Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1570/2006:

S-1570/2006:

Ákæruvaldið

(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)

gegn

Davíð Þór Gunnarssyni, Sigurbirni Adam Baldvinssyni,

(Örn Clausen hrl)

X, Eydísi Berglindi Baldvinsdóttur og

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Jóni Einari Randverssyni, Bryndís Gwenhwfyar Bond

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl)

(Hilmar Ingimundarson réttargæslumaður)

Akstur án ökuréttar. Fjársvik. Hegningarauki. Umboðssvik. Þjófnaður. Ölvunarakstur.

Ákærðu voru sakfelld fyrir fjölmörg brot á hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. Ákærði D dæmdur í 15 mánaða fangesli. Ákærði S í 18 mánaða fangelsi. Ákærði J í 6 mánaða fangelsi, en um var að ræða hegningarauka við 14 mánaða fangelsisdóm. Ákærða A var dæmd í 2 mánaða fangelsi skilorðsbundið. Ákærðu E og B voru dæmdar í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi hvor.

Mál þetta er höfðað með tveimur ákærum sýslumannsins í Keflavík dagsettum 7. nóvember og 16. nóvember 2006 og ákæru sýslumannsins í Kópavogi dagsettri 28. nóvember sama ár. Ákæra 7. nóvember 2006 var þingfest gagnvart ákærðu Sigurbirni Adam Baldvinssyni og Davíð Þór Gunnarssyni 10. nóvember sl., en gagnvart ákærðu X og Eydísi Berglindi Baldvinsdóttur þann 29. sama mánaðar. Síðastnefndan dag var einnig þingfest ákæra 16. sama mánaðar og var það mál sameinað þessu. Þá var ákæra 28. nóvember þingfest gagnvart ákærða Sigurbirni Adam þann 5. janúar sl. en gagnvart ákærða Davíð Þór þann 15. janúar sl. og var það mál einnig sameinað þessu í kjölfarið. Fór aðalmeðferð fram 15. janúar og var fram haldið þann 17. sama mánaðar og málið þá tekið til dóms.

I.

Í Ákæru dagsettri 7. nóvember 2006 er mál höfðað gegn Davíð Þór Gunnarssyni, kt. 000000-0000, Heiðarhvammi 3f, Reykjanesbæ, Sigurbirni Adam Baldvinssyni, kt. 000000-0000, Háaleiti 37, Reykjanesbæ, X, kt. 000000-0000,  [...] og Eydísi Berglindi Baldvinsdóttur, kt. 000000-0000, Háaleiti 37, Reykjanesbæ „fyrir eftirtalin refsilagabrot framin á árinu 2006:

I.

Á hendur ákærða Davíð Þór fyrir þjófnað með því að hafa 6. júlí í versluninni Samkaup, Krossmóa 1, Reykjanesbæ, stolið orkudrykk og tvennum íþróttasokkum. (Mál nr. 034-2006-7088) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Á hendur ákærða Davíð Þór fyrir umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt 8. júlí ekið bifreiðinni YO-340 undir áhrifum áfengis og án ökuréttar um götur á Akranesi uns lögregla stöðvaði aksturinn á Kalmannsbraut, Akranesi, en í blóði ákærða mældist 1,01 ‰ alkóhóls. (Mál nr. 012-2006-2479) Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

III.

Á hendur ákærða Davíð Þór fyrir þjófnað með því að hafa 14. júlí stolið pela af „Opal vodkaskoti“ í vínbúð ÁTVR að Hafnargötu 51, Reykjanesbæ. (Mál nr. 034- 2006-07409) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV.

Á hendur ákærða Davíð Þór fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt 9. ágúst tekið bifreiðina IY-013 við Stóragerði 17, Akureyri, ófrjálsri hendi og ekið henni, án ökuréttar, að hesthúsum við Kaldárselsveg ofan Hafnarfjarðar, þar sem bifreiðin fannst 10. ágúst. (Mál nr. 024-2006-6281) Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

V.

Á hendur ákærða Davíð Þór fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa 10. ágúst brotist inn í fyrirtækið Dagur Group, Skeifunni 17, Reykjavík, í þeim tilgangi að stela þar verðmætum. (Mál nr. 010-2006-38526) Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VI.

Á hendur ákærða Sigurbirni Adam fyrir þjófnað og umferðarlagabrot með því að hafa 11. ágúst ekið bifreiðinni LS-223, án þess að hafa ökuréttindi, að bensínstöð Shell við Strandgötu í Sandgerði, dælt á hana bensíni fyrir kr. 2.204 og ekið, enn án ökuréttar, af vettvangi án þess að greiða fyrir bensínið. (Mál nr. 034-2006-8457) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

VII.

Á hendur ákærða Davíð Þór Gunnarssyni fyrir þjófnað og umboðssvik með því að hafa 27. ágúst stolið kvenveski í eigu Margrétar Bryndísar Haraldsdóttur að Melbraut 14, Garði, en í því voru m. a. Sony Ericson farsími, kr. 1.500, 10 bandaríkjadalir, 4 debetkort og eitt kreditkort og farið með óþekktum aðila í hraðbanka í Sparisjóðinn í Sandgerði, en sá aðili tók út úr hraðbankanum kr. 22.000 og tók ákærði við hluta fjárins úr hendi þess aðila við hraðbankann. (Mál nr. 034- 2006-9052) Telst þetta varða við 244. gr. og 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VIII.

Á hendur ákærðu Davíð Þór og Sigurbirni Adam fyrir þjófnað með því að hafa 28. ágúst farið inn í húsið Langholt 12, Reykjanesbæ og stolið þar eftirtöldum munum: Skólatösku með námsgögnum, armbandi, buddum með erlendri smámynt, perlufesti, skartgripaskríni með eyrnalokkum og hringjum, 4 vegabréfum, 2 peningaveskjum, 3 pörum af eyrnalokkum, hálsmeni, 5 áfengisflöskum, 2 stýripinnum fyrir leikjatölvur, straumbreyti, 6 Sony Playstation leikjum, DVD mynd, Adidas bakpoka, Vivitar 28-210 myndavélarlinsu, 7 gömlum íslenskum peningaseðlum, 23 erlendum peningaseðlum, skartgripaboxi með 2 pörum af gylltum eyrnalokkum, silfurhring með grænum steini, hring með hvítum steini, gylltum eyrnalokkum með hvítum steinum, 2 gylltum ermahnöppum, karlmannsúri, 2 kvenarmbandsúrum, 2 leikjatölvum og stafrænni myndavél af Casio gerð. (Mál nr. 034-2006-09064) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IX.

Á hendur ákærðu X fyrir hilmingu fyrir að hafa tekið við hjá ákærðu í lið VIII. í ákæru og geymt fyrir þá eftirtalda muni úr þýfinu: Skartgripabox með 2 pörum af gylltum eyrnalokkum, silfurhring með grænum steini, hring með hvítum steini, gyllta eyrnalokka með hvítum steinum, 2 gyllta ermahnappa, karlmannsúr og 2 kvenarmbandsúr. (Mál nr. 034-2006-09064) Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

X.

Á hendur ákærða Sigurbirni Adam fyrir þjófnað með því að hafa 10. september stolið stafrænni myndavél af gerðinni Canon EOS 300D, Sigma aukalinsu, tösku og 2 greiðslukortum í eigu Ómars Karlssonar úr íbúð að Bergstaðastræti 57, Reykjavík. (Mál nr. 010-2006-45098) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XI.

Á hendur ákærða Sigurbirni Adam fyrir fjársvik með því að hafa 11. september notað stolið greiðslukort sem getið er í lið X. í ákæru og svikið út vörur og þjónustu með notkun greiðslukortsins á þeim stöðum og fyrir þær fjárhæðir sem hér greinir:

  1. Á veitingastaðnum Hlöllabátum, Reykjavík, keypt vörur og fengið peninga til baka af kr. 5.000.
  2. Á Fljótt og gott, B.S.Í. keypt vörur fyrir kr. 1.590.
  3. Í verslun Skeljungs, Select, Bústaðavegi, Reykjavík, keypt vörur fyrir kr. 1.158.
  4. Í verslun 10-11, Lágmúla keypt vörur fyrir kr. 4.467.
  5. Í verslun 11-11, Skúlagötu, Reykjavík keypt vörur fyrir kr. 1.399.
  6. Í verslun 11-11, Skúlagötu, Reykjavík, keypt vörur fyrir kr. 1.228.
  7. Í verslun 11-11, Skúlagötu, Reykjavík, keypt vörur fyrir kr. 1.329.
  8. Í verslun 11-11, Skúlagötu, Reykjavík keypt vörur fyrir kr. 1.274
  9. Í verslun 11-11, Skúlagötu, Reykjavík, keypt vörur fyrir kr. 1.989
  10. Greitt fyrir akstur leigubifreiðar frá Hreyfli kr. 2000 (Mál nr. 010-2006-45098) Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    XII.

    Á hendur ákærðu Eydísi Berglindi, Sigurbirni Adam, Davíð Þór og X fyrir nytjastuld með því að hafa um miðjan september stolið bifreiðinni PU-507 af gerðinni Ford 150 við Drápuhlíð 36, Reykjavík, ekið bifreiðinni til Húsavíkur, þar sem hún fannst við áhaldahús Húsavíkurbæjar 18. september. (Mál nr. 025-2006- 02442) Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    XIII.

    Á hendur ákærðu X, Eydísi Berglindi, Sigurbirni Adam og Davíð Þór fyrir nytjastuld með því að hafa 16. september stolið bifreiðinni UK-717 þar sem hún stóð við húsið Höfðaveg 26, Húsavík og ekið á bifreiðinni til Selfoss. (Mál nr. 025- 2006-02419) Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    XIV.

    Á hendur ákærðu X, Sigurbirni Adam og Davíð Þór fyrir þjófnað með því að hafa 19. september brotist inn í Félagsheimilið Árnes, Gnúpverjahreppi, og stolið þar peningaskáp með kr. 250.000, tveimur vegabréfum, tösku með kr. 10.843, veski með kreditkorti og tveimur debetkortum, turntölvu, 15” flatskjá, skjávarpa, tónlistartölvu, geisladiskamöppu, 4 áfengisflöskum, kr. 30.000, HP fartölvu og 12 strengja gítar, 3 sígarettukartonum, 4 spennubreytum, 2 tölvumúsum, 2 kúrekahöttum, handtösku, snyrtitösku, 54 50 cl. Thule bjórdósum, 6 flöskum af Bacardi Breezer, 5 kókflöskum, 9 20 ml. flöskum Unterberg, flösku af Campari Mix Lime, 2 vasaljósum og London Docks vindlapakka. (Mál nr. 033-2006-08129) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    XV.

    Á hendur ákærða Sigurbirni Adam fyrir fíkniefnabrot með því að hafa 22. september haft í vörslum sínum við komu í fangelsið á Litla Hrauni, 4,95 g. af kannabisefni og 0,35 g. af tóbaksblönduðu kannabisefni. (Mál nr. 033-2006-08398) Telst þetta varða við 2. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

    Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar. Þá er þess krafist að ákærði Davíð Þór Gunnarsson verði sviptur ökurétti, sbr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni verði gert að sæta upptöku á 4,95 g. af kannabisefni og 0,35 g. af tóbaksblönduðu kannabisefni, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.

    Eftirtaldar skaðabótakröfur eru í málinu:

  11. Áfengis og tóbaksverslun ríkisins gerir kröfu um að ákærða Davíð Þór Gunnarssyni verði gert að greiða kr. 2.460 í skaðabætur. Krafist er vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2002 frá tjónsdegi en síðan dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. (III. liður ákæru)
  12. Dagur Group, Skeifunni 17, Reykjavík, gerir kröfu um að ákærða Davíð Þór Gunnarssyni verði gert að greiða skaðabætur kr. 27.525 auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá tjónsdegi 10. ágúst 2006, en síðan dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. (V. liður ákæru)
  13. Fjölnir Ernir Sigvaldason gerir þá kröfu að ákærðu Eydísi Berglind, Sigurbirni Adam, Davíð Þór og X verði gert að greiða honum skaðabætur, kr. 271.384 ásamt hæstu lögleyfðu dráttarvöxtum frá birtingu bótakröfu til greiðsludags. (XII. liður ákæru)
  14. Getið er í lögregluskýrslu að Bryndís Guðlaugsdóttir, Höfðavegi 26, Húsavík, geri kröfu um að ákærðu Eydísi Berglind, Sigurbirni Adam, Davíð Þór og X verði gert að greiða henni kr. 150.000 vegna skemmdar á bifreiðinni UK-717, afnota og kostnaðar við að nálgast bifreiðina á Selfossi. (XIII. liður ákæru)
  15. Bergleif Gannt Joensen, Bugðugerði 1, Selfossi, gerir kröfu um að ákærðu Davíð Þór, Sigurbirni Adam og X verði gert að greiða henni skaðabætur kr. 415.260 og að greiddir verði hæstu lögleyfðu vextir á þá upphæð frá birtingu bótakröfu til greiðsludags. (XIV. liður ákæru)“

    Með ákæru dagsettri 16. nóvember 2006 er mál höfðað gegn Jóni Einari Randverssyni, kt. 000000-0000, Hverfisgötu 27, Reykjavík, Sigurbirni Adam Baldvinssyni, kt. 000000-0000, Háaleiti 37, Reykjanesbæ, Bryndísi Gwenhwfyar Bond, kt. 000000-0000, Furuvöllum 16, Hafnarfirði, Davíð Þór Gunnarssyni, kt. 000000-0000, Heiðarhvammi 3 f, Reykjanesbæ og X, kt. 000000-0000,  Fálkagötu 21, Reykjavík, „fyrir eftirtalin refsilagabrot á árinu 2006:

I.

Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni og Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir þjófnað með því að hafa að kvöldi 11. ágúst farið inn í húsið að Faxabraut 53, Reykjanesbæ, og stolið þar Sony myndavél, 2 minniskortum, Sony myndavélatösku, Sony myndbandsupptökuvél, Canon 35 mm myndavél með leifturljósi, Samsung digitalmyndavél, Dell fartölvu, 2 Ipod spilurum ásamt Ipod dock, um kr. 118.000 í peningum, 2 armbandsúrum, geisladiskum ótilgr. fjölda og tveimur töskum. (Mál nr. 034-2006-08465) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Á hendur ákærðu Bryndísi Gwenhwfyar Bond fyrir hilmingu, með því að hafa í ágúst tekið við til geymslu í bifreiðinni MG-730 og á heimili sínu, Furuvöllum 16, Hafnarfirði, hluta af þýfi sem ákærðu Jón Einar og Sigurbjörn Adam öfluðu með broti sem ákært er fyrir í lið I. í ákæru þessari. (Mál nr. 034-2006-08465) Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III.

Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni og Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir þjófnað með því að hafa í ágúst brotist inn í íbúðarhúsið Vesturhóp 16, Grindavík, og stolið þar fartölvu gerð ASUS í tösku, Sony videomyndavél með 2 linsum, Canon myndavél, 2 armbandsúrum, 2 hálsmenum, 2 armböndum, tvennum eyrnalokkum, gullhring með rauðum steini, setti giftingarhringa, tvennum ermahnöppum, bindisnælu, veski með greiðslukortum og 8-9.000 krónum í peningum, svörtu veski með 50-60 evrum, 2 veggplöttum, 3 hvítum herraskyrtum, 2 hvítum smokingskyrtum, bláum herrajakka, leðurhönskum, kuldahúfu, gönguskóm, 66° N kuldagalla, náttslopp, peningabauk með ótilgreindri fjárhæð. (Mál nr. 034-2006-08487) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV.

Á hendur ákærðu Bryndísi Gwenhwfyar Bond fyrir hilmingu, með því að hafa í ágúst tekið við til geymslu í bifreiðinni MG-730 og á heimili sínu, Furuvöllum 16, Hafnarfirði, hluta af þýfi sem ákærðu Jón Einar og Sigurbjörn Adam öfluðu með broti sem ákært er fyrir í lið III. í ákæru þessari. (Mál nr. 034-2006-08487) Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

V.

Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni og Davíð Þór Gunnarssyni fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa aðfaranótt 13. ágúst brotist inn í húsið Hafnargötu 1, Vogum, Vatnsleysustrandarhreppi, verið búnir að safna ýmsum munum saman í húsinu en horfið frá er lögregla kom að þeim og handtók þá. (Mál nr. 034-2006- 08505) Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VI.

Á hendur Bryndísi Gwenhwfyar Bond fyrir að hafa 13. ágúst haft í vörslum sínum 0,74 grömm af amfetamíni.

Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 6. gr. laga um ávana- og fíkinefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnnur eftirlitsskyld lyf nr. 233/2001. (Mál nr. 034-2006- 08505)

VII.

Á hendur ákærða Davíð Þór Gunnarssyni fyrir þjófnað og nytjastuld með því að hafa 5. september brotist inn í íbúð Heiðarvegi 25, Keflavík og stolið þar kvenmannsfatnaði og síma metið samtals að verðmæti kr. 186.700 og auk þess stolið lyklum að bifreiðinni ZX-713, tekið hana í heimildarleysi og ekið henni án ökuréttar þar til lögregla hafði afskipti af ákærða 8. september þar sem hann var að aka bifreiðinni. (Mál nr. 034-2006-09426) Telst þetta varða við 244. gr. og 1. mgr. 159. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

VIII.

Á hendur ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir eignaspjöll og þjófnað með því að hafa 4. september sparkað eða kýlt í bifreiðina ED-547 af Nissan Patrol gerð þar sem hún stóð utan við húsið að Háaleiti 37, Reykjanesbæ, svo dæld kom í afturbretti bifreiðarinnar, og einnig stolið úr veski í bifreiðinni tveimur greiðslukortum Visa Electron og einkakorti frá Mastercard. (Mál nr. 034-2006- 09406) Telst þetta varða við 1. mgr. 257. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IX.

Á hendur ákærða Davíð Þór Gunnarssyni fyrir fjársvik með því að hafa 4. september tekið út vörur í Fitjagrilli, Njarðvík, og greitt fyrir kr. 3.000 með greiðslukorti nr. 1109-2600-7408 og samtals kr.3.310 í tveimur færslum með greiðslukorti nr. 1155-2601-1187, en kortunum hafði verið stolið úr bifreiðinni ED- 547, sbr. lið VIII. hér að ofan. (Mál nr. 034-2006-09406) Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

X.

Á hendur ákærða Jóni Einari Randverssyni fyrir þjófnað fyrir að hafa 22. ágúst stolið Casio EX-Z60 myndavél og DVD mynddiski, Live at the Budokan með Ozzie Osborne, í verslun Samkaupa, Krossmóa 4, Reykjanesbæ.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XI.

Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni og Davíð Þór Gunnarssyni fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt 22. ágúst brotist inn á skrifstofu Tryggingafélagsins Varðar, Hólmgarði 2, Keflavík og stolið þar peningaskáp, kr. 10.000, ávísunum og ýmsum skjölum og gögnum. (Mál nr. 034-2006-08804) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

XII.

Á hendur ákærða Jóni Einari Randverssyni fyrir umferðarlagabrot með því að hafa 22. ágúst ekið bifreiðinni MG-730 um götur í Reykjanesbæ sviptur ökurétti. (Mál nr. 034-2006-08804) Telst þetta varða við 48. gr. sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

XIII.

Á hendur ákærðu X fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa í vörslum sínum 14,4 grömm af kannabisefni við handtöku í Reykjanesbæ 22. ágúst. (Mál nr. 034-2006-08804) Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233/2001.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar.

Þá er þess krafist að ákærðu Bryndísi G. Bond verði gert að sæta upptöku á 0,74 grömmum af amfetamíni og ákærðu X verði gert að sæta upptöku á 14,4 grömmum af kannabisefni, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974.

Eftirtaldar skaðabótakröfur eru gerðar í málinu:

  1. Guðgeir S. Helgason, kt. 000000-0000, krefst þess að ákærðu Jón Einar Randversson og Sigurbjörn Adam Baldvinsson greiði honum skaðabætur kr. 228.729 ásamt hæstu lögleyfðu vöxtum og dráttarvöxtum skv. „ákvörðun vaxtalaga“ frá tjónsdegi til greiðsludags. (Mál nr. 034-2006-08487)
  2. Ragnar Davíð Riordan, kt. 000000-0000, gerir skaðabótakröfu að fjárhæð kr. 139.965 á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni, Davíð Þór Gunnarssyni og Bryndísi G. Bond. (Mál nr. 034-2006-08585)
  3. Rúnar Lúðvíksson, kt. 000000-0000, krefst skaðabóta úr hendi ákærðu Jóns Einars Randverssonar og Davíðs Þórs Gunnarssonar, kr. 60.000, auk vaxta samkvæmt 7. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi 22.8.2006 en síðan dráttarvaxta skv. III. kafla vaxtalaga til greiðsludags. (Mál nr. 034-2006-08804)“

    Með ákæru dagsettri 28. nóvember 2006 er mál höfðað á hendur Sigurbirni Adam Baldvinssyni og Davíð Þór Gunnarssyni „I.

    Á hendur báðum ákærðu fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 10. ágúst 2006, um og upp úr kl. 17:30, í sameiningu stolið einum Wrangler gallabuxum, einum Likita Banana boxerbuxum, einum herrabol, einu pari af sokkum og einum prjónaherratrefli úr verslun Hagkaupa í Smáralind við Hagasmára í Kópavogi, samtals verðmæti varnings kr. 13.096.

II.

Á hendur ákærða Sigurbirni fyrir líkamsárás, með því að hafa á ofangreindum tíma, sbr. liður I að ofan, í viðtalsherbergi í verslun Hagkaupa, Smáralind við Hagasmára í Kópavogi, kýlt Guðmund Arnar Guðmundsson öryggisvörð með krepptum hnefa í andlitið, nánar tiltekið á enni og ofanvert nef, með þeim afleiðingum að af hlaust 1 cm mar á efri hluta nefhryggs og 2 mm ferskt fleiður fyrir miðjum efri hluta nefhryggs.

Telst háttsemi ákærðu í I. lið varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en háttsemi ákærða Sigurbjörns í II. lið telst varða við ákvæði 1. mgr. 217. gr. sömu laga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

Þá gerir Ómar Ö. Aðalsteinsson, kt. 000000-0000, bótakröfu f.h. Hagkaupa hf. kt. 000000-0000, að fjárhæð samtals kr. 11.498, á hendur báðum ákærðu sbr. liður I. að ofan. Krafist er vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 10. ágúst 2006, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.“

Fyrir dómi játaði ákærði Davíð Þór Gunnarsson afdráttarlaust sök varðandi ákæruliði I., II., III. og XIV. í ákæru dagsettri 7. nóvember 2006. Hann hafnaði hins vegar bótakröfum vegna framangreindra liða III. og XIV. Þá játaði ákærði jafnramt sök varðandi liði V. og VII. í ákæru dagsettri 16. sama mánaðar, en hafnaði bótakröfu vegna liðar V. Ákærði krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af IV., V., VII., VIII., XII. og XIII. lið ákæru dagsettrar 7. nóvember 2006 og ákæru dagsettrar 28. nóvember sama ár. Þá krefst hann einnig sýknu af IX. og XI. lið ákæru dagsettrar 16. nóvember sama ár. Að öðru leyti krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa og verði hún skilorðsbundin að öllu leyti eða að hluta samkvæmt 57. gr. eða 57. gr. a. laga nr. 19/1940. Þess er krafist að gæsluvarðhald ákærða frá 21. september til 10. nóvember komi til frádráttrar refsivist, ef til komi. Þá krefst hann þess að bótakröfum verði vísað frá dómi og að sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði þar með talin réttargæslu- og málsvarnarlaun.

Ákærði Sigurbjörn Adam Baldvinsson játaði fyrir dómi sök varðandi ákæruliði VI. og XV. í ákæru 7. nóvember. Hann féllst á upptökukröfu en hafnaði bótakröfum. Ákærði neitaði hins vegar sök varðandi ákæru 16. nóvember og hafnaði bótakröfum. Hann játaði sök varðandi lið II. í ákæru 28. nóvember en neitaði sök varðandi ákærulið I og hafnaði bótakröfu.

Ákærði krefst sýknu af þeim ákæruliðum þar sem hann hefur neitað sök, en að öðru leyti að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að hún verði skilorðsbundin. Þá krefst hann frávísunar bótakrafna þar sem þær séu vanreifaðar og munir sem um ræðir í I. lið ákæru 28.  nóvember hafi ekki verið lagðir fram í réttinum. Þá krefst hann málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda sínum, sem greiðist að öllu leyti, eða að hluta, úr ríkissjóði.

Ákærði Jón Einar Randversson játaði fyrir dómi sök varðandi ákæruliði V., X., XI. og XII. í ákæru 16. nóvember, en neitaði sök varðandi ákæruliði I. og III. í sömu ákæru. Hann krefst aðallega sýknu af þeim ákæruliðum þar sem hann neitar sök og að bótakröfu vegna ákæruliðar III. verði vísað frá dómi. Að öðru leyti krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa og til frádráttar dæmdri refsingu komi gæsluvarðhald, sem hann hafi sætt vegna málsins. Þá krefst hann málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda sínum sem greiðist úr ríkissjóði og verði við ákvörðun þeirra verði tekið tillit til starfa verjandans á rannsóknarstigi málsins.

Ákærða Bryndís G. Bond játaði fyrir dómi sök varðandi VI. lið ákæru 16. nóvember og féllst á upptökukröfu. Hún neitaði hins vegar sök varðandi ákæruliði nr. II. og IV. í sömu ákæru. Hún krefst aðallega sýknu af þeim ákæruliðum þar sem hún neitar sök og að bótakröfum á hendur henni verði vísað frá dómi. Að því frágengnu og varðandi þann lið ákæru þar sem hún játar sök krefst hún þess að henni verði dæmd vægasta refsing sem lög leyfa og að komi til fangelsisrefsingar verði hún skilorðsbundin. Þá krefst hún málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda sínum sem greiðist úr ríkissjóði og verði við ákvörðun þeirra tekið tillit til starfa verjandans á rannsóknarstigi málsins.

Ákærða X játaði fyrir dómi sök varðandi lið XIV. í ákæru 7. nóvember og varðandi lið XIII. í ákæru 16. nóvember. Féllst hún einnig á upptökukröfu ákæruvaldsins varðandi síðastnefndan ákærulið, sem og bótaskyldu vegna ákæruliðar XIV, en fól lögmanni sínum að reifa sjónarmið um bótafjárhæð. Krefst hún þess að henni verði gerð vægasta refsing er lög leyfa vegna framangreindra liða. Þá krefst hún aðallega sýknu af kröfum ákæruvalds af liðum IX., XII. og XIII. í ákæru 7. nóvember og að bótakröfum á hendur henni verði vísað frá dómi, en til vara að henni verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa og verði hún öll skilorðsbundin. Þá krefst hún hæfilegra málsvarnarlauna til handa skipuðum verjanda sínum og verði þau greidd úr ríkissjóði.

Ákærða Eydís Berglind Baldvinsdóttir krefst aðallega sýknu af ákæruliðum nr. XII. og XIII. í ákæru 7. nóvember en til vara að henni verði gerð vægasta refsing er lög leyfa og hún verði að öllu leyti skilorðsbundin. Þá krefst hún frávísunar bótakrafna á hendur sér og að verjanda hennar verði dæmd hæfileg málsvarnarlaun úr ríkissjóði.

II.

Hafður verður sá háttur á að fjallað verður um sönnunarfærslu um hvern ákærulið fyrir sig í þeirri röð sem þeir birtast í ákæruskjölum og lýst niðurstöðu um sakarmat og heimfærslu til refsiákvæða varðandi hvern þeirra. Samantekt verður um refsimat gagnavart hverjum ákærðu fyrir sig í sérstökum kafla. Í öllum tilvikum er um atvik að ræða sem gerðust á árinu 2006 og dagsetningar eiga við um það ár nema  annað sé sérstaklega tekið fram.

Ákæra 7. nóvember 2006 Ákæruliðir I – III: (málanúmer lögreglu 034-2006-7088, 034-2006-2479 og 034- 2006-07409) Ákærði Davíð Þór Gunnarsson játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök samkvæmt ákæruliðum I., II. og III, sem að framan er lýst, og er játning hans í samræmi við fyrirliggjandi sakargögn. Verður hann því sakfelldur fyrir greinda háttsemi, sem er rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali.

Ákæruliður IV. (málanúmer lögreglu 024-2006-06281) Ákærði Davíð Þór hefur neitað sök samkvæmt þessum lið ákæru en viðurkennir þó að hafa verið farþegi í umræddri bifreið frá Akureyri til Hafnarfjarðar.

Í lögregluskýrslum kemur fram að tilkynnt hafi verið þann 9. ágúst að bifreiðinni IY-013, Nissan Navara, hafi verið stolið þar sem hún hafi staðið fyrir utan húsið að Stóragerði 17, Akureyri. Kvaðst Sigurður Bjarnason, umráðamaður bifreiðarinnar, hafa læst henni um klukkan 22 að kvöldi 8. ágúst en hún hafi verið horfin morguninn eftir. Er haft eftir Sigurði að aukalyklar að bifreiðinni hafi verið geymdir ofan á þvottavél í bílskúr við húsið en hægt hafi verið að komast inn í bílskúrinn í gegn um ólæsta tengibyggingu. Hafi hann veitt því athygli eftir að bifreiðin hvarf að umræddir aukalyklar hafi verið horfnir. Þá liggur fyrir skýrsla lögreglunnar í Hafnarfirði um að fyrrnefnd bifreið hafi fundist við hesthús að Hlíðarþúfum við Kaldárselsveg í Hafnarfirði þann 10. ágúst. Bifreiðin hafi þar verið mannlaus og kveikjuláslyklar ekki verið sjáanlegir.

Í lögregluskýrslu sem tekin var af ákærða þann 10. ágúst er eftir honum haft að hann viðurkenni að hafa tekið umrædda bifreið og að hafa ekið henni til Hafnarfjarðar og að hann hafi lagt bifreiðinni í hesthúsahverfi í Hafnarfirði, sem ekki sé langt frá stórri Essó stöð. Hann hafi þar yfirgefið bifreiðina og haldið á brott. Þá er eftir honum haft að hann hafi stungið kveikjláslyklum bifreiðarinnar í vasann en hafi hent frá sér lyklunum á jörðina þegar hann hafi verið handtekinn að morgni 9. ágúst ásamt Sigurbirni Adam Baldvinssyni.

Þá er haft eftir ákærða að hann hafi farið inn í ólæst hús á Akureyri og séð þar bíllykla á þvottavél. Hann hafi farið út á bifreiðastæði með lyklana og hafi ýtt á fjarstýringuna á lyklunum og hafi þá séð ljós blikka á bifreiðinni IY-013. Hafi hann tekið bifreiðina og ekið henni að tjaldstæði á Akureyri og náð þar í dót. Nokkrir krakkar hafi komið upp í bifreiðina og hann síðan ekið sem leið lá til Hafnarfjarðar þar sem hann hafi skilið bifreiðina eftir, eins og áður var lýst. Hann hafi neitað að gefa upp hverjir hafi verið með honum í bifreiðinni.

Síðastrakinn framburður var borinn undir ákærða fyrir dómi og gaf hann þær skýringar á breyttum framburði sínum nú að hann hafi ekki langað að fara í einangrun þannig að hann hefði sagst hafa gert það sem annar gerði. Kvað hann aðspurður það ekki sitt að segja frá því hver hafi þá gert þetta. Ákærði kvaðst þó viðurkenna að hann hafi verið í umræddri bifreið þegar henni var ekið frá Akureyri eins og að framan er lýst. Hann kvað sig og félaga sinn hafa verið fasta á Akureyri og hafa viljað komast til Reykjavíkur. Félagi hans hafi síðan komið á þessum bíl og ákærði hafi farið upp í hann einhversstaðar á Akureyri. Hann vildi ekki nafngreina þennan félaga sinn. Þá kom fram í framburði hans fyrir dómi að meðákærði Sigurbjörn Adam hefði verið einn þeirra sem verið hafi með í för, en ákærði neitaði að upplýsa hverjir aðrir hefðu verið þarna með honum. Þegar borið var undir ákærða að lykill bifreiðarinnar hafi fundist undir aftursæti í bifreiðinni MG-730, kvað hann það ekki rétt, lykillinn hefði fundist liggjandi á jörðinni nálægt einhverjum stað utan dyra þar sem ákærði hefði verið handtekinn.

Samkvæmt skýrslum lögreglu var ákærði Davíð Þór handtekinn á ætluðum innbrotsstað að Hafnargötu 1, Vogum, ásamt Bryndísi G. Bond og Jóni Einari Randverssyni þann 13. ágúst. Bifreiðin MG-730 í eigu framangreindrar Bryndísar var fyrir utan húsið og sat hún í bifreiðinni. Í kjölfar handtöku heimilaði Bryndís leit í bifreiðinni og samkvæmt leitar- og haldlagningarskýrslu, sem fyrir liggur í málinu fannst, meðal annars, bíllykill undir aftursæti bifreiðarinnar. Reyndist bíllykillinn vera að bifreiðinni IY-013. Staðfesti Guðmundur Sigurðsson lögreglumaður þetta í skýrslu fyrir dómi, en skýrsla hans um leitina er meðal gagna málsins, sem og skýrsla hans um umrædda kveikjuláslykla og hvernig þeim hafi verið komið til rétts eiganda bifreiðarinnar. Um sakarefni tengt framangreindu innbroti að Hafnargötu 1, Vogum er fjallað í V. lið ákæru 16. nóvember, en leit og haldlagning muna í fyrrnefndri bifreið tengist einnig sakarefnum í ákæruliðum I til IV í sömu ákæru og er nánar fjallað um þau síðar.

Ákærði hefur játað fyrir dómi að hafa verið farþegi í framangreindri bifreið þegar henni var ekið frá Akureyri til Hafnarfjarðar. Í skýrslu sinni hjá lögreglu sem að framan er lýst lýsir hann aðstæðum og aðferð við töku bifreiðarinnar sem kemur heim og saman við lýsingu eiganda hennar á því hvar lyklar að bifreiðinni voru og hvernig unnt var að nálgast þá. Í ljósi þessa verður að telja í hæsta máta ótrúverðuga þá skýringu ákærða á játningu sinni fyrir lögreglu að hann hafi aðeins játað til að forðast gæsluvarðhald og hafi því játað á sig eitthvað sem annar hafi gert. Þá fundust lyklarnir í bifreið sem ákærði var á ásamt tveimur öðrum á ætluðum innbrotsstað, eins og að framan er lýst. Fyrir liggur að ákærði hefur aldrei tekið ökupróf og er því ökuréttindalaus. Með vísan til þess að framan greinir verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem lýst er í V. lið ákærunnar og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákæruliður V. (málanúmer lögreglu 010-2006-38526) Í frumskýrslu lögreglu 10. ágúst, kemur fram að lögregla hafi að morgni þess dags verið kölluð til vegna innbrots í fyrirtækið Dagur Group ehf. að Skeifunni 17, Reykjavík. Hafi lögreglumenn hitt fyrir á vettvangi starfsmann fyrirtækisins sem greint hafi frá því að öryggiskerfi hafi farið í gang um klukkan þrjú um nóttina og hafi öryggisverðir farið á staðinn. Þeir hafi ekki talið efni til aðgerða þar sem þeir hafi ekki séð nein merki um innbrot. Kvaðst starfsmaðurinn hins vegar hafa séð þegar hann kom til vinnu um morguninn að spenntur hafi verið upp gluggi og ummerki hafi verið um að einhver hefði farið inn. Hafi því verið ákveðið að kalla til lögreglu. Kvað starfsmaðurinn að ekki væri að sjá að neitt hefði verið tekið af verðmætum, en nokkrar skemmdir hafi verið unnar á glugganum. Kemur fram í skýrslunni að þekktir innbrotsaðilar hafi verið handteknir snemma um morguninn í tengslum við annað mál og væru í fangageymslu. Þar sem góð skóför hafi fundist á vettvangi hafi verið ákveðið að bera skó þessarra manna saman við þau skóför. Hafi skór sem Davíð Þór Gunnarsson hafi verið í við handtöku passað við skóförin á vettvangi og hafi þeir því verið færðir til tæknideildar. Í skýrslu tæknideildar lögreglu um rannsókn á vettvangi er greint frá að fundist hafi skóför og einnig fingraför. Ummerki hafi verið um að opnanlegt gluggafag hafi verið spennt upp og tvö stormjárn gluggans brotin. Skóför hafi verið á gluggakarmi og hafi þau bæði vísað út og inn, einnig hafi verið skófar á skrifborði. Þá hafi fundist fingraför á gluggakarmi. Skóför hafi verið mynduð og fingraförum lyft og þau send til rannsóknar. Þá liggur fyrir skýrsla Sævars Þ. Jóhannssonar fingrafarasérfræðings hjá lögreglunni í Reykjavík, þar sem fram kemur að fingraför, sem tekin hafi verið á vettvangi, samræmist fingraförum af löngutöng og baugfingri ákærða, Davíðs Þórs Gunnarssonar.  Sævar staðfesti skýrslu sína fyrir dóminum. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa sjálfur lyft fingraförunum á vettvangi en hann hafi framkvæmt samanburð á þeim fingraförum sem honum hafi verið send og þau samræmst fingraförum ákærða.

Í skýrslu hjá lögreglu sem sögð er tekin síðdegis 10. ágúst viðurkenndi ákærði að hafa framið umrætt innbrot. Kvaðst hann hafi spennt upp glugga á skrifstofu og hafa farið inn í skrifstofuhúsnæðið og síðan út aftur án þess að taka neitt. Hafi hann ekki nennt að dröslast með eitthvað dót með sér. Hann kvaðst hafa verið einn á ferð.

Í skýrslu sinni fyrir dómi hvarf ákærði frá framangreindri játningu sinni. Kvaðst hann þá ekkert muna eftir þessu og ekki muna eftir að hafa gefið skýrslu. Gaf hann ekki aðrar skýringar á fráhvarfi sínu frá játningu þeirri sem höfð er eftir honum í lögregluskýrslu.

Samkvæmt fingrafararannsókn sem skýrsla er um í málinu fundust á vettvangi fingraför ákærða. Þá liggur fyrir að hann viðurkenndi verknaðinn hjá lögreglu í skýrslu sem tekin var af honum strax eftir atburðinn. Ákærði ber nú við minnisleysi en hefur að öðru leyti ekki skýringar varðandi fráhvarf sitt frá framangreindri játningu. Verður að telja á grundvelli niðurstöðu framangreindrar fingrafararannsóknar, sem fær stoð í játningu ákærða við skýrslutöku hjá lögreglu daginn eftir atburðinn, og annarra gagna málsins að fram sé komin í málinu sönnun þess að ákærði hafi framið þann verknað sem honum er gefinn að sök í þessum ákærulið. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæðis í ákæruskjali.

Ákæruliður VI. (málanúmer lögreglu 034-2006-8457) Ákærði Sigurbjörn Adam Baldvinsson játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og samræmist játning hans sakargögnum. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali.

Ákæruliður VII. (málanúmer lögreglu  034-2006-9052) Ákærði Davíð Þór hefur neitað sök varðandi þennan ákærulið. Hann kannaðist hins vegar við að vera annar þeirra manna sem sjást á myndum úr eftirlitsmyndavél við tilgreindan hraðbanka þar sem peningar eru sagðir teknir út af einu þeirra bankakorta sem stolið hafi verið og nánar greinir í þessum lið ákæru. Ekki liggja fyrir í málinu önnur gögn er tengja ákærða við umræddan þjófnað og engin vitni hafa verið leidd um þennan ákærðulið. Af fyrrgreindum eftirlitsmyndum sést maður, sem ekki hafa verið borin kennsl á, taka fjármuni út úr hraðbankanum og ákærði sést taka við einhverju úr hans hendi. Ákærði kveðst ekki hafa vitað að kortið sem notað hafi verið hafi hugsanlega verið stolið, en að rétt sé að hann hafi farið þarna með félaga sínum. Hann mundi ekki eftir að hafa tekið við peningum úr hendi mannsins, sem hann kvað heita Jón Óla, en kvað það geta verið. Framburður ákærða fyrir dómi er í samræmi við þann framburð er hann gaf hjá lögreglu. Neitaði hann þar staðfastlega að hafa framið umræddan þjófnað, en viðurkenndi að hann hefði komið í umræddan hraðbanka með félaga sínum sem hafi verið að taka út peninga. Framburði hans um nafn félagans hefur hins vegar ekki borið saman. Í skýrslu sinni hjá lögreglu kallaði hann manninn Óla, en fyrir dómi Jón og breytti þeim framburði aðspurður um misræmið á þann veg að maðurinn heiti Jón Óli.

Í málinu liggja ekki fyrir önnur gögn, sem tengja ákærða við sakarefnið, en framangreindar myndir úr eftirlitsmyndavél við hraðbanka Sparisjóðsins í Sandgerði. Verður á grundvelli þeirra gagna ekki talið sannað, gegn eindreginni neitun ákærða að hann hafi gerst sekur um þann þjófnað sem honum er gefinn að sök í nefndum ákærulið. Þá verður heldur ekki talið sannað að ákærði hafi vitað að kort það sem félagi hans notaði til að ná í peninga í umrætt sinn hafi verið illa fengið og verður hann því einnig sýknaður vegna ætlaðra umboðssvika í umrætt sinn.

Ákæruliðir VIII og IX. (málanúmer lögreglu 034-2006-09064) Í framangreindum ákærulið VIII er ákærðu Davíð Þór og Sigurbirni Adam gefið að sök að hafa framið innbrot að Langholti 12, Reykjanesbæ, en í ákærulið IX er ákærðu X gefin að sök hilming með því að hafa tekið við og geymt nánar tilgreint þýfi úr nefndu innbroti. Verður samhengis vegna fjallað um þessa ákæruliði í einu lagi.

Í frumskýrslu lögreglu er 29. ágúst er frá því greint að Margrét Linda Ásgeirsdóttir hafi tilkynnt um innbrot og þjófnað að heimili sínu að Langholti 12, Reykjanesbæ, sem átt hafi sér stað síðdegis 28. ágúst. Er haft eftir tilkynnanda að yngri sonur hennar hafi komið heim úr skólanum kl. 14:15 og hafi lagt frá sér skólatösku en farið svo út. Hún hafi sjálf komið heim um 14:50 og eldri sonur hennar skömmu síðar og sá yngri eftir það. Hafi þau þá veitt því athygli að ýmsir munir hafi verið horfnir úr húsinu, þar á meðal leikjatölvur, tölvuleikir og skólataska sú sem fyrr var minnst á. Var lögreglu tilkynnt um málið. Lögreglumenn sem komið hafi á vettvang hafi meðal annars leitað upplýsinga hjá nágrönnum og hafi einn þeirra greint frá að hafa séð vínrauða fólksbifreið með brotinni afturrúðu, sem búið hafi verið að líma með límbandi, standa utan við húsið að Langholti 15. Hafi bifreiðin staðið þarna frá því um klukkan 14:30 til 15:00. Í bifreiðinni hafi setið í farþegasæti, ung grannvaxin, dökkhærð stúlka. Kemur þá fram að lögreglumenn hafi talið sig vita um hvaða bifreið hafi verið þarna að ræða og hafi þeir farið að Háaleiti þar sem skráður eigandi bifreiðarinnar RB-018 eigi heima og hafi bifreiðin staðið þar. Hafi þá verið náð í fyrrnefnt vitni og hafi það staðfest að um væri að ræða sömu bifreið og það hafði áður lýst að staðið hefði í Langholti á fyrrgreindum tíma. Skömmu síðar hafi ákærðu Davíð Þór, Sigurbjörn Adam og X verið handtekin þar sem þau hafi setið í bifreiðinni þar sem hún stóð við Háaleiti. Einnig hafi verið í bifreiðinni Eydís Berglind Baldvinsdóttir. Hafi hún heimilað leit að Háaleiti 37, en við leitina hafi fundist eitthvað af þýfi úr framagreindu innbroti, m.a. skartgripir, vegabréf, áfengi og skólataska.

Af gögnum verður ráðið að ákærðu voru handtekin laust fyrir klukkan 19 þann 28. ágúst og fór leit fram að Háaleiti 37 í beinu framhaldi af því, að fenginni undirritun Eydísar Berglindar Baldvinsdóttur á leitarheimild. Eydís Berglind, sem er systir ákærða Sigurbjörns, mun vera búsett að Háaleiti 37, ásamt móður þeirra. Í vitnaskýrslu Lofts Kristjánssonar rannsóknarlögreglumanns, sem nánar er rakin hér síðar, kom fram að móðir Eydísar og Sigurbjörns hafi verið stödd erlendis á umræddum tíma og ekki hafi reynst unnt að ná sambandi við hana. Þá liggur fyrir í málinu að Eydís hefur undirritað leitarheimild varðandi bifreiðina RB-018.

Í málinu liggur fyrir skýrsla Lofts Kristjánssonar rannsóknarlögreglumanns, sem hann staðfesti fyrir dómi, um leit og haldlagningu á heimili Eydísar Berglindar Baldvinsdóttur á umræddum tíma.

Kemur þar meðal annars fram að í fataskáp í stofu hafi fundist skólataska með námsgögnum heimilismanns að Langholti 12, en einnig hafi verið í töskunni nánar tilgreindir skartgripir og fleira. Er töskunni gefið númerið A-01 í skýrslunni og munum sem í henni fundust undirnúmerin A-01-1 til A-01-05. Þá kemur fram að fundist hafi, að því er virðist í sama fataskáp, gulur plastpoki, merktur Bónus. Í honum hafi verið rusl, en einnig ýmsir persónulegir munir, þar á meðal ýmis persónuskilríki, tengd heimilisfólki að Langholti 12. Er plastpokanum gefið númerið A-02 í skýrslunni, en munum sem í honum fundust undirnúmerin A-02-1 til A-02-23. Þá er getið um áfengisflöskur sem fundist hafi, nokkrar við kommóðu í stofu, en ein í fataskáp í stofu og fengu flöskurnar númerin A-03 til A-07. Þá er getið tveggja stýripinna fyrir Play-station leikjatölvu og straumbreyti fyrir samskonar tölvu, sem og  6 tölvuleikjadiska og eins DVD mynddisks, sem fundist hafi í stofu við sjónvarp, eða í kommóðuskúffu í stofu. Fengu hlutirnir númerin A- 08 til A-11. Einnig hafi fundist Adidas bakpoki, svartur og grár og í honum hafi verið myndavélarlinsa og lyf merkt heimilismanni að Langholti 12. Loks er getið annars vegar um gamla íslenska peningaseðla sem fengu númerið A-13 og erlendra peningaseðla, meðal annars frá Bangladesh og Líbanon, sem fundist hafi í skál ofan á ísskáp og fengu þeir númerið A-14.

Þá liggur fyrir dóminum leitar- og haldlagningarskýrsla Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar, rannsóknarlögreglumanns, sem hann staðfesti fyrir dómi, og gerð var 29. ágúst, í tengslum við yfirheyrslu yfir ákærðu X. Framvísaði ákærða við yfirheyrsluna munum úr handtösku sinni, sem sagt er að hún hafi haft meðferðis er hún var handtekin. Er frá því greint að ákærða hafi viðurkennt að í töskunni væru meðal annars munir, sem hún eða ákærði Davíð Þór hefðu tekið af borði á Háaleiti 37 og sett í töskuna. Hafi ákærða framvísað nokkrum munum úr töskunni, sem að mati rannsakara gætu tengst umræddu máli. Var um að ræða tvö skartgripabox með nánar tilgreindum skartgripum, tveir gylltir ermahnappar, lítil svört taska (myndavélartaska) og þrjú armbandsúr. Voru mununum gefin númerin AÓE-01 til AÓE-07.

Af skýrslum lögreglu má ráða að heimilisfólk að Langholti 12, endurþekkti nánast alla þá muni sem hald var lagt á við framangreinda húsleit. Þá voru einnig borin kennsl á alla þá muni sem samkvæmt framansögðu fundust í handtösku ákærðu X, utan tvö hálsmen sem heimilisfólk að Langholti 12 kannaðist ekki við. Fyrir liggur skýrsla lögreglunnar um verðmætamat eiganda á þeim munum sem um ræðir. Er þar gerð grein fyrir því að munir sem skilað hafi sér aftur hafi alls verið 69 að tölu og að áætluðu verðmæti eiganda samtals 228.900 krónur. Þeir hlutir sem ekki hafi skilað sér hafi verið Play-station 2 tölva að verðmæti 15.000 krónur, PSP leikjatölva að verðmæti 30.000 krónur og stafræn myndavél að verðmæti 36.000 krónur eða samtals 81.000 krónur. Heilarverðmæti muna nemi því 309.900 krónum.

Fyrir hádegi 29. ágúst var tekin skýrsla hjá lögreglu af ákærða Davíð Þór Gunnarssyni. Neitaði hann þar allri aðild að umræddu innbroti og kvaðst ekki muna eftir ferðum sínum daginn áður. Hann hafi verið með ákærðu X og Sigurbirni. Aðspurður um hvort hann hafi verið að koma frá Háaleiti 37 þegar hann hafi verið handtekinn kvaðst hann minna það, en ekki muna hvenær hann hafi komið þangað. Ákærði kvað þau hafa verið að tala saman þar. Þá kvaðst hann hafa hitt X og Sigurbjörn við Sparisjóðinn í Keflavík um klukkan 16:00 í gær en kvaðst ekki muna hvert þau hafi svo farið eða hvernig.

Fyrir dómi neitaði ákærði Davíð Þór aðild að innbrotinu og kvaðst ekki vita hver hefði framið það. Aðspurður um þann framburð X hjá lögreglu að hún hafi tekið við hlutum úr þessu innbroti frá honum og Sigurbirni kvaðst hann ekki geta skýrt það. Hann hafi ekki látið X hafa neina hluti úr þessu innbroti. Kannaðist ákærði við að hafa verið handtekinn ásamt X í viðkomandi bíl á umræddum tíma, en neitaði staðfastlega að hafa framið innbrotið.

Skýrsla var tekin af ákærða Sigurbirni Adam hjá lögreglu síðdegis 29. ágúst og var skýrslan tekin upp á mynddisk, sem liggur fyrir í málinu. Er í skýrslunni haft eftir honum að þeir ákærði Davíð og hann hafi farið inn í húsið að Langholti 12. Ákærða X hafi verið með þeim, en hún hafi beðið út í bíl á meðan. Kvaðst ákærði hafa farið með meðákærða Davíð inn bakdyramegin, um dyr sem hafi verið ólæstar og opnar. Þegar inn hafi verið komið hafi þeir farið að skoða sig um, hvor í sínu lagi. Kvaðst Sigurbjörn hafa fundið einhverjar áfengisflöskur og farið að sötra af þeim og síðan tekið þær og sett í tóma tösku. Kvaðst hann aðspurður ekki hafa tekið neitt annað. Hann hafi farið upp á aðra hæðina en ekki litist á neitt þar, en um leið og hann hafi komið þaðan hafi meðákærði Davíð farið upp. Hann kvaðst ekkert hafa verið að fylgjast með Davíð eða hvað hann hafi gert. Kvaðst Sigurbjörn ekki hafa meikað þetta og farið út og ekki hafa viljað vera lengur þarna inni. Hann hafi farið út bakdyramegin, yfir grindverk og á næstu lóð og inn á götu og inn í bíl. Davíð hafi komið fimm mínútum seinna, með fullt af drasli. Er frá því greint að Sigurbirni hafi verið sýndar tveir bakpokar, munir sem í leitar- og haldlagningarskýrslu fengu númerin A-01 og A-12. Hann kvað fyrrnefnda pokann vera þann sem Davíð hafi tekið en sjálfur hafi hann tekið þann síðarnefnda. Þá kvað Sigurbjörn þau hafa farið heim til sín að Háaleiti 37. Þar hafi Davíð sturtað úr bakpokunum og í ljós hafi komið alls konar skartgripir og persónuskilríki. Kvað Sigurbjörn sér ekki detta í hug að taka persónuskilríki. Aðspurður um gamla íslenska peningaseðla kvaðst Sigurbjörn eiga þá sjálfur og hafa safnað þeim síðan hann var lítill. Þá kannaðist hann ekki við útlenda peningaseðla sem verið hafi í skál á ísskáp. Kvaðst Sigurbjörn eiga Play-station leiki sem fundist hafi við leitina.

Í skýrslu sinni fyrir dómi kvaðst ákærði Sigurbjörn ekkert kannast við þetta mál. Mundi hann ekki eftir að hafa verið handtekinn umræddan dag. Lesin voru fyrir ákærða meginatriði þeirrar skýrslu sem síðast var rakin en hann kvaðst ekki minnast neins af því sem þar er eftir honum haft. Hann kannaðist þó við undirritun sína á skýrsluna, en tók fram að hann væri lesblindur og því væri ekkert að marka staðfestingu hans á skýrslunni þar sem hann gæti ekki með góðu móti lesið hana yfir.

Á mynddiski sem fyrir liggur í málinu og dómari hefur skoðað er hljóð- og myndupptaka af áðurraktri skýslu ákærða Sigurbjörns fyrir lögreglu. Má þar sjá og heyra að ákærði skýrði frá atburðum með þeim hætti sem í skýrslunni greinir og að í lok yfirheyrslunnar var skýrslan lesin fyrir hann frá orði til orðs áður en hann staðfesti hana með undirritun sinni.

Ákærða X gaf fyrst skýrslu hjá lögreglu síðla kvölds 28. ágúst í kjölfar handtöku. Liggur fyrir í málinu mynddiskur með upptöku af skýrslutökunni. Neitaði hún við þá skýrslutöku allri vitneskju eða aðild að innbroti að Langholti 12. Hún kvaðst hafa vaknað um klukkan tvö um daginn hjá einhverjum vini sínum sem hún ekki vildi nafngreina. Þá kvaðst hún hafa eitthvað farið í banka en síðan hitt vini sína ákærðu Sigurbjörn og Davíð heima hjá mömmu Sigurbjörns, eftir að hún og Sigurbjörn hafi mælt sér þar mót í síma. Um mínútu síðar hafi þau farið út í bíl og þá hafi lögreglan handtekið þau.

Næsta dag var X yfirheyrð að nýju og var sú skýrsla einnig tekin upp á mynddisk, sem liggur fyrir í málinu. Var ákærða þá með meðferðis handtösku þá sem áður er frá greint. Kvaðst hún í fyrstu ekki vilja breyta fyrri framburði sínum, en kvað annaðhvort sig eða ákærða Davíð hafa látið dót í veski hennar. Hafi þau ætlað til Reykjavíkur og Davíð ekki verið með neitt til að geyma dót í. Hafi því annaðhvort þeirra tekið dót af borði og sett í veski hennar. Aðspurð um hvar þetta hafi verið kvaðst hún ekki vita það, en það hafi verið á staðnum sem munirnir hafi fundist. Er þess þá getið í skýrslunni að rannsakari biðji ákærðu um að sýna sér muni sem settir hafi verið í veski hennar. Hafi hún þá tekið uppúr veskinu muni sem áður hefur verið lýst og lögregla gaf númerin AÓE-01 til AÓE-07. Þá hafi hún tekið upp úr töskunni dúkahníf sem hún hafi sagst hafa tekið úr einhverri nýbyggingu í síðustu viku. Kemur þá fram í skýrslunni að rannsakari kynni ákærðu að vitni hafi séð til hennar sitjandi í bílnum RB-018, sem staðsettur hafi verið í Langholti í gær. Kvaðst ákærða þá vera tilbúin að breyta framburði sínum og viðurkenndi að hún hefði verið í þessum bíl í gær á umræddum stað og að ákærðu Sigurbjörn og Davíð hafi verið með henni. Ákærða kvaðst ekki vilja segja til um það hver hefði ekið bifreiðinni en það hafi ekki verið hún. Kvað hún Sigurbjörn og Davíð hafa farið út úr bifreiðinni á umræddum stað og hafi hún spurt hvort hún ætti að koma með en þeir hafi sagt nei. Kvaðst hún hafa beðið í langan tíma þangað til þeir hafi komið aftur. Hafi þeir þá komið með eitthvað drasl. Þá hafi bifreiðinni verið ekið heim til mömmu Sigurbjörns þar sem þeir hafi byrjað að tína eitthvað drasl upp úr tösku. Hún kvað þá hafa sett eitthvað dót í töskuna hennar og síðan hafi þau ætlað að fara til Reykjavíkur en lögreglumenn hafi komið og handtekið þau áður en þau hafi komist af stað. Þá kvaðst hún ekki hafa vitað þegar Davíð og Sigurbjörn fóru út úr bílnum að þeir hafi ætlað að brjótast inn og hún hafi ekki tekið þátt í innbrotinu og hún hafi ekki sett það dót í töskuna sína sem þar hafi verið. Það hafi aðrir gert. Þá kvaðst hún vilja taka fram að eitt hálsmen sem hún lýsti nánar og var í töskunni væri hennar eign. Hún kvað systur Sigurbjörns, Eydísi hafa átt að aka bifreiðinni á fyrirhugaðri ferð til Reykjavíkur, en kvaðst ekki vita hver hafi ekið bifreiðinni frá Langholtinu að Háaleiti.

Í framburði sínum fyrir dómi kvaðst ákærða X ekkert muna eftir atburðinum eða að hafa tekið við þeim munum sem upp eru taldir í ákæru. Kvaðst hún muna eftir að hafa verið sett í fangaklefa á umræddum tíma en að hún muni ekkert eftir handtöku eða skýrslugjöf. Hún kannaðist hins vegar við undirskrift sína á lögregluskýrslur sem fyrir liggja í málinu og fyrr eru raktar. Ákærða gaf þá skýringu á minnisleysi sínu að hún hafi verið í mikilli neyslu og muni ekkert eftir þessu tímabili. Kvaðst hún hafa verið í meðferð að Háholti í Skagafirði frá því í september.

Loftur Kristjánsson rannsóknarlögreglumaður kom fyrir dóminn sem vitni og staðfesti þær skýrslur sem hann gerði í tengslum við rannsókn umrædds máls. Kvaðst hann hafa unnið að rannsókn innbrots að Langholti 12. Um hafi verið að ræða innbrot í heimahús, þar sem sést hafi til bifreiðar fyrir utan. Þegar lögregla hafi komið á vettvang hafi lögreglumenn gengið í nærliggjandi hús til að spyrjast fyrir um mannaferðir og fljótlega hafi komið í ljós að nágranni hafi séð til bifreiðar, sem svari til lýsingar á bifreið sem að vitnið hafi vitað til að ákærði Sigurbjörn Adam og systir hans hefðu stundum verið á. Það hafi verið sérkennandi við þennan bíl að það hafi verið brotin í honum afturrúða og bætt með plasti. Í framhaldi af þessu kvaðst Loftur hafa farið með öðrum lögreglumanni og keyrt fram hjá heimili foreldra systkinanna og bíllinn hafi verið þar skammt frá. Þá kvaðst Loftur hafa beðið hinn lögreglumanninn að fara og ná í fyrrnefndan nágranna til staðfestingar á því að um væri að ræða sama bíl. Hafi svo verið gert og umræddur nágranni staðfest að um sama bíl hafi verið að ræða og hann hafi veitt athygli kyrrstæðum í Langholti fyrr um daginn. Kvað Loftur að sig minnti að ákveðið hafi verið að vakta húsið og bílinn. Hann hafi ekki verið við þá vöktun en þegar hann hafi komið síðar á staðinn þá hafi verið búið að handtaka aðila, í eða við bílinn. Þá hafi verið búið að fara inn á heimili foreldra systkinanna og tryggja ástandið þar, en þetta hafi verið fólk sem hann hafi kannast við sem óreglufólk. Farið var inn á þetta heimili, að Háaleiti 37, til húsleitar með leyfi Eydísar, systur ákærða Sigurbjörns. Móðir þeirra hafi verið erlendis en Eydís hafi fallist á að veita húsleitarheimild. Staðfesti vitnið skýrslur sem hann hafi gert í málinu, meðal annars skýrslu um leit og haldlagningu að Háaleiti 37. Þá kvaðst vitnið hafa tekið skýrslu af ákærða Sigurbirni og þar hafi hann gengist við innbrotinu og viðurkennt að hafa farið þarna inn ásamt meðákærða Davíð Þór.

Þá kom Jóhannes Albert Kristbjörnsson, rannsóknarlögreglumaður, fyrir dóminn sem vitni. Kvaðst hann hafa komið að umræddri rannsókn, með þeim hætti að hafa farið í húsleit að Háaleiti 37, kjallaraíbúð og hafa tekið síðari lögregluskýrsluna af ákærðu X. Bar Jóhannes að við yfirheyrsluna hafi ákærða framvísað munum úr innbroti að Langholti 12, þegar gengið hafi verið á hana, en munina hafi hún tekið upp úr tösku sem hún hafi haft meðferðis þegar hún hafi verið handtekin. Um skýrslutökuna kvaðst vitnið hafa gert lögregluskýrslu og haldlagningarskýrslu um þá muni sem ákærða hafi framvísað úr veski sínu.  Kvað vitnið ákærðu X hafa orðið margsaga um það hvernig munirnir hafi komist í veski hennar. Hafi hún ýmist sagt að ákærði Davíð Þór hafi sett þá þar, eða hún sjálf. Þá kvað vitnið ákærðu hafa virðurkennt að hún hefði verið í bifreið með Sigurbirni og Davíð Þór og að bifreiðinni hefði verið lagt fyrir utan Langholt 12, þeir hafi þar farið út og hún beðið. Þeir hafi komið til baka eftir nokkurn tíma og hafi þá verið með eitthvað dót með sér. Þá hafi verið farið á bifreiðinni að Háaleiti 37 og þar hafi munir sem þeir hafi tekið verið settir í veski hennar. Kvað vitnið að ákærða X hefði ekki sagt berum orðum að hún hafi vitað að um þýfi hafi verið að ræða.

Niðurstaða varðandi ákærulið VIII.

Ákærði Davíð Þór hefur frá upphafi neitað allri aðild að umræddu innbroti en fyrir dómi viðurkenndi hann þó að hafa verið handtekinn á umræddum stað og tíma ásamt meðákærða Sigurbirni Adam og X sem ákærð er í ákærulið IX. Hefur ákærði borið að hann hafi verið nýbúinn að hitta þau tvö þegar handtakan hafi átt sér stað. Bar hann í skýrslu sinni fyrir lögreglu að hann hefði hitt þau við Sparisjóðinn í Keflavík um klukkan fjögur síðdegis og að þegar þau hafi verið handtekin hafi þau verið að koma frá Háaleiti 37. Þar hafi þau verið að tala saman.

Ákærði Sigurbjörn neitaði fyrir dómi allri aðild að innbrotinu og kvaðst ekkert muna eftir atvikinu, eða að hafa verið yfirheyrður um það. Í málinu liggur sem fyrr segir fyrir lögregluskýrsla af ákærða Sigurbirni, sem tekin var upp á mynddisk. Lýsir hann þar hvernig hann og meðákærði Davíð Þór hafi farið inn í umrætt hús, eins og að framan er rakið. Þeir hafi síðan ekið að heimili móður hans og farið þar inn með þá hluti sem teknir hafi verið.

X, sem ákærð er í ákærulið nr. IX, kvaðst fyrir dómi ekkert muna eftir umræddum atvikum. Í síðari lögregluskýrslu sinni þar sem hún framvísaði munum úr innbrotinu, sem geymdir voru í tösku hennar, lýsti hún málsatvikum með svipuðum hætti og ákærði Sigurbjörn varðandi það hvernig þau, ásamt ákærða Davíð hafi farið á tiltekinni bifreið að Langholti og þar hafi hún beðið í bifreiðinni um stund og þeir tveir síðan komið til baka með eitthvað dót. Síðan hafi verið haldið heim til mömmu Sigurbjörns.

Eins og að framan greinir fundust alls 69 hlutir, sem reyndust eign íbúa að Langholti 12, annar vegar við húsleit að Háaleiti 37 og hins vegar í handtösku X. Fór húsleitin fram í beinu framhaldi af handtöku ákærðu í bifreið fyrir utan framangreint hús. Af fyrirliggjandi gögnum má sjá að frá því að innbrotið var framið og þar til ákærðu voru handtekin liðu einungis um þrjár klukkustundir.

Fráhvarf ákærða Sigurbjörns og ákærðu X frá játningum sínum sem skráðar eru í lögregluskýrslur byggir að þeirra sögn á algeru minnisleysi þeirra um umrædda atburði. Játningar þeirra fyrir lögreglu verða hins vegar að teljast trúverðugar og eru lýsingar þeirra tveggja á atburðarás sem þar koma fram í innbyrðis samræmi um þá þætti atburðarásarinnar sem þau bæði skýra frá. Eykur það mjög á sönnunargildi umræddra skýrslna að fyrir liggja í málinu mynddisksupptökur sem dómari hefur skoðað og eru hinar skriflegu skýrslur sem lögreglumenn hafa staðfest fyrir dómi í samræmi við það sem á upptökunum sést og heyrist. Þegar framangreint er virt í samhengi verður talið að sannað sé að ákærðu Davíð Þór og Sigurbjörn Adam hafi í sameiningu gerst sekir um þá háttsemi sem lýst er í nefndum ákærulið og er brot þeirra þar rétt heimfært til refsiákvæðis.

Niðurstaða varðandi ákærulið nr. IX.

Með vísan til þess sem rakið er hér næst á undan varðandi ákærulið nr. VIII verður talið sannað að ákærða X hafi verið með í veski sínu við handtöku muni úr nefndu innbroti og að henni hafi ekki getað dulist að þeir munir, sem taldir eru upp í ákæruskjali og nánar er lýst hér að framan, hafi verið illa fengnir. Verður ákærða því sakfelld fyrir þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæruskjali og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Ákæruliður X og XI (málanúmer lögreglu 010-2006-45098) Samhengis vegna verður fjallað um þessa ákæruliði í einum kafla.

Í frumskýrslu lögreglu 11. september kemur fram að Ómar Karlsson, hafi tilkynnt um innbrot á heimili sitt að Bergstaðastræti 57, Reykjavík. Er haft eftir Ómari í skýrslunni að hann búi á nefndum stað ásamt Ólöfu Önnu Jóhannsdóttur og hafi þau verið að horfa á sjónvarp frá klukkan 20:00 kvöldið áður en um miðnætti hafi þau tekið eftir því að búið hafi verið að fjarlægja lykil sem staðið hafi í læsingu útidyrahurðar að innanverðu. Morguninn eftir hafi hann veitt því athygli að myndavélin hans hafi verið horfin. Hafi myndvélin verið af gerðinni Canon EOS 300D og einnig hafi verið horfin Sigma aukalinsa. Þessir hlutir hafi verið í svörtum bakpoka og hafi pokinn verið geymdur undir stiga. Ekki er í frumskýrslu getið um að tekin hafi verið greiðslukort og ekki er ljóst af gögnum hvenær, eða hvernig það upplýstist. Liggur þó fyrir að 12. september er skráð skýrsla um símaviðtal við Hrafn Steindórsson leigubifreiðarstjóra vegna ætlaðrar misnotkunar á debetkorti sem tekið hafi verið í umræddu innbroti. Í skýrslu lögreglu 25. september eru taldir upp þeir munir sem að framan greinir og þeir metnir samtals að verðmæti 163.000 krónur að meðtöldum tveimur greiðslukortum. Þá er getið um tjón vegna úttekta af kortunum að fjárhæð 21.434 krónur. Í skjalaskrá lögreglu kemur fram að meðal gagna sé færsluskrá reiknings nr. 0526-26-006677, alls átta debetkortafærslur númeraðar í skránni sem skjöl 2.1 til 2.8, og færsluskrá reiknings nr. 0513-26- 100017, alls tvær debetkortafærslur númeraðar í skránni 3.1 og 3.2. Í ákærulið nr. X er ákærða gefið að sök að hafa stolið meðal annars tveimur greiðslukortum í eigu Ómars Karlssonar, án nánari tilgreiningar, og í ákærulið XI eru honum gefin að sök fjársvik með því að hafa notað stolið greiðslukort, sem getið sé um í X lið ákæru og svikið út vörur og þjónustu með notkun greiðslukortsins á þeim stöðum og fyrir þær fjárhæðir sem nánar er gerð grein fyrir í tíu tölusettum liðum.

Í hvorugum þessarra ákæruliða eru viðkomandi greiðslukort auðkennd og í ákærulið nr. XI er talað um greiðslukort í eintölu. Af skjalaskrá málsins má hins vegar ráða, eins og að framan er rakið, að umrædd greiðslukort séu debetkort og tengist annað þeirra bankareikningi nr. 0526-26-006677 og hitt bankareikningi nr. 0513-26-100017. Má sjá í skjölum málsins átta tilgreindar færslur á fyrrnefnda bankareikninginn og tvær færslur á þann síðarnefnda. Verknaðarlýsing XI. lið ákæru málsins er að þessu leyti almennari en best yrði á kosið. Þykja þó ekki, þegar gögn málsins eru virt í heild, nægileg efni til að vísa framangreindum ákærulið af frá dómi af sjálfsdáðum, enda ekki séð að vörnum ákærða hafi orðið áfátt af þessum sökum. Er þá haft í huga að ekki verður séð að framangreind ónákvæmni valdi því að háttsemi sem ákærða er gefin að sök í nefndum ákærulið rúmist ekki að fullu innan verknaðarlýsingar 248. gr. almennra hegningarlaga.

Fyrir dómi neitaði ákærði sök og kvaðst ekkert muna eftir þessu. Kvaðst hann minnast þess að hafa verið yfirheyrður vegna þessa sakaratriðis hjá lögreglu. Aðspurður kvaðst ákærði kannast við Gunnar Magnús Halldórsson en mindi ekki eftir að hafa komið á Hlöllabáta umrætt kvöld. Þá kannaðist hann aðspurður ekki við að hafa sýnt framangreindum Gunnari myndavél og hafa boðið honum vélina til kaups. Þá kannaðist hann ekki við að hafa verið með gips á hendi eða að hafa farið með Gunnari í ökuferð.

Vitnið Gunnar Magnús Halldórsson gaf símaskýrslu í málinu. Kvaðst hann þekkja ákærða Sigurbjörn Adam Baldvinsson, en þeir hafi um tíma verið að vinna saman á Hlöllabátum. Kvaðst vitnið hafa verið að vinna á Hlöllabátum á umræddum tíma og þá hafi ákærði komið þangað, eitthvað í kringum miðnætti aðfararnótt 11. september. Hafi hann verið með bakpoka sem í hafi verið Canon EOS myndavél, myndavélarlinsa, einhverjar snúrur og rafhlöður, gular að lit. Hafi ákærði boðið vitninu myndavélina til kaups, en vitnið hafnað því. Vitnið kvaðst hins vegar hafa rennt í gegn greiðslukorti fyrir ákærða fyrir 5.000 krónum og hafi haldið að það væri allt í lagi. Ákærði hafi beðið vitnið um að skutla sér heim og hafi vitnið gert það. Kvað vitnið ákærða hafa verið að leita til sín til lausnar á vímuefnavanda sínum, en vitnið hafi á þeim tíma verið AA maður og hafi verið að ræða við ákærða um þau mál. Staðfesti vitnið að það hefði eftir að vinnu hafi lokið ekið ákærða um bæinn á bifreið vitnisins og hafi ákærði farið út úr bifreiðinni á þeim stöðum sem greindir eru í töluliðum 2 til 9 í XI. lið ákæru. Á leiðinni hafi þeir verið að ræða um hvernig ákærði gæti náð tökum á vímuefnavanda sínum. Vitnið kvað vinnnufélaga sinn Svavar Helgason hafa verið með í ökuferðinni framanaf en ekki allan tímann þar sem vitnið hefði skutlað Svavari heim meðan á ferðinni stóð. Mundi vitnið ekki nákvæmlega hvenær það var. Kvaðst vitnið svo hafa gefist upp á þessu og skilið ákærða eftir. Daginn eftir hafi vitnið hitt ákærða að nýju og ekið honum á slysavarðstofu, vegna þess að ákærði hefði þá fjarlægt gipsumbúðir sem hann hafi verið með á annarri hendinni, þá kvaðst vitnið hafa keyrt ákærða á Vog. Vitnið kvaðst aðspurt ekki minnast þess að ákærði hefði sagt eitthvað um hvaðan hann hefði fengið þá myndavél sem hann var með í umrætt sinn. Vitnið staðfesti að hafa gefið skýrslu hjá lögreglu um málið og einnig þegar efni skýrslunnar var borið undir hann að þar væri rétt frá sagt.

Vitnið Svavar Helgason kom fyrir dóminn og staðfesti að hann hefði verið starfsmaður á Hlöllabátum á umræddum tíma, ásamt vitninu Gunnari og að ákærði hefði komið þar. Kannaðist vitnið við að hafa farið í þá ökuferð um bæinn sem að framan er lýst ásamt ákærða og Gunnari á bifreið hins síðarnefnda. Minntist vitnið þess að ákærði hefði beðið um að fá að taka út af korti en kvaðst vitnið hafa neitað þar sem hann hefði ekki haft heimild til slíks. Kvaðst vitnið ekki muna nákvæmlega hvert farið hafi verið í fyrrnefndri ökuferð, en mundi eftir verslun 10-11 við Lágmúla. Þá mundi vitnið ekki hvort ákærði hefði verið með eitthvað með sér. Þegar vitninu var sýnd skýrsla þess hjá lögreglu 16. október staðfesti hann að rétt væri þar eftir sér haft um nefnda ökuferð og að komið hafi verið við á þeim stöðum sem hann hafi greint frá í skýrslunni. Þá kvaðst vitnið minnast þess að ákærði hafi verið með gips á annarri hendi í umrætt sinn, en kvaðst ekki muna hvernig hann hefði verið klæddur.

Í málinu liggja fyrir útprentanir úr færsluskrá banka með þeim peningaúttektum sem um ræðir í XI lið ákæru og kemur á þeim fram hvar úttekt hafi verið framkvæmd, hverrar fjárhæðar hún er og nákvæm tímasetning úttektarinnar. Í öllum tilvikum bera greind skjöl með sér að um sé að ræða peningaúttektir á debetkorti í eigu Ómars Karlssonar, kt. 000000-0000 og eiga þær sér allar stað aðfaranótt 11. september. Þá liggja fyrir tímasettar myndir úr öryggismyndavélum nokkurra þeirra staða þar sem úttektir áttu sér stað. Verður hér að neðan gerð grein fyrir þeim gögnum, sem samkvæmt framangreindu, liggja fyrir um hverja og eina færslu með númeri þess töluliðar XI liðar ákærunnar sem við á.

1. liður. Fyrir liggur í málinu skjal sem greinir frá úttekt að fjárhæð 5.000 krónur af bankareikningi nr. 0526-26-006677 og er færslan sögð gerð hjá Hlöllabátum klukkan 02:04. Þá eru í málinu myndir úr eftirlitsmyndakerfi Hlöllabáta, sem sýna að ákærði var þar staddur á svipuðum tíma og sést hann þar meðal annars sýna öðrum manni eitthvað, sem hann tekur upp úr einhverskonar bakpoka. Má á þessum myndum greina að ákærði er í brúnum leðurjakka og er með hvítar umbúðir á hægri hönd. Þó myndirnar séu óskýrar verður að telja fullvíst að þær séu af ákærða.

2. liður. Framangreint debetkort var notað í versluninni Fljótt og Gott (BSÍ) klukkan 02.31 og var færslan að fjárhæð 1.590 krónur.

3. liður. Sama debetkort var notað klukkan 02:37 í Select verslun Skeljungs við Bústaðaveg og liggja fyrir myndir úr öryggismyndavél verslunarinnar sem sýna mann klæddan eins og ákærða var hér að framan lýst, með umbúðir á hægri hendi. Tímasetning myndanna er nokkuð óskýr en þó má greina að þær séu frá því um klukkan 02:40 og næstu mínútur þar á eftir.

4. liður. Þá var klukkan 02:52 tekið út af sama debetkorti í verslun 10-11 í Lágmúla og er færslan að fjárhæð 4.467 krónur. Fyrir liggja myndir úr öryggiskerfi verslunarinnar sem sýna að sami maður og áður er lýst er þar á ferð.

5. til 8. liður. Enn var sama debetkort notað 4 sinnum á tímabilinu frá klukkan 03:02 til 03:03 og nú í verslun 11-11 við Skúlagötu og námu úttektir samtals 5.230 krónum og sýna myndir úr öryggismyndavél að sami maður er þar á ferð.

9. liður. Þá var debetkort á nafni sama Ómars Karlssonar sem tengdist bankareikningnum 0513-26-100017 notað klukkan 03:05 í sömu verslun og í liðum 5 til 8 og var úttektin að fjárhæð 1.989 krónur.

10. liður. Síðastnefnt kort var aftur notað klukkan 06:42 til að greiða fyrir akstur leigubifreiðar.

Að framangreindum gögnum virtum í samhengi og með vísan til framburðar vitnanna Gunnars og Svavars um hvernig hinn fyrrnefndi ók ákærða milli þeirra staða þar sem umrædd kort voru misnotuð er sannað að ákærði hafi verið sá sem misnotaði kortin í liðum 1 til 9 í XI. lið ákæru. Varðandi lið 10 verður ekki fullyrt að ákærði hafi þar verið á ferð og nægja fyrirliggjandi sakargögn ekki til sakaráfellis gagnvart honum um það atriði. Er háttsemi ákærða réttilega heimfærð til refsiákvæðis í ákæruskjali.

Um ákærulið X liggur fyrir að strax í kjölfar þess að munir eru taldir hafa horfið af Bergstaðastræti 57, hafði ákærði undir höndum 2 greiðslukort á nafn annars íbúa á nefndum stað. Þá hefur vitnið Gunnar borið um að ákærði hafi sýnt sér Canon EOS myndavél og boðið vitninu til kaups. Einnig bar vitnið um að hafa séð í bakpoka sem ákærði hafi verið með myndavélarlinsu, en umræddir hlutir hurfu frá Bergstaðastræti 57 skömmu fyrr, eins og nánar er lýst hér að framan. Hafði ákærði því undir höndum alla þá muni sem saknað var frá Bergstaðastrætinu skömmu eftir að þeir hurfu. Verður því að telja þegar litið er til allra atvika að eins og hér stendur á teljist það sannað að ákærði hafi stolið umræddum munum, sem taldir eru upp í X lið ákæru. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er þar gefin að sök og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Ákæruliður XII (málanúmer lögreglu 025-2006-02442) Af fyrirliggjandi gögnum er ljóst að bifreiðinni PU-507 var stolið þar sem hún stóð við heimili eiganda síns, Fjölnis Ernis Sigvaldasonar, að Drápuhlíð 36, Reykjavík. Liggur ekki ljóst fyrir nákvæmlega hvenær þetta átti sér stað en í málinu liggur fyrir ljósmynd úr eftirlitsmyndavél Spalar í Hvalfjarðargöngum, sem tekin var 15. september klukkan þrjú að morgni. Þann 18. september var tilkynnt um að bifreiðin stæði mannlaus við áhaldahús Húsavíkurbæjar og væru kveikjuláslyklar í henni.

Öll ákærðu viðurkenndu fyrir dómi að hafa farið frá Reykjavík til Húsavíkur á umræddri bifreið, en enginn kannaðist við að hafa tekið hana ófrjálsri hendi, eða að hafa vitað að hún væri stolin. Þá gat enginn ákærðu gert grein fyrir því hver hafi ekið bifreiðinni norður. Aðspurð kváðust þau ekki hafa velt því neitt sérstaklega fyrir sér hvernig bifreiðin var fengin. Ákærði Davíð Þór og ákærða X báru bæði um að ákærði Sigurbjörn Adam hafi komið á bifreiðinni, en þau hafi þá verið stödd hjá bróður X á Bústaðaveginum.

Ekki þykir ástæða til að rekja frekar fjarstæðukenndar skýringar ákærðu á því hvernig þau hafi öll verið sér gersamlega ómeðvituð um það hvaðan umrædd bifreið var upprunnin og hvernig þau hafi ýmist verið sofandi meðan á ökuferðinni stóð, eða hafi ekki velt því sérstaklega fyrir sér hver ætti hana. Verður lagt til grundvallar að ákærðu hafi ekki getað dulist að bifreið sú sem þau fóru saman á var illa fengin og þykir einnig mega leggja til grundvallar að þau hafi staðið saman að verki. Skiptir þá engu, eins og atvik máls þessa liggja fyrir, hver ákærðu tók bifreiðina í upphafi eða hver ók henni í umræddri ökuferð. Var hagnýting ákærðu allra á bifreiðinni með sama hætti og teljast þau því öll sönn að sök í þessum ákærulið og er háttsemi þeirra réttilega heimfærð til refsiákvæðis í ákæruskjali.

Ákæruliður XIII (málanúmer lögreglu 025-2006-02419) Af gögnum málsins má ráða að bifreiðin UK-717, í eigu Bryndísar Guðlaugsdóttur, var tekin ófrjálsri hendi þar sem hún stóð við húsið að Höfðavegi 26, Húsavík, annaðhvort að kvöldi 15. september eða aðfaranótt 16. sama mánaðar. Ákærðu X, Davíð og Sigurbjörn voru á umræddri bifreið þegar þau voru handtekin í kjölfar innbrots sem fjallað er um í ákærulið nr. XIV og þau hafa öll viðurkennt fyrir dómi.

Með sama hætti og um ákærulið XII hafa öll ákærðu viðurkennt að hafa farið með bifreiðinni frá Húsavík og suður um heiðar. Ákærði Davíð Þór taldi þó fyrir dómi að hann hefði komið í bifreiðina á Akureyri en ekki Húsavík. Í lögregluskýrslu af ákærðu X lýsir hún því að hún hafi tekið umrædda bifreið þar sem bifreiðin hafi staðið fyrir utan eitthvað hús, með kveikjuláslyklum í. Hún hafi ekið bifreiðinni stuttan spöl, en þá hafi meðákærða Eydís tekið við akstrinum þar sem hún sé með bílpróf. Fyrir dómi vék ákærða X frá þessum framburði. Ákærða Eydís hefur ekki kannast við að atburðir hafi verið með þessum hætti. Framburður allra ákærðu er með sama marki brenndur um þennan ákærulið og áður sagði um ákærulið nr. XII. Enginn kannast við að hafa tekið bifreiðina, eða hafa vitað að hún hafi verið illa fengin. Þá kannast enginn við að hafa ekið henni eða að vita hver það hafi gert. Bera ákærðu ýmist við minnisleysi eða að þau hafi ekkert verið að velta svona hlutum fyrir sér á leiðinni.

Þykir ekki ástæða til að rekja framburði ákærðu nánar varðandi það hver tók í upphafi umrædda bifreið og hver hafi ekið henni. Verður talið með sama hætti og á grundvelli sömu röksemda og fram koma hér fyrr varðandi ákærulið nr. XII að ákærðu geti ekki með nokkru móti hafa dulist að bifreið sú sem þau nýttu til farar sinnar suður um heiðar hafi verið illa fengin. Verður aðild þeirra, hvers og eins, að töku bifreiðarinnar ekki skilin að og verður lagt til grundvallar að þau hafi sameiginlega tekið hana ófrjálsri hendi og nýtt hana með þeim hætti sem lýst er í þessum lið ákæru. Verða þau því sakfelld fyrir þá háttsemi sem lýst er í þessum lið ákæru og réttilega er heimfærð til refsiákvæðis í ákæruskjali.

Ákæruliður XIV (málanúmer lögreglu 033-2006-08129) Ákærðu hafa öll játað fyrir dómi að hafa átt þátt í því innbroti sem lýst er í greindum ákærulið, en hafa að nokkru gefið misvísandi skýringar á þætti sínum í verknaðinum. Ákærði Sigurbjörn tók þó fram að hann hefði aðeins tekið áfengi þegar hann hafi farið inn í félagsheimilið og gengið síðan með það út, en meðákærði Davíð hafi haft sig mun meira í frammi og tekið aðra þá hluti sem teknir hafi verið. Skýringar ákærða Sigurbjörns á því hver hafi tekið hvað þykja ekki skipta máli varðandi sakfellingu hans og meðákærðu í umrætt sinn. Stóðu ákærðu öll að nefndu innbroti og hafa viðurkennt það skýlaust. Hefur það ekki þýðingu við sakarmat hver tók nákvæmlega hvern þann hlut, sem tekinn var, eða hvort einhver hafði sig þar meira í frammi en annar. Bótakrafa tjónþola vegna þessa nemur 415.000 krónum.

Þykja því fram komnar skýlausar játningar um þennan ákærulið og eru þær í samræmi við sakargögn. Verða ákærðu því sakfelld fyrir þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í þessum lið ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Ákæruliður XV (málanúmer lögreglu 033-2006-08398) Ákærði Sigurbjörn Adam Baldvinsson játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og fallist á upptökukröfu. Samræmist játning hans sakargögnum og verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali. Þá verður honum gert að sæta upptöku á þeim fíkniefnum, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins og nánar greinir í ákæruskjali.

Ákæra 16. nóvember 2006 Ákæruliðir I, II, III, IV og V (málanúmer lögreglu 034-2006-08465 og 034-2006- 08487 og 034-2006-08505) Er fjallað um alla þessa ákærulið í einu lagi, samhengis vegna, þar sem ákærðu Jón Einar og Davíð Þór voru handteknir við tilraun til innbrots að Hafnargötu 1, Vogum, en þeir hafa viðurkennt það brot, sbr. V. lið ákæru, en við leit sem fram fór í bifreið ákærðu Bryndísar og í kjölfarið á heimili hennar, fundust hlutir sem teknir höfðu verið í innbrotum þeim sem um ræðir í ákæruliðum I og III. Á vettvangi við Hafnargötu 1 var bifreið í eigu ákærðu Bryndísar og sat hún þar í henni. Var hún einnig handtekin sem grunuð í umræddu máli. Þá fundust einnig munir úr þessum innbrotum nokkru síðar við húsleit á dvalarstað ákærða Sigurbjörns. Ákærðu Bryndísi er í ákæruliðum II og IV gefin að sök hilming með því að hafa tekið til geymslu í bifreið sinni og heimili hluti sem ákærðu Sigurbjörn Adam og Jón Einar hafi stolið í innbrotum annars vegar að Faxabraut 53, Reykjanesbæ og hins vegar að Vesturhópi 16, Grindvík og fjallað er um í ákæruliðum I og III í ákærunni.

Ákæruliður I, aðdragandi:

Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að tilkynnt hafi verið um innbrot að Faxabraut 53, Reykjanesbæ um eða eftir miðnætti aðfaranótt 12. ágúst. Kemur þar fram að húsið hafi verið skilið eftir mannlaust og ólæst um klukkan 20:30 um kvöldið en laust eftir miðnætti þegar heimilismaður hafi komið í húsið hafi hann veitt því athygli að farið hefði verið inn og verðmæti tekin. Voru taldir upp í skýrslunni þeir hlutir sem heimilismenn söknuðu þá þegar, en eftir þeim var haft að ekki væri um tæmandi lista að ræða. Í málinu liggur fyrir mat húsráðanda að Faxabraut 53, um verðmæti muna, þar á meðal peninga sem teknir hafi verið og er það að fjárhæð 476.803 krónur.

Þá liggur fyrir í málinu að hlutir sem heimilisfólk að Faxabraut 53, endurþekkti sem sína, fundust í bifreið ákærðu Bryndísar og á heimili hennar og einnig fannst I- pod spilari í þeirra eigu á dvalarstað ákærða Sigurbjörns. Þá vísaði ákærða Bryndís lögreglumönnum á hluti, sem faldir höfðu verið undir palli fyrir utan hús við sömu götu. Voru þar á meðal vegabréf íbúa að Faxabraut 53.

Ákæruliður III, aðdragandi:

Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að um hádegi laugardaginn 12. ágúst hafi verið tilkynnt um innbrot í íbúðarhúsið að Vesturhópi 16, Grindavík. Hafi lögreglumenn farið á staðinn og skoðað verksummerki. Hafi rúða við útihurð verið brotin og af aðkomu á vettvangi hafi mátt ráða að farið hefði verið um allt húsið og mikið rótað í öllum skápum og skúffum. Haft var eftir tilkynnanda að nýrri fartölvu hefði verið stolið, videoupptökuvél og einhverjum skartgripum, en að öðru leyti hafi hann ekki getað sagt til um hvort einhverju öðru hefði verið stolið þar sem foreldrar hans, sem byggju í húsinu, væru ekki heima. Þá kemur fram að skömmu fyrir innbrotstilkynninguna hafi verið tilkynnt um þýfi í porti við Fjölbrautarskólann í Keflavík. Hafi lögreglumenn farið þar á staðinn og fundið pillubox merkt íbúa að Vesturhópi 16, tvö myndaalbúm og lyfseðil merktum sama einstaklingi.

Íbúar að Vesturhópi 16, endurþekktu þá muni sem að framan eru taldir sem og nokkra muni sem fundust í bifreið ákærðu Bryndísar við leit, sem og nokkra muni sem fundust á heimili hennar. Þá könnuðust íbúar við giftingarhringasett, en annar hringurinn var tekinn af ákærða Jóni Einari en hinn af ákærðu Bryndísi í kjölfar handtöku. Fartölva sem fannst við húsleit á dvalarstað ákærða Sigurbjörns Adams reyndist vera í eigu heimilismanns að Vesturhópi 16. Munir sem þannig skiluðu sér voru samkvæmt mati eigenda að verðmæti um 200.990 krónur en verðmæti muna sem ekki hafi skilað sér auk kostnaðar vegna skemmda nemi 228.729 krónum.

Ákæruliður V, aðdragandi:

Í frumskýrslu lögreglu greinir að aðfaranótt sunnudagsins 13. ágúst klukkan 02:31 hafi lögreglumenn verið í venjubundnu eftirliti í Vogum. Gáfu vegfarendur sig á tal við lögreglumenn og töldu sig hafa orðið vara við grunsamlegar mannaferðir við Hafnargötu 1, Vogum. Fóru lögreglumenn þangað og stóðu ákærðu Jón Einar og Davíð Þór að verki við innbrot í húsið, eins og þeir hafa viðurkennt. Bifreið ákærðu Bryndísar stóð fyrir utan og sat hún í bifreiðinni. Á vettvangi sást að gluggi hafði verið spenntur upp og farið hafði verið um allt húsið og fjölmargir munir höfðu verið teknir og settir í poka víðs vegar um húsið. Voru þau þrjú handtekin og í kjölfarið úrskurðuð í gæsluvarðhald. Voru þau auk síðastnefnds innbrots grunuð um framangreind innbrot að Faxabraut 53 og Vesturhópi 16, endu fundust, eins og áður greinir, munir úr þeim innbrotum í bifreiðinni og í framhaldi á heimili ákærðu Bryndísar. Þá fundust munir úr innbrotunum nokkru síðar við húsleit á dvalarstað ákærða Sigurbjörns Adams.

Skýrslur af ákærðu og vitnum varðandi framangreinda ákæruliði:

Fyrir dómi viðurkenndi ákærði Jón Einar að hafa komið með þá muni sem fundust á heimili ákærðu Bryndísar heim til hennar. Kvaðst hann hafa fengið umrædda muni hjá einhverjum manni sem hann ekki vildi nafngreina. Ákærði neitaði hins vegar alfarið aðild að þeim innbrotum að Faxabraut 53 og Vesturhópi 16, sem áður er lýst. Ákærði kvaðst á umræddum tíma hafa dvalið á heimili ákærðu Bryndísar og hafa haft afnot af bifreið hennar. Hins vegar taldi hann að fleiri hefðu haft afnot bifreiðarinnar og hann hefði ekki komið með þá hluti sem fundist hafi í bifreiðinn og tengdust framangreindum innbrotum og viti ekki hvernig þeir hafi borist í bifreiðina. Nánar  aðspurður um giftingarhringi sem teknir hafi  verið við yfirheyrslu, annars vegar af honum, en hins vegar af ákærðu Bryndísi, kvaðst hann hafa tekið ýmislegt dót sem í fólk hafi komið með í bifreiðina. Hann gat ekki gefið skýringar á því hvaða fólk væri hér um að ræða. Hann kvaðst hafa verið að fá hluti frá fólki og láta þá af hendi, kaupa og selja. Framburður hans var í heild ruglingslegur og í litlu samhengi. Bar ákærði við minnisleysi um einstaka atburði. Ákærði neitaði einnig við skýrslutöku hjá lögreglu aðild að fyrrnefndum innbrotum.

Ákærði Sigurbjörn Adam neitaði fyrir dómi að hafa tekið þátt í umræddum innbrotum en skýringar hans á atburðarás voru losaralegar og í litlu samhengi. Hafði ákærði einnig neitað sök í skýrslum sínum hjá lögreglu.

Ákærða Bryndís kvaðst fyrir dómi lítið muna af umræddum atburðum. Hún kvað ákærða Jón Einar hafa dvalið á heimili sínu á umræddum tíma og það dót sem fundist hafi á heimili hennar hafi komist þangað fyrir tilstuðlan ákærða Jóns Einars.

Þá kvaðst hún ekki geta vitað hverjir hefðu komið með þá muni í bifreið hennar sem þar hafi fundist. Hún kvaðst einnig ekki hafa á þeim tíma haft ástæðu til að ætla að munir sem ákærði Jón Einar hafi komið með á heimili hennar hafi verið annað en hans persónulegu munir. Kvaðst ákærða lítið muna eftir því tímabili sem um ræðir.

Í skýrslu lögreglu sem tekin var af ákærðu Bryndísi lýsti hún atburðarás með þeim hætti að á föstudagskvöldi 11. ágúst hafi verið hringt í hana og hún beðin um að koma að tilteknu húsi við Faxabraut í Reykjanesbæ. Hafi hún farið þangað og hitt þar fyrir ákærðu Jón Einar og Sigurbjörn. Hafi þeir sett eitthvað dót í bifreið hennar, en áður hafi hún séð þá koma fyrir einhverju dóti undir palli við umrætt hús, sem standi autt. Hafi þau að því loknu farið til Grindavíkur til að heimsækja ættingja ákærðu. Kvað Bryndís þau hafa heimsótt umræddan ættingja og verið þar stutta stund. Hafi þetta verið um klukkan 22 um kvöldið. Mundi hún eftir að þau hafi verið þar öll saman og síðan muni hún að þau hafi ekið brott frá Grindavík og taldi hún að eftir það hefði hún farið heim að sofa. Hún kvaðst minnast þess að ákærði Jón Einar hafi komið mun síðar inn að sofa en hún og hafi hann gefið henni þá skýringu að hann hafi sofnað úti í bifreiðinni, en Jón Einar mun hafa dvalið á heimili hennar á þessum tíma. Umrædd skýrsla var tekin upp á mynddisk sem liggur fyrir í málinu og hefur dómari horft á upptökuna.

Jóhannes Albert Kristbjörnsson, rannsóknarlögreglumaður, gaf vitnaskýrslu í málinu. Lýsti hann því að hann hefði tekið lögregluskýrslu af ákærðu Bryndísi og hafi hann einnig farið með henni á stað við Faxabraut 63, þar sem hún hafi vísað á muni sem tengst hafi innbroti að Faxabraut 53. Hafi munirnir verið undir palli þannig að ógjörningur hafi verið að finna þá ef menn hafi ekki vitað af þeim. Kvað vitnið sig hafa farið á þennan stað með ákærðu Bryndísi eftir að hún hafi viðurkennt í skýrslutöku að hafa náð í ákærðu Jón Einar og Sigurbjörn á umræddan stað á föstudagskvöldið. Kvaðst vitnið einnig hafa komið að leit í bifreið ákærðu Bryndísar og á heimili hennar. Kom og fram að vitnið taldi að sumt af þeim munum sem fundist hafi á heimili Bryndísar hafi verið þannig að talist gætu persónulegir munir en einnig hafi verið þarna hlutir sem ekki gat dulist að væru þýfi. Vitnið staðfesti skýrslur sem það hafði gert í málinu.

Niðurstaða varðandi ákæruliði I og III.

Fyrir liggur í málinu að innbrot að Faxabraut 53 átti sér stað föstudagskvöldið 11. ágúst, en innbrot að Vesturhópi 16, síðar sömu nótt. Þá liggur fyrir að kvöldið eftir þegar ákærðu Jón Einar, Bryndís og Davíð Þór voru handtekin við innbrotstilraun í Vogum voru hlutir úr nefndum fyrri innbrotum í bifreiðinni og jafnframt voru þau Jón Einar og Bryndís með hvort sinn giftingarhringinn sem stolið hafði verið í Grindavík. Ákærða Bryndís bar fyrir lögreglu að hún hefði farið til Grindavíkur umrætt kvöld ásamt ákærðu Jóni Einari og Sigurbirni, eftir að hafa náð í þau í nágrenni við húsið að Faxabraut 53. Að ábendingu ákærðu Bryndísar fundust munir við nánar tilgreint hús sem tengdust heimilismönnum að Faxabraut 53. Þá er þess getið í skýrslum að bifreið ákærðu Bryndísar hafi sést á eftirlitsmyndavél við Fjölbrautarskóla Suðurnesja aðfaranótt 12. ágúst og sést hafi að einhverju dóti hafi verið kastað úr bifreiðinni. Þegar dótið var skoðað mun hafa komið í ljós að um hafi verið að ræða muni úr innbroti í Vesturhóp 16. Nánar tilgreindir munir sem teknir voru á báðum þessum stöðum fundust á dvalarstað ákærða Sigurbjörns nokkru síðar.

Þegar gögn málsins eru virt í samhengi og með tillti til framburðar ákærðu Bryndísar fyrir lögreglu, sem fær stoð í öðrum gögnum málsins, verður að telja fram komna sönnun þess að ákærðu Jón Einar Randversson og Sigurbjörn Adam Baldvinsson hafi gerst sekir um þá háttsemi sem lýst er í þessum liðum ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Niðurstaða varðandi ákæruliði II og IV Ákærða Bryndís hefur fyrir dómi borið að hún hafi talið að munir sem hafi fundist á heimili hennar og í bifreið hennar hafi komið frá ákærða Jóni Einari og henni hafi ekki verið ljóst að um þýfi hafi verið að ræða. Með vísan til þess sem að framan greinir um aðdraganda handtöku ákærðu og skýringar sem hún gaf fyrir lögreglu verður að telja að henni hafi ekki getað dulist og umræddir munir sem fundust á heimili hennar og í bifreið hennar hafi verið illa fengnir. Verður hún því sakfelld fyrir þá háttsemi sem greinir í greindum töluliðum ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Niðurstaða varðandi ákærulið V Ákærðu Jón Einar og Davíð Þór játuðu skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í nefndum ákærulið og samræmast játningar þeirra sakargögnum. Verða þeir því sakfelldir fyrir þá háttsemi sem í ákæru greinir og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Ákæruliður VI (málanúmer lögreglu 034-2006-08505) Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og hefur fallist á upptökukröfu. Samræmist játning hennar sakargögnum og verður hún því sakfelld fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali. Þá verður henni gert að sæta upptöku á fíknefnum sem fundust í fórum hennar í greint sinn og lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákæruliður VII (málanúmer lögreglu 034-2006-09426) Ákærði Davíð Þór Gunnarsson játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og samræmist játning hans sakargögnum. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali.

Ákæruliður VIII (málanúmer lögreglu 034-2006-09406) Ákærði Sigurbjörn neitaði fyrir dómi að hafa valdið þeim eignaspjöllum og hafa framið þann þjófnað sem þessi ákæruliður tekur til. Ekki eru í málinu nein þau gögn sem sakfelling verður byggð á og ekkert vitni var leitt fyrir dóminn af ákæruvaldsins hálfu um þetta atriði. Verður ákærði því sýknaður af þeirri háttsemi sem honum er hér gefin að sök.

Ákæruliður IX (málanúmer lögreglu 034-2006-09406) Ákærði Davíð Þór hefur staðfastlega neitað sök varðandi þennan ákærulið.

Fyrir dóm komu tvö vitni, Róbert Ólafur Ólafsson og Friðgerður Auðunsdóttir. Staðfestu þau bæði að ákærði Davíð Þór hefði verið sá maður sem notaði á umræddum tíma þau greiðslukort sem í ákæru greinir til að taka út vörur í Fitjagrilli, en vitnin eru bæði starfsmenn á nefndum veitingastað. Fór fram fyrir lögreglu myndsakbending og þekktu vitnin þar bæði ákærða Davíð Þór sem manninn sem notað hafi greiðslukortin í umrætt sinn og staðfestu vitnin þetta fyrir dómi. Liggur fyrir í gögnum málsins að umrædd greiðslukort voru notuð á umræddum tíma og teknar af þeim þær fjárhæðir sem í ákæru greinir. Með vísan til framanritaðs verður ákærði Davíð Þór sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í nefndum ákærulið og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæðis.

Ákæruliður X (málanúmer lögreglu 034-2006-08873) Ákærði Jón Einar Randversson játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og samræmist játning hans sakargögnum. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali.

Ákæruliður XI (málanúmer lögreglu 034-2006-08804) Ákærði Jón Einar Randversson játaði fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ofangreindum ákærulið en vildi taka fram að einungis hefði verið um að ræða 6.000 krónur í peningum en ekki 10.000 krónur, eins og í ákæru greini og að hann hafi verið einn að verki. Samræmist játning hans að öðru leyti sakargögnum.

Ákærði Davíð Þór Gunnarsson hefur hins vegar neitað sök. Meðákærði Jón Einar bar fyrir dómi, eins og áður segir, að hann hefði staðið einn að verki í umrætt sinn. Aðspurður um framburð vitnis í lögregluskýrslu um að vitnið hefði séð hann fara út ásamt meðákærða Davíð Þór og að þeir hafi komið saman til baka og þá haldið á peningaskáp, sem tekinn hafi verið í umræddu innbroti, kvað hann Davíð Þór ekki hafa farið með sér en hann hafi hitt Davíð þegar hann hafi verið að bera peningaskápinn inn á dvalarstað sinn og hafi Davíð hjálpað honum að bera skápinn inn. Kvaðst Jón Einar hafa staðið einn að því að opna skápinn.

Ekki voru leidd nein vitni af ákæruvaldsins hálfu um þennan ákærulið. Verður því ekki talið að komin sé fram sönnun fyrir dómi um sekt meðákærða Davíðs Þórs gegn eindreginni neitun hans, sem einnig er studd af framburði meðákærða.

Þá verður talið að eins og sönnunarfærslu ákæruvaldsins er háttað verði ekki lagt til grundvallar að ákærði Jón Einar hafi tekið peninga að hærri fjárhæð en hann viðurkennir sjálfur. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í þessum ákærulið að því frátöldu að aðeins verður talið að auk annarra muna sem greinir í ákæru hafi verið um 6.000 krónur í peningum að ræða.

Ákæruliður XII (málanmúmer lögreglu 034-2006-08804) Ákærði Jón Einar Randversson játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og samræmist játning hans sakargögnum. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæðis í ákæruskjali.

Ákæruliður XIII (málanúmer lögreglu 034-2006-08804) Ákærða X játaði skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ofangreindum ákærulið og samræmist játning hennar sakargögnum. Verður hún því sakfelld fyrir þá háttsemi og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæruskjali. Þá hefur ákærða fallist á kröfu um upptöku á fíknefnum sem fundust í fórum hennar í greint sinn og lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákæra 28. nóvember 2006 Ákærði Davíð Þór neitaði því fyrir dómi að hafa framið þann þjófnað sem honum er gefinn að sök í fyrri lið ákærunnar. Viðurkenndi hann þó að hafa verið á umræddum stað og tíma ásamt meðákærða Sigurbirni og að hann hafi verið meðvitaður um það hvað meðákærði hafi verið að gera. Sigurbjörn hafi gengið út úr verslun með poka sem í hafi verið einhver föt. Þá hafi komið einhverjir öryggisverðir, sem sagt hafi þeim að koma með sér. Pokinn hafi fundist, það hafi orðið slagsmál og síðan hafi lögregla komið.

Ákærði Sigurbjörn viðurkenndi að hafa verið sá sem labbaði út úr versluninni með umræddan poka og að í honum hafi verið eitthvað sem meðákærði Davíð Þór hafi verið búinn að tína saman. Kvaðst hann ekki hafa stolið þessu en aðeins labbað með pokann út.

Fyrir lögreglu játuðu báðir ákærðu aðild sína að umræddum þjófnaði. Ekki voru leidd fyrir dóminn vitni að umræddri atburðarás. Af framburði ákærðu verður hins vegar ekki annað ráðið en þeir hafi báðir verið þarna saman á ferð og gert sér grein fyrir að vörur sem í umræddum poka hafi verið hafi verið stolnar. Dugar þeim ekki í þessu sambandi að vísa hvor á annan, um það hver hafi tínt vörurnar saman í poka, og verða þeir sakfelldir fyrir að hafa staðið saman að þeim verknaði sem þeim er gefinn að sök í fyrri lið ákæru og er háttsemi þeirra rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæruskjali.

Ákærði Sigurbjörn viðurkenndi þá háttsemi sem honum er gefin að sök í síðari lið nefndrar ákæru, en gaf þá skýringu að hann hefði verið að svara fyrir sig. Hann hefði verið sleginn og hafi slegið til baka. Verður hann því sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefin að sök í nefndum lið ákæru og er hún réttilega heimfærð til refsiákvæðis. Þar sem ekki voru leidd af ákæruvaldsins hálfu vitni að umræddum atburði verður hins vegar við refsiákvörðun lagt til grundvallar að umrædd árás ákærða hafi átt sér þann aðdraganda sem hann lýsir sjálfur.

III

Ákærði Davíð Þór Gunnarsson er 18 ára gamall og samkvæmt sakavottorði, fékk hann dóm þann 15. febrúar 2006 fyrir þjófnað og brot á lögum um ávana- og fíknefni, en ákvörðun refsingar hans var þar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þann 6. júní sama ár var hann dæmdur fyrir fjölmörg brot og dæmdur til 9 mánaða fangelsis, en fullnustu sex mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Var refsing samkvæmt fyrrnefnda dómnum þar ákveðin með. Af sakavottorði má ráða að þann 29. nóvember sl. hafi ákærði lokið afplánun óskilorðsbundna hluta refsingar samkvæmt dóminum. Nú síðast var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir þjófnað og brot á lögum um ávana- og fíkniefni þann 29. september 2006, en við þá refsiákvörðun var fyrrnefndur skilorsdómur látinn halda sér.

Ákærði Davíð hefur samkvæmt því sem að framan greinir verið sakfelldur í máli þessu fyrir sex þjófnaðarbrot og tvær tilraunir til slíkra brota, einu sinni fyrir ölvunarakstur og í þrígang fyrir akstur án ökréttar. Þá hefur hann verið sakfelldur fyrir nytjastuld fjórum sinnum og einnig fyrir eitt fjársvikabrot. Í sex framangreindra tilvika hefur hann framið brot sín í félagi við aðra. Hann hefur hins vegar verið sýknaður af ákæru um umboðssvik í eitt skipti og þjófnað í tvígang.

Með brotum sínum nú hefur ákærði rofið skilorð dóms frá 6. júní 2006 og ber því í samræmi við ákvæði 60. gr almennra hegningarlaga að taka upp skilorðsbundinn hluta refsingar samkvæmt þeim dómi og dæma hann með refsingu ákærða nú í samræmi við reglur 77. gr. almennra hegningarlaga.

Brot ákærða eru mörg og framin á tiltölulega stuttu tímabili og sýna einbeittan brotavilja hans. Er þetta virt honum til refsiþyngingar sbr.5. og 6. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Virt verður honum til mildunar refsingar að hann er ungur að árum en að öðru leyti á hann sér ekki málsbætur. Ákærði framdi mörg þeirra brota sem um ræðir í samvinnu við aðra ákærðu og hefur það áhrif til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Með hliðsjón af brotaferli ákærða og fjölda þeirra brota sem hann nú er sakfelldur fyrir þykja engin efni til, þrátt fyrir ungan aldur hans, að skilorðsbinda þá refsingu. Gæsluvarðhald ákærða sem hann sætti vegna rannsóknar þeirra mála sem hér er dæmt um, frá 14. til 16. ágúst og 21. september til 10. nóvember 2006, kemur til frádráttar dæmdri refsingu.

Ákærði hefur samkvæmt því sem nánar greinir hér að framan gerst sekur ölvunarakstur og verður því sviptur ökurétti í 8 mánuði frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, sbr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Ákærði Sigurbjörn Adam Baldvinsson var 20 ára gamall þegar hann framdi þau brot sem hér er um dæmt. Samkvæmt sakavottorði hans var ákæru á hendur honum frestað skilorðsbundið í 2 ár árið 2002 hjá sýslumanninum á Akranesi vegna nytjastuldar og aksturs án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Árið 2003 var hann dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára fyrir þjófnað. Á árinu 2006 fékk hann þrjá dóma. Þann 9. mars var hann dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands til þriggja mánaða fangelsisvistar og var refsingin bundin skilorði til þriggja ára, vegna þjófnaðar, eignaspjalla, brota á lögum um ávana- og fíkniefni og brota á umferðarlögum með því að aka ítrekað bifreið án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Var hann vegna síðastgreindra brota á umferðarlögum dæmdur til greiðslu 50.000 króna í sekt. Þá var hann 20. nóvember dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár vegna brots á 233. gr. almennra hegningarlaga og nú síðast 5. desember í Héraðsdómi Reykjavíkur í 4 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir nytjastuld og akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Var í síðastnefndum dómi dæmt upp skilorð dóms frá 9. mars, en ekki er þar getið um dóm frá 20. nóvember. Í seinni dómi Héraðsdóms Suðurlands er ekki getið dómsins frá 9. mars og því ljóst að hann hafði ekki áhrif á refsiákvörðun dómara í því máli. Báðir þessir dómar eru kveðnir upp eftir að ákærði framdi þau brot sem hann er sakfelldur fyrir í máli þessu. Hefur hann því ekki rofið skilorð þeirra. Hins vegar ber að dæma báða þessa dóma upp í samræmi við ákvæði 60. gr. almennra hegningarlaga og dæma refsingu í einu lagi með hliðsjón af 77. gr. og að sínu leyti einnig 78. gr. sömu laga.

Ákærði Sigurbjörn Adam hefur samkvæmt því sem að framan greinir verið sakfelldur í máli þessu fyrir sex þjófnaðarbrot og í fjórum tilvikum eru brotin framin í félagi við aðra ákærðu. Í fjórum tilvikum er um þjófnað að ræða þar sem ákærði hefur farið inn á heimili fólks og látið þar greipar sópa. Þá hefur hann verið sakfelldur fyrir að hafa í tvígang í félagi við aðra framið nytjastuld og í eitt skipti fyrir brot á umferðarlögum með akstri bifreiðar án ökuréttar. Loks var hann einnig sakfelldur fyrir fjársvik í eitt skipti og fyrir vörslur fíkniefna í annað. Hann hefur hins vegar verið sýknaður af ákæru um þjófnað og eignaspjöll í eitt skipti.

Brot ákærða eru mörg og framin á tímabilinu 10. ágúst til 22. september sl. Ákærði hefur ótrauður haldið áfram brotastarfsemi sinni þrátt fyrir ítrekuð afskipti lögreglu af honum og ber það vitni um einbeittan brotavilja hans. Hefur hann í fjórgang farið inn á heimili fólks og stolið þaðan hlutum og valdið skemmdum, sem að mati tjónþola nema ríflega 1.800.000 krónum, auk þess óhagræðis og andlegra óþæginda sem telja má að slík brot valdi þeim sem fyrir þeim verða. Er framangreint virt honum til refsiþyngingar sbr. 5. og 6. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, en ákærði á sér engar málsbætur. Ákærði framdi mörg þeirra brota sem um ræðir í samvinnu við aðra ákærðu og hefur það áhrif til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Verður honum ákveðin refsing í einu lagi, með hliðsjón af því sem hér síðast er rakið, í samræmi við ákvæði framangreindrar 77. gr. almennra hegningarlaga, að teknu tilliti til refsiákvörðunar þeirra tveggja fyrri dóma hans sem fyrr er vísað til, og þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Með hliðsjón af brotaferli ákærða, fjölda þeirra brota sem hann nú er sakfelldur fyrir og hve alvarleg þau verða að teljast, þykja engin efni til að skilorðsbinda þá refsingu. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 21. september til 8. desember 2006, að fullri dagatölu. Ákærði verður og dæmdur til að sæta upptöku á fíkniefnum í samræmi við kröfu ákæruvalds þar um eins og greinir í dómsorði.

Ákærði Jón Einar Randversson er 24 ára og á að baki nokkurn sakarferil. Hefur hann frá árinu 1998 fengið fimm dóma fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá hefur í tvígang gengist undir viðurlagaákvörðun um greiðslu sektar vegna brota á sömu lagabálkum. Þá hefur hann þrisvar gengist undir sektargreiðslur hjá lögreglu, í tvígang vegna brota á umferðarlögum en einu sinni vegna þjófnaðar og brota á lögum um ávana- og fíkniefni. Þann 23. nóvember sl. var ákærði dæmdur í fangelsi í 14 mánuði í Héraðsdómi Reykjaness, fyrir tvær líkamsárásir, þjófnað, tilraun til þjófnaðar í tvígang, fjársvik, brot á lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa í vörslum sínum fíkniefni í þrjú skipti og brot á umferðarlögum með því að aka bifreið í þrígang sviptur ökurétti og einu sinni ölvaður, með 1,28‰ ethanóls í blóði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt frá 5. ágúst 2008 að telja. Taldist ákærði með brotum sínum þá hafa rofið skilorð níu mánaða dóms sem hann fékk 26. júlí 2005, vegna þjófnaðar, nytjastuldar og meiri háttar líkamsárásar, auk brota á umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni, og var sá dómur því dæmdur upp.

Brot þau sem ákærði er hér sakfelldur fyrir eru framin á tímabilinu 11. til 22. ágúst sl. og eru því framin fyrir uppkvaðningu síðastnefnds dóms frá 23. nóvember sl. og verður honum því ákvarðaður hegningarauki í samræmi við reglur 78. gr. almennra hegningarlaga og hliðsjón höfð af 77. gr. sömu laga. Hefur ákærði verið fundinn sekur í þessu máli um fjögur þjófnaðarbrot og eina tilraun til þjófnaðar, í þremur tilvikum hefur hann verið í félagi við aðra ákærðu, en virða verður það til þyngingar refsingu sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði hefur ekki látið skipast við refsingar og hefur á stuttu tímabili gerst sekur um þjófnaði sem í þremur tilvikum felast í því að fara inn á heimili fólks og stela þar umtalsverðum verðmætum og valda þar tjóni sem ekki verður að öllu leyti bætt með fé. Verður framangreint virt ákærða til refsiþyngingar, sbr. 5. og 6. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði á sér ekki málsbætur og með hliðsjón af sakarferli hans og þess sem að framan getur, þykir refsing hans nú hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Til frádráttar dæmdri refsingu kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti við rannsókn þeirra mála sem hér er um dæmt, frá 14. til 16. ágúst 2006.

Ákærða X hefur ekki áður hlotið refsingu svo kunnugt sé en hún var sextán ára þegar hún framdi brot sín. Hefur hún í samræmi við framangreint verið sakfelld fyrir hilmingu, nytjastuld í tvígang og þjófnað í öllum tilvikum í félagi við aðra ákærðu, en það leiðir til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá hefur hún einnig verið sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa haft í vörslun sínum 14,4 g af kannabisefni. Með vísan til 4. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga verður horft til ungs aldur hennar og eins til þess að upplýst er í málinu að hún hefur leitað aðstoðar við fíkniefnavanda sínum og hefur frá því í septemberlok sl. dvalið á vegum Barnaverndarstofu á meðferðarheimilinu að Háholti í Skagafirði. Að sögn forstöðumanns heimilisins hafi hún þar stundað nám með góðum árangri og hafi áunnið sér það traust að til standi að hún fari utan til Danmerkur til að stunda þar nám í lýðháskóla. Standi til að hún fari þangað fyrst til reynslu til 30. júní nk. Þykir í ljósi þessa mega líta til 2. tl. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar, en aldur ákærðu leiðir einnig til refsimildunar, sbr. 4. tl. 1.mgr. 70. gr. sömu laga. Með hliðsjón af framangreindu og í samræmi við ákvæði 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Í ljósi þess sem að framan er rakið um hagi ákærðu nú, aldurs hennar og þess að hún hefur ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi verður fullnustu refsingarinnar frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærða skal sæta upptöku á fíkniefnum eins og krafist er í ákæru og nánar greinir í dómsorði.

Ákærða Eydís Berglind Baldvinsdóttir er 18 ára og hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Hún hefur hér að framan verið sakfelld fyrir að hafa í félagi við aðra ákærðu framið nytjastuld í tvígang. Verður við ákvörðun refsingar horft til ungs aldurs hennar til refsimildunar sbr. 4. tl. 70. gr. almennra hegningarlaga en til refsiþyngingar verður að hafa í huga að hún framdi verknaðinn í félagi við aðra sbr. 2. mgr. sama lagaákvæðis. Þegar þetta er virt og í samræmi við ákvæði 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð. Með hliðsjón af ungum aldri hennar og að hún hefur ekki áður gerst sek um refsiverðan verknað þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond er 22 ára og hefur ekki sætt refsingu áður svo kunnugt sé. Hún hefur samkvæmt framansögðu verið sakfelld fyrir hilmingu í tvígang og fyrir vörslur 0,74 g af amfetamíni. Við ákvörðun refsingar er litið til þess að brot ákærðu er framið í tengslum við veru ákærða Jóns Einars á heimili hennar um stuttan tíma. Hins vegar eru þau brot sem tengjast hilmingu ákærðu alvarleg. Ákærða kveðst hafa hætt fíkniefnaneyslu í kjölfar þessara atburða og í málinu liggur fyrir vottorð um dvöl hennar á áfangaheimilinu Dyngjunni frá 31. október sl. Þá kveður ákærða að hún stundi nú nám í hárgreiðslu með góðum árangri og starfi sem hárgreiðslunemi á hárgreiðslustofunni Rauðhettu og úlfinum. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærðu nú hæfilega ákveðin með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga fangelsi í einn mánuð og þykja efni til að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærðu verður gert að þola upptöku fíkniefna í samræmi við kröfu í ákæru eins og nánar greinir í dómsorði.

IV.

Skaðabótakröfur í málinu eru allar vanreifaðar og því ekki unnt að leggja á þær dóm á grundvelli fyrirliggjandi gagna, enda umfang málsins slíkt að ekki vannst tóm til að flytja málið um þær sérstaklega eins og nauðsynlegt hefði verið og þykir af þeim sökum ekki annað fært en að vísa þeim frá dómi.

Á grundvelli sakfellinga ákærðu ber samkvæmt 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála að dæma þau til greiðslu sakarkostnaðar. Af hálfu ákæruvaldsins hefur þess ekki verið gætt að leggja fyrir dóminn yfirlit sakarkostnaðar eins og skylt er samkvæmt 2. mgr. 168. gr. sömu laga. Hefur dómari því farið yfir sakargögn og tekið saman þann kostnað sem samkvæmt þeim hefur orðið til við rannsókn málsins.

Ákærða Davíð Þór Gunnarssyni verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem er á rannsóknarstigi samtals að fjárhæð 131.446 krónur. Er þar um að ræða í fyrsta lagi kostnað vegna blóðrannsóknar að fjárhæð 22.892 krónur vegna ákæruliðar nr. II í ákæru 7. nóvember, í öðru lagi þóknun tilnefnds verjanda ákærða, Hilmars Ingimundarsonar hrl., vegna ákæruliða nr.  V, VII og VIII í sömu ákæru samtals að fjárhæð 41.324 krónur, í þriðja lagi þóknun tilnefnds verjanda ákærða, Óskars Sigurðssonar hrl., vegna ákæruliðar nr. XIV í sömu ákæru að fjárhæð 33.615 krónur og loks í fjórða lagi þóknun tilnefnds verjanda ákærða, Hilmars Ingimundarsonar hrl., vegna ákæruliðar VII í ákæru 16. nóvemer að fjárhæð 33.615 krónur. Reikningar vegna þessa liggja fyrir í málinu og bera með sér að hafa verið sendir til greiðslu. Þá verður honum gert að greiða verjendaþóknun og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin samtals 622.500 krónur.

Ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni verður gert að greiða allan sakarkostnað, sem á rannsóknarstigi er réttargæsluþóknun Hilmars Ingimundarsonar hrl. að fjárhæð 65.736 krónur og kostnaður við öflun áverkavottorðs vegna ákæru 28. nóvember að fjárhæð 8.000 krónur, eða samtals 73. 736 krónur. Þá verður honum gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Arnar Clausen hæstaréttarlögmanns, 373.500 krónur.

Ákærða Jóni Einari Randverssyni verður gert að greiða allan sakarkostnað, sem er annars vegar þóknun skipaðs verjanda hans, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar héraðsdómslögmanns, á rannsóknarstigi og hins vegar málsvarnarlaun sama verjanda vegna meðferðar málsins fyrir dómi, sem þykir hæfilega ákveðin samtals 498.000 krónur.

Ákærðu Bryndísi G. Bond verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins, sem er þóknun skipaðs verjanda hennar, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar héraðsdómslögmanns, á rannsóknarstigi og málsvarnarlaun sama verjanda vegna meðferðar málsins fyrir dómi sem þykir hæfilega ákveðinn samtals 186.750 krónur.

Ákærðu X verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins, sem eru málsvarnarlaun skipaðs verjanda hennar, Sveins Andra Sveinssonar hæstréttarlögmanns, 186.750 krónur.

Ákærðu Eydísi Berglindi Baldvinsdóttur verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins, sem eru málsvarnarlaun skipaðs verjanda hennar, Sveins Andra Sveinssonar hæstréttarlögmanns, 186.750 krónur.

Halldór Björnsson, settur héraðsdómari kveður upp dóminn.

D ó m s o r ð :

Ákærði Davíð Þór Gunnarsson sæti fangelsi í 15 mánuði, en til frádráttar komi að fullri dagatölu gæsluvarðahald sem hann sætti frá 14. til 16. ágúst og 21. september til 10. nóvember 2006.

Ákærði Sigurbjörn Adam Baldvinsson sæti fangelsi í 18 mánuði, en til frádráttar komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem hann sætti frá 21. september til 8. desember 2006.

Ákærði Jón Einar Randversson sæti fangelsi í 6 mánuði, en til frádráttar refsingunni komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 14. til 16. ágúst 2006.

Ákærða X sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða Eydís Berglind Baldvinsdóttir sæti fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond sæti fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði Davíð er sviptur ökurétti í 8 mánuði frá uppkvaðningu dómsins að telja.

Ákærði Sigurbjörn sæti upptöku á 4,95 g. af kannabisefni og 0,35 g. af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Ákærða X sæti upptöku á 14,4 g. af kannabisefni.

Ákærða Bryndís sæti upptöku á 0,74 g. af amfetamíni.

Skaðabótakröfum á hendur ákærðu er vísað frá dómi.

Ákærði Davíð greiði sakarkostnað sem leiddi af málinu 131.446 krónur, sem og verjendaþóknun og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 622.500 krónur.

Ákærði Sigurbjörn greiði sakarkostnað sem leiddi af málinu 73.736 krónur, sem og þóknun Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns 65.736 krónur og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Arnar Clausen hæstaréttarlögmanns, 373.500 krónur.

Ákærði Jón Einar greiði þóknun og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar héraðsdómslögmanns 498.000 krónur.

Ákærða X greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 186.750 krónur.

Ákærða Eydís greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Sveins Andra Sveinssonar hæstaréttarlögmanns, 186.750 krónur.

Ákærða Bryndís greiði þóknun og málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Vilhjálms H. Vilhjálmssonar héraðsdómslögmanns, 186.750 krónur.

Halldór Björnsson