.

Vitnið, H verkefnastjóri á Neyðarmóttöku LSH, kvaðst hafa starfað þar í 8-10 ár. Hún kvaðst hafa tekið á móti brotaþola og ekki hafi þurft að kalla til lækni til að framkvæma réttarlæknisfræðilega skoðun miðað við sögu brotaþola. Vitnið sagði að það sem fram komi í skýrslu þess sé byggt á frásögn brotaþola en hún hafi sagt að hún hafi verið látin veita mönnum munnmök og taka inn kókaín. Brotaþoli hafi setið í hnipri og illa þolað snertingu. Hún hafi verið aum í hársverði en enginn roði hafi verið sjáanlegur. Hún hafi verið snertiaum á hálsi. Vitnið staðfesti skýrslu sína.

Vitnið, I læknir, kvaðst ráma í að hafa hitt brotaþola en hún hefði litlu við það að bæta sem fram kæmi í vottorði vitnisins. Lýsing í vottorðinu um það sem hafði gerst sé haft eftir brotaþola eða öðrum. Vitnið staðfesti vottorð sitt.

Vitnið, J læknir, kvaðst hafa haft brotaþola í viðtölum frá árinu 2015 eða í nokkur ár. Henni hafi upphaflega verið vísað á [ … ] vegna áráttu- og þráhyggju. Hún hafi náð bata en það hafi tekið nokkur ár. Brotaþoli hafi orðið fyrir áfalli vegna ofbeldis af hálfu kærasta og síðan vegna þess atviks sem hér er til umfjöllunar en þegar það hafi gerst hafi brotaþoli verið á batavegi. Þá hafi vitnið verið búið að útskrifa brotaþola en móðir hennar hafi þá leitað til vitnisins með brotaþola. Hún hafi verið í áfallalosti, sem verði við stórt áfall, og lýsi sér sem dofa, vonleysi og mikilli vanlíðan. Viðkomandi sjái enga framtíð. Mikilvægast fyrir manneskju í slíku ástandi sé öryggi, skjól og áfallameðferð. Vitnið staðfesti vottorð sitt.

Vitnið, F sálfræðingur, staðfesti vottorð sín og kvaðst hafa starfað mikið með fólki sem hafi orðið fyrir áföllum. Vitnið kvaðst hafa haft brotaþola í meðferð við áfallastreituröskun, veitt henni áfallahjálp og sálræna aðstoð. Meðferð hafi lokið án fullnægjandi árangurs en við lok meðferðar hafi brotaþoli verið á betri stað en við upphaf meðferðar. En þá hafi hún verið illa á sig komin og lýst mörgum einkennum sem hafi samrýmst því að hún hafi orðið fyrir áfalli. Erfitt sé að segja til um batahorfur brotaþola þar sem margt geti haft þar áhrif.

Vitnið, G sálfræðingur, kvaðst hafa verið með brotaþola í sjö viðtölum. Um hafi verið að ræða áfallameðferð og stuðning við bjargráð brotaþola en hún hafi verið með sterk einkenni um áfallastreituröskun. Vitnið kvaðst vita lítið um þann atburð sem mál þetta snýst um. Vitnið sagði erfitt að segja til um batahorfur brotaþola en hún hafi átt erfitt með að mæta í viðtöl og hún hafi verið með forðunareinkenni. Vitnið staðfesti vottorð sitt.

Vitnið, K læknir, kvaðst hafa skoðað brotaþola þegar hún hafi leitað á bráðamóttöku LSH 28. maí sl. Hún kvaðst engu hafa við það að bæta sem fram kæmi í læknisvottorði um málið. Vitnið mundi þó að brotaþoli hafi verið í uppnámi og erfitt hafi verið að fá sögu frá henni. Hún gæti hafa verið í kvíðakasti.

Vitnið, lögreglumaður nr. L, sem gerði frumskýrslu í málinu kvaðst lítið muna eftir atvikum. Hann hafi rætt við brotaþola og staðið að handtöku ákærðu. Hann kvaðst hafa skoðað frumskýrsluna en við það hafi málið hafi lítið rifjast upp fyrir vitninu nema þá það sem standi í skýrslunni. Vitnið staðfesti skýrsluna.

Vitnið, [ … ] sérfræðingur í tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, kvaðst hafa fengið hluti frá Neyðarmóttöku LSH m.a. glerplötur og sýnaöskjur. Einnig hafi vitnið fengið fatnað ákærðu, hársýni o.fl. Vitnið staðfesti að í nærfötum ákærða Y hafi fundist tvö löng ljósleit hár sem hafi við DNA rannsókn verið samkennd við brotaþola. Vitnið sagði að hárin hafi verið með rót og því hafi þau verið toguð eða kippt úr hársverðinum. Vitnið staðfesti skýrslur sínar.

Vitnið, lögreglumaður nr. M, kvaðst hafa skoðað annál frá tölvuleikjaframleiðanda en um hafi verið að ræða skrár frá árinu 2017 til september 2020. Skráin segi aðeins að viðkomandi hafi tengst en ekkert meira. Ekki hvort það hafi verið spilað eða hvað lengi. Það sjáist aðeins innskráning en ekki útskráning. Þá sjáist ekki hver hafi skráð sig inn en Nova hf. hafi átt IP töluna og ákærði X hafi verið þar í þjónustu. Vitnið staðfesti skýrslu sína.

V

Niðurstaða.

Samkvæmt 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærðu og atvik, sem telja má þeim í óhag, á ákæruvaldinu. Þá metur dómari hverju sinni hvort nægileg sönnun, sem ekki verði véfengd með skynsamlegum rökum, sé fram komin um hvert það atriði sem varðar sekt og ákvörðun viðurlaga við broti, þar á meðal hvaða sönnunargildi skýrslur ákærðu hafa, vitnisburður, mats- og skoðunargerðir, skjöl og önnur sýnileg sönnunargögn. Enn fremur metur dómari ef þörf krefur hvert sönnunargildi þær staðhæfingar hafa sem varða ekki beinlínis það atriði sem sanna skal en ályktanir má leiða af um það, sbr. 1. og 2. mgr. 109. gr. laganna. Þá skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laganna.

Ákærðu neita báðir sök og ákærði X hefur alfarið neitað því að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við brotaþola í umrætt sinn en ákærði Y hefur viðurkennt að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við brotaþola með hennar samþykki.

Brotaþoli lýsti því fyrir dómi að ákærðu hafi sett fingur í munn hennar, rifið í hár hennar, káfað á henni innan klæða m.a. á brjóstum, tekið um háls hennar og tekið niður um sig buxurnar og látið brotaþola veita þeim munnmök. Ákærði X hafi einnig lamið brotaþola í andlitið. Þá hafi þeir sett hvítt efni á kort og látið brotaþola sjúga það upp í nefið. Brotaþoli taldi það hafa verið kókaín en hún hefði aldrei tekið fíkniefni.

Framburður brotaþola hjá lögreglu var mjög á sama veg og fyrir dómi en hjá lögreglu kom fram hjá henni að hún hafi verið mjög drukkin og að fara að ,,deyja“. Brotaþola var dregið blóð kl. 06:03 og hún gaf þvagsýni kl. 07:01. Í matsgerð um rannsóknir á sýnunum segir að niðurstöður alkóhólmælinga í þvagi og blóði bendi til þess að brotaþoli hafi neytt einhvers áfengis en hún hafi ekki verið undir neinum áfengisáhrifum þegar sýnin voru tekin. Hvorki mældist kókaín í blóðné þvagsýni. Í þvagsýninu mældist umbrotsefni kókaíns en ekki í blóðsýninu. Umbrotsefni myndast við umbrot á efnasambandi í líkamanum og er minna virkt og auðleysanlegra en efnið sjálft. Að virtum rannsóknargögnum málsins þ.m.t. framburðum ákærða, brotaþola og annarra vitna má ætla að sýnin hafi verið tekin tveimur til fjórum klukkustundum eftir að brotaþoli segist hafa verið mjög drukkin og við það að ,,deyja“ og ákærðu hafi látið hana taka inn kókaín um nef. Eflaust hefur það haft áhrif á mat brotaþola á ástandi sínu að hún hefur verið þreytt enda langt liðið á nótt og þá kvaðst hún ekki hafa verið vön að drekka áfengi. Þrátt fyrir það og með hliðsjón af niðurstöðum úr ofangreindum rannsóknum má draga í efa að brotaþoli hafi verið mjög drukkin eða tekið inn kókaín um nef í samkvæminu umrædda nótt. Taki einstaklingur inn kókaín með þeim hætti á það greiða leið út í blóðið og mælist þá í því líklega aðeins nokkrum mínútum eftir neyslu og það getur síðan mælst í nokkra sólarhringa. Framburður brotaþola fyrir dómi var trúverðugur í öllum meginatriðum en þrátt fyrir það verður ekki litið framhjá framangreindu við mat á framburði hennar og þegar komist verður að niðurstöðu í málinu.

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var atvikið tilkynnt kl. 04:48 en það varð einhverju áður þar sem brotaþoli fór í kjölfar atviksins til síns heima með leigubifreið og skýrði móður sinni frá því sem gerst hafði. Faðir brotaþola hafði þá samband við lögreglu. Ákærði X var handtekinn kl. 06:30 og honum var dregið blóð um kl. 08:50 og hann gaf þvagsýni um kl. 09:20. Í blóðsýninu mældist alkóhól 1,22 o/oo og í þvagsýninu 1,72 o/oo. Samkvæmt þessu var ákærði X undir áhrifum áfengis þegar blóðsýnið var tekið en það hefur verið nokkrum klukkustundum eftir að atvikið varð. Út frá þessu má álykta að ákærði X hafi verið undir talsverðum áfengisáhrifum þegar hann á að hafa framið brot sitt.

Ákærði Y var handtekinn kl. 06:35 og honum var dregið blóð um kl. 09:55 og hann gaf þvagsýni um kl. 10:20. Í blóðsýninu mældist alkóhól 0,55 o/oo og í þvagsýninu 1,03 o/oo. Samkvæmt þessu var ákærði undir áhrifum áfengis þegar blóðsýnið var tekið en það hefur verið nokkrum klukkustundum eftir að atvikið varð. Út frá þessu má álykta að ákærði hafi verið undir áfengisáhrifum þegar hann á að hafa framið brot sitt.

Ákærðu gáfu báðir skýrslur hjá lögreglu daginn eftir að atvikið varð. Ákærði X sagði ekkert kynferðislegt hafa gerst á milli hans og brotaþola en ákærði Y og brotaþoli hafi ,,kelað“ og ákærði X hafi ekki séð annað en samskipti þeirra hafi verið með samþykki brotaþola. Ákærði X kvaðst ekki hafa séð að brotaþoli hafi beðið ákærða Y að hætta heldur frekar þveröfugt. Ákærði Y lýsti því að þetta hafi verið í annað skiptið sem hann hafi hitt brotaþola. Þau hafi verið í stofusófa og brotaþoli farið að liggja utan í ákærða Y en hún hafi ekki farið úr fötunum. Þau hafi síðan kúrað, káfað á hvort öðru og farið í sleik. Brotaþoli hafi byrjað á því að liggja ofan á ákærða Y og hann hafi káfað á brjóstum brotaþola og hún hafi káfað á lærum ákærða Y. Þetta hafi þau gert bæði með höndum og fótum. Öll þeirra samskipti hafi verið með samþykki brotaþola og hún hafi aldrei beðið ákærða Y að hætta hvorki með skilaboðum eða látbragði. Ákærði Y sagði að upplifun hans hafi verið sú að brotaþoli hafi haft áhuga á honum. Ákærði Y kvaðst ekki hafa gert neitt rangt gagnvart brotaþola.

Eins og fram er komið voru báðir ákærðu handteknir í kjölfar þess að lögregla kom á vettvang í umrætt sinn og þá gætu hafa verið liðnar tvær til þrjár klukkustundir frá því að ákærðu eiga að hafa framið brot sín. Þeir voru báðir undir áfengisáhrifum þegar þeir eiga að hafa framið brotin og þá fannst í þvagsýnum þeirra beggja kókaín, umbrotsefni kókaíns og tetrahýdrókannabínólsýra og samkvæmt því má álykta að þeir hafi einnig verið undir áhrifum fíkniefna þegar þeir voru einir með brotaþola um nóttina en þeir viðurkenndu báðir neyslu kókaíns í samkvæminu. Frá því tímamarki og þar til ákærðu voru handteknir liggur ekki annað fyrir en þeir hafi þá verið vakandi á vettvangi ásamt unnustu ákærða X og vinkonu hennar. Er allt eins líklegt að þeir hafi neytt vímuefna á þeim tíma þegar tekið er tillit til niðurstaðna úr rannsóknum á blóð- og þvagsýnum þeirra. Verður að telja frekar ósennilegt að á þessu tímabili og við þessar aðstæður, þar sem báðir ákærðu voru undir áfengis- og fíkniefnaáhrifum, hafi þeir sammælst um að bera á þann veg sem þeir gerðu daginn eftir hjá lögreglu í kjölfar vistunar í fangageymslu og síðan gert það eins og þeir gerðu. En þar var framburður þeirra mjög á sama veg, sbr. ofanritað. Aukin heldur hafa þeir þá þurft, í því ástandi sem þeir voru, að gera ráð fyrir því þegar brotaþoli yfirgaf samkvæmið að hún myndi kæra þá fyrir kynferðisbrot.

Framburðir unnustu ákærða X og vinkonu hennar um yfirbragð og ástand brotaþola þegar þær komu aftur í íbúðina voru ekki á einn veg hjá lögreglu og fyrir dómi. Þar getur haft áhrif hve langt er um liðið og verður m.a. annars að meta framburðina í því ljósi svo og með hliðsjón af tengslum þeirra við ákærðu. Framburðir unnustu ákærða X og vinkonu hennar hjá lögreglu um ástand brotaþola, þegar unnustan og vinkonan sneru aftur í samkvæmið, eftir að hafa yfirgefið það um stund og vottorð um andlega heilsu brotaþola eftir hið meinta atvik styðja að hún hafi orðið fyrir áfalli sem vissulega getur samrýmst kynferðisbroti. Þetta styður einnig lýsing í frumskýrslu lögreglu um ástand brotaþola í kjölfar hins meinta brots sem og framburðir foreldra hennar. Hins vegar verður við mat á framburði þeirra að líta til tengsla þeirra við brotaþola. Annað en það sem hér hefur verið tilgreint og framburður brotaþola bendir ekki til kynferðisbrots af hálfu ákærða X. Gegn þessu stendur hins vegar eindregin neitun hans allt frá upphafi sem fær stuðning í framburði ákærða Y sem einnig hefur verið mjög á sama veg allt frá upphafi. Við mat á framburði ákærða Y verður hins vegar að horfa til stöðu hans í málinu en þrátt fyrir það verður ekki alfarið horft framhjá framburði hans við úrlausn málsins.

Að öllu ofanrituðu virtu verður ekki talið að fram sé komin lögfull sönnun, sem telja má hafna yfir skynsamlegan vafa, um að ákærði X hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um líkur á sekt ákærða Y og það sem horfir gegn henni gildir það sama og rakið hefur verið um líkur á sekt ákærða X og það sem stendur gegn henni. Þar til viðbótar kemur að samkvæmt rannsóknargögnum málsins fundust tvö hár í nærfötum ákærða Y og samkvæmt rannsókn var DNA snið háranna það sama og DNA snið brotaþola. Þessi staðreynd bendir til kynferðislegra samskipta ákærða Y og brotaþola. Ákærði Y hefur viðurkennt að hafa átt kynferðisleg samskipti við brotaþola umrætt sinn og nefnd rannsókn styður það. Samkvæmt skýrslu tæknideildar lögreglu var útlit háranna þannig að þau hafi verið rifin eða toguð úr hársverðinum. Þrátt fyrir það tekur þessi rannsókn hins vegar ekki af tvímæli um það að kynferðisleg samskipti ákærða Y og brotaþola hafi verið með þeim hætti sem lýst er í ákæru.

Samkvæmt 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði Y ekki sakfelldur fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir og er það ein af meginreglum sakamálaréttarfars. Ákærðu báðum er gefin að sök sama háttsemi samkvæmt ákæruskjali og því er þeim gefinn að sök samverknaður. Ákærði X hefur verið sýknaður af þeirri háttsemi. Með vísan til þessa getur ekki komið til álita eins og á stendur að sakfella ákærða Y fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru.

Með vísan til alls ofanritaðs telst ekki sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi nauðgað brotaþola eins og þeim er gefið að sök í ákæru. Ákæruvaldið hefur því ekki axlað sönnunarbyrði sína, sbr. 108. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Er því samkvæmt 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og meginreglum sakamálaréttarfars skylt að sýkna ákærðu af ákærunni og vísa einkaréttarkröfu frá dómi, sbr. 2. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008.

Allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði þ.m.t. málsvarnarlaun, Einars Odds Sigurðssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða X, 1.958.580 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, málsvarnarlaun, Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Y, 1.807.920 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og þóknun Ólafar Heiðu Guðmundsdóttur lögmanns, skipaðs réttargæslumanns brotaþola, 903.960 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Málsvarnarlaun verjenda, sem ákveðin eru með hliðsjón af umfangi málsins og málskostnaðarreikningum, taka einnig til starfa þeirra á rannsóknarstigi málsins. Þóknun réttargæslumanns tekur einnig til starfa hans á rannsóknarstigi málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari. Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærðu, X og Y, eru sýkn af kröfum ákæruvaldsins í málinu.

Einkaréttarkröfu er vísað frá dómi.

Allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði þ.m.t. málsvarnarlaun, Einars Odds Sigurðssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða X, 1.958.580 krónur, málsvarnarlaun Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða Y, 1.807.920 krónur og þóknun Ólafar Heiðu Guðmundsdóttur lögmanns, skipaðs réttargæslumanns brotaþola, 903.960 krónur.

Ingi Tryggvason

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 194. gr.
Lög nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 2. mgr. 70. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 16. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. gr.6. gr.8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 108. gr.1. mgr. 109. gr.2. mgr. 109. gr.1. mgr. 111. gr.2. mgr. 176. gr.1. mgr. 180. gr.