Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 12. júlí 2007.
Mál nr. S-64/2007:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson ftr)
gegn
Davíð Þór Gunnarssyni,
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Andra Frey Hólm, Jóni Einari Randverssyni,
(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl)
Sigurbirni Adam Baldvinssyni,
(Guðjón Ægir Sigurjónsson hrl)
Bryndísi Gwenhwfyar Bond, Pétri Inga Péturssyni,
(Ásbjörn Jónsson hdl)
Ívari Aroni Hill Ævarssyni, Stefáni Blackburn,
(Guðmundur Birgir Ólafsson hrl)
Jónu Björk Jóhannsdóttur,
(Róbert Árni Hreiðarsson hdl)
Pétri Áskeli Svavarssyni, Ágúsi Má Sigurðssyni og
(Kristján Stefánsson hrl)
Birgi Rúnari Benediktssyni
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð
Rán. Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni. Þjófnaður.
Útdráttur
Sakfellt fyrir mörg og ítrekuð brot á 244. gr. og 4 brot á 252. gr. almennra hegningarlaga auk brota á 248. gr. sömu laga og brotum á lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.
Málið er með ákæru útgefinni 31. janúar 2007, höfðað gegn Davíð Þór Gunnarsssyni, kennitala 000000-0000, Heiðarhvammi 3f, Keflavík, Andra Frey Hólm, kennitala 000000-0000, Vættaborg 8, Reykjavík, Jóni Einari Randverssyni, kennitala 000000-0000, Barðastöðum 23, Reykjavík, Sigurbirni Adam Baldvinssyni, kennitala 000000-0000, Háaleiti 37, Keflavík, Bryndísi Gwenhwfyar Bond, kennitala 000000-0000, Furuvöllum 16, Hafnarfirði, og Pétri Inga Péturssyni, kennitala 000000-0000, Norðurvöllum 56, Keflavík, fyrir eftirtalin refsilagabrot.
I.
Á hendur ákærðu Davíð Þór Gunnarssyni og Andra Frey Hólm fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt sunnudags 6. mars 2005 staðið saman að því, ásamt þriðja aðila, að taka bifreiðina TL-849 í heimildarleysi þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Laugaveg 3 í Varmahlíð, Skagafirði og gegn ákærða Andra Frey fyrir að aka bifreiðinni án ökuréttar frá Varmahlíð til Akureyrar. ( M. nr. 024-2005-00913) Telst brot beggja ákærðu varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 sbr. lög nr. 20, 1956 og umferðarlagabrot ákærða Andra Freys að auki við 1. mgr. 48. gr. sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
II.
Á hendur ákærðu Davíð Þór Gunnarssyni og Andra Frey Hólm fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt sunnudags 6. mars 2005 brotist í félagi inn í bifreiðarnar KH- 498 og UT-285 sem stóðu á bifreiðastæði vestan við Geislagötu 9, Akureyri og stolið úr þeim einni kippu af bjór, 0.5 lítra, 4 stykkjum af Breezer, myndavél af tegund Canon, sem var í serstakri myndavélartösku, ásamt þremur linsum og leifturljósi og bakpoka sem í var fatnaður, en verðmæti myndavélabúnaðarins er um 300.000 krónur. ( M. nr. 024-2005-00913) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
III.
Á hendur ákærðu Davíð Þór Gunnarssyni og Andra Frey Hólm fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa á sama tíma og getið er í ákærulið II. Í þjófnaðarskyni reynt að brjótast inn í verslunina Esju, Norðurgötu 8, Akureyri, en innbrotstilraunin var stöðvuð af lögreglu eftir að nágrannar höfðu tilkynnt um hana. ( M. nr. 024-2005-00913) Telst þetta varða við 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
IV.
Á hendur ákærða Jóni Einari Randverssyni fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreiðum sviptur ökurétti um götur í Reykjavík á árinu 2006 svo sem hér er rakið:
A. Bifreiðinni MG 730 aðfaranótt fimmtudags 10. ágúst um Suðurlandsbraut uns lögregla stöðvaði aksturinn á móts við Suðurlandsbraut 4. (M. nr. 010-2006-39527) B. Bifreiðinni VA 741 að kvöldi föstudagsins 18. ágúst um Lækjargötu. ( M. nr. 010-2006-40359) Teljast framangreind brot varða við 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 1. gr. laga nr. 48, 1997.
V.
Á hendur ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt 23. júlí 2006 stolið IBM fartölvu Thinkpad42, merktri Landsbanka Íslands, skjávarpa af tegund Dell nr. CXQP961, eign Línuhönnunar og stafrænni upptökuvél, tegund Panasonic Mini DV, NV-GS11, úr bifreiðinni MX-980 af Toyota Corolla gerð, þar sem bifreiðin stóð á bifreiðastæði við tónlistarhús Ýmis, Skógarhlíð 20, Reykjavík. ( M. nr. 010-2006-35285) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VI.
Á hendur ákærðu Bryndísi G. Bond fyrir hilmingu með því að hafa í júlí 2006 tekið við hjá Sigurbirni Adam Baldvinssyni Dell skjávarpa nr. CXQP961, þýfi úr broti sem ákært er fyrir í lið 2. hér að ofan, til geymslu á heimili sínu, Furuvöllum 16, Hafnarfirði, vitandi .það að um þýfi væri að ræða, og þannig haldið skjávarpanum ólöglega fyrir eiganda sínum.( M. nr. 010-2006-35285) Telst þetta varða við 254. gr almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VII.
Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni og Pétri Inga Péturssyni fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa að morgni 28. maí 2006 brotist inn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Sunnubraut 36, Keflavík, í því skyni að stela þar verðmætum og hafa losað skjávarpa að nokkru leyti af lofti skólastofu í skólanum. (M. nr. 034-2006-5514) Telst þetta varða við 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VIII.
Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni, Sigurbirni Adam Baldvinssyni og Davíð Þór Gunnarssyni fyrir þjófnað með því að hafa 28. júlí 2006 brotist inn í húsið Vesturhús 8, Reykjavík og stolið þar tveimur tölvum, Acer fartölvu og HP tölvu. ( M. nr. 010-2006-36164) Telst þetta varða við 244. gr.almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
IX.
Á hendur áærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir þjófnað með því að hafa í ágúst 2006 stolið fartölvu af Acer gerð, Riffli af gerð Marlin, 22 cal., model 882, raðnr. 0367108, með sjónauka, amerískum veiðihníf og möppu með 36 DVD diskum úr íbúð að Heiðarholti 1d, Keflavík. ( M. nr. 034-2006-9007) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
X.
Á hendur ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir umferðarlagabrot með því að hafa snemma morguns 30. júlí 2006 ekið bifreiðinni YB-339, án þess að hafa ökuréttindi, um Hafnargötu og Vesturgötu í Keflavík þar til bifreiðin stöðvaðist á gangstétt við Smáratún 48, Keflavík. ( M. nr. 034-2006-8010) Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
XII.
Á hendur ákærðu Jóni Einari Randverssyni, Davíð Þór Gunnarssyni, Pétri Inga Péturssyni og Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa að morgni 30. júlí 2006 haft í vörslum sínum í bifreiðinni YB-339 1.36 grömm af amfetamíni er þrír þeir fyrrnefndu voru handteknir af lögreglu, en ökumaður bifreiðarinnar var ákærði Sigurbjörn Adam. ( M. nr. 034-2006-8010) Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 sbr. lög nr. 60, 1980 sbr. lög nr. 13, 1985 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233, 2001.
XIII.
Á hendur ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að kvöldi 25. ágúst 2006 ekið bifreiðinni RB-018, án þess að hafa ökuréttindi, frá eldsneytisstöð ESSO við Hafnargötu í Keflavík norður Hafnargötu og vestur Tjarnargötu þar til hann nam staðar að boði lögreglu við hús nr. 39 við Tjarnargötu. ( M. nr. 034-2006-08979) Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
XIV.
Á hendur ákærða Sigurbirni Adam Baldvinssyni fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að eiga 0.23 grömm af hassi sem fundust við leit lögreglu í íbúð að Háaleiti 37, Keflavík, 25. ágúst 2006. ( M. nr. 034-2006-08979) Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 sbr. lög nr. 60, 1980 sbr. lög nr. 13, 1985 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar.
Þá er þess krafist að dæmt verði að ákærðu samkvæmt lið XII. í ákæru, Jóni Einari Randverssyni, Davíð Þór Gunnarssyni, Pétri Inga Péturssyni og Sigurbirni Adam Baldvinssyni verði gert að sæta upptöku á 1.36 gr. af amfetamíni og að ákærða skv. lið XIV. í ákæru, Sigurbirni Adam Baldvinssyni, verði gert að sæta upptöku á 0.23 gr. af hassi samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233, 2001.
Eftirtalin skaðabótakrafa hefur verið gerð í málinu:
1.Einar Logi Vilhjálmsson gerir þá köfu að ákærðu í lið II. í ákæru, Davíð Þór Gunnarsson og Andri Freyr Hólm, greiði honum skaðabætur kr. 28.975.
Með ákæru útgefinni 22. febrúar 2007 er málið höfðað gegn Davíð Þór Gunnarssyni, kt. 000000-0000, Heiðarhvammi 3f, Keflavík, og Pétri Áskeli Svavarssyni, kt. 000000-0000, Bröttukinn 14, Hafnarfirði fyrir eftirtalin hegningar- og umferðarlagabrot:
I. (007-2007-1018) Á hendur ákærðu báðum, fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 4. janúar 2007, brotist inn í einbýlishúsið að Þinghólsbraut 30 í Kópavogi, með því spenna upp eldhúsglugga á bakhlið hússins og stolið þaðan tveimur dvd-spilurum, annars vegar af gerðinni Matrix og hins vegar Denver, talstöðvarsetti, kvikmyndatökuvél af gerðinni Thomson, hleðslutæki, ferðatösku, sem í var fatnaður, peningakassa og heimabíókerfi, sem ákærðu skildu eftir í forstofu hússins, en hugðust sækja daginn eftir.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II. (007-2007-1018) Á hendur ákærðu báðum, fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 5. janúar 2007, brotist inn í iðnaðarhúsnæðið að Rauðhellu 10 í Hafnarfirði, rými nr. 4, og stolið þaðan sex veggklukkum, samtals að verðmæti um 500.000 krónum, fjarstýrðum bensínbíl að verðmæti um 80.000 krónum, tveimur útvarpsbíltækjum, annars vegar af gerðinni Pioneer og hins vegar JVC, samtals að verðmæti 35.000 krónum, loftverkfærum að verðmæti um 40.000 krónum, magnara af gerðinni VR-3 að verðmæti 25.000 krónum og bilanatölvu að verðmæti 15.000 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
III. (010-2006-46886) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir nytjastuld, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 20. september 2006, tekið bifreiðina RX-350 í heimildarleysi, þar sem hún stóð við hús nr. 21 við Hraunberg í Reykjavík, ekið henni viðsvegar um götur Reykjavíkur, án ökuréttinda, að bifreiðastæði við Háberg þar sem lögregla hafði afskipti af honum.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
IV. (010-2006-61110) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 2. desember 2006, brotist inn í húsnæði söludeildar Odda að Höfðabakka 3 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í útidyrahurð og stolið þaðan fartölvu af gerðinni Gateway að verðmæti 110.375 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
V. (036-2006-14443) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir húsbrot, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 11. desember 2006, ruðst í heimildarleysi inn í bílskur að Álfaskeiði 35 í Hafnarfirði, í því skyni að leita sér þar skjóls.
Telst þetta varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VI. (010-2006-64753) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa, aðfaranótt aðfangadags jóla 2006, í auðgunarskyni brotist inn í bensínafgreiðslu Olís að Álfabakka 7 í Reykjavík, með því að spenna þar upp hurð norðan megin við húsið, en komið var að ákærða, þar sem hann var læstur inní afgreiðslunni.
Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VII. (036-2006-14726) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir gripdeild með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 19. desember 2006, á bensínafgreiðslustöð Essó við Lækjargötu í Hafnarfirði, dælt 43,8 lítrum af eldsneyti á bifreiðina PV-183, að verðmæti 4.936 krónur og ekið á brott án þess að greiða.
Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Kristján Rósinkransson, f.h. Olíufélagsins ehf., kt. 000000-0000, þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 4.936, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
VIII. (007-2007-2181) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir þjófnað með því að hafa þriðjudaginn 9. janúar 2007, brotist inn í neðangreinda sumarbústaði í landi Kambshóls í Svínadal í Hvalfjarðarstrandarhreppi:
a) að Efstaási 1, með því að brjóta rúðu í útidyrahurð og stolið þaðan 6 kílóa slökkvitæki og nokkrum flöskum af áfengi og bjór. (013-2007-234)
b) að Efstaási 3, með því að spenna upp glugga við útidyrahurð og stolið þaðan heimabíókerfi af gerðinni ACE, Playstation leikjatölvu og nokkrum flöskum af áfengi og bjór. (013-2007-235)
c) að Miðási 6, með því að brjóta rúðu í útidyrahurð og stolið þaðan 50 dvdkvikmyndum, dvd-spilara, hljómflutningstækjum, gönguskóm, verkjalyfjum, vasahníf og áfengi. (013-2007-239) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
IX. (007-2007-2609) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir þjófnað með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 12. janúar 2007, brotist inn í hárgreiðslustofuna Hárkó að Hlíðarsmára 11 í Kópavogi, með því að brjóta rúðu í útidyrahurð og stolið þaðan sjóðsvél af gerðinni Sharp Electronic, að verðmæti um 58.000 krónur, sem hafði auk þess að geyma skiptimynt að fjárhæð 24.682 krónur.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
X. (010-2006-58412) Á hendur Pétri Áskeli, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 16. nóvember 2006, ekið bifreiðinni OH-231, sviptur ökurétti og ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja, frá vesturbænum í Reykjavík, uns akstri lauk við gatnamót Hamrahlíðar og Stigahlíðar.
Þetta telst varða við 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
XI. (010-2006-58205) Á hendur Pétri Áskeli, fyrir hylmingu með því að hafa fimmtudaginn 16. nóvember 2006, í bifreiðinni OH-231, haft í vörslum sínum rafhlöðuskrúfvél af gerðinni Hilti og rafmagnsskrúfvél af gerðinni Power craft, samtals að verðmæti um 120.000 krónur, en munum þessum var stolið í innbroti í nýbyggingu að Þrastarhöfða 36 í Mosfellsbæ, þann 15. nóvember 2006.
Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XII. (010-2006-58198) Á hendur Pétri Áskeli, fyrir hylmingu með því að hafa fimmtudaginn 16. nóvember 2006, í bifreiðinni OH-231, haft í vörslum sínum rafhlöðuskrúfvél af gerðinni DeWalt, hæðarmæli af gerðinni Mikrofin, vírklippur og stjörnuskrúfjárn, samtals að verðmæti um 200.000 krónur, en munum þessum var stolið í innbroti í vinnuskúr við Litlakrika 28 í Mosfellsbæ, þann 15. nóvember 2006.
Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XIII. (010-2006-59680) Á hendur ákærða Pétri Áskeli, fyrir þjófnað með því að hafa fimmtudaginn 23. nóvember 2006, brotist inn í einbýlishúsið að Helgalandi 7 í Mosfellsbæ, með því að spenna upp glugga við anddyri hússins og stolið stafrænni Samsung myndvél, rafmagnsgítar af gerðinni Oxter, Philishave rakvél, dvd-spilara af gerðinni Lenco, Sony heimabíokerfi, tveimur reiknivélum, hálsmeni, tveimur töskum og Playstation leikjatölvu.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XIV. (010-2006-65257) Á hendur Pétri Áskeli, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 28. desember 2006, ekið bifreiðinni RF-123, sviptur ökurétti, um Bæjarháls í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði akstur hans.
Þetta telst varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og Pétur Áskell verði jafnframt sviptur ökurétti samkvæmt 101. gr. umferðarlaga nr. 50, 198, sbr. 25. gr. laga nr. 44, 1993.
Með ákæru útgefinni 22. mars 2007 er málið höfðað gegn Davíð Þór Gunnarssyni, kt. 000000-0000, Heiðarhvammi 3f, Keflavík, Sigurbirni Adam Baldvinssyni, kt. 000000-0000,óstaðsettur í hús, Selfoss, Jóni Einari Randverssyni, kt. 000000-0000, Barðarstöðum 23, Reykjavík, Pétri Inga Péturssyni, kt. 000000-0000, Norðurvöllum 56, Keflavík, Ívari Aron Hill Ævarssyni, kt. 000000-0000, Stapagötu 20, Njarðvík, Stefáni Blackburn, kt. 000000-0000, Langholtsvegi 48, Reykjavík, og Jónu Björk Jóhannsdóttur, kt. 000000-0000, Hólavegi 63, Siglufirði, fyrir eftirtalin brot:
I. (034-2006-7979) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir þjófnað með því að hafa laugardaginn 29. júlí 2006, farið inn í hópferðabifreið Kynnisferða hf., þar sem hún stóð við bláa lónið við Svartsengi í Grindavík, og stolið þaðan peningaveski, armbandsúri, bakpoka, verkjalyfjum, sjónauka, tveimur 100 dollara seðlum, atvinnukafaraskírteini, eyrnalokkum, myndavél af gerðinni Nikon auk víðlinsu, neðansjávarmyndavél af gerðinni Nikonus, handtölvuorðabók, silfurarmbandi, Mastercard greiðslukorti, iPod-spilara auk hleðslutækis, sólgleraugum, sjóngleraugum og áfengisflösku, samtals að verðmæti um 390.860 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II. (034-2006-7979) Á hendur ákærðu Davíð Þór, Sigurbirni Adam, Jóni Einari og Pétri Inga, fyrir fjarsvik, með því að hafa í sameiningu laugardaginn 29. og sunnudaginn 30. júlí 2006, svikið út vörur í neðangreindum verslunum, samtals að fjárhæð 87.496 krónur, með því að framvísa ofangreindu greiðslukorti Catherinu Goldring og þannig heimildarlaust látið skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar hjá Mastercard:
Kl. 10:46, Gallerí 17, Kringlunni, Reykjavík, kr. 34.970 Kl. 14:54, Skífan, Kringlunni, Reykjavík, kr. 5.999 Kl. 15:16, Hagkaup, Kringlunni, reykjavík, kr. 2.548 Kl. 16:43, Exodus, Hverfisgötu 20, Reykjavík, kr. 26.000 Kl. 17:28, Jack and Jones, Smáralind, Kópavogi, kr. 14.980 Kl. 17:52, BT, Smáralind, Kópavogi, kr. 999 Kl. 00:31, Keiluhöllin Öskjuhlíð, Reykjavík, kr. 2.000 Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
III. (010-2006-43574) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 25. ágúst 2006, í verslun Hagkaupa í Kringlunni í Reykjavík, stolið tveimur nærbuxum og einu pari af sokkum, samtals að verðmæti 3.797 krónum, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Svanur Sigurðsson þá kröfu, f.h. Hagkaupa hf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 2.499, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
IV. (010-2006-45815) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir þjófnað, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 14. september 2006, í verslun 11-11 að Laugavegi 116 í Reykjavík, stolið skyrdós, kókómjólk og þremur pörum af sokkum, samtals að verðmæti 720 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
V. (034-2006-13037) Á hendur ákærða Davíð Þór, fyrir nytjastuld, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 19. desember 2006, tekið bifreiðina PV-183 til eigin nota í heimildarleysi, þar sem hún stóð við Hamragarð 2 í Keflavík, ekið henni til Reykjavíkur, þar sem lögreglan hafði afskipti af honum.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
VI. (010-2006-46886) Á hendur ákærða Davíð Þór og Sigurbirni Adam, fyrir nytjastuld, með því að hafa í félagi aðfaranótt miðvikudagsins 20. september 2006, tekið bifreiðina RX-350 til eigin nota í heimildarleysi, þar sem hún stóð við hús nr. 21 við Hraunberg í Reykjavík, ekið henni viðsvegar um götur Reykjavíkur, að bifreiðastæði við Háberg þar sem lögregla hafði afskipti af þeim.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956.
VII. (034-2005-10059) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa þriðjudaginn 11. október 2005, við Iðavelli í Keflavík, reynt að stela hjólbörðum undan bifreið, þar sem hún stóð við baklóð húss nr. 10, en komið var að ákærða þar sem hann var að losa rær af felgu bifreiðarinnar.
Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VIII. (035-2006-9360) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 11. ágúst 2006, ekið bifreiðinni LS-223, undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæfur til að stjórna henni örugglega vestur Reykjanesbraut við Vogaveg og án ökuréttinda, uns lögregla stöðvaði akstur hans við Grímshól. Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.
IX. (010-2006-64366) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir þjófnað með því að hafa fimmtudaginn 21. desember 2006, brotist inn í kjallaraíbúð að Grettisgötu 57b í Reykjavík, með því spenna upp opnanlegt gluggafag við inngang hússins, og stolið þaðan fartölvu af gerðinni Dell, tölvudisk og tónjafnara af gerðinni M-Audio.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
X. (010-2006-64331) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir þjófnað með því að hafa fimmtudaginn 21. desember 2006, brotist inn í kjallaraíbúð að Barónstíg 16 í Reykjavík, með því spenna upp glugga á suðurhlið hússins, og stolið þaðan HP fartölvu að verðmæti 130.000 krónum, Nokia farsíma að verðmæti 17.000 krónum, ullarjakka og peningakassa, með 15.000 krónum í reiðufé.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Áróra Gústafsdóttir, þá kröfu f.h. Stefáns Más Þorsteinssonar, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð 69.200 krónur XI. (034-2006-13296) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir þjófnað með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 27. desember 2006, brotist inn í íbúðarhúsnæðið að Faxabraut 37a í Keflavík, með því að spenna upp glugga í þvottahúsi, og stolið þaðan iPod-spilara, Motorola farsíma og skartgripum, samtals að verðmæti um 350.000 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XII. (034-2006-13303) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 28. desember 2006, haft í vörslum sínum 0,58 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit í bifreiðinni PI-923.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XIII. (007-2007-5849) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir þjófnað með því að hafa laugardaginn 27. janúar 2007, brotist inn í íbúðarhúsnæðið að Bragagötu 29a í Reykjavík, með því að spenna upp glugga við inngang hússins, og stolið þaðan iPod-spilara að verðmæti 30.000 krónum, Ibook fartölvu að verðmæti 100.000 krónum, DVD- spilara að verðmæti 10.000 krónum, stafrænni myndavél af gerðinni Sony að verðmæti 40.000 krónum og vísakorti.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XIV. (007-2007-5622) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir nytjastuld, með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 26. janúar 2007, tekið bifreiðina LK-438 í heimildarleysi, þar sem hún stóð við hús nr. 38 við Engjaveg á Selfossi, ekið henni, án ökuréttinda, suður til Reykjavíkur, þar sem lögreglan hafði afskipti af honum við Asparfell í Reykjavík.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
XV. (007-2007-5766) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir hylmingu, með því að hafa að morgni laugardagsins 27. janúar 2007, haft í vörslum sínum farsíma af gerðinni Nokia, þrátt fyrir að vita að um þjófstolinn mun var að ræða, en símanum var stolið úr innbroti í húsnæði að Giljaseli 4 í Reykjavík fyrr um nóttina.
Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XVI. (024-2007-659) Á hendur ákærða Sigurbirni Adam, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 29. janúar 2007, haft í vörslum sínum 2,15 g af amfetamíni, sem lögregla fann við líkamsleit á honum í fangaklefa á lögreglustöðinni á Akureyri.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XVII. (007-2007-5740) Á hendur ákærðu Sigurbirni Adam og Ívari Aron, fyrir nytjastuld, með því að hafa í félagi að morgni laugardagsins 27. janúar 2007, í heimildarleysi tekið bifreiðina KX-999 til eigin nota og ekið henni úr Kópavogi áleiðis til Keflavíkur, uns lögregla stöðvaði akstur þeirra við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956.
XVIII. (024-2007-667) Á hendur ákærðu Sigurbirni Adam og Ívari Aron, fyrir þjófnað með því að hafa, í félagi, aðfaranótt mánudagsins 29. janúar 2007, brotist inn í einbýlishúsið að Fosslandi 3, í landi Eyrarlands í Eyjafjarðarsveit, með því spenna upp krossviðarspjald í glugga á austurhlið hússins og farið þar inn og stolið þaðan bláu kúbeini.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XIX. (024-2007-667) Á hendur ákærðu Sigurbirni Adam og Ívari Aron, fyrir þjófnað með því að hafa, í félagi, aðfaranótt mánudagsins 29. janúar 2007, brotist inn í einbýlishúsið að Fosslandi 5, í landi Eyrarlands í Eyjafjarðarsveit, með því spenna upp, með ofangreindu kúbeini, glugga í sambyggðum bílskúr hússins, og stolið þaðan 20” LCD flatskjá, 4 vélhjólahjálmum, leðurgalla af gerðinni Polaris, snjógalla af gerðinni Reima, snjósleðatösku, GPS-staðsetningartæki, tveimur myndavél, annars vegar af gerðinni Olympus og hins vegar Samsung, tölvu, auk tölvubúnaðar, heimabíókerfi af gerðinni Sony, tölvuprentara af gerðinni Canon, skartgripatösku, Bang og Olufsen heyrnatólum, leðurbuxum, 15” flatskjá af gerðinni Samsung, og ullarteppi.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XX. (024-2007-661) Á hendur ákærða Ívari Aron og Sigurbirni Adam, fyrir nytjastuld, með því að hafa í félagi aðfaranótt mánudagsins 29. janúar 2007, tekið bifreiðina KO-596 til eigin nota í heimildarleysi, þar sem hún stóð á hlaðinu fyrir utan bæinn Samtún í Hörgárbyggð í Glæsibæjarhreppi og ekið henni viðsvegar um Eyjafjarðarsveit, uns lögregla hafði afskipti af þeim á Akureyri um hádegisbilið umræddan dag.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956.
XXI. (024-2007-688) Á hendur ákærðu Sigurbirni Adam og Ívari Aron, fyrir þjófnað með því að hafa, í félagi, að kvöldi þriðjudagsins 30. janúar 2007, brotist inn í einbýlishúsið að Hamragerði 10 á Akureyri, með því spenna upp glugga á suðurhlið hússins og stolið þaðan flatskjá fyrir tölvu, fartölvu af gerðinni Sony, farsíma af gerðinni Nokia og hleðslutæki fyrir Nokia síma.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXII. (008-2007-2912) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, fimmtudaginn 30. nóvember 2006, í húsi við Suðurgötu 29 í Keflavík átt 1,98 g af hassi, sem lögregla fann við húsleit, haft í vörslum sínum 1,52 g af amfetamíni, sem lögregla fann við líkamsleit á honum.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XXIII. (034-2006-13261) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 27. desember 2006, við samkomuhúsið Stapann í Njarðvík, haft í vörslum sínum 1,52 g af amfetamíni, sem lögregla fann við líkamsleit á honum.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XXIV. (034-2006-13363) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, föstudaginn 29. desember 2006, haft í vörslum sínum 25 stykki af vímuefninu LSD, sem lögregla fann við leit á honum í húsi nr. 37 við Háleiti í Keflavík.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XXV. (010-2006-5740) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir þjófnað með því að hafa að morgni laugardagsins 27. janúar 2007, farið inn í bifreiðina OP-566, þar sem hún stóð við Desjakór 10 í Kópavogi, og stolið þaðan einkennisjakka lögreglu, lögregluhúfu, leðurhönskum, kortaveski með ökuskírteini og greiðslukorti og tækjabelti lögreglu, með táragasi, handjárnum, hnífi og tveimur vasaljósum, samtals að verðmæti 67.475 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXVI. (007-2007-5849) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir fjársvik, með því að hafa sunnudaginn 28. og mánudaginn 29. janúar 2007, svikið út vörur í neðangreindum verslunum, samtals að fjárhæð 203.699 krónur, með því að framvísa vísakorti Eyglóar Margrétar Lárusdóttur og þannig heimildarlaust látið skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar nr. 4507-4500-0037-8437 hjá Vísa:
| Dagsetning | Tími | Söluaðili, staður, | Upphæð, kr. |
|---|---|---|---|
| 28.01.2007 | 10:29 | Hyrnan Veitingar, Borgarnesi, | 5.360,00 |
| 28.01.2001 | 10:48 | Baula, Borgarnesi, | 6.990,00 |
| 28.01.2007 | 11:33 | Staðarskáli, Hrútarfirði, | 2.280,00 |
| 28.01.2007 | 11:51 | Staðarskáli, Hrútarfirði | 5.900,00 |
| 28.01.2007 | 13:30 | K.S. Varmahlíð, Skagafirði | 8.768,00 |
| 28.01.2007 | 13:34 | K.S. Varmahlíð, Skagafirði | 7.240,00 |
| 28.01.2007 | 15:54 | Tiger Island, Akureyri | 4.400,00 |
| 28.01.2007 | 16:12 | Nætursalan, Akureyri, | 14.200,00 |
| 28.01.2007 | 16:42 | Leirunesti, Akureyri, | 9.730,00 |
| 28.01.2007 | 16:57 | Bifreiðastöð Oddeyrar, Akureyri, | 13.400,00 |
| 28.01.2007 | 17:42 | Penninn, Akureyri, | 16.515,00 |
| 28.01.2007 | 18:03 | Samkaup, Akureyri, | 12.184,00 |
| 28.01.2007 | 16:26 | Videobarinn, Akureyri, | 1.964,00 |
| 28.01.2007 | 18:37 | 10-11, Akureyri, | 10.000,00 |
| 28.01.2007 | 18:41 | Bónusvideo, Akureyri, | 7.190,00 |
| 28.01.2007 | 19:31 | Olíufélagið, Leiruvegi, Akureyri, | 5.594,00 |
| 28.01.2007 | 19:34 | Leirunesti, Akureyri, | 7.580,00 |
| 28.01.2007 | 21:08 | Jón Sprettur, Viðjalundi, Akureyri, 9.930,00 | |
| 28.01.2007 | 21:57 | Kaffi Amor, Akureyri, | 15.000,00 |
| 28.01.2007 | 22:13 | Leirunesti, Akureyri, | 7.290,00 |
| 29.01.2007 | 00:43 | Kaffi Amor, Akureyri, | 21.000,00 |
| 29.01.2007 | 02:40 | 10-11, Akureyri, | 11.184,00 |
Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gera neðangreindir aðilar skaðabótakröfu á hendur ákærða:
- Halla Hafbergsdóttir, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Samkaups Hyrnunnar, kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 5.360, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Kristberg Jónsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Langholts ehf. Kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 6.990, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Kristinn Guðmundsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Staðarskála, kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 8.180, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Pétur H Stefánsson, kt. 000000-0000 gerir þá kröfu f.h. Kaupfélags Skagfirðinga, kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 16.008, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Guðný Ketilsdóttir, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Tiger ehf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 4.400.
- Bragi Elfsen, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Elfsen ehf., kt. 000000- 0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 14.200, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Markús Gústafsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Netten, kt. 000000- 0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 24.600, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Ásdís Björk Ásmundsdóttir, kt. 000000-0000 gerir þá kröfu f.h. Bifreiðastöðvar Oddeyrar, kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 13.400, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Helgi Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. HP-veitinga ehf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 9.930, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Sævar Freyr Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Pennans hf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 36.515, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Hallur Geir Heiðarsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Samkaupa hf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 12.184, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Sigurður Óli Sveinsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. 10-11 hf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 21.184, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Róbert Ólafsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Bónusvídeós ehf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 7.190, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Kjartan Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Olíufélagið ehf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 5.594, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Hafrún Elma Símonardóttir, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Kaffi Amor ehf., kt. 000000-0000, að ákærði verði dæmdur til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 36.000, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XXVII. (024-2007-659) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir stórfelld eignaspjöll, með því að hafa aðfaranótt 29. janúar 2007 borið eld að sumarbústað í landi Höskuldsstaða í Eyjarfjarðarsveit , með þeim afleiðingum að eldhús- og baðinnrétting, innanhússpanell, gólfefni, einangrun, raflagnir og burðarvirki hússins stórskemmdust.
Telst þetta varða við 2.mgr. 257.gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXVIII. (024-2007-661) Á hendur ákærða Ívari Aron, fyrir umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 29. janúar 2007, ekið bifreiðinni KO-596, undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæfur til að stjórna henni örugglega vestur Tryggvabraut á Akureyri og án ökuréttinda, að húsi nr. 3, þar sem lögregla hafði afskipti af honum og á sama tíma haft í vörslum sínum 1,84 g af amfetamíni, sem lögregla fann við líkamsleit.
Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006, og 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
XXIX. (007-2007-5849) Á hendur ákærða Jónu Björk, fyrir fjársvik, með því að hafa sunnudaginn 28. og mánudaginn 29. janúar 2007, í fimm skipti svikið út vörur í neðangreindum verslunum, samtals að fjárhæð 56.718 krónur, með því að framvísa vísakorti Eyglóar Margrétar Lárusdóttur og þannig heimildarlaust látið skuldfæra andvirði varanna á greiðslukortareikning hennar nr. 4507-4500-0037-8437 hjá Vísa:
| Dagsetning | Tími | Söluaðili, staður, | Upphæð, kr. |
|---|---|---|---|
| 28.01.2007 | 17:10 | Skeljungur, Hörgárbraut, Akureyri, 13.510,00 | |
| 28.01.2007 | 20:36 | Plaza, Akureyri, | 1.540,00 |
| 28.01.2007 | 22:16 | Olíufélagið, Leiruvegi, Akureyri, | 15.420,00 |
| 29.01.2007 | 02:15 | Samkaup, Akureyri, | 17.092,00 |
| 29.01.2007 | 02:20 | Samkaup, Akureyri, | 9.156,00 |
Telst þetta varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í máli þessu gera neðangreindir aðilar skaðabótakröfu á hendur ákærðu:
- Helgi Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. HP-veitinga ehf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 13.510, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Bragi Elfsen, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Elfsen ehf., kt. 000000- 0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 1.520, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Kjartan Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Olíufélagið ehf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 15.420, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
- Hallur Geir Heiðarsson, kt. 000000-0000, gerir þá kröfu f.h. Samkaupa hf., kt. 000000-0000, að ákærða verði dæmd til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 26.248, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
XXX. (007-2007-5766) Á hendur ákærða Ívari Aron og Jónu Björk, fyrir nytjastuld, með því að hafa í félagi sunnudaginn 28. janúar 2007, í heimildarleysi tekið bifreiðina JZ-979 til eigin nota og ekið henni frá Reykjavík til Akureyrar.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956.
XXXI. (024-2007-688) Á hendur ákærðu Ívari Aron, Jónu Björk og Sigurbirni Adam, fyrir nytjastuld, með því að hafa í félagi að kvöldi mánudagsins 30. janúar 2007, tekið bifreiðina SB-525 til eigin nota í heimildarleysi, þar sem hún stóð við Hamragerði 10 á Akureyri og ekið henni áleiðis til Reykjavíkur, en lögreglan stöðvaði akstur þeirra við Varmahlíð í Skagafirði.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956.
XXXII. (024-2007-669) Á hendur ákærðu Sigurbirni Adam, Jónu Björk og Ívari Aron, fyrir þjófnað með því að hafa, í félagi, að kvöldi þriðjudagsins 30. janúar 2007, farið inn í íbúðarhúsið að Kotárgerði 8 á Akureyri og stolið þaðan svörtum frakka, fingravettlingum, kveikjara og Salem sígarettum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXXIII. (010-2006-60501) Á hendur ákærðu Jóni Einari, Stefáni og Ívari Aron, fyrir tilraun til þjófnaðar, að morgni miðvikudagsins 29. nóvember 2006, um kl. 07:30, með því að Jón Einar og Stefán fóru inn í afgreiðslu Landsbankans, að Kletthálsi 1 í Reykjavík, þar sem þeir, í auðgunarskyni, veltu út hraðbanka að verðmæti 1.500.000 krónum, sem innihélt 3.941.000 krónu í reiðufé, og svo allir þrír í sameiningu reynt að koma hraðbankanum á pallbifreiðina BU-173, sem meðákærða Jóna Björk ók.
Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Í málinu gerir Valgeir Valgeirsson þá kröfu, f.h. Landsbankans hf., kt. 000000- 0000, að ákærðu Jón Einar og Stefán, verði dæmdir til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 207.800.
XXXIV. (010-2006-60501) Á hendur ákærðu, Jónu Björk, fyrir hlutdeild í framangreindu broti (liður XXXIII) með því að hafa, veitt meðákærðu, Jóni Einari, Stefáni og Ívari Aron, liðsinni sitt í verki, með því að aka þeim að afgreiðslu Landsbankans að Kletthálsi 1, vitandi um fyrirætlanir þeirra um að stela ofangreindum hraðbanka.
Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXXV. (010-2006-30522) Á hendur ákærða Jóni Einari, fyrir hylmingu, með því að hafa sunnudaginn 25. júní 2006, haft í vörslum sínum fartölvu af gerðinni Hewlett Packard, þrátt fyrir að vita að um þjófstolinn mun var að ræða, en tölvunni var stolið í innbroti í húsnæði BYKO að Skemmuvegi 2 í Kópavogi 17. mars 2006.
Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXXVI. (010-2006-57832) Á hendur ákærða Jóni Einari, fyrir tilraun til þjófnaðar með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 13. nóvember 2006, í auðgunarskyni brotist inn í bensínafgreiðslu Olís að Ánanausti í Reykjavík, með því að brjóta glugga á afturhlið húsnæðisins og skriðið þar inn, en komið var að ákærða á vettvangi Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXXVII. (010-2006-64753) Á hendur ákærða Jóni Einari, fyrir þjófnað með því að hafa, aðfaranótt aðfangadags jóla 2006, um kl. 03:30, brotist inn í bensínafgreiðslu Olís að Álfabakka 7 í Reykjavík, með því að spenna upp hurð á norðurhlið hússins og stolið þaðan símakortum að verðmæti 161.500 krónum Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXXVIII. (010-2006-64771) Á hendur ákærða Jóni Einari, fyrir þjófnað með því að hafa, aðfaranótt aðfangadags jóla 2006, um kl. 04:00, brotist inn í húsnæði bílasölunnar Plansins að Vatnagörðum 38 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í útidyrahurð, og stolið þaðan fartölvu af gerðinni Dell, HP-flatskjá og stafrænni myndavél af gerðinni Canon, samtals að verðmæti um 200.000 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XXXIX. (010-2006-64774) Á hendur ákærða Jóni Einari, fyrir þjófnað með því að hafa, að morgni aðfangadags jóla 2006, um kl. 07:00, brotist inn í skrifstofuhúsnæði BM Vallá að Bíldshöfða 7 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu á norðurhlið hússins, og stolið þaðan flatskjá af gerðinni Dell að verðmæti um 30.00 krónum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
XL. (007-2007-3125) Á hendur ákærða Stefáni, fyrir nytjastuld, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 14. janúar 2007, tekið bifreiðina YK-328 til eigin nota í heimildarleysi og ekið henni, án ökuréttinda, frá Reykjanesbraut við Mjódd í Reykavík að heimili sínu að Langholtsvegi 48, þar sem hann skildi eftir bifreiðina.
Telst þetta varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. lög nr. 20, 1956 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.
XLI. (024-2007-660) Á hendur ákærða Stefáni, fyrir þjófnað með því að hafa, að kvöldi 28. janúar 2007, í söluturninum Nætursölunni að Strandgötu 6 á Akureyri, stolið farsíma af gerðinni Sony-Ericson, með því að taka símann, þar sem hann lá á borði, og ganga með hann út úr söluturninum.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og að ákærðu Davíð Þór og Sigurbjörn Adam verði jafnframt sviptur ökurétti samkvæmt 101. gr. umferðarlaga nr. 50, 198, sbr. 25. gr. laga nr. 44, 1993, og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
Með ákæru útgefinni 29. mars er málið höfðað gegn Davíð Þór Gunnarssyni, kennitala 000000-0000, Heiðarhvammi 3f, Reykjanesbæ, fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa að morgni fimmtudagsins 10. ágúst 2006 fyrir framan Fosshótel við Rauðarárstíg 18 í Reykjavík, slegið lögreglumanninn Hlyn Stein Þorvaldsson, sem þar var við skyldustörf, með krepptum hnefa hægra megin í andlitið með þeim afleiðingum að Hlynur Steinn hlaut 3x2 cm mar á kinnbein, mar á efra augnlok og hrufl og mar yfir gagnaugabeini.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 101/1976 og lög nr. 82/1998.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Með ákæru útgefinni 17. apríl 2007 er málið höfða gegn Ágústi Má Sigurðssyni, kennitala 000000-0000, Lækjamótum 15, Sandgerði, Ívari Aroni Hill Ævarssyni, kennitala 000000-0000, Stapagötu 20, Reykjanesbæ og Stefáni Blackburn, kennitala 000000-0000, Langholtsvegi 48, Reykjavík, fyrir eftirtalin ránsbrot framin í Reykjavík í október 2006:
A Gegn ákærðu Ágústi Má og Ívari Aroni með því að hafa, um klukkan hálf sjö, að morgni laugardagsins 28. október:
Veist að Einari Rúnari Magnússyni, fæddum 1978, fyrir utan skemmtistaðinn Óðal í Austurstræti, og beitt hann ofbeldi með því að ákærði Ágúst Már skallaði Einar Rúnar í höfuðið og ákærði Ívar Aron sló hann í andlitið með krepptum hnefa, í þeim tilgangi að ná af honum fjármunum en ákærðu kröfðu Einar um peninga sem hann hafði ekki handbæra. Ákærðu neyddu Einar Rúnar því næst til að fara í hraðbanka Landsbankans í Austurstræti þar sem þeir skipuðu honum að taka út reiðufé en er það tókst ekki tóku ákærðu af honum GSM farsíma af gerðinni Motorola sem þeir höfðu á brott með sér.
B Gegn ákærðu öllum með því að hafa, um klukkan sex að morgni þriðjudagsins 31. október, eftir að hafa í félagi tekið ákvörðun um að fremja rán:
- Veist að Arnþóri Loga Arnarsyni á Brúnavegi við Kleifarveg, og krafið hann um peninga, en áður hafði ákærði Ívar slegið hann í höfuðið og ákærði Stefán hótað honum lífláti. Ákærðu höfðu á brott með sér GSM farsíma af gerðinni Nokia í eigu Arnþórs Loga.
- Veist að Halldóri Bjarka Ipsen við Hjallaland, skammt austan við Hörgsland, ákærði Ívar hótað honum lífláti og skipað honum að afhenda þeim veski sitt, en áður hafði ákærði Ívar slegið Halldór í andlitið og rifið í hálsmál hans og ákærði Stefán sparkað í bak hans. Við þetta hlaut Halldór Bjarki rispur á hálsi og roða á vinstri vanga. Ákærðu höfðu á brott með sér GSM farsíma af gerðinni Sony Ericsson í eigu Halldórs.
Brot ákærðu teljast varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.
Arnþór Logi Arnarson, kennitala 000000-0000, krefst skaðabóta úr hendi ákærðu að fjárhæð kr. 6.197.
Halldór Bjarki Ipsen, kennitala 000000-0000, krefst miskabóta úr hendi ákærðu að fjárhæð kr. 500.000 auk vaxta samkvæmt 16. gr. skaðabótalaga frá 31. október 2006 til 1. mars 2007 en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags auk lögmannsþóknunar kr. 62.250 krónur með virðisaukaskatti.
Með ákæru útgefinni 17. apríl 2007 er málið höfðað gegn Birgi Rúnari Benediktssyni, kennitala 000000-0000, Básbryggju 51, Reykjavík, Emil Frey Júlíussyni, kennitala 000000-0000, Háeyrarvöllum 20, Eyrabakka og Stefáni Blackburn, kennitala 000000-0000, Langholtsvegi 48, Reykjavík, fyrir rán með því að hafa um klukkan 02:40 aðfaranótt sunnudagsins 25. mars 2007, eftir að hafa í félagi tekið ákvörðun um að fremja rán, farið inn í verslunina 10-11 við Setberg í Hafnarfirði, ákærðu Emil Freyr og Stefán með andlit sín hulin og vopnaðir dúkahnífum sem ákærði Emil beindi að starfsmanni verslunarinnar, Mjölni Gunnarssyni, fæddum 1988 og ákærði Stefán að félaga Mjölnis, Eysteini Halldóri Einarssyni, fæddum 1991, sem var að aðstoða Mjölni í versluninni, auk þes sem ákærði Stefán hótaði að skera Eystein Halldór á háls. Ákærðu kröfðu starfsmenn verslunarinnar um peninga og með ógnandi framkomu neyddu þeir Mjölni og Pétur Þór Haraldsson, fæddum 1986, til að opna tvo peningakassa verslunarinnar, og tóku ákærðu Birgir Rúnar og Emil Freyr samtals kr. 41.000 úr kössunum sem ákærðu höfðu á brott með sér, auk fimm vindlingapakka og þriggja DVD mynddiska.
Brot ákærðu telst varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.
Með ákæru útgefinni 24. apríl 2007 er málið höfðað gegn Bryndísi Gwenhwfvar Bond, kt. 000000-0000, Furuvöllum 16, Hafnarfirði, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, fimmtudaginn 31. ágúst 2006, ekið bifreiðinni MG-730 undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæf til að stjórna henni örugglega suður Reykjanesbraut við Hvassahraun.
Telst brot ákærðu varða við 3. mgr. 5. gr. og 1. og 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66,2006.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66,2006.
Með ákæru útgefinni 27. apríl s.l. gegn Sigurbirni Adam Baldvinssyni, kt. 000000- 0000, Óstaðsettur í hús, Selfoss I. (010-2006-35285) fyrir hylmingu, með því að hafa í ágústmánuði 2006 haft í vörslum sínum á heimili móður sinnar að Háaleiti 37 í Keflavík, stafræna kvikmyndatökuvél af gerðinni Panasonic, að verðmæti 50.000 krónur, og fartölvu af gerðinni IBM Thinkpad42, að verðmæti 300.000 krónur, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða, en myndavélinni og tölvunni var stolið þann 23. júlí 2006 úr bifreiðinni MX-980, þar sem hún stóð við tónlistarhús Ýmis að Skógarhlíð 20 í Reykjavík.
Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II. (010-2006-35285) fyrir hylmingu, með því að hafa 25. ágúst 2006 haft í vörslum sínum á heimili móður sinnar að Háaleiti 37 í Keflavík, fartölvu af gerðinni Acer að verðmæti um 130.000 krónur, 22 cal. riffil, með sjónauka, af gerðinni Marlin að verðmæti 50.000 krónur, veiðihníf og möppu með 36 DVD diskum, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða, en munum þessum var stolið þann 30. júlí 2006 úr íbúð að Heiðarholti 1d í Keflavík.
Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Framangreind mál voru sameinuð undir málanúmerið S64/2007 og eftir þingfestingu þeirra hafa þessar breytingar verið gerðar á ákærunum.
Í þinghaldi 23. apríl s.l. féll ákærandi frá ákærulið á hendur ákærða Pétri Inga í XII. lið ákæru merkt dskj. nr. 2. Í þinghaldi 27. apríl s.l. afturkallaði ákæruvaldið V. og IX. ákærulið í ákæru merkt dskj. nr. 2. Í sama þinghaldi var gerð sú breyting á ákæru merkt dskj. nr. 13, að fallið er frá kröfu um refsingu vegna aksturs undir áhrifum slævandi lyfja, svo sem gerð var krafa um í X. lið ákærunnar. Þá var lögð fram nr. 78, ný ákæra á hendur ákærða Sigurbirni og hún leiðrétt þannig, að bætt var við hana refsikröfu. Í þinghaldi 23. maí s.l. féll ákærandi frá VIII. og X. ákærulið eingöngu gagnvart Davíð Þór. Þá afturkallaði ákæruvaldið II. ákærulið í ákæru merkt dskj .rn .28, eingöngu gagnvart ákærða Sigurbirni Adam. Ennfremur voru afturkallaðir XII, XVI,, XVIII. og XXI. ákæruliður sömu ákæru gagnvart ákærða Sigurbirni Adam og XXXII. ákærulið sömu ákæru gagnvart ákærðu Jónu Björk.
I. Í málinu hafa ákærður játað sök sem hér segir:
Ákærður Davíð Þór hefur játað sök í 1.-3. ákærulið ákæru merkt dskj. nr. 2, ákæruliðum 5-9 í sömu ákæru merkt dskj. nr. 13 og 1. og 3.-5. ákæruliðum í ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærður Andri Freyr játaði sök um þá verknaði sem hann er sakaður um í I-III. ákæruliðum ákæru merkt dskj. nr. 2.
Ákærður Jón Einar játaði sök um IV. og VII. liði ákæru merkt dskj. nr. 2 og um XXXIII., XXXV.-XXXIX. ákærulið merkt dskj. nr. 28.
Ákærður Sigurbjörn Adam játar sök um þá verknaði sem lýst er í XIII. lið ákæru dómskj. nr. 2 og um verknaði sem lýst er í VII., XI. og XXXI. lið ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærða Bryndís hefur játað sök um þá verknaði sem hún er sökuð um í VI. lið ákæru merkt dskj. nr. 2 og svo um umferðarlagabrot það sem hún er sökuð um í ákæru merkt dskj. nr. 94.
Ákærður Pétur Ingi hefur játað sök um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í II. lið ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærður Ívar Aron játaði sök um verknaði sem lýst er í liðum 21,22,23,24,25 og 28 í ákæru merkt dskj. nr. 8.
Ákærður Pétur Áskell hefur játað sök um þá verknaði sem lýst er í liðum I,XI, XIII og XIV í ákæru merkt dskj. nr. 13.
Ákærða Jóna Björk játar sök um þá verknaði sem lýst er í XXIX. og XXX og XXXI lið ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærður Stefán Brackburn hefur viðurkennt að hafa framið þá verknaði sem hann er sakaður um í liðum XXXIII, XL og XLI í ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærði Birgir Rúnar og Emil hafa báðir játað sök að því er varðar þátt þeirra í verknaðinum sem lýst er í ákæru merkt dskj. nr. 87.
Með játaninu ákærðu, sem er í samræmi við rannsóknargögn málsins er nægilega sannað að þeir hafa gerst sekir um verknaði sem vísað er til hér að framan og rétt eru færðir til refsiákvæða í tilvitnuðum ákæruskjölum og er málið að þessu leyti dæmt samkv. heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.
II. Kröfur ákærðu við aðalmeðferð málsins.
Í málinu er þessar kröfur gerðar af hálfu ákærðu.
.
Ákærður Davíð Þór hefur gert þessar kröfur 1. að hann verði sýknaður af I., II. og VI. ákærulið ákæru merkt dskj. nr. 13, af II. og VI. ákærulið í dskj. nr. 69.
- Að hann hljóti vægustu refsingu er lög leyfa.
- Gæsuvarðhald ákærða frá 12. janúar 2007 komi til frádráttar refsingu.
- Bótakröfum að því er hann varðar verði vísað frá dómi.
- Sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði, það með talin hæfilega málsvarnarlaun til skipaðs verjanda hans Hilmars Ingimundarsonar hrl..
Af hálfu ákærða Andra Freys er gerð krafa um vægustu refsingu er lög leyfa og verði hún skilorðsbundin. Bótakröfum Einars Loga Vilhjálmssonar verði vísað frá dómi og sakarkostnaður er hann varðar verði greiddur úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun til skipaðs verjanda hans Hilmars Ingimundarsonar hrl. Af hálfu ákærða Jóns Einars er krafist sýknu af VIII. lið ákæru merkt dskj. nr. 2 og af I. lið ákæru merkt dskj. nr. 28, en að öðru leyti er krafist vægustu refsingar og að gæsluvarðhald komi til frádráttar henni. Þá er þess krafist að bótakröfunni á hendur honum verði hafnað og skipuðum verjanda hans Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. verði tildæmd hæfileg málsvarnarlaun.
Af hálfu ákærða Sigurbjörn Adams er krafist sýknu af þeim ákæruliðum, þar sem hann neitaði sök, en ella er krafist vægustu refsingar. Þá er krafist hæfilegra málsvarnarlauna til skipaðs verhanda hans Guðjón Ægis Sigurjónssonar hrl. sbr. framlagt yfirlit.
Ákærða Bryndís krefst vægustu refsingar sem lög frekast leyfa og verði hún skilorðsbundin. Þá er krafist hæfilegra málsvarnarlauna og þóknunar vegna verjandastarfa á rannsóknarstigi til skipaðs verjanda hennar Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. Ákærður Ívar Aron gerði þessar kröfur.
- Að hann verði sýknaður af XVIII., XX., XXVI.-XXX., XXXII. og XXXIII. lið ákæru merkt dskj. nr. 28.
- Að ákærður hljóti að öðru leyti, sem jafnframt verði skilorðsbundin.
- Að gæsluvarðhald ákærða frá 30. janúar 2007 komi til frádráttar refsingu, ef til hennar kemur.
- Að bótakröfum á hendur ákærða verði vísað frá dómi.
- Að sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjói þ.m.t. málsvarnarlaun til skipaðs verjanda hans Hilmars Ingimundarsonar hrl..
Ákærður Pétur Áskell hefur krafist sýknu af II., X. og XII. lið ákæru merkt dskj. nr. 13, en að öðru leyti krafist vægustu refsingar. Þá krefst hann þess, að sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun til skipaðs verjanda hans Hilmars Ingimundarsonar hrl. Af hálfu ákærða Emils og Stefáns Blackburn er krafist vægustu refsingar, sem verði skilorðsbundin að hluta eða öllu leyti. Gæsluvarðhaldsvist þeirra komi til frádráttar refsingunni. Þá er þess krafist að framkominni bótakröfu verði hafnað og einnig er krafist hæfilegra málsvarnarlauna til skipaðs verjanda þeirra Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl. sbr. framlagt yfirlit.
Ákærði Birgir Rúnar krefst vægustu refsingar sem lög frekast leyfa og verði hún skilorðsbundin. Þá er krafist hæfilegra nálsvarnarlauna til skipaðs verjanda hans Sveins Andra Sveinssonar hrl. Af hálfu Ágústar Más eru gerðar þessar kröfur.
- Að hann verði sýknaður af kröfum ákæruvalds.
- Til vara að honum verði ekki gerð refsing eða refsiákvörðun verði frestað skilorðsbundið.
- Þá er til þrautavara krafist vægustu refsingar, sem verði skilorðsbundin.
- Þá er þess krafist að skaðabótakröfu á hendur ákærða verði vísað frá dómi.
- Loks er krafist hæfilegra málsvarnarlauna til skipaðs verjanda hans Kristjáns Stefánssonar hrl., sem verði lögð á ríkissjóð og taki þau einnig til þóknunar fyrir verjendastörf á rannsóknarstigi.
Af hálfu Jónu Bjarkar er krafist sýknu af XXXIV. lið ákæru merkt dskj. nr. 28, en til vara er krafist vægustu refsingar sem verði skilorðsbundin. Einnig er krafist vægustu refsingar sem verði skilorðsbundin vegna ákæruliða nr. XXIX- XXXI í sömu ákæru. Krafist er málsvarnarlauna til skipaðs verjanda Róberts Árna Hreiðarssonar hdl. verði sýknukrafan tekin til greina, en ella er ekki krafist málsvarnarlauna verði sýknukrafan ekki tekin til greina.
Verður nú fjallað um þá ákæruliði þar sem ekki er fallist á sök að hluta eða að öllu leyfi.
III. Ákærður Davíð Þór einn.
- Húsnæði söludeildar Odda að Höfðabakka 3, Reykjavík.
Laugardaginn 2. desember 2006 um kl. 04:10 barst lögreglunni í Reykjavík tilkynning um innbrot á framangreindan stað og þjófnað þaðan. Er lögreglumenn komu á staðinn hittu þeir fyrir Baldur Ingason öryggisvörð, sem tjáði þeim að hann hafi komið á staðinn skömmu eftir að innbrotsboð bárust frá fyrirtækinu, en þá hafi sá eða þeir sem taldir gætu hafa staðið þarna að verki verið farnir. Þarna hafði verið brotin rúða í útidyrahurð sem er á suðurhlið hússins og lá steinn á gólfinu fyrir innan dyrnar sem virtist hafa verið notaður til þess að brjóta rúðuna í hurðinni. Það hafði svo verið farið inn í húsnæði söludeildar. Var búið að róta til á borðum og svo hafði verið farið inn á skrifstofu framkvæmdastjóra fyrirtækisins Karls B. Brynjólfssonar, sem tjáði lögreglunni að tekin hafi verið ein Gateway fartölva og tölvuskjár sömu tegundar. Hann sýndi lögreglumönnunum upptökur úr öryggiskerfi fyrirtækisins og sjást þar tveir menn koma gangandi meðfram húsinu og svo kemur stór dökk amerísk bifreið upp að húsinu, sem mennirnir fara upp í og henni er svo ekið í burtu mjög hratt, Skráningarnúmer sást ekki greinilega en gat verið OF-108. Eftir að hafa skoðað upptökurnar grunaði lögreglumennina sem komu á staðinn að þarna væru ákærðu Davíð Þór og Jón Einar sem þeir höfðu séð við Gullöldina í Grafarvogi fyrr um nóttina. Á tröppunum fyrir utan útidyrnar lágu tölvustandur og tengingar ásamt lyklaborði og í snjónum mátti sjá tvenn skóför og för eftir hjólbarða bifreiðar og voru þessi för ljósmynduð og mæld.
Við skýrslutöku hjá lögreglu kannaðist ákærður Jón Einar ekki við eða mundi eftir að hafa verið á þessum stað í greint sinn og var viss um að hann væri ekki annar þeirra manna sem sjáist á upptökunum úr öryggismyndavélkerfi Odda. Ákærða Davíð Þór rámaði hins vegar í þetta og kvaðst hafa brotið rúðuna í útidyrahurðinni með sleggju og farið inn og tekið einn flatskjá og nánar aðspurður kvað hann það og geta verið að hann hafi tekið fartölvu. Þá kom fram hjá honum, að hann hafi farið með þessa muni út í svarta bifreið, sem Kata hafi ekið, en Katrín Gestsdóttir er skráður eigandi bifreiðarinnar OF-108. Hann mundi ekki hvað ákærður Jón Einari hafi gert og kom ekki fram að það væri hinn maðurinn, sem sást á upptökunni og vildi hann ekki upplýsa hver það var.
Við skýrslutöku hér fyrir dómi mundi ákærður Davíð Þór ekki eftir þessu né að hafa séð myndir úr öryggismyndavél hússins. Hann kannaðist við undirskrift sína undir lögregluskýrslu og að hafa viðurkennt þetta, en mundi þetta ekki.
Vitnið Gísli Kristinn Skúlason, lögreglumaður, kvaðst hafa tekið skýrslu af ákærða Davíð Þór og hafi honum verið sýnt myndskeið úr öryggismyndavélum hússins og kannaðist við sig á myndunum og játað brotið.
Með játningu ákærða hjá lögreglu sem er í samræmi við rannsóknargögn og vætti Gísla Kristins Skúlasonar, er nægilega sannað að ákærður hefur gerst sekur um framangreindan verknað sem varðar við 244. gr. almennra hegningarlaga.
- Handtaka framan við Fosshótel við Rauðarárstíg 18 í Reykjavík.
Aðfaranótt fimmtudagsins 10. ágúst 2006 kl. 06:09 hafði lögreglan afskipti af ákærða Davíð Þór og Sigurbirni Adam vegna gruns um að þeir væru að reyna að fara inn í bifreiðar við framangreint hús í þjófnaðarskyni. Var þeim tilkynnt að vegna þessa gruns yrðu þeir að koma með niður á lögreglustöð og æstust þeir þá upp, og kemur fram í frumskýrslu lögreglu að er tveir lögreglumenn sem staðið hafi sitt hvoru megin við ákærða Davíð Þór hafi ætlað að taka um handleggi hans og leiða hann að lögreglubifreiðinni hafi hann orðið mjög æstur og slegið til þeirra og hafnaði eitt höggið á andliti lögreglumannsins Hlyns Steins Þorvaldssonar, en auk þess reyndi hann ítrekað að slá til og sparka í lögreglumennina, sem unnu að handtökunni og varð að yfirbuga hann og handjárna.
Lögreglumaðurinn Hlynur Steinn hafði leitað á slysa- og bráðadeild LSH vegna áverkanna sem hann hlaut af höggi ákærða Davíðs Þórs og er því lýst svo í læknisvottorði Skúla Bjarnasonar læknis.
"Hann er með töluvert mar á hægra kinnbeini 3x2 sm að stærð. Einnig er hann með mar á efra augnloki, hrufl og mar yfir temporalbeini hægra megin. Ekki grunur um brot á andlitsbeinum. Við skoðun á baki er hann með eymsli í miðlínu yfir 4. og 5. brjósthryggjarlið. Á þessu svæði eru eymsli í paravertebral vöðvum beggja megin, einkum hægra megin."
Ákærður Davíð Þór hefur hjá lögreglu kannast við að hafa lent í átökum við lögreglumenn í greint sinn er færa skyldi hann á lögreglustöð, en kvaðst þó hafa verið að bregðast við því að gripið hafi verið óþyrmilega í upphandlegg hans, er hann hafi verið að fara að tilmælum lögreglu um að ganga að lögreglubifreiðinni. Hann hafi við þetta orðið pirraður og byrjað að berjast um og gæti verið að í þeim stympingum hafi lögreglumaður fengið laust högg og hafi það verið algjört óviljaverk og hafi ætlun hans ekki verið að slá lögreglumanninn.
Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst ákærður Sigurbjörn Adam hafa verið nokkuð drukkinn þegar lögreglan hafði afskipti af honum og ákærða Davíð Þór í greint sinn. Hann sagðist muna eftir því að lögreglumenn hafi ráðist á ákærða Davíð Þór og snúið hann niður í jörðina, en treysti sér ekki til að lýsa því nánar og sagðist ekki hafa tekið eftir því hvort lögreglumaður var sleginn af ákærða Davíð Þór.
Davíð Þór mundi við skýslutöku fyrir dómi, að hafa kýlt Hlyn lögreglumann en ekki með krepptum hnefa. Þarna hafi verið smáryskingar og lögreglumennirnir hafi ráðist að honum og hann þá óvart rekist með hendina í Hlyn. Hann neitaði samt að hafa slegið hann í andlitið og hann hafi ekki kýlt með krepptum hnefa.
Ákærður Sigurbjörn bar fyrir dómi að lögreglumennirnir hafi kýlt ákærða Davíð Þór að fyrra bragði og höggin komið á öxlina og hálsinn, sem valdi taugakippum og kvaðst hann skilja að ákærður Davíð Þór hafi slegið til baka. Þeir hafi verið sallarólegir, en það væri stuttur þráðurinn. Hann kvað kýlingar lögreglumannanna hafa verið ástæðulausar. Hann mundi ekki ástæðurnar fyrir afskiptum lögreglu, en fannst þetta gruggugt. Hann mundi ekki eftir orðaskiptum þarna.
Vitnið Hlynur Steinn Þorvaldsson, lögreglumaður kvaðst hafa farið í útkall vegna tveggja manna sem voru að sniglast í kringum hótelið við Rauðarárstíg. Lögreglumennirnir, hann og Guðmundur Ingi komu þarna að. Guðmundur fór að ræða við mann í bifreiðinni þarna hjá, en það fór að ræða við menn sem stóðu þarna við hótelið, bak við runna og létu lítið fyrir sér fara. Svo hafi komið bifreið með fleiri lögreglumenn. Það og Guðmundur höfðu haft afskipti af mönnunum áður, þar sem ökumaður bifreiðarinnar, sem þeir voru á var próflaus. Mennirnir voru æstari nú og vildu ekki neitt við þá ræða né neitt gera fyrir lögreglumanninn svo sem að svara spurningum eða hvað þeir væru að gera þarna. Þar sem hvorugur þeirra var með skilríki, var þeim sagt, að þeir yrðu að koma með upp á lögreglustöð. Annar sagði að það væri ekkert mál, en hinn brást illa við, æsti sig og vildi ekki koma með. Vitnið og Guðmundur höfðu staðið sitt hvoru megin við hann og honum verið sagt að hann hefði ekkert val, hann yrði bara að koma með þeim. Tóku þeir í sitt hvora hendina á honum, en hann reif sig lausann frá Guðmundi og náði að kýla það í andlitið. Þeir héldu áfram að reyna að ná honum niður og urðu talsverð átök sem endaði með því að þeir setja hann niður í jörðina og setja á hann handjárn. Telur þetta ekki hafa verið óvilaverk, það hafi verið slegið með krepptum hnefa. Vitnið kvaðst hjafa þekkt Davíð í sjón. Ástæðu afskiptanna þarna á vettvangi voru að þarna fundust bíllyklar sem annar kastaði frá sér og þarna fannst og skrúfjárn, en í tilkynningu kom fram að þeir væru að sniglast í kringum bíla og að taka í hurðarhúna og lögreglumennirnir vildu fá skýringar. Þarna voru engir aðrir menn. Þeir fóru á vettvang frá lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Annar mannanna kastaði frá sér bíllykla og skrúfjárn. Honum var tilkynnt að hann væri handtekinn er hann neitaði að koma með þeim. Vitnið kannaðist ekki við að hafa slegið í öxl og háls ákærða Davíðs Þór, en það var með áverka á auga glóðarauga og með tognun í baki. Fram kom hjá Hlyni að hann hefði engar afleiðingar eftir þessa árás í dag. Þá kom fram að lögreglumennirnir voru í einkennisbúningi er handtakan fór fram.
Vitnið Guðmundur Ingi Rúnarsson lögreglumaður, kvaðst hafa verið vitni að árásinni. Hann og Hlynur voru sendir að Rauðarárstíg á lögreglubifreið er tilkynnt hafði verið um tvo aðila, sem voru hugsanlega að brjótast inn í bifreiðar. Þeir komu að Fosshóteli, þar sem þeir rákust á þessa tvo aðila. Kom fát á þá þegar komið er að þeim. Þeir voru ekki með persónuskilríki né gátu gert grein fyrir sér á nokkurn hátt nema með nafni. Meðan þeir voru að ræða við þá fannst í runna hjá þeim skrúfjárn. Lögreglumönnunum þótti því vert að kanna málið betur, sérstaklega þar sem þeir könnuðust við annan aðilann gegnum söguna. Þeim hafi verið greint frá því, að það þyrfti að fara með þá á lögreglustöð til að skoða málið aðeins betur. Bæði af því að lögreglumennirnir fundu þetta skrúfjárn og af því að þeir gátu ekki gert grein fyrir sér á fullnægjandi hátt. Þá varð Davíð Þór mjög æstur en Sigurbjörn Adam var mjög rólegur. Davíð ætlaði að labba í burtu frá lögreglubifreiðinni. Þá bar lögreglumaðurinn sig til að taka í hendurnar á honum og leiða hann að lögreglubifreiðinni, en Hlynur hélt í vinstri hendina, en um leið og Davíð Þór losaði hægri hendina, kýldi hann Hlyn í sömu sveiflunni. Það voru svo nokkur átök við að koma honum í tök. Hann hafi ítrekað reynt að kýla þá báða og sparka í þá, en þeir náðu honum niður og settu hann í handjárn. Þrátt fyrir það var hann mjög æstur og reyndi þrátt fyrir handjárnunina að komast í buxnavasann á sér, en þar fundu þeir hníf. Þeir voru svo fluttir á lögreglustöðina.
Það kvað Davíð hafa rykkt hendinni svo að það missti takið á henni og vissi ekki hvort hún sveiflaðist beint í andlitið eða hann reiddi til höggs, en höggið endaði á kinnbeini Hlyns. Meðan vitnið var að reyna að ná hendinni á honum aftur reyndi hann ítrekað að kýla aftur í andlitið á Hlyni, svo þegar það var búið að ná í hendina á honum, fór hann að sparka. Vitnið telur þetta hafa verið viljandi högg, það sá ekki hvort hann sló með krepptum hnefa. Ástæðu þess að þeir voru að fela sig fyrir þeim vakti grunsemdir. Þeir þekktu Davíð Þór og þurftu ekki persónuskilríki til að fá staðfest hver hann væri. Þeir sáu ekki Hlyn slá Davíð Þór í öxl og háls áður en Davíð Þór sló, þeir sáu roða á vanga Hlyns eftir þetta.
Með vætti vitnanna Hlyns Steins Þorvaldssonar og Guðmundar Inga Rúnarssonar lögreglumanna sem er mjög skilmerkilegt og með öðrum rannsóknargögnum málsins er sannað að ákærður hefur gerst sekur um framangreind brot gegn valdstjórinni, en ekki hefur verið sýnt fram á eða gert líklegt að lögreglumaðurinn Hlynur hafi gefið tilefni til árásarinnar, né að ekki hafi verið full ástæða til handtökunnar.
Ákærður hefur með þessu gerst brotlegur við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 101/1976 og lög nr. 82/1998.
IV. Ákærður Sigurbjörn Adam einn.
- Þýfi úr bifreiðinni MX-980 við Skógarhlíð 20, Reykjavík.
Sunnudaginn 23. júlí 2006 var lögreglu tilkynnt um þjófnað á IBM Thinkpad42 í eigu Landsbankans, ásamt minnisviðbót og stækkaðri rafhlöðu, skjávarpa og Panasonic NV BSM upptökuvél úr framangreindri bifreið og voru þessir munir taldir að verðmæti 350.000 krónur. Brotin hafði verið lítil afturrúða í hægri afturhurð. Eigandi bifreiðarinnar Andri Heiðar Kristinsson, sagðist hafa verið veislustjóri í brúðkaupsveislu í Ýmishúsum um kvöldið og verið með þessi tæki vegna hennar. Hann hafði svo komið tækjunum fyrir í bifreiðinni og læst henni kl. 00:30 um nóttina, er hann hafi farið af staðnum. Við heimilaða húsleit á heimili ákærðu Bryndísar G. Bond þann 24. ágúst 2006 fannst framangreindur skjávarpi af Dell gerð ásamt fjarstýringu. Þá fannst fartölvan við leit þann 25. ágúst 2006 á heimili eða dvalarstað ákærða Sigurbjörns Adams hjá móður hans og við leit á sama stað þann 25. ágúst 2006 fannst framangreind Panasonic upptökuvél. Ákærður Sigurbjörn Adam hefur við skýrslutöku hjá lögreglu neitað að eiga þátt í framangreindu innbroti í bifreiðina MX-980 og hefur skýrt það svo að fartölvan og upptökuvélin skyldi finnast á heimili móður hans og dvalarstað hans svo að hann hafi keypt fartölvuna af einhverjum strák sem hafi komið inn í bifreið sem hann og meðákærðu Jón Einar og Davíð Þór voru í og er fram komið að hann hafi greitt 5000 krónur fyrir fartölvuna, en ákærður hefur ekki getað lýst stráknum sem seldi honum hann. Hvorki ákærður Jón Einar eða ákærður Davíð Þór hafa kannast við að hafa verið með honum í bifreið á þeim tíma er kaupin áttu að hafa átt sér stað né kváðust þeir vita neitt um kaupin. Þá tjáði hann lögreglu að móðir hans ætti Panasonic upptökuvélina, en hún hefur þvertekið fyrir það og borið að ákærði hafi komið með hana inn á heimili hennar.
Af skýrslu ákærða Bryndísar G. Bond hjá lögreglu verður ekki beint ráðið að ákærður Sigurbjörn Adam hafi komið með skjávarpa til hennar eða fengið að geyma hann heima hjá henni og verður frekar ráðið af framburði hennar að allt þýfi sem fannst í herbergi hennar hafi ákærður Jón Einar komið þar fyrir.
Við skýrslutöku fyrir dómi kannaðist ákærði við þá muni, sem stolið var úr MX-80 og að hafa haft þá í vörslu sinni. Hann taldi sig hafa keypt tölvuna, en var óviss með kvikmyndatökuvélina, neitaði að hafa hana í sínum fórum. Hann mundi ekki eftir Panasonic upptökuvélinni, en taldi hana hafa getað verið í poka með fartölvan var í.
Framburður ákærða um að hann hafi keypt framangreint þýfi er ekki stutt neinum gögnum og verður í málinu talina markleysa.
Telja verður að ákærða hafi verið fullljóst að þetta var þýfi og með því að hafa það í vörslum sínum hafi hann gerst brotlegur við 254. gr. almennra hegningarlaga, sbr. dskj. nr. 78.
- Íbúð að Heiðarholti 1d, Keflavík.
Einhverntíma rétt fyrir 25. ágúst 2006 var brotist inn í framangreint hús, en þá var húseigandi og fjölskylda hans erlendis, en hafði komið heim um 28. ágúst 2006. Guðmundur Hannesson, sem þar býr var skráður fyrir riffli, sem var meðal ætlaðs þýfis, sem haldlagt var að Háaleiti 37, Keflavík, þar sem ákærður Sigurbjörn Adam og systir hans Eydís Berglind voru talin vera með dvalarstað. Guðmundur tjáði lögreglunni að riffillinn hafi verið geymdur í svefnherbergisskáp að Heiðarholti 1d. Í ljós komu merki um, að þvottahúsdyrnar hafi verið opnaðar með því að beita skrúfjárnsenda á eða við læsingarjárnið. Greinilegt var að farið hafði verið um húsið af öðrum en íbúum þess, m.a. höfðu reiðhjólum í þvottahúsi verið velt. Við leit á gólfi hússins fundust fótspor, sem ekki voru talin tengjast íbúum hússins. Um var að ræða skóför, sem var lyft upp. Auk riffilsins sem var farinn úr fataskápnum í svefnherberginu söknuðu húsráðendur fartölvu af Acer gerð, sem verið hafði á borðstofuborðinu, diskamöppum með DVD myndum, veiðihnífs, skrauthnífs og vindlingalengja.
Ákærður Sigurbjörn Adam var handtekinn í Keflavík 25. ágúst 2006 og settur í gæsluvarðhald. Hann fékk að hafa samband við systur sína Eydísi Berglindi og kom fram í samtalinu að hann bað hana að fjarlægja muni úr íbúðinni. Lögreglumennina grunaði að um þýfi væri að ræða og brugðust skjótt við og fóru þegar á heimili ákærða Sigurbjörns Adams og Eydísar að Háaleiti 37 og fengu heimild til leitar þar og fundust þar allir þeir munir sem horfið höfðu frá íbúðinni að Heiðarholti 1d, nema skrauthnífurinn.
Eydís Berglind Baldvinsdóttir, kt. 000000-0000, gaf skýrslu hjá lögreglu 26. ágúst 2006 og kannaðist þá ekki við að ákærður Sigurbjörn Adam hafi í áðurgreindu símtali beðið sig að fjarlægja dótið, sem hann hafi komið með, heldur hafi hann einungis beðið hana að henda fólkinu út sem var í íbúðinni. Þá neitaði hún því, að hafa vitað um riffilinn, fartölvuna og aðra muni, sem fundust í íbúðinni.
Ákærður Sigurbjörn kannaðist við við skýrslutöku hjá lögreglu að framangreindir munir væru á hans vegum og kvaðst hann hafa keypt riffilinn af einhverjum strák sem meðákærður Davíð Þór hafi vísað á og hann greitt 30.000 krónur fyrir riffilinn, en gat ekki nafngreint, lýst eða sagt nein deili á stráknum. Þá sagðist hann hafa keypt Acer fartölvuna ásamt U.S.B. minniskubb á 99.000 krónur en gat ekki framvísað kvittun um þessi viðskipti. Hann kvað möppuna með 36 DVD kvikmyndum hafa verið með í töskunni ásamt rifflinum og einnig veiðihnífur með 18 sm blaði.
Skóförin sem lyft var upp í íbúðinni að Heiðarholti 1d voru send Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík ásamt förum af skóm ákærða Sigurbjörns Adams og ákærða Davíðs Þórs til samanburðar, en hin upplyftu skóför reyndust ónothæf.
Ákærður kannaðist við hér fyrir dómi að hafa haft framangreinda muni í vörslum sínum, en neitaði að tjá sig um það hvar hann hafi fengið hlutina og vísaði í lögregluskýrsluna.
Ákærður hefur ekki getað stutt það neinum gögnum að hann hafi keypt framangreinda muni og verður að telja það ólíklegt og fyrirslátt af hans hálfu.
Af gögnum málsins er ljóst að ákærða gat ekki dulist að um þýfi var að ræða og hefur hann með geymslunni á þýfinu gerst brotleg við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. dskj. nr 78.
- Hass í íbúð að Háaleiti 37, Keflavík.
Við húsleit í framangreindri íbúð 25. ágúst 2006 fannst auk þýfis í hillu í stofunni 0,28 af hassi eða hasspoka, en ákærður sagði þetta vera gervihass Líbanon, til að plotta peninga. Hann kvaðst hafa fengið þetta hass gefins en verið með það í marga daga.
Efnið var sent Tæknideild lögreglunar til greinargerðar og reyndist við litaprófun vera hass. Hann var með sömu skýringar hér fyrir dómi og hjá lögreglu.
Ekki fór á milli mála að hér er um ólöglegt fíkniefni að ræða sbr. niðurstöður litaprófunar og með því að hafa það í vörslum sínum, hefur ákærður gerst brotlegur um brot á þeim refsiákvæðum sem tilgreind eru í ákæru, dskj. nr. 2-XIV.
- Akstur bifreiðarinnar LS-223.
Föstudaginn 11. ágúst 2006 kl. 03:48 var lögreglan við almennt umferðarlagaeftirlit á Reykjanesbraut, er lögreglumennirnir veittu athygli framangreindri bifreið, sem ekið var vestur Reykjanesbraut vestan við Vogaveg og skyldi akstur bifreiðarinnar stöðvaður til að kanna ökuréttindi og ástand ökumanns. Þegar lögreglubifreiðinni var ekið á eftir bifreiðinni LS-223 var hún stöðvuð utan vegar og kváðu lögreglumennirnir Gunnsteinn Örn Hjartarson og Sigvaldi Lárusson, sem stóðu að gerð frumskýrslu ökumanns bifreiðarinnar hafa farið út úr henni, opnað vélarhlíf hennar og virtist vera að skoða ofan í vélarhúsið. Þegar lögreglumennirnir komu að, sagði hann bifreiðina vera í ólagi og hann væri að athuga hverju það sætti, en hann sagðist ekki hafa ekið bifreiðinni, heldur hafi vinur hans ekið og hefði hann hlaupið burt þegar bifreiðin hafði stöðvast. Enginn var sjáanlegur á hlaupum af vettvangi og ekki varð séð að neitt væri að bifreiðinni. Sá sem stóð við vélarhlífina og var talinn ökumaður bifreiðarinnar reyndist vera ákærður Sigurbjörn Adam. Hann var æstur og neitaði að hafa ekið bifreiðinni og einnig neitaði hann að blása í S.D. öndunarprófsmæli. Í farþegasætinu frammí var ákærður Jón Einar og mátti sjá hjá honum töflur og umbúðir utan um þær. Vaknaði því grunur um að um fíkniefnamisferli væri að ræða og að ökumaður kynni að hafa verið ölvaður eða undir áhrifum lyfja við aksturinn. Í aftursæti bifreiðarinnar var Árni Diðriksen, sem kvað þau hafa verið þrjú í bifreiðinni og hafi ákærður Sigurbjörn Adam ekið. Þau voru öll handtekin og færð á lögreglustöð, en klukkan 06:10 viðurkenndi ákærður fyrir lögreglumönnunum að hafa ekið bifreiðinni jafnframt því, sem hann heimilaði leit í henni.
Ákærða Sigurbirni Adam og ákærða Jóni Einari var tekið blóð til alkóhóls- og lyfjarannsóknara. Í blóðsýni því sem tekið var úr ákærða Sigurbirni Adam mældist ekki alkóhól heldur 165 ng/ml af amfetamíni samkvæmt matsgerð Guðlaugar Þórisdóttur læknis hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Hún kvað styrk amfetamíns í blóði ákærða Sigurbjörns Adams benda til töku í mestu lækningalegum skömmtum og teljist ökumaður með þetta magn amfetamíns í blóði óhæfur til að stjórna ökutækinu örugglega þegar blóðsýni var tekið sbr. 45. gr. umferðarlaga.
Við sjálfstæða skýrslutöku hjá lögreglu bar ákærður Jón Einar að ákærður Sigurbjörn Adam hafi ekið bifreiðinni, en því neitaði hann er tekin var skýrsla af honum hjá lögreglu 26. ágúst 2006 og hafi annar maður, sem hann kallaði Gumma ekið henni, en hann hafi hlaupið út í móa er lögregluna bar að, þar sem hann væri próflaus. Hann gæti ekki sagt nein önnur deili á Gumma.
Ákærði kannast ekki við þetta er hann er spurður um þetta í réttinum. Mundi ekkert eftir því.
Vitni báru í málinu fyrir dómi lögreglumennirnir Gunnsteinn Örn Hjartarson og Sigvaldi Lárusson. Þeir báru um atvik mjög á sama veg og í frumskýrslu. Vitnin voru viss um að ákærður Sigurbjörn Adam hafi komið út úr bifreiðinni um dyrnar við ökumannssætið og það verið í beinu framhaldi af akstri. Fram kom að bifreiðin hafi verið í góðu sjónfæri þegar ökumaður fór úr henni og vitnið Sigvaldi kvað stúlku sem var í bifreiðinni hafa sagt, að ákærður Sigurbjörn Adam hafi ekið bifreiðinni.
Öll gögn málsins hníga að því að ákærður hafi ekið bifreiðinni. Lögreglumennirnir sem handtaka hann sjá hann koma út um dyrnar við sæti ökumanns og er hann í góðu sjónfæri og hefðu þeir séð, ef annar maður hefði farið úr bifreiðinni og hlaupið út í móa og verður sá framburður talinn fyrirsláttur af hálfu ákærða og fráhvarf ákærða Jóns Einars frá fyrra framburði er ekki trúlegt.
Með vætti vitna og rannsóknargögnum málsins þ.á.m. matsgerð Guðlaugar Þórisdóttur læknis er nægilega sannað að ákærður hefur gerst sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna svo sem greinir í ákæru, dskj. nr. 28/VIII og með því gerst brotlegur við þargreint refsiákvæði.
- Kjallaraíbúð að Grettisgötu 57b, Reykjavík og kjallaraíbúð að Barónsstíg 16 í Reykjavík.
Fimmtudaginn 21. desember 2006, kl. 10:40 var lögreglan kölluð að Grettisgötu 57b, kjallara, Reykjavík, vegna innbrots og þjófnaðar. Í þessu innbroti var stolið Dell fartölvu, "flakkara" (utanáliggjandi harður diskur) og M-Audio tónjafnara. Talið var að innbrotið hafi verið framið á tímabilinu 16:00-18:00 þennan sama dag. Farið hafði verið inn um glugga, með því að spenna hann upp og brjóta stormjárn, sem hélt honum lokuðum og þaðan stolið ofangreindum munum. Við vettvangsrannsókn tæknideildar LR fundust fingraför á innanverðum neðri karmi þverpósts í glugguanum sem farið var inn um. Niðurstaða fingrafararannsóknar TD LRH er sú að fingrafarið er af Sigurbirni Adam Baldvinssyni. Þennan sama dag kl. 17:10 var lögregla kölluð að Barónsstíg 16 vegna innbrots og þjófnaðar (mál nr. 010-2006-64331) en þaðan var m..a. stolið Hewlett Packard fartölvu, Nokia farsíma, peningaboxi með peningum í og ýmsum öðrum smáhlutum. Vitni að innbrotinu, Sigurþór Hallbjörnsson fór að veitingahúsinu Monakó við Laugaveg og taldi hann sig sjá þar innandyra karlmann, sem klæddur var í jakka, sem stolið var í þessu innbroti. Lögregla fór þegar að veitingahúsinu Monakó, þar sem Sigurbjörn Adam Baldvinsson var handtekinn er hann var að koma út af veitingahúsinu. Auk þess að vera í jakka, sem stolið var að Barónsstíg 16, var Sigurbjörn Adam með, er hann var handtekinn, gulan Bónus plastinnkaupapoka sem í voru fartölvurnar, sem stolið var að Grettisgötu 57b og Barónsstíg 16. Þá voru einnig í plastpokanum "flakkarinn" og tónjafnarinn, sem stolið var að Grettisgötu 57b.
Sigurbjörn Adam neitaði í fyrstu við yfirheyrslu að hafa brotist inn á umrædda staði en viðurkenndi síðan að hafa framið bæði innbrotin. Hann gaf þá skýringu á þessu athæfi sínu að hann hafi verið undir áhrifum lyfsins rivotril og myndi því mjög lítið eftir því sem hann hefði gert.
Jón Einar Randversson var handtekinn innandyra á veitingastaðnum Monakó. Á borði því sem hann sat við, er hann var handtekinn, lágu ýmsir munir sem stolið var á Barónsstíg 16. Þá hélt Jón Einar á debetkorti, sem stolið var á Barónsstíg 16 og er í eigu Stefáns Más Þorsteinssonar, sem býr í íbúðinni sem brotist var inn í.
Jón Einar neitaði aðild að umræddum innbrotum. Hann kvaðst þó hafa verið með Sigurbirni Adam, sem hann kvaðst þekkja lítið sem ekki neitt og að hafa geymt fyrir hann "tvær tölvur og eitthvað fleira drasl" og að hafa gengið með honum að barnum þar sem þeir voru handteknir.
Ákærður mundi ekki eftir þessum innbrotum er hann gaf skýrslu fyrir dómi, gat ekki gefið skýringu á því, að fingraför hans fundust þarna, svo sem staðfest er með vitnisburði Kristjáns Kristjánssonar rannsóknarlögreglumanns og Sævars Þ. Jóhannssonar fingrafarasérfræðings. Hann mundi heldur ekki eftir innbrotinu í íbúðina að Barónsstíg 16 og mundi ekki eftir jakkanum sem stolið var þaðan og hann var í, er hann var handtekinn og bar fyrir dómi að hann hafi verið í annarlegu ástandi á þessum tíma.
Með játningu ákærða hjá lögreglu, sem er í samræmi við gögn málsins og skýrslu Jóns Einars, sem og rannsókn tæknideildar lögreglu, sem staðfest er af þeim sem að þeim stóðu, þykir nægilega sannað að hann hefur gerst sekur um þessi þjófnaðarbrot og með því brotið gegn 244. gr. almennra hegningarlaga.
- Íbúðarhúsnæði að Bragagötu 29A, Reykjavík.
Laugardaginn 27. janúar 2007 kl. 21:31 var lögreglu tilkynnt um innbrot að Bragagötu 29A, Reykjavík. Lögreglumenn fóru þegar á staðinn og einnig komu starfsmenn rannsóknar og tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík. Bragagata 29A er bakhús á lóðinni bak við Bragagötu 29 og af verksummerkjum varð ráðið að farið hafði verið inn um glugga á suðurhlið hússins með því að losa þar frá stormjárn og svo verið farið þar inn, en í gluggakistu. Á gólfi íbúðarinnar mátti sjá moldug skóför og fyrir utan gluggann mátti sjá fótspor í moldina eða grasinu og á gluggasyllunni að utanverðu var moldugt skófar. Þá var framkvæmd fingrafararannsókn á staðnum og fundust fingraför á innanverðum gluggapósti og á gluggakarmi opnanlega gluggafagsins og benti staðsetning og lega þeirra til þess, að sá sem skildi þau eftir hafi gripið í gluggapóstinn utan frá til að vega sig inn um gluggann. Fingraförum var lyft af fleti og send fingrafarasérfræðingi til rannsóknar og reyndust vera af ákærða Sigurbirni Adam.
Fram kom hjá húsráðanda Eygló Margréti Lárusdóttur að hún hefði yfirgefið heimili sitt kl. um 16:30 og komið aftur heim um kl. 21:35 og þá uppgötvað að brotist hafði verið inn í íbúðina, en þegar hún kom heim voru útidyrnar inn að stigaganginum og dyrnar að íbúð hennar galopnar.
Úr íbúðinni höfðu verið teknir að sögn Eyglóar eftirtaldir munir:
1. 2096 iPot, hvítur, ársgamall óvíst um tegund, verðmæti kr. 30.000
- Sony Cyperskot með 128 mb. minniskorti 2 ára, verðmæti kr. 40.000
- Ibook fartöölva með 14" skjá kr. 100.000
- Sony DVD spilari kr. 10.000 Þá hafði Vísagreiðslukorti hennar verið tekið í greint sinn og hafði verið tekið út af því fyrir liðlega 180.000 krónur er hún gaf skýrslu hjá lögreglu 30. janúar s.l. Við skýrslutöku hjá lögreglu 31. janúar s.l. sagðist ákærður Sigurbjörn Adam ekki vita til þess að hann þekkti til fólks sem búi að Bragagötu 29 eða hann þekki til húsnæðisins. Honum var bent á að fingraför hafi fundist í húsnæðinu, sem samkennd hafi verið við hann. Hann sagðist þá muna að hann hafi á þessum tíma verið undir nokkrum áhrifum áfengis, auk þess sem hann hafi verið undir áhrifum rivotril, en hann hafi tekið nokkrar töflur af því lyfi. Af þeirri ástæðu muni hann nánast ekkert eftir þessum tíma. Það geti því vel verið að hann hafi verið þarna að verki, hann viti það bara ekki og hann sagðist ekki muna eftir þeim munum sem teknir voru í þessum innbroti.
Meðákærði Ívar Aron tjáði lögreglu að hann myndi ekki eftir því, að hafa verið með ákærða Sigurbirni Adam á þessum tíma, þar sem hann hafi á þessum tíma verið undir áhrifum fíkniefna og mjög ölvaður.
Ákærður Sigurbjörn Adam mundi ekki eftir að hafa framið þetta innbrot, er tekin var af honum skýrsla fyrir dómi. Honum var bent á fingraförin sem fundust á vettvangi og hafi reynst vera hans, skv. fingrafararannsókn og staðfest er af þeim sem framkvæmdu hana. Hann taldi ólíklegt að hann hafi verið þarna og taldi fingraförunum hafa verið komið fyrir þarna.
Þegar litið er til niðurstöðu tæknielgra rannsókna í málinu og ummerkja á vettvangi, en staðsetning fingrafara ákærða bendi til að hann hafi gripið í gluggapóstinn og vegið sig inn um gluggann en hann hefur ekki getað upplýst hvers vegna þau eru þarna eða um ferðir sínar þennan dag, þykir ekki varhugavert að telja fram komna lögfulla sönnun um að ákærður hafi átt þátt í þessu þjófnaðarbroti og hefur hann með því gerst brotlegur við 244. gr. almennra hegningarlaga.
- Bifreiðin LK-438 við Engjaveg 38 á Selfossi.
Föstudaginn 26. janúar 2007 um kl. 19:44 voru ákærðu, Sigurbjörn Adam og Ívar Aron handteknir í íbúð að Asparfelli 4 í Reykjavík vegna gruns um að brot á vopnalögum. Við húsið hafði bifreiðinni LK-438 verið lagt og sat ákærða Jóna Björk í bifreiðinni. Grunur vaknaði um að bifreiðinni kynni að hafa verið stolið og hafði lögreglan samband við skráðan eiganda hennar Guðbjörgu H. Sigurðardóttur, Engjavegi 38 á Selfossi, sem hélt í fyrstu að eiginmaður hennar væri á bifreiðinni, en svo kom í ljós að hann hafði ekki farið á henni í vinnuna og taldi Guðbjörg að hún hafi verið tekin á tímabilinu frá kl. 02:00-08:00 aðfaranótt 26. janúar s.l., en hún verið á bifreiðastæði við Engjaveg 38 og lyklar sem gengu að henni áttu að vera í ólæstum bílskúr.
Við skýrslutöku hjá lögreglu sagðist ákærður Sigurbjörn Adam hafa verið staddur á Selfossi í framangreint sinn og verið fastur þar. Hann hafi þá hitt þar strák sem kallaði sig Jesú, sem afhent hafi honum lykla að bifreið og lýst útliti hennar og staðsetningu, þ.e. að bifreiðin væri við Sunnuveg á Selfossi.
Ákærður Sigurbjörn Adam sagðist hafa talið víst að bifreiðinni hafi verið stolið, en það ekki breytt hann neinu, þar sem hann hafi þurft að komast til Reykjavíkur. Hann sagðist svo hafa fundið bifreiðina og ekið bifreiðinni til Reykjavíkur og svo um Reykjavík, þar til hann hafi farið að Asparfellinu að sækja meðákærða Ívar Aron. Hann sagðist hafa verið einn við aksturinn, en vissi engin deili á manninum sem hann kallaði Jesú, né var hann öruggur um tímasetninguna.
Í skýrslu ákærða Ívars Arons hjá lögreglu kom fram, að ákærður Sigurbjörn hafi hringt í hann aðfaranótt 26. janúar s.l. og beðið hann að sækja sig á Stokkseyri eða Eyrarbakka, en ákærður Ívar Aron sagðist ekki hafa getað orðið við því, þar sem hann hafi verið við áfengisdrykkju. Ákærður Sigurbjörn Adam hafi svo hringt í hann um hálftíma síðar og sagst vera kominn á geggjaðan bíl sem væri hægt að gera helling við t.d. rífa bílinn í sundur í varahluti og ætlaði hann að hitta hann í íbúðinni að Asparfelli 4.
Ákærði hélt sig við það er hann gaf skýrslu fyrir dómi, að maður að nafni Jesús, hafi afhent honum lykla af bifreiðinni gegn því að hann næði fyrir hann í sendingu. Hann kvaðst þekkja manninn frá því að hann var í meðferð og lýsti honum, en ekki þannig að hann væri auðgreindur af því.
Framburður ákærða um hvernig hann var kominn að bifreiðinni LK-438 þykir fjarstæðukenndur og í ósamræmi við það sem fram er komið í málinu, en af framburði ákærða Ívars Arons um símtal við ákærða, kemur fram að hann væri kominn með bifreið sem mætti nota í varahluti. Hér er því ekki um lánsbifreið að ræða og er talið nægilega sannað að hann hafi tekið þessa bifreið og ekið til Reykjavíkur án heimildar rétts eiganda frá Selfossi og hefur með því gerst brotlegur við refsiákvæði sem tilgreind eru í ákæru dskj. nr. 28/XV.
- Húsið Giljasel 4, Reykjavík.
Laugardaginn 27. janúar s.l. var óskað aðstoðar lögreglu vegna þess að farið hafi verið inn í húsið og tekinn þaðan farsími húsfreyjunnar þar, Margrétar Hannesdóttur og kveikjuláslyklar að bifreiðinni JZ-979, sem voru á borði þar. Bifreiðin hafði verið við húsið er Margrét fór að sofa um kl. 01:00 um nóttina, en hún var horfin af staðnum er hún vaknaði um kl. 08:00. Engin merki voru um innbrot, en útidyrahurðin átti það til að kviklæsast. Síðar kom í ljós, að auk farsímans var saknað úr húsinu armbandsúrs og hringa og voru verðmæti þess sem tekið var metið á 136.000 krónur, en í bifreiðinni voru tvær flugustangir að verðmæti 59.800 krónur, vöðlur á 12.900 krónur, Dam veiðijakki á 13.000 krónur, veiðivesti á 6.995 krónur, fluguhjól 4 stykki á 63.990 krónur og taska með veiðidóti á 50.000 krónur, allt 206.685 krónur, en auk þess höfðu verið í bifreiðinni 25-30 geisladiskar.
Lögreglan hafði svo afskipti af ákærðu Ívar Aroni og Sigurbirni Adam 27. janúar s.l. vegna þess að þeir voru á stolnu ökutæki XX-999 og fannst í bifreiðinni farsími, sem rakinn var til Giljasels 4. Ákærðu neituðu að hafa farið þar inn, en ákærður Sigurbjörn Adam kvaðst hafa vitað að símanum hafi verið stolið, en hann fengið hann frá manni sem hann kallaði Begga. Þá neitaði hann að vita nokkuð um bifreiðina JZ-979.
Nægilega er sannað með játningu ákærða og rannsóknargögnum að hann hefur gerst brotlegur við 254.gr almennra hegningarlaga með því að hafa símann í fórum sínum.
- Íbúðarhúsið að Kotárgerði 8, Akureyri.
Þriðjudaginn 30. janúar s.l. á tímabilinu frá klukkan 19:00-21:00 hurfu úr framangreindu húsi svartur frakki, par af svörtum hekluðum fingravettlingum, kveikjari og vindlingapakki. Húsið var ólæst. Hafði Heiða Hermannsdóttir, sama stað, verið að þrífa íbúð, sem hún leigir, þarna um kvöldmatarleytið, en farið út smástund til að reykja, eftir það hafði hún orðið þess vís að frakkinn var horfinn ásamt öðrum munum sem hún saknaði. Ákærðu Ívar Aron, Jóna Björk og Sigurbjörn Adam höfðu verið í gæsluvarðhaldi í fangageymslu lögreglunnar á Akureyri en strokið þaðan um kl. 19:39 og voru svo handtekin á Sauðárkróki kl. 21:50 á stolinni bifreið og voru á leið til Reykjavíkur og ákærða Jóna Björk verið með frakkann og voru vindlingarnir í vasa hans.
Ákærður Sigurbjörn Adam kannaðist ekki við það að hafa farið inn í kjallaraíbúðina að Kotárgerði 8 og tekið frakkann en meðákærðu Ívar Aron og Jóna Björk ber saman um, að eftir að þau höfðu strokið úr fangelsinu hafi ákærður Sigurbjörn Adam opnað dyr að einhverri íbúð og farið þar aðeins inn og tekið þar kápu sem ákærða Jóna Björk var í er hún var handtekin á Sauðárkróki. Ákærður Ívar Aron kvað þetta hafa verið í kjallaraíbúð, sem verið hafi á vegi þeirra er þau hlupu frá fangelsinu. Ákærður Sigurbjörn kannaðist ekki heldur við þetta fyrir dómi, en hann hafi ekki verið í frakkanum við handtöku og væri framburður meðákærðu Ívars Arons og Jónu Bjarkar rangur um þetta.
Framangreindur frakki var í bifreið sem ákærður Sigurbjörn Adam, Ívar Aron og Jóna Björk voru á er þau voru handtekin og því nokkuð víst, að einhver þeirra tók frakkann og á grundvelli samhljóða framburðar Ívars Arons og Jónu Bjarkar, verður talið nægilega sannað að ákærður tók frakkann í greint sinn úr framangreindri kjallaraíbúð og hefur með því gerst brotlegur við 244. gr. almenna hegningarlaga.
V. Ákærður Ívar Aron einn.
- Misnotkun á Vísagreiðslukorti Eyglóar M. Lárusdóttur.
Laugardaginn 27. janúar s.l. var brotist inn í íbúðarhúsnæðið að Bragagötu 29A í Reykjavík og þaðan m.a. tekið framangreint greiðslukort sbr. kafli IV liður 6 hér að framan. Ákærður Ívar Aron sagði hjá lögreglu að hann hafi á þessum tíma verið undir áhrifum áfengis og rivotril og mundi ekki eftir framangreindu innbroti og vildi því ekki þræta fyrir að hann hafi verið þarna og jafnvel brotist þar inn. Hann mundi ekki hvernig hann komst yfir greiðslukort Eyglóar en kannaðist við að hafa framvísað því í viðskiptum á nokkrum stöðum á leiðinni frá Reykjavík til Akureyrar og svo á Akureyri. Hann sagðist hafa notað greiðslukortið til að svíkja út greiðslur svo sem fram komi í yfirliti frá Vísa um úttektir eftir að greiðslukortinu var stolið, en sagði ákærðu Jónu Björk einnig hafa misnotað greiðslukortið. Misnotkunin hafi þó aðallega verið af hans hálfu og sagðist hann taka á sig misnotkunina að öllu leyti, nema ákærða Jóna Björk kannaðist við eitthvað af henni. Ákærður fór yfir greiðsluseðlana sem fylgdu kærum þeirra, sem verslað var við með kortinu. Hann kannaðist við að hafa skrifað undir alla greiðsluseðlana vegna viðskiptanna sem hann er ákærður fyrir, nema viðskiptin við Kaffi Amor, en greiðsluseðlar vegna þeirra voru ekki undirritaðir og vildi hann ekki neita því, en taldi þó frekar að Jóna Björk ætti hlut að máli. Ákærða Jóna Björk mundi ekki til þess að hafa notað Vísakortið í sambandi við þessi viðskipti, þó að hún kunni að hafa verið með Vísakortið í sinni vörslu á þessum tíma.
Í skýrslu sinni hjá lögreglu viðurkenndi hún að hafa misnotað greiðslukortið í nokkur skipti, svo sem hún er sökuð um í ákæru merkt dskj. nr. 28 XXIX. lið. Þá lýsir hún meðnotkun ákærða Ívars Arons með greiðslukortið sem samræmist því, að hann hafi notað þau í viðskiptum, svo sem hann hefur gengist við.
Við skýrslutöku fyrir dómi var ákærður nokkuð óviss í framburði sínum, mundi eftir að hafa notað kortið, gat ekki staðfest að hafa notað það í öll skiptin sem hann er sakaður um, en vísar til skýrslu sinnar hjá lögreglu, sem hann staðfestir. Hann hafi verið í slæmu ástandi á þessum tíma og geti hvorki neitað né játað.
Ákærður hefur verið nokkuð óöruggur í framburði sínum um þetta ákæruefni, en þegar játning hans hjá lögreglu og staðfestingar hans á henni hér fyrir dómi og svo skýrslu meðákærða Jónu Bjarkar er virt, þykir komin nægileg sönnun um að ákærður hefur gerst sekur um framangreinda misnotkun á greiðslukorti Eyglóar M. Lárusdóttur og með því gerst brotlegur við 248. gr. almennra hegningarlaga.
- Sumarbústaður í landi Höskuldsstaða í Eyjafjarðarsveit.
Mánudaginn 29. janúar s.l. um kl. 01:58 var lögreglunni á Akureyri tilkynnt að eldur væri laus í framangreindum bústað og er lögreglumenn komu á staðinn um 10 mínútum síðar og sást þá reyk leggja frá bústaðnum en engan opinn eld var að sjá, en mikill reykur var inni í bústaðnum og einnig lagði mikinn reyk frá þakskeggi. Það tók slökkviliðið skamma stund að ráða niðurlögum eldsins, en lengri tíma að slökkva glóðina í lofti og í austurvegg. Bústaðurinn var mikið skemmdur eftir brunann og voru eldsupptök talin vera í eldhúskróknum. Á staðnum var Kolbrún Sigurlásdóttir, sem býr að Kvisti, sem er í sjónlínu frá bústaðnum, sem er í eigu foreldra hennar. Þau höfðu verið í bústaðnum um daginn, en yfirgefið hann milli kl. 16:00 og 16:30 og hefði heiti potturinn sem þarna er verið tómur. Kolbrún sem tilkynnti um brunann hafði séð merki um að eldur væri í bústaðnum um það leyti, sem hún var að ganga til náða. Faðir hennar Snæbjörn kom á staðinn og leit aðeins inn í bústaðinn eftir brunann og saknaði sjónvarps sem þar átti að vera og sagði umgengnina benda til þess að þarna hefðu verið einhverjir óvelkomnir á ferð. Við vettvangsrannsókn kom í ljós að opnanlegt fag á norðvesturglugga var opið og búið að losa stormjárnið frá. Þar undir var blautt moldarbeð og voru sjáanleg skóför tveggja aðila, sem höfðu komið af bílastæðinu og gengið í moldarbeðið. Dragför með mold voru upp vegginn undir glugganum, þar sem farið hafði verið inn um gluggann. Skóförin voru mæld og ljósmynduð. Þá var búið að fylla heita pottinn og var vatnið ennþá heitt er rannsóknin fór fram. Mikil óreiða blasti við inni í bústaðnum og var búið að brjóta sjónvarpið sem lá undir eldhúsborðinu og annað var á rúi og stúi. Af brunaferlinum mátti ráða að eldurinn hafði komið upp í króknum milli vasksins og eldavélarinnar og þaðan hafi eldurinn farið upp í sperrurnar í loftinu. Engin ummerki voru um að rafmagnstæki gætu hafa orsakað íkveikjuna.
Skömmu eftir vettvangsrannsóknina voru ákærðu Ívar Aron, Jóna Björk og Sigurbjörn Adam handtekin vegna innbrota í hús skammt frá brunastaðnum og voru þau jafnframt grunuð um íkveikjuna í sumarbústaðnum.
Fram er komið að ákærður Ívar Aron hafði verið í þessum bústað áður með barnsmóður sinni og syni og þau þá leigt bústaðinn á tímabilinu í kringum 17. júní 2006. Fram kom í skýrslu Jónu Bjarkar að ákærður Ívar Aron átti frumkvæðið að fara í bústaðinn og hann hefur viðurkennt að hafa brotist inn í hann með því að rífa upp opnanlegan glugga á norðvesturhlið bústaðarins. Ákærður Sigurbjörn Adam hefur lítið sem ekkert getað sagt um hvað gerðist í bústaðnum og hefir borið fyrir sig að hann hafi verið undir áhrifum fíkniefna og því ekki klár á því sem gerðist. Ákærður Ívar Aron neitaði í fyrstu að hafa kveikt í bústaðnum, en hélt því svo fram að það hafi verið óvart. Ákærða Jóna Björk sem meðákærðu ber saman um að hún hafi ekki verið undir áhrifum vímuefna, hefur skýrt svo frá hjá lögreglu að hún hafi í greint sinn ekið meðákærðu Ívari Aron og Sigurbirni Adam að sumarbústaðnum og hún lagt bifreiðinni sem hún var á á stæði við bústaðinn, en ákærðu Ívar Aron og Sigurbjörn Adam hafi gengið að bústaðnum og komið litlu seinna út um hurðina og ákærður Ívar Aron svo komið til hennar og viljað fá hana inn í bústaðinn en hún tregðast við, en svo að lokum farið inn með honum. Þau hafi verið þarna inni í smástund og talað saman og ákærði Ívar Aron farið út að athuga með heita pottinn. Þau höfðu farið aftur til Akureyrar á Kaffi Amor, þar sem ákærðu hafi keypt áfengi og þau svo farið aftur í bústaðinn og verið búin að vera þar um það bil hálftíma þegar ákærðu hafi sleppt sér. Ákærður Sigurbjörn Adam hafi byrjað að henda einhverju sem var á eldhúsborðinu niður á gólf og ákærður Ívar Aron fór upp á loft og byrjaði að henda dóti niður á gólfið og hafði hún þá farið út, en Sigurbjörn Adam hafði þá byrjað að kasta öllu lauslegu sem hann sá á gólfið. Hún hafði litið að næsta bæ, en er hún hafði litið að bústaðnum aftur, hafi hún séð að Ívar Aron var búinn að kveikja í einhverju, sem hann hélt á. Hann hafi staðið við eldhúsvaskinn, verið með kveikjara og spreyjaði úr honum og það komið logi þegar hann gerði það. Hún hafði ekki séð ákærða Sigurbjörn Adam kveikja í neinu, en hann hafi staðið rétt hjá Ívari Aroni við eldhúsborðið er hann gerði þetta. Hún kvað Ívar Aron hafa verið búinn að drekka mikið og verið búinn að éta um 10 "rivo", en Sigurbjörn Adam hafi verið búinn að drekka og taka amfetamín í nefið. Hún var spurð hvers vegna þeir hafi kveikt í bústaðnum og sagði hún að þeir hafi talað um að þeir þyrftu að gera þetta, svo að ekki væri hægt að rekja slóðina þeirra og ekki væri hægt að finna neitt DNA eða svoleiðis. Hún vissi ekki hvers vegna þeir slepptu sér. Ákærður Ívar Aron mundi ekki hvernig hann kveikti í bústaðnum, en taldi lýsingu ákærðu Jónu Bjarkar rétta þarna.
Hann mundi ekki til að þeir hafi verið búnir að kveikja í einhverju áður en kviknaði í bústaðnum og aðspurður um tilgang með íkveikjunni, sagði hann að það hafi verið óvart að þetta gerðist.
Þá kom fram hjá Jónu Björk, að eftir að hún sá Ívar Aron halda á einhverju sem hann hafi verið búinn að kveikja í við eldhúsvaskinn, hafi hún öskrað á Ívar Aron að hætta þessu og koma út, en hann neitað og það liðið um 20 mínútur, þar til hann og Sigurbjörn Adam komu út, er hún hafi svo ætlað að aka á brott hafi ákærður beðið hana að bíða, gengið upp að pallinum og grýtt einhverju í eldhúsrúðuna, svo að hún brotnaði. Eftir það hafði ákærða Jóna Björk ekið á brott áleiðis til Akureyrar og um leið séð smá eld í bústaðnum.
Ákærður Ívar Aron kannaðist við skýrslutöku hér fyrir dómi að hafa verið í bústaðnum, en neitaði að hafa játað að hafa kveikt í honum. Honum var bent á að hann hafi játað þetta fyrir dómi á Akureyri. Hann kvaðst ekki hafa játað þessu, heldur sagt lögreglu að það hlyti að vera rétt, fyrst þeim (lögreglunni) hafi verið sagt það, en hann hafi viljað losna úr gæslu eftir þrjá sólarhringa í yfirheyrslu. Hann vissi ekki hver hafi kveikt í bústaðnum, en það hafi ekki verið eldur í honum, er þau fóru þaðan og var hann 100% viss um það. Hann kvað ástæðuna fyrir játningunum hjá lögreglu þá, að hann hafi ekki vitað hver var að bera sakir á hann og hann verið í miklum fráhvörfum er skýrslan var tekin. Hann hafnaði því að hafa átt þátt í íkveikjunni. Hann mundi ekki eftir að hafa í síðari skýrslu hjá lögreglu sagst hafa kveikt óvart í bústaðnum, en hann hefði sagt hvað sem var til að komast út.
Hann kvað þau, þ.e. hann, Jónu Björk og Sigurbjörn Adam hafa verið að drekka og neyta fíkniefna inni í bústaðnum og ekki verið með eld eða reykt þarna og ekki hafi verið kveikt á gaseldavél vegna matreiðslu.
Jón Björk bar fyrir dómi og sagðist muna eftir þessu atviki, en kvaðst þó ekki vita hvor hafi kveikt í bústaðnum, ákærður Ívar Aron eða Simbi. Hún kvaðst hafa séð ákærða Ívar Aron kveikja sér í vindling, en ekki hafa séð hann leggja eld í bústaðinn. Hún kvað engan eld hafa verið í bústaðnum þegar hún ók í burtu. Hún kvaðst ekki vita hver hafi kveikt í bústaðnum. Hún kannaðist við að skýrsla hennar hjá lögreglu hafi verið borin undir hana hjá dómara á Akureyri og hún staðfesti hana.
Ákærður Sigurbjörn Adam sagðist ekki muna eftir þessu, annað en hann hafi verið þarna í heita pottinum.
Vitnið Valur Magnússon, lögreglumaður á Akureyri kvaðst hafa tekið skýrslur af ákærða Ívari Aron vegna bruna í sumarbústaðnum og í seinni skýrslunni hafi hann viðurkennt að hafa kveikt í bústaðnum og að hafa brotið rúðu í eldhúsglugga. Vitnið kvaðst hafa komið á brunavettvang og skoðað hann. Það kvað eldsupptök ókunn, en ljóst að kviknað hafi í eldhúskróknum. Það kvað sjálfsíkveikju vera útilokaða. Það kvað hafa verið rafmangseldavél í bústaðnum, ekkert benti til þess, að kviknað hafi í út frá rafmagni.
Í málinu þykir mega byggja alfarið á skýrslu ákærða Ívars Arons og Jónu Bjarkar hjá lögreglunni á Akureyri, sem þau staðfestu fyrir dómi þar. Vettvangsrannsóknin sýndi í meginatriðum fram á að frásgön Jónu Bjarkar er rétt eða fær staðist. Samkvæmt frásögn hennar og af framburðum ákærðu Ívars Arons og Sigurbjröns Adams er ljóst að ákærðu Ívar Aron og Sigurbjörn Adam hefðu notað fíkniefni í stórum stíl og neyttu svo áfengis í framhaldi af því. Af lýsingu Jónu Bjarkar er ljóst að á þá rennur æði eftir þetta og þeir ganga þarna berserksgang svo sem ummerki bera með sér. Jóna Björk greindi frá því, að ákærðu hafi talið sig þurfa að kveikja í bústaðnum, svo að ekki væri unnt að rekja slóð þeirra og ekki að finna neitt DNA eða svoleiðis.
Þegar virt er hegðun ákærðu á undan, svo sem lýsing Jónu Bjarkar á meðferð ákærða Ívars Arons á eldi rétt eftir að hún fór út úr bústaðnum, treg viðbrögð ákærðu um að hætta er hún öskraði til þeirra og játning ákærða Ívars Arons, þykir ekki fara á milli mála og verður að teljast nægjanlega sannað að hann kveikti í bústaðnum og að það var ekki slys. Brot hans á rúðu í eldhúsglugganum er þau voru að fara frá bústaðnum bendir til þess að hann hafi viljað tryggja að eldurinn slokknaði ekki vegna súrefnisskorts.
Með þessum verknaði hefur ákærður Ívar Aron gerst brotlegur við 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga.
- Heimildarlaus taka og notkun bifreiaðrinnar JZ-979.
Laugardaginn 27. janúar s.l. var tilkynnt um stuld á bifreiðinni JZ-979 sem var á bifreiðastæði við hu nr. 4 við Giljasel 4 í Reykjavík, en talið var að hún hafi verið tekin á tímbilinu frá kl. 10:00 um nóttina þar til kl. 08:00 um morguninn, sbr. IV-8 hér að framan. Kveikjuláslyklarnir af bifreiðinni höfðu verið á efri hæð hússins þar sem hafði og verið farsíminn o.fl. sem hafði verið tekið. Ákærði Ívar Aron, Jóna Björk og Sigurbjörn Adam voru handtekin af lögreglu hjá bifreiðinni 29. janúar s.l. á bílaplani á Akureyri. Upplýst er að ákærða Jóna Björk hafði ekið bifreiðinni frá Reykjavík til Akureyrar og þar um bæinn og nærsveitir. Fram kom hjá Jónu Björk að ákærðu Emil og Sigurbjörn Adam hafi stolið bifreiðinni JZ-979 einhversstaðar uppi í Breiðholti og hún ekið bifreiðinni frá einhverju fjölbýlishúsi nálægt Laugarásbíó.
Við skýrslutöku hafa bæði ákærður Sigurbjörn Adam og Ívar Aron neitað því að hafa tekið bifreiðina og ákærður Sigurbjörn kvaðst aldrei hafa komið inn í hana. Ákærður Ívar Aron kvaðst aðfaranótt 27. janúar s.l. hafa hitt ákærðu á þessum bíl á Vatnsenda í Kópavogi og hafði hann engar skýringar á því hver hafi stolið bílnum, en taldi sig vita að ákærða Jóna Björk hafi ekki gert það.
Ákærður Ívar Aron sagði fyrir dóminum að hann hafi ekki stolið þessari bifreið, meira verið á Volkswagen bifreið og aðallega á jeppanum. Hann kvaðst ekki vita hvernig Jón Björk tengdist þessari bifreið, né að hún hafi tekið hana í heimildarleysi.
Ákærðu hafa ekki getað lýst hvernig þau eru komin að bifreiðinni, en að virtum framburði ákærðu Jónu Bjarkar um að hún hafi fengið bifreiðina frá ákærðu og að henni hafi verið stolið, og þykir ekki varhugavert að telja að ákærður Ívar Aron hafi átt þátt í hinni heimildarlausu töku á bifreiðinni og með því brotið gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga sbr. lög nr. 82/1998.
VI. Ákærður Pétur Áskell einn.
Fimmtudaginn 16. nóvember 2006 kl. 18:54 var ákærður Pétur Áskell ásamt Arthúri Geir Bell handtekinn eftir að lögreglan hafði haft afskipti af þeim þar sem þeir voru sofandi í bifreiðinni OH-231, sem ekið hafði verið upp á gangstétt við gatnamót Stigahlíðar og Hamrahlíðar. Ökumaður bifreiðarinnar var ákærður Pétur Áskell, en hann og Arthúr voru í annarlegu ástandi og var grunur um að Pétur Áskell hefði ekið bifreiðinni undir áhrifum.
Ákærður Pétur Áskell sem á þessum tíma var sviptur ökurétti var færður fyrir lækni á lögreglustöðina í Reykjavík, sem skoðaði hann og tók úr honum blóðsýni til rannsóknar. Fram kom hjá ákærða við handtökuna að þýfi væri í bifreiðinni og heimilaði lögreglu leit í bifreiðinni, en við hana fundust aðallega rafmagnsverkfæri og voru sum þeirra merkt Afltaki ehf. og höfðu verið tekin úr vinnuskúr á vinnusvæði fyrirtækisins, sem brotist var inn í aðfararnótt 15. nóvember 2006 og tilheyrðu þessir munir þýfi úr fyrirtækinu: DeWatt rafhlöðuborvél, Mikrofin hæðarmælir, rauðar stórar vírklippur og skrúfjárn. Fleiri verkfæri voru samt í bifreiðinni, svo sem borvélar, stingsög o.fl. Við skýrslutöku hjá lögreglu hefur ákærður viðurkennt að hafa í greint sinn ekið bifreiðinni OH-231 úr vesturbænum í Reykjavík, en tekið inn rivotril og kókaín áður en aksturinn hófst, en meðan hann hafi verið að aka bifreiðinni hafi hann allt í einu fundið til mikillar þreytu, þannig að hann hafi ákveðið að leggja sig og lagt sig í bifreiðinni uppi á gangstétt við Hamrahlíð, þar sem hann hafi sofnað í bifreiðinni. Hann sagðist þó ekki hafa fundið til áhrifa fíkniefna eða örvandi eða deyfandi lyfja við aksturinn. Ákærður var í X. lið ákæru merkt dskj. nr. 13, sakaður um að hafa ekið bifreiðinni OH-231 sviptur ökurétti og undir áhrifum slævandi lyfja, en síðar var fallið frá ákæru um lyfjaakstur og er játning um sviptingarakstur og skilyrði til að dæma það samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991.
Ákærður kvað þýfið sem var í bifreiðinni þannig til komið. Hann kvaðst hafa verið að aka tveimur kunningjum sínum, þeim Andra og Sindra, þ.e. Andra Þór Eyjólfssyni, Álfheimum 46, Reykjavík og Sindra Frey Sigurbjartssyni, Álfholti 6, Hafnarfirði og þeir beðið hann um að stoppa í Mosfellsbæ. Þar hafi þeir brotist inn í nokkra vinnuskúra og ákærður beðið í bifreiðinni. Hann kvað verkfærin sem þeir Sindri og Andri stálu hafa verið sett í farangursrými bifreiðarinnar. Andri og Sindri hafa ekki gengist við þessu broti.
Ákærður Pétur kvaðst fyrir dómi ekki vita hvar hann fékk þessi verkfæri, en hafi verið búinn að lána bifreiðina heilmikið og var honum bent á að þeim hafi verið stolið úr vinnuskúr. Hann viðurkenndi að hafa haft verkfærin í bifreiðinni, þó að hann hafi vitað að þau væru þýfi. Hann kvaðst nú vera í afplánun á refsingu sem hafi verið skilorðsbundin skv. dómi, en hann hann rofið skilorðið.
Með játningu ákærða hér fyrir dómi, en hún er í samræmi við rannsóknargögn málsins er nægilega sannað að hann hefur gerst sekur um hylmingu svo sem hann er sakaður um í ákæru á dskj. nr. 13/XII og hefur hann með því gerst brotlegur við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga.
VII. Ákærðu Davíð Þór og Pétur Áskell saman.
Innbrot í iðnaðarhúsnæði að Rauðhellu 10 í Hafnarfirði.
Föstudaginn 5. janúur s.l. var tilkynnt um innbrot í iðnaðarhúsnæði að Rauðhellu 10 í Hafnarfirði, en húsnæðinu er skipt upp í sex einingar og hafði verið brotist inn í einingu nr. 4 með því að fara inn um glugga á innkeyrsluhurð á einingu nr. 3 og svo brjóta gat á millivegg sem skilur að einingar 3 og 4 og fara svo inn um gatið í einingu nr. 4. Eigandi einingar nr. 4 er Tryggvi Ólafsson, úrsmiður, Lækjargötu 34d, Hafnarfirði og er hann þarna með vinnuaðstöðu í sambandi við úrsmíðar o.fl. og saknaði hann auk fleiri muna hluta þeirra sem taldir eru upp í ákæru merkt dskj. nr. 13, II. liður.
Um svipað leyti hafði verið brotist inn í einbýlishús að Þinghólsbraut 30, Kópavogi og leiddi rannsókn lögreglu á þessum málum til þess að húsleit var gerð í kjallaraíbúð að Baldursgötu 6, Reykjavík, þar sem megnið af þeim munum, sem teknir höfðu verið í innbrotunum fundust, en húseigandi þar upplýsti að Einar Örn Sigurðsson, Seljavegi 15, Reykjavík, hefði fengið afnot af kjallaraíbúðinni til að geyma þessa muni, en hann var grunaður um aðild að innbrotinu að Þinghólsbraut 30, en hann viðurkenndi að hafa komið þangað um það leyti eða áður en innbrotið var framið og verið þá með ákærða Davíð Þór og strák sem heitir Björgvin Ormsson og þeir ætlað þarna í samkvæmi, en þeir verið flæmdir frá partíinu. Fram kom að hann hafi komið á bifreið, sem Halldóra Halldórsdóttir ætti, sem hann þekkti vel og væri systir vinkonu hans Gerðar.
Halldóra sem er til heimilis að Tjarnarbraut 16 í Reykjanesbæ gaf skýrslu hjá lögreglu 5. janúar s.l. og lýsti hún atvikum svo, að hún hafi verið í samkvæmi og þar hafi verið vinur hennar Einar Örn Sigurðsson ásamt fleirum. Einar hafi beðið hana að lána sér bíl, en hún hafi sagt honum að hún treysti honum ekki fyrir bifreiðinni og hún yrði því að vera með honum og hann samþykkt það. Þau höfðu farið á bifreiðinni AS-844 og í för með þeim hefði verið Pétur "tattú" sem sé tengdur Einari og hann búi í vesturbæ Reykjavíkur og Davíð Þór sem sé jafn gamall henni og búi í Keflavík. Hún sagði þá hafa verið mjög dópaða og í annarlegu ástandi. Þau höfðu svo farið í Hafnarfjörð að stað rétt hjá Álverinu og benti hún á götuna Rauðhellu á götukorti sem henni var sýnt. Hún sagði þau hafa farið að einhverjum bílskúrshurðum og stöðvaði bifreiðina í nokkurri fjarlægð frá þeim. Hún kvað ekkert hafa verið rætt um innbrot á leiðinni og hún spurt hvað þau væru að gera, en ekki fengið neitt svar. Þau hafi farið þarna öll út úr bifreiðinni og kvaðst hún hafa séð strákana reyna að fara inn um glugga, en það ekki tekist og hún þá séð þá reyna að komast inn um hurð, en hún þá farið aftur í bílinn og sest í farþegasætið. Eftir heillanga bið að því er henni fannst, hafi strákarnir komið með eitthvað dót, sem þeir settu í bifreiðina, en svo var farið að einhverju skoti, þar sem þeir höfðu sett út meira dót, sem og var sett í bifreiðina. Hún vissi ekki nákvæmlega hvað þetta var, en hún hafi séð antikklukku með pendúl og einhver úr og einhverja stóra kassa. Hún sagði þau hafa farið með þýfið í kjallaraherbergi vestur í bæ, þar sem vinur Einars búi og var farið með allt þýfið þar inn,en svo ekið með Pétur heim, en hin fóru heim til Einars, þar sem hún sofnaði, en hún sagðist hafa verið í mikilli neyslu, tekið spítt, kókaín og mogadonlyf.
Ákærður Pétur Áskell hefur við skýrslutöku hjá lögreglu viðurkennt að vera þátttakandi í bæði innbrotinu í einbýlishús á Þinghólsbraut 30 Kópavogi og í íðnaðarhðusnæði að Rauðhellum 10, Hafnarfirði með Einari Erni Sigurðssyni og ákærða Davíð Þór.
Aðfaranótt 5. janúaur s.l. hafi þeir ásamt Halldóru Halldórsdóttur farið frá Kópavogi að Rauðhellu 10 í Hafnarfirði í þeim tilgangi að stela, en hann vissi af torfæruhjóli þar, sem hann hugðist taka. Ákærður Pétur Áskell kvaðst hafa að pikka upp lás á hurð með skrúfjárni og hníf, en ekki tekist, en svo séð að Einar og Davíð Þór voru komnir inn í húsnæðið og höfðu brotið sér leið í gegnum trévegg að aðstöðunni sem þeir ætluðu inn í. Á annarri hæð hússins voru margar veggklukkur og þeir tekið þær og farið með út í bifreiðina um bakdyr. Þeir hafi svo farið beinustu leið að Baldursgötu 6 í Reykjavík og sett klukkurnar inn í eldhús í kjallaraíbúð, sem félagi Einars hafi verið með.
Ákærður Davíð Þór neitaði við skýrslutöku hjá lögreglu að eiga þátt í framangreindu innbroti og því neitaði og Einar Örn Sigurðsson, Seljavegi 15, Reykjavík.
Þá skýrði Páll Þórðarson, sem er með kjallaraíbúð að Baldursgötu 6, Reykjavík að kunningi hans, sem upplýstist síðar að var Einar Örn Sigurðsson, hafi tvívegis fengið að geyma hjá honum þýfi í eldhúsi kjallaraíbúðarinnar og í síðara skiptið verið um kl. 06:30 að morgni 5. janúar s.l. og hafi hann þá verið með fangið fullt af klukkum, sem og farið hafi inn í eldhúsið og hafi tveir strákar verið með honum.
Ákærður Pétur mundi ekki eftir þessu innbroti hér fyrir dómi, en sagði að ef það hafi gerst þá hafi hann verið í mjög annarlegu ástandi. Hann hafi farið á þennan stað og kunni að hafa brotist þarna inn en hafi verið búinn að neyta MDAM taflna og muni lítið eftir því sem gerðist. Hann vissi af torfæruhjóli en tók það ekki. Hann mundi ekki að ákærði Davíð Þór hafi verið með.
Halldóra Halldórsdóttir bar vitni í málinu og lýsti atvikum mjög á sama veg og hjá lögreglu. Vitninu fannst þýfið aðallega vera skartgripir og svoleiðis, en gerði sér þó grein fyrir að þetta væru töluverð verðmæti. Hún kvað Jón Einar og ákærðu Davíð Þór og Pétur Áskel alla hafa tekið þátt í þessu og farið með þýfið í hús vestur í bæ. Ákærður Davíð Þór kannaðist ekki við að hafa tekið þátt í þessu innbroti og taldi þetta einhverja vitleysu í meðákærða Pétri Áskeli.
Þegar virtur er vitnisburður Halldóru Halldórsdóttur og Páls Þórðarsonar, sem bar um að Einar Örn hafi tvívegis komið með þýfi í geymslu, en um var að ræða þýfi úr húsinu Þinghólsbraut 30 og Rauðhellu 10, en tveir strákar þá verið með honum, og ákærðu hafi játað þátttöku í innbrotinu að Þinghólsbraut 30 og einnig þegar litið er til játningar ákærða Péturs verður að telja næga sönnun fram komna um að ákærðu tóku þátt í þessu innbroti saman og hafa með því gerst brotlegir við 244. gr. almennra hegningalraga.
VIII. Ákærðu Davíð Þór, Jón Einar og Pétur Ingi saman.
I. Greiðslukort Catherinu Goldings og notkun þess.
Framangreint greiðslukort var í eigu hjónanna Peters og Catherinu Golrings frá Bandaríkjunum og var meðal þeirra muna sem þau höfðu skilið eftir í hópferðabifreið Kynnisferða hf., er þau fóru í Bláa Lónið við Svartsengi í Grindavík 29. júlí 2006, en ákærður Davíð Þór hefur játað að hafa framið þetta þjófnaðarbrot sem lýst er í I. ákærulið ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærðu voru á þessum tíma saman í bifreiðinni YB-339 og handléku saman þá muni, sem ákærður Davíð Þór hafði tekið úr hópferðabifreiðinni og þeir fara svo saman í þá verslunarstaði sem tilgreindir eru í II. ákærulið sdskj. nr. 28 og er greiðslukortið notað til kaupa á fatnaði og öðrum varningi og þjónustu og er fram komið að flestir ákærðu njóta góðs af, en við skýrslutöku hjá lögreglu hafa allir neitað að hafa notað kortið og skrifað undir greiðslukvittanir nema ákærði Pétur Ingi, sem kannaðist við að hafa greitt fyrir vörurnar sem keyptar voru í Gallerí 17, Kringlunni, Skífunni í Kringlunni og Exedus á Hverfisgötu 20, Reykjavík og kannaðist við undirskrift sína á greiðslunótunni. Hann sagði að annaðhvort hann eða ákærður Jón Einar hafi greitt fyrir vörur sem voru í Hagkaup með greiðslukortinu, en kannaðist þó ekki við undirskriftina á greiðslunótunni, sem hans skrift.
Á öllum verslunarstöðunum voru eftirlitsmyndavélar, en upptökurnar höfðu ekki verið varðveittar svo lengi, að nota mætti þær í þessu máli og hafði þeim verið eytt eða tekið yfir þær á myndbandinu, engum vitnisburðum er heldur til að dreifa frá afgreiðslufólki verslananna.
Ákærður Davíð Þór kvaðst fyrir dómi muna eftir þessu greiðslikorti, en kvaðst ekki hafa notað það. Hann kvaðst heldur ekki vita hver hafi notað það en hann hafi fengið eitthvað af fatnaðinum sem keyptur var með kortinu. Hann mundi ekki hvern hann lét fá kortið, en mundi eftir því að hafa verið með meðákærða í Kringlunni, Exodus, BT og Keiluhöllinni.
Ákærður Jón Einar kannaðist ekki við að hafa notað kortið, heldur hafi ákærður Pétur Ingi verið með kortið og notað það, og kvaðst hann ekki hafa notið neins af því sem fékkst með notkun þess. Hann kvað enga fleiri hafa notað kortið.
Í þinghaldi 23. apríl s.l. viðurkenndi ákærður að hafa notað kortið en ákærður Jón Einar hafi verið með honum.
Í máli þessu skortir frekari gögn til upplýsinga um þátt ákærða Davíðs Þórs og Jóns Einars um notkun greiðslukortsins en ekki liggja fyrir upptökur úr eftirlitsmyndavélum hlutaðeigandi verslana, né skýrslur af starfsmönnum, og verði þeir því ekki sakfelldir fyrir þessa mistnotkun og sýknaðir af þessum ákærulið.
Á grundvelli játningar Péturs Inga verður hann sakfelldur fyrir að hafa framvísað greiðslukortinu og því greitt fyrir úttekt á vörum í Gallerí 17 í Kringlunni, Skífunni í Kringlunni og Exodus við Hverfisgötu og hefur hann með því gerst brotlegur við 248. gr. almennra hegningarlaga.
IX. Ákærðu Davíð Þór og Sigurbjörn Adam saman.
Nytjastuldur í bifreiðina YL-273.
Miðvikudaginn 20. september 2006 var lögreglan kvödd að Hraunbergi 21 í Reykjavík vegna innbrota í bifreiðina RU-814 og nytjastulds eða þjófnaðar á bifreiðinni YL-273. Smári Hreiðarsson, húsráðandi taldi að bifreiðinni YL-273 hafi verið stolið eftir kl. 01:30 um nóttina, en þá fór hann að sofa og kvað húsið hafa verið ólæst og lyklar höfðu verið á lyklaspjaldi í anddyrinu, eða þar hengi hann þá vanalega. Hann kvað bifreiðina YL-273 hafa verið í innkeyrslunni við húsið. Lögreglumennirnir sem komu á vettvang svipuðust um eftir bifreiðinni í Breiðholti og öðrum hverfum en fundu ekki,en þeir hætti leitinni kl. 15:00. Aðfaranótt fimmtudagsins 21. september s.l. laust eftir kl. 10:30 veittu lögreglumenn, sem voru staddir í Hábergi athygli bifreiðinni YL-273, þar sem hún var kyrrstæð á bifreiðastæði í Hábergi og voru stöðuljós hennar tendruð og sváfu ákærðu þar. Ákærðu vöknuðu er barið var í glugga bifreiðarinnar ökumannsmegin og var þeim skipað að opna bifreiðina, en þeir hlýddu því ekki heldur steig ákærður Davíð Þór sem var ökumaður á bensíngjöfina og ók á brott og var bifreiðinni þá veitt eftirför, sem endaði með því, að bifreiðinni var ekið á kyrrstæðabifreið MV- 596 á Neðstabergi og voru ákærðu í framhaldi af því handteknir.
Við skýrslutöku af ákærða Davíð Þór hjá lögreglu kom fram að hann og meðákærði Sigubjörn Adam hafi verið saman í Breiðholtinu að leita sérð að bifreið og farið í sitt hvota áttina. Ákærði Sigurbjörn Adam hafi svo komið til hans með bíllykla og þeir farið saman í bifreiðina, hann og Davíð Þór ekið henni á brott. Hann kvaðst hafa og farið inn í bifreiðina KU-814 við Háberg 21, en hún hafi verið ólæst og hann tekið hluti úr henni. Hann kvaðst ekki hafa farið inn í húsið að Hábergi 21. Hann kvaðst ekki vera með ökuréttindi og fundið til vímuáhrifa við akstur bifreiðarinnar.
Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst ákærður Sigurbjörn Adam hafa fundið lykla að bifreiðinni YL-273 fyrir utan eitthvað hús, en kvaðst ekki hafa farið inn í húsið að Hábergi 21 í Reykjavík, en hann kvaðst hafa verið með ákærða Davíð Þór.
Ákærður Davíð Þór kvaðst fyrir dómi ekki muna eftir þessu atviki, né afskiptum lögreglu. Hann kvaðst ekki hafa stolið bifreiðinni og mundi ekki hver ók.
Ákærður Sigurbjörn Adam kvaðst á þessum tíma hafa verið í neyslu og mundi ekki eftir þessu. Hann rámaði í að hafa verið stöðvaður við Háberg. Hann hafi ekki ekið, en hann hafi fundið lyklana, en mundi ekki meir.
Vitnið Sigrún Kristín Jónasdóttir lögreglumaður tók skýrslu af ákærða Davíð Þór vegna ætlaðs nytjastuldar á framangreindri bifreið og hafi hann viðurkenn að hafa verið á bifreiðinni og að félagi hans hafi komið með lyklana og staðfesti vitnið að rétt væri haft eftir ákærða í skýrslunni.
Með framburðum ákærðu og rannsóknargögnum er sannað að þeir taka bifreiðina YL-273 saman án heimildar og ákærður Davíð Þór ekur henni víðsvegar um götur Reykjavíkur. Ákærðu hafa með þessu gerst brotlegir við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga.
X. Ákærður Jón Einar og Sigurbjörn Adam saman.
- Húsið Vesturhús 8, Reykjavík.
Föstudaginn 28. júlí 2006 um kl. 18:31 var lögreglu tilkynnt um innbrot á framangreindum stað. Þar á vettvangi var rætt við Alfreð Finnbogason, sem þar býr. Hann tjáði þeim, að er hann hafi komið úr vinnu kl. 16:10, hafi útidyraburðin verið opin og er hann hafi farið inn og um húsið, hafði hann séð að búið var að taka fartölvu hans af gerðinni Acer og einnig hefði verið rótað í vinnuherbergi föður hans, en ekki vissi hann hvort fartölva hans hafði verið tekin, en hún finnist ekki. Í ljós kom við vettvangskönnun lögreglu, að opnanlegt fag í glugga á bakhlið neðri hæðar hússins hafði verið tekið úr glugganum með því að rífa stormjárnin laus frá gluggakarminum og hafði verið lagt á stéttina til hliðar við gluggann.
Á staðinn kom Kristján Kristjánsson, rannsóknarlögreglumaður hjá Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík og rannsakaði hann vettvang. Á innanverðu opnanlegu glugggafagi, sem tekið hafði verið úr glugganum fundust partar af förum eftir fjóra fingur og voru förin þannig staðsett, að það benti til þess, að tekið hafi verið um gluggafagið til að losa það af lömum. Fingraförunum var lyft upp með Mikrosil og merkt Far nr. 1.
Í innanverðum gluggapóstinum fyrir neðan gluggaopið fundust för eftir þrjá fingur og voru förin eins og hlutaðeigandi hefði staðið fyrir utan gluggann og gripið í gluggapóstinn til að vega sig inn í húsið. Fingraförin voru lyft upp með Mikrosil og voru merkt Far nr. 2.
Fingraför "Far nr. 2: voru samkennd við fingraför ákærða Jóns Einars, sem samstæða fannst ekki við fingraför merkt "Far nr. 1 í fingrafarasafni lögreglunnar í Reykjavík. 15. ágúst 2006 voru tekin fingraför af ákærða Sigurbirni Adam og voru þau send Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík til rannsóknar og samanburðar við samstæður á vettvangsförum úr óupplýstum málum. Fingrafar merkt "Far nr. 1, virtist vera eftir litla fingur hægri handar ákærða Sigurbjörns Adams.
Ákærður Sigurbjörn Adam hefur við skýrslutöku hjá lögreglu borið að hann hafi verið í samkvæmi í húsi við Ingólfstorg hjá manni sem kallaður sé Elli. Þar hafi og verið ákærðu Jón Einar, Davíð Þór og Pétur Ingi. Hafi þessi Elli beðið þá strax um að ná í tölvur fyrir sig, en hann vissi ekki hvort hann hafi bent á ákveðið heimilisfang. Hann kvaðst hafa farið á rúntinn með strákunum og þeir skoðað einhver hús og taldi hann að ákærður Davíð Þór hafi ráðið ferðinni. Hann farið inn í húsið og komið út með tvær tölvur. Ákærður Sigurbjörn Adam kvaðst sjálfur ekki hafa farið inn í húsið, en viðurkenndi að hafa gengið í kringum það og virt það fyrirsér. Hann taldi að tölvurnar hafi farið til Ella og kvaðst ekki vita hvað fékkst fyrir þær, en hann hafi engan ágóða hlotið af þessu. Aðspurður um bifreiðina YB- 339 sagði hann að ákærður Jón Einar hafi reddað bifreiðinni og fengið hana hjá Eysteini félaga sínum. Við síðari skýrslutöku var ákærða Sigurbirni bent á, að fingraför hans hafi fundist við vettvangsrannsókn að Vesturhúsi 8 og kvaðst hann hafa komið með höndum við glugga og svalarhurð, en neitaði samt að hafa farið þar inn og vildi ekki nafngreina þá sem farið hafi þar inn. Hann kvaðst hafa komið við gluggann þegar hann hafi kíkt á eftir þeim sem farið hafi inn í húsið.
Ákærður Jón Einar hefur þrátt fyrir að fingraför hans fundust á opnanlega faginu ekki vilja kannast við að hafa verið að Vesturhúsi 8 í greint sinn og tengir fingraförin við heimsókn í húsið á öðrum tíma, Ákærður Davíð Þór hefur heldur ekki kannast við að hafa farið inn í húsið og hélt því fram hjá lögreglu að hann hafi verið heima hjá Ella skakka þegar ákærðu Jón Einar og Sigurbjörn Adam hafi farið í þessa bílferð. Ákærður Pétur Ingi hefur og neitað að hafa farið að Vesturhúsi 8 í greint sinn.
Fram er komið að íbúi að Vesturhúsi 8 hafði orðið var við ferðir nokkra stráka á aldrinum 18-20 ára við Vesturhús 8 og þeir verið á ljóblágrænni smábifreið og það verið um kl. 14:00 og hafði einn þeirra verið hávaxinn með derhúfu og verið að horfa inn um glugga við hlið útihurðar að Vesturhúsi 8. Þá hafði annar nágranni skráð hjá sér skráningarnúmer bifreiðarinnar sem hafi verið YB-339 og hafði honum þótt ferðir ökumanns og farþega grunsamlegar.
Ákærður Jón Einar hefur ekki kannast við það að hafa farið inn í þetta hús og hafði enga skýringu á því hvers vegna að fingraförin hanns finnast þarna. Ákærður Sigurbjörn Adam kannaðist ekki heldur við þetta og mundi ekki eftir því sem haft var var eftir honum.
Kristján Kristjánsson, rannsóknarlögreglumaður, Lúðvík Eiðsson rannsóknarlögreglu-maður og Sævar Þ. Jóhannesson fingrafarafræðingur staðfesti niðurstöður sínar um fingrafararannsóknir.
Með niðurstöðum fingrafararannsóknar, sem staðfest hefur verið hér fyrir dómi er ljóst að fingraförin eru af ákærðu og verksummerki og staðsetning fingrafaranna benda til að tekið hafi verið um gluggafagið til að losa það og tekið hafi verið um gluggapóstinn til að vega sig inn í húsið og þykja því framburðir ákærðu um að þeir hafi ekki farið inn í húsið vart fá staðist. Engin skýring er á því af hverju ákærði Sigurbjörn Adam hverfur frá fyrri framburði hjá lögreglu en samkvæmt honum fór hann, ákærður Jón Einar og fleiri í þjófnaðarleiðangur að Vesturhúsi 8, á bifreið sem ákærður Jón Einar lagði til. Það þykja því það sterkar líkur fyrir þátttöku ákærðu í þessu innbroti að telja megi framkomna lögfulla sönnun um þátttöku þeirra í því og hafa þeir með því gerst brotlegur við 244. gr. almennra hegningarlaga.
XI. Ákærður Sigurbjörn Adam og Ívar Aron saman.
- Heimildarlaus taka og notkun bifreiðarinnar KX-999.
Að morgni laugardagsins 27. janúar s.l. var akstur bifreiðarinnar KX-999 stöðvaður á Reykjavíkurvegi við Stöðina í Hafnarfirði, þar sem hún var ljóslaus að aftan. Í bifreiðinni var lögreglutækjabelti og vaknaði grunur um að það væri þýfi, en brotist hafði verið inn í bifreið lögreglumanns fyrr um morguninn og þaðan tekið samskonar belti. Ökumaður bifreiðarinnar var ákærður Ívar Aron, en farþegi var ákærður Sigurbjörn Adam. Ákærður Ívar Aron tjáði lögreglunni að hann vissi ekki hver væri eigandi bifreiðarinnar en taldi hana stolna. Hann sagðist hafa tekið við akstri bifreiðarinnar af ákærða Sigurbirni Adam í Hafnarfirði við eina af verslunum 10-11, þar sem hann hafi verið með vinkonu sinni ákærðu Jónu Björk.
Í ljós kom af bifreiðinni KX-999 hafði verið stolið frá Kleifakór 23 í Kópavogi og höfðu lyklarnir að henni verið á borði í eldhúsi á heimili eigandans þar, en hann sagðist ekki hafa heimilað ákærðu afnot bifreiðarinnar. Bifreiðin sem tækjabelti lögreglu var stolíð úr var við Desjakór 10 í Kópavogi.
Við skýrslutökur hjá lögreglu sagði Ívar Aron meðákærða Sigurbjörn Adam hafa tekið bifreiðina KX-999 og verið á henni í Hafnarfirði, er hann tók við akstrinum. Hann sagði að hann, ákærða Jóna Björk og ákærður Sigurbjörn Adam hafi verið saman við Desjakór, en svo hafi einhver talið sig sjá löggubíl og þau þá forðað sér en hann þá brotist inn í bifreiðina OP-566 og tekið tækjabelti lögreglubifreiðarinnar o.fl. Ákærður Sigurbjörn kannaðist hvorki við að hafa tekið bifreiðina KX-999 eða að hafa ekið henni, né að hafa verið með ákærðu Ívari Aroni og Jónu Björk í greint sinn.
Ákærður Ívar Aron kvaðst hér fyrir dómi muna vel eftir þessu. Hann kvaðst hafa verið með meðákærða Sigurbirni Adam í bílnum, en hafi ekki stolið honum. Hann kvaðst hafa verið með meðákærðu Jónu Björk annarsstaðar í 10-11 verslun í Hafnarfirði um 10 mínútum áður en þeir voru stöðvaðir. Hann kvað ákærða Sigurbjörn Adam hafa komið á bifreiðinni þangað og hann Ívar Aron, farið upp í bifreiðina þar. Hann grunaði að Sigurbjörn Adam hafi stolið bifreiðinni, þar sem hann átti ekki bifreið.
Ákærður Sigurbjörn Adam kvaðst ekki muna eftir því að hafa komið á bifreiðinni til ákærða.
Í máli þessu liggur fyrir að ákærðu voru á bifreiðinni KX-999, er lögreglan hafði afskipti af akstri hennar 27. janúar s.l. en þá kom í ljós að henni hafði verið stolið. Hvorugur ákærðu hafa kannast við að hafa tekið bifreiðina eða geta gert grein fyrir því á fullnægjandi hátt hvernig þeir voru að henni komnir. Ljóst er að hér er um heimildarlausa töku á bifreiðinni að ræða, sem gögn málsins hníga að, að ákærðu séu viðriðnir, en þeir voru báðir við þann stað sem bifreiðinni hafði verið lagt og verða þeir því báðir gerðir ábyrgir fyrir töku hennar og hafa þeir með því gerst brotlegir við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga.
- Heimildarlaus taka bifreiðarinnar og notkun bifreiðarinnar KO-896.
Mánudaginn 29. janúar s.l. um kl. 08:05 var lögreglunni tilkynnt um stuld á bifreiðinni KO-596, kóngablá, Toyota Landcruiser, sem staðið hafði á hlaðinu utan við bæinn Mið-Samtún í Glæsibæjarhreppi, en lyklar að bifreiðinni höfðu verið geymdir í skál inni í anddyri hússins, en húsið var ólæst. Um hádegisbilið sama dag fannst bifreiðin í porti verslunarinnar Ellingsen við Tryggvagötu á Akureyri og stóð ákærður Ívar Aron við bifreiðina er lögregluna bar að og var hann handtekinn í framhaldinu vegna gruns um nytjastuld á bifreiðinni, en vitni voru að akstri ákærða Ívars Arons frá Landflutningum við Tryggvabraut inn á Tryggvagötu og eftir henni að Olís og inn á bifreiðastæðið þar og yfir kantstein og út af planinu til norðurs, þar til bifreiðin stöðvaðist í snjóskafli norðan við framangreint port. Í bifreiðinni var ætlað þýfi úr innbroti í Fossland 3, sbr, ákæruliður nr. XVIII í dskj. nr. 25.
Í skýrslu Ívars Arons hjá lögreglu kemur fram að ákærður Sigurbjörn Adam hafi komið til hans og ákærðu Jónu Bjarkar á jeppanum. Hann sagðist ekki vita hvaðan ákærður Sigurbjörn Adam hafi tekið jeppann eða hvort hann hafi fengið hann lánaðan. Hann kvaðst hafa farið úr bifreiðinni sem Jóna Björk var á og lagt var við Hlíðarbæ á Akureyri yfir í Landcruiser bifreiðina, sem ákærður var á og hann ekið að húsunum við Eyrarland nr. 3 og 5 svo sem lýst er hér á eftir. Þýfið úr því innbroti höfðu þeir sett í Landcruiser jeppann og fóru svo að Landflutningum og lögðu jeppann þar rétt hjá og settu hluta af þýfinu í bifreiðina sem ákærða Jóna Björk var í, en þeir höfðu kvatt hana á staðinn. Ákærður Ívar Aron sagðist eftir það að hafa ekið Landcruisernum upp í Landflutninga við Tryggvabraut, en svo hafi Jóna Björk allt í einu hringt í hann og sagt að lögreglan væri komin á staðinn og hann þá reynt að stinga hana af.
Er ákærður Sigurbjörn Adam var fyrst spurður um nytjastuldinn á bifreiðinni KO- 596 og kannaðist ekki við að hafa verið með meðákærða og Jónu Björk Landflutninga í greint sinn en seinna sagðist hann kannski hafa verið í jeppanum í 5 mínútur, en ákærður Ívar Aron hafi ekið honum að Landflutningum, en hann kvaðst hafa farið þangað í þeim erindagjörðum að senda mömmu sinni föt.
Síðar er framburður Ívars Arons var borinn undir hann sagði hann það vel geta verið að hann hafi tekið einhvern jeppa og svo brotist inn, en vísaði til þess, að hann hafi ekki verið með fullri rænu og hafi ekki verið með á nótunum í tvo til þrjá daga og ekki verið í góðu ástandi.
Ákærður Ívar Aron kvaðst fyrir dómi ekki hafa verið í þessari bifreið, en var þó bent á játningu hans um sakarefnið hjá lögreglu sbr. dskj. nr. 28 XXXVIII. lið. Hann kvaðst þá ekki hafa vitað hvar meðákærði Sigurbjörn Adam hafi tekið bifreiðina eða að hann hafi tekið hana í heimildarleysi. Hann hafi á þessum tíma verið með strákum inni á Akureyri.
Ákærður Sigurbjörn Adam kannaðist ekki við að hafa tekið bifreiðina og væri framburður ákærða Ívars Arons rangur.
Ákærðu hafa hvorugur viljað kannast við nytjastuldin á bifreiðinni, en hafa engar haldbærar skýringa á því í málinu, hvernig þeir voru komnir að henni. Upplýst er að ákærður Ívar Aron var að aka bifreiðinni og framburður hans um að meðákærði Sigurbjörn Adam hafi sótt hann á bifreiðinni að Hlíðarbæ styðst ekki við framburð Jónu Bjarkar, þar eð hún kvaðst hafa ekið þeim að Hlíðarbæ við Akureyri, en þar hafi þeir beðið hana að stoppa, þar sem þeir ætluðu að redda sér um bíl og komu skömmu seinna á bláum jeppa.
Að þessu virtu þykir ekki varhugavert að telja næga sönnun fram komna um að ákærðu hafi saman tekið bifreiðina í heimildarleysi og ekið og hafa þeir með því gerst brotlegur við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga sbr. lög nr. 20/1956.
- Einbýlishúsið Fossland 5 úr landi Eyrarlands í Eyjafjarðarsveit.
Mánudaginn 29. janúar s.l. var lögreglunni á Akureyri tilkynnt um að brotist hafi verið inn í tvö hús við Fossland í landi Eyrarlands í Eyjafjarðarsveit. Þarna var um að ræða hús nr. 3 og hús nr. 5 við Fossland. Tveir lögreglumenn fóru á staðinn og kom í ljós að Fossland 3 er einbýlishús í byggingu og hafði verið spennt upp krossviðarspjald á austurhlið hússins og farið þar inn. Ekkert hafði samt verið tekið nema kúbein, sem notað var við að brjótast inn í hús við Fossland 5, en þar var spennt upp opnanlegt fag í glugga í bílskúr á austurhlið hússins og farið þar inn. Ummerki voru um að farið hafi verið um allt húsið, rótað til og sturtað úr skúffum í hjónaherbergi, sjónvarpsherbergi, stofu og forstofu. Talið var að tekið hafi verið á millilofti tölvuturn og Sony heimabíó með hátölurum, en úr hjónaherbergi hafði verið tekinn 20" LCD flatskjár af gerðinni Panasonic. Þá hafði verið tekið úr bílskúr Garmin GPS staðsetningartæki og lítil Molita borvél. Á vettvangi voru greinileg hjólför eftir jeppa og fólksbifreið og sýnilegt að jeppanum hafði verið ekið afturábak austur með norðurhlið hússins. Þá voru greinileg skóför allt í kringum húsið og við gluggann þar sem brotist var inn. Hjólförin og skóförin voru mynduð. Svo sem lýst er í lið 2 hér á undan voru ákærðu Ívar Aron, Jóna Björk og Sigurbjörn Adam handtekin vegna gruns um nytjastuld á bifreiðinni KO-596, sem ákærður Ívar Aron hafði ekið rétt áður að Flutningamiðstöð Norðurlands við Tryggvabraut og voru í bifreiðinni munir sem taldir voru úr innbrotinu úr einbýlishúsinu að Fosslandi 5. Þegar ákærðu voru handtekin við Flutningamiðstöðina kom í ljós að ákærður Sigurbjörn Adam hafði komið með þrjá stóra pakka inn í afgreiðsluna, sem hann ætlaði að senda suður og kom fram á fylgibréfi með kössunum, sem hann hafði útbúið, að sendandi var hann og einnig viðtakandi, sem var með heimilisfang að Reynisvöllum 10, Selfossi. Lögreglan lagði hald á þessa kassa sem reyndust vera meginhluti þýfisins sem tekið var úr einbýlishúsinu að Fosslandi 5, auk þess sem eitthvað af því var í jeppabifreiðinni KO-596 og eru þessir munir taldir upp í XIX. lið ákæru merkt dskj. nr. 28.
Ákærður Ívar Aron hefur við skýrslutöku hjá lögreglu viðurkennt að hafa brotist inn í einbýlishúsið Fossland 5, ásamt ákærða Sigurbirni Adam og lýsir atvikum svo: Hann ruglar númerunum á húsunum, en ekki fer á milli mála, að þar sem talað er um Fossland 3, er átt við Fossland 5. Hann kvað Sigurbjörn Adam hafa tekið hann í greint sinn upp í Landcruiser jeppann, sem hann var á við Hlíðarbæ, þar sem hann hafði verið í Skodabifreiðinni hjá ákærðu Jónu Björk Hann sagði ákærða Sigurbjörn Adam hafa ekið að einbýlishúsunum við Eyrarland. Hann hafi farið að húsi nr. 5, á að vera nr. 3 og tekið þar kúbein og svo hafi hann farið að húsi nr. 3, á að vera nr. 5, þar sem hann hafi spennt upp glugga á bílskúrnum og farið þar inn og svo opnað venjulega hurð á bílskúrnum og hleypt ákærða Sigurbirni Adam inn og þeir farið báðir um allt húsið og tóku til hluti sem settir voru í jeppann og minntist sérstaklega að hafa tekið tölvu, heimabíó og skrautgripi úr svefnherberginu, en hjálmarnir og gallarnir hafi verið í bílskúrnum og einnig minntist hann þess að tekin hafi verið stór Heimsatlas og Íslandsatlasbók. Þeir höfðu svo farið á jeppanum að Flutningamiðstöð Norðurlands og lagt henni þar og beðið þar í nokkra klukkutíma og svo var hringt í ákærðu Jónu Björk og hafi hún verið beðin að koma á Skodanum til þeirra og var megnið af þýfinu sett í bifreið hennar og ekið með það að afgreiðslu Flutningamiðstöðvarinnar. Ákærða Jóna Björk kvaðst ekki hafa tekið þátt í innbrotinu að Fosslandi 5, eða vita hvernig það var framkvæmt. Hún kvaðst í umrætt skipti hafa farið á Skodabifreiðinni að Hlíðarbæ og ákærðu Ívar Aron og Sigurbjörn Adam verið með. Þar hafi þeir farið úr bifreiðinni og viljað redda sér bíl og komið eftir smátíma á bláum jeppa og sagt henni að bíða þarna. Hún sagðist þá hafa sofnað þarna í bílnum. Hún hafði svo vaknað um morguninn og hringt í strákana, sem beðið hafi hana að koma að Hagkaupum og hafði ákærði Ívar Aron komið á móti henni og beðið hana að aka á bak við þar sem ákærður Sigurbjörn Adam var í bláa jeppanum og hann sýnt henni þrjá motorhjólahjálma og jakka, sem ákærður Ívar Aron var að máta. Hún kvað þá hafa verið búna að setja eitthvað dót í kassa, sem hún vissi ekki hvað var, en farið var með að Landflutningum og hafi þeir farið á jeppanum og hún fylgt á eftir á Skodanum. Hún sagði þá ekki hafa tjáð sér hvaðan dótið væri komið, heldur hafi þeir talað um að þeir væru með eitthvað þýfi upp á einhverja peninga og þeir hefðu stolið þessu í einhverju húsi.
Ákærður Sigurbjörn Adam kannaðist í fyrstu ekki við að hafa brotist inn í húsið að Fosslandi 5, og bar fyrir sig minnisleysi. Hann sagði þó vel geta verið að hann hafi brotist þarna inn, en hann hafi tekið inn rivotril og eitthvað af sýru, auk þess að drekka áfengi og því ekki verið í góðu ástandi. Hann mundi þó eftir að hafa verið með kassa í höndunum í afgreiðslunni hjá Landflutningum.
Ákærður Ívar Aron hefur fyrir dómi viðurkennt að hafa framið þetta innbrot ásamt meðákærða Sigurbirni Adam og þeir tekið þá muni sem hurfu þaðan.
Ákærður Sigurbjörn Adam kvaðst ekki muna eftir að hafa þarna átt hlut að máli og væri framburður ákærða Ívars Arons þvættingur. Hann vissi ekki hvað var í kössum, sem voru haldlagðir er hann, ákærður Ívar Aron og Jón Björk voru handtekin á afgreiðslu Landflutninga á Akureyri og voru merktir honum. Hann kvaðst hafa verið með ákærða Ívari Aron og verið í trippi og muni bara brot og brot af því sem gerðist. Hann kannaðist ekki við að hafa farið inn í Fossland 5 og tekið þessa muni þar.
Með framburði ákærða Ívars Arons, sem játar sök, sem og skýrslu Jónu Bjarkar og rannsóknargögnum um að þýfið var í bifreiðinni KO-596 og kössum merktum ákærða Sigurbirni Adam og voru stílaðir á hann og heimilisfang hans á Selfossi og sendast áttu með bifreiðum Landflutninga, þykir nægilega sannað og fer ekki milli mála að ákærðu tóku saman þátt í innbrotinu að Fosslandi 5 og tóku þaðan þá muni sem upptaldir eru í ákæru dskj. nr. 28/XIX og hafa þeir með því gerst brotlegir við 244. gr. almennra hegningarlaga.
XII. Ákærðu Jón Einar, Stefán Blackburn og Ívar Aron saman.
Afgreiðsla Landsbankans á Kletthálsi í Reykjavík.
Miðvikudaginn 29. nóvember 2006 kl. 07:47 var lögreglunni tilkynnt um innbrot í Landsbankanum að Kletthálsi í Reykjavík og voru lögreglumennirnir komnir á staðinn kl. 07:50, þar sem þeir hittu starfsmann Öryggismiðstöðvarinnar, sem sýndi þeim ummerkin á vettvangi. Anddyri bankans er í suðausturhorni hússins og snýr í austur. Á hægri hönd þegar komið var inn í anddyri hafði verið hraðbanki sem færður hafði verið til og lá á hliðinni fyrir utan útidyrnar, en klippt hafði á rafmagnssnúrur, símanúmer og fleira, sem tengdist hraðbankanum. Hraðbankinn hafði verið í prófíllínu og límdur niður. Á gólfi og við útidyrahurð mátti sjá dragför að þeim stað, þar sem hraðbankinn lá. Blóðbletti mátti sjá á hraðbankanum, á stéttinni fyrir framan innganginn og á vegg í anddyrninu, þar sem hraðbankinn hafði staðið. Rannsóknarlögreglumenn frá Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík komu á staðinn og könnuðu vettvang og tóku myndir af honum og tóku sýni af blóðblettum. Eftir að upptökur úr eftirlitskerfi bankans höfðu verið skoðaðar varð greint að þarna höfðu ákærður Jón Einar og Stefán Blackburn staðið að verki og voru þeir handteknir og teknar af þeim lögregluskýrslur um atvikin svo og ákærðu Ívari Aroni og Jónu Björk. Fram kom hjá þeim, að þau höfðu verið saman í gráum Musso pallbíl og var ætlunin að sækja ákærða Davíð Þór, sem var að losna af Litla- Hrauni. Hafði ákærða Jóna Björk ekið bifreiðinni, sem hún hafði fengið lánaða til þess. Þau, hún, ákærðu Ívar Aron og Stefán voru í bifreiðinni og ók hún með þá til Keflavíkur til að sækja ákærða Jón Einar, sem hafði beðið þau að koma með sér að sækja Davíð Þór. Það var ekið til Keflavíkur, Jón Einar sóttur og haldið til Reykjavíkur. Þegar þangað kom sagði ákærður Ívar Aron, að ákærður Jón Einar hafi farið að tala um hraðbanka sem væri auðvelt að losa, og beðið þau að fara þangað. Þegar þangað var komið hafi ákærður Jón Einar spurt hvort hann ætlaði að koma með, en ákærður Ívar Aron sagst ætla að vera inni í bílnum og verið þar með ákærðu Jónu Björk, meðan ákærður Jón Einar og Stefán voru úti. Ákærður Jón Einar sagði þá ákærðu hafa fengið þessa hugmynd að stela hraðbankanum og eitt leitt af öðru. Hann kvað þá Stefán hafa farið þar inn þar sem hraðbankinn var, en hann hafi verið svo þungur, að þeir hafi bara komið honum rétt út fyrir anddyrið. Hann hafði þá náð í ákærða Ívar Aron sem hafi komið og reynt að hjálpa þeim en það ekki gengið. Ákærður Jón Einar hafði misst hraðbankann á puttann á sér og voru blóðblettirnir á staðnum eftir hann. Ákærður Stefán kvaðst hafa farið inn í bankann með ákærða Jóni Einari og þeir klippt á snúrurnar, en þá hafi kerfið farið í gang. Hraðbankinn hafi reynst þyngri en þeir héldu. Hann hafði ætlað að taka hann á móti ákærða Jóni Einari, en hann þá bara dottið niður, en þeir náð að ýta honum út og reynt að lyfta honum upp, en ekki getað það og þá farið. Ákærður Ívar Aron kvað meðákærðu Jón Einar og Stefán hafa komið til hans eftir að þeir voru komnir með hraðbankann út fyrir anddyrið og beðið hann að hjálpa þeim að halda á hraðbankanum. Hann hafði reynt að hjálpa þeim að lyfta honum en það ekki gengið, og hann þá sagt þeim að gleyma þessu og þeir hlaupið inn í bílinn, en ákærður Jón Einar hafi misst hraðbankann á puttann á sér og hafi blætt úr honum. Ákærðu Stefán og Jón Einar könnuðust við myndirnar af sér úr eftirlitskerfi bankanna.
Fram kom, að ákærður Jón Einar reiknaði með að það væru 1-2 milljónir króna í bankanum. Fram kom hjá ákærðu Jónu Björk, að ákærður Jón Einar hafi beið hana að fara að ákveðnum banka vegna þess að hann ætlaði að ræna hraðbanka þar. Hún hafði ekkert ratað í Reykjavík og hann því bent henni á hvert hún ætti að fara og þegar komið var inn á bílaplanið við bankann hafi hann sagt henni að leggja upp við vegginn og vera kyrr þar. Eftir 5-10 mínútur hafi þeir komið til baka og ákærður Jón Einar verið allur blóðugur á höndunum og sagt henni að aka á brot og þá verið haldið að Litla-Hrauni að sækja ákærða Davíð Þór.
Ákærður Jón Einar viðurkenndi fyrir dóminum að hafa ætlað að taka hraðbakann, en mundi þetta óljóst. Hann kvaðst hafa verið á bifreið sem ákærða Jóna Björk ók og þau verið á leiðinni á Litla-Hrauni. Hann kvaðst halda að það hafi ekki verið rétt, að stela ætti þessum hraðbanka. Þetta hafi verið hugmynd, en mundi ekki hverjum hafi dottið þetta í hug. Hann mundi heldur ekki að hann og ákærður Stefán hafi fært bankann eða að ákærður Ívar Aron hafi aðstoðað. Hann mundi að ákærða Jóna Björk ók en mundi ekkert eftir ákvörðunartökunni um þetta, né að ákærða Jóna Björk hafi tekið þátt í henni og taldi voðalítinn möguleika á því að hún hafi tekið afstöðu í svona máli, hún væri passív manneskja.
Ákærður Ívar Aron kvaðst fyrir dóminum muna eftur þessu atviki. Hann hafi verið í bifreið með meðákærða, en ekki vitað að til hafi staðið að ræna þessum hraðbanka, heldur hafi átt að fara á Litla-Hraun. Svo hafi verið stoppað á þessum stað, hjá Landsbankanum að Kletthálsi og ákærðu Stefán og Jón Einar farið út og inn í anddyri bankans og þeir svo komið út og beðið hann að hjálpa sér að færa hraðbankann. Hann kvaðst hafa farið út, en þeir hafi ekki reynt að færa hann. Hraðbankinn hafi verið á stéttinni fyrir utan bankann þegar hann kom út og ákærður Jón Einar búinn að missa hann á hendina á sér og blóð út um allt og ekki verið reynt að fjarlægja hann. Hann kvað ekkert hafa verið rætt í bifreiðinni áður um hvað til stóð og hann og Jóna Björk, ekki vitað af því, að Jón Einar vissi af þessum stað. Ákærður Jón Einar hafi beðið Stebba að koma með sér inn í bankann og þeir losað hraðbankann og velt honum út. Ívar Aron kvaðst ekki hafa vitað af þessu fyrr en Jón Einar hafi komið hlaupandi út að bifreiðinni og beðið hann að hjálpa sér. Hann hafi setið inni í bifreiðinni, þegar opnuð var hurð hennar og sagt, "þú verður að hjálpa okkur, þú verður að hjálpa okkur". Það hafi verið steinveggur þarna fyrir framan anddyrið, svo að þau hafi ekki séð hvar var búið að gera. Hann var ekki 100% viss um að ákærði Jón Einar hafi vitað af þessum stað fyrirfram, hann hafi beðið um að stoppað yrði við hraðbankann og hafi þetta getað verið skyndiákvörðun. Hann hafi verið mjög ölvaður. Hann kvað bifreiðina ekki hafa ekið mjög nálægt bankanum því að þurft hafi að færa hraðbankann út fyrir steinvegginn.
Ákærða Jóna Björk kvaðst hafa ekið pallbíl með meðákærða Jón Einar, Ívar Aron og Stebba og ætlað að fara að Litla-Hrauni. Hún kvað ákærða Jón Einar hafa vísað veginn að þessum hraðbanka og þegar þangað var komið, hafi Jón Einar og Stebbi hlaupið þar inn, en svo beðið Ívar Aron að hjálpa sér. Hún kvaðst hafa sagt ívari Aroni að fara ekki út og hann hlýtt í fyrstu, en svo farið út. Hún kvaðst ekki hafa séð hvað þeir aðhöfðust, en þeir hafi komið hlaupandi eftir smástund og þá ekið á brott. Hún sagði nú að þetta hafi ekki verið rætt í bifreiðinni, að það ætti að ræna þessum hraðbanka og Jón Einar ekkert minnst á það, er hann vísaði henni veginn að honum. Henni var vísað á lögregluskýrslu hennar um þetta atvik og sagðist hún þá fyrst hafa vitað hvað til stóð, þegar Jón Einar og Stefán hafi beðið Ívar Aron að hjálpa sér og hún þá vitað hvað var í gangi. Hún kvaðst ekkert vita um þátt Ívars Arons nema að hann fór út.
Vitnið Guðmundur Ásgeirsson, lögreglumaður tók skýrslu af ákærðu Jónu Björku og staðfesti að rétt væri haft eftir henni í lögregluskýrslunni. Það staðfesti og skýrsluna af Ívari Aroni.
Ákærður Stefán Blackburn játaði þátttöku sína í að reyna að stela hraðbankanum og bar vitni um þátt meðákærðu. Hann kvað þau öll hafa verið á leið að Litla-Hrauni að sækja Davíð Þór og hafi ekið framhjá eða að þessum hraðbanka og Jón Einar þá spurt hann, hvort hann þyrði að brjótast inn eða væri eitthvað hræddur. Þegar hann hafi neitað því, hafi Jón Einar spurt, hvort hann vildi stela hraðbankanum þarna og hann játað því og þá hafi þeir stoppað fyrir utan bankann og hann og Jón Einar farið inn í bankann. Þeir losað snúru og ætlað að halda á honum út, en hann verið alltof þungur og hann dottið á hliðina og þeir ýtt honum út, en ekki náð að lyfta honum upp til að koma á pallbílinn og því ekið í burtu. Hann kvað þá hafa verið að ræða þetta í bifreiðinni, en þetta samt verið skyndiákvörðun. Hann kvað Jónu Björk og hafa heyrt þetta. Hann kvað Ívar Aron hafa komið til aðsðstoðar eftir að hraðbankanum hafði verið ýtt út og hann reynt að lyfta honum með þeim, en þeir hafi ekki getað það og þá farið aftur in í bifreiðina. Hann taldi Jónu Björk hafa vitað hvað til stóð. Henni hafi verið sagt fyrirfram, að til stæði að taka bankann og verið sagt að leggja bifreiðinni þannig, að auðvelt væri að koma hraðbankanum upp á bílinn. Hann kvað þá Jón Einar hafa rætt um þetta í bifreiðinni, en hún hafi tekið þátt í umræðunni, en þeir hafi talið það að allir hafi átt að heyra það að þau yrðu að setja skóna í prjónasokka, svo að ekki finndust skóför og þeir gert það. Það mundi ekki til þess að Jóna Björk legði neitt til, en allir í bílnum hafi verið frekar ruglaðir og hann segir að hann hafi ekki verið í mikilli vímu, en spíttaður.
Með játningu ákærðu Jóns Einars og ákærða Stefáns Blackburn og rannsóknargögnum málsins er sannað að þeir gerðu tilraun til að stela framangreindum hraðabanka, en urðu frá að hverfa, þar sem það var þeim ofviða að lyfta honum upp til að færa hann upp á pallbílinn.
Í málinu hafa ákærðu horfið nokkuð frá skýrslu sinni hjá lögreglu varðandi þátt ákærðu Ívars Arons og Jónu Bjarkar í brotinu. Með vætti Gísla Kristins Skúlasonar rannsóknarlögreglumanns og Guðmundar Ásgeirssonar lögreglumanns hér fyrir dómi, er staðfest að rétt væri haft eftir ákærðu í lögregluskýrslu sem tekin var af þeim.
Ekki er fullnægjandi skýring á því hvers vegna ákærðu hverfa frá framburðinum um tildrög ránsins og verður byggt á því, sem haft er eftir ákærðu hjá lögreglu og samkvæmt því er sannað að ákærður Ívar Aron hafi tekið þátt í tilrauninni með því að ætla að reyna að koma hraðbankanum upp á pallbílinn og jafnframt verður að telja í ljós leitt að ákærða Jón Björk hafi vitað hvað til stóð er hún ók með ákærðu að hraðbankanum. Ákærður Jón Einar, Ívar Aron og Stefán Blackburn hafa með þessu gerst brotlegir við 244. gr sbr. 20. gr. en ákærða Jóna Björk við 244. gr. sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga.
XIII. Ákærður Ágúst Már og Ívar Aron saman í Óðal Club og hraðbanka Landsbankans Austurstræti, Reykjavík.
Laugardaginn 28. október 2006 kom Einar Rúnar Magnússon, Eyjabakka 6, Reykjavík á lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík og tilkynnti um að tveir menn hefðu þvingað hann til að láta kreditkort í hraðbankann við skemmtistaðinn Óðal í Austurstræti og hótað sér öllu illu, ef hann tæki ekki peninga út úr hraðbankanum. Kom þarna fram hjá Einari að hann hafi verið að koma út af skemmtistaðnum Óðali, er tveir menn hafi komið að honum og sagt honum að taka út peninga úr hraðbankanum. Hann hafði sagt að hann myndi ekki pin númerið og slegið inn vitlaust númer tvisvar. Hann hafði tekið til fótanna og komist inn í leigubifreið sem var þarna hjá, og var honum svo ekið á lögreglustöðina, taldi hugsanlegt að mennirnir hefðu tekið af honum kreditkort frá Landsbankanum. Hann lýsti öðrum manninum sem ljóshærðum um 180 sm á hæð með breitt nef og hafi hann haft sig meira í frammi með hótanir. Hann taldi mennina ekki hafa beitt sig ofbeldi, en hótað honum öllu illu og taldi þá undir áhrifum fíkniefna, en hann var sjálfur mjög ölvaður, er hann kom á lögreglustöðina.
Einar lýsti atvikum nánar í skýrslu til lögreglu 28. mars sl. Þá kemur fram, að mennirnir tveir hafi komið að honum, þar sem hann var staddur fyrir utan Óðal í Austurstræti og strax farið að ýta við honum ekki hleypt honum í burtu. Þeir hafi verið með hrindingar og haft í hótunum við hann. Hann hafi einnig verið sleginn í andlit og á eyra og togað hafi verið harkalega í eyra. Hann taldi annan manninn hafa verið undir áhrifum örvandi efna og hafi hann verið mjög ör og árásargjarn og reynt ítrekað að ganga í skrokk á honum, en hinn sem verið hafi rólegri og reynt að halda aftur af honum. Hann sagðist bæði hafa reynt að róa mennina með orðum og ganga burt, en án árangurs. Hann sagðist hafa fengið eitt eða fleiri högg í andlitið og togað hefði verið harkalega í eyra hans og hann tekinn kverkataki. Hann kvaðst aldrei hafa slegið á móti. Eftir skamma stund hafi þeir byrjað að ná af honum verðmætum og verið báðir virkir í því. Þeir hafi byrjað á því að taka af honum farsímann og allt reiðufé sem hann var með á sér. Því næst hafi þeir leitt hann að næsta hraðbanka og krafðist þess að hann tæki út peninga. Allan tímann hafi hann verið undir stöðugum hótunum um alvarlegar líkamsmeiðingar yrði hann ekki samvinnuþýður. Hann sagðist hafa slegið inn rangt leyninúmer þegar að hraðbankanum var komið en mennirnir orðið æstari við það. Þeir hafi staðið yfir honum, haldið honum stundum og hótað stöðugt.
Þegar upptökur í öryggismyndavélakerfi hraðbankans voru skoðaðar sáust myndir af Einari Rúnari og ákærðu og könnuðust ákærðu við myndirnar og að þeir væru af þeim og Einari.
Tekin var sjálfstæð skýrsla af ákærðu hjá lögreglu og ber þeim saman um að hafa ráðist að Einari Rúnari í því skyni að fá hann til að afhenda þau verðmæti sem hann væri með og síðar til að þvinga hann til að taka út peninga úr hraðbankanum með greiðslukorti. Þeir kveða lýsingu Einars Rúnars í meginatriðum rétta á atvikum. Ákærður Ágúst sagði það ekki rétt að þeir hafi strax ráðist á Einar Rúnar heldur hafi þeir fyrst talað við hann, sem svo hafi leitt til átaka, sem þeir hafi átt upptökin að. Þá mundi ákærður Ágúst ekki til þess að Einar Rúnar hafi verið tekinn hálstaki og hann sagði það ekki rétt að annar þeirra ákærðu hafi haft sig meira í frammi, þeir hafi báðir tekið þátt í árásunum og ákærði Ívar Aron þó heldur meira. Ákærður Ívar Aron sagðist hafa verið sá rólegi sem Einar talar um og jafnframt átt hugmyndina um að staldra aðeins við en fá sér að reykja. Hann kvað þá enga peninga hafa fengið hjá Einari Rúnar, en hann játaði því að hafa haft í hótunum við hann um að beita hann líkamsmeiðingum. Báðir ákærðu neituðu að hafa tekið greiðslukort af Einari.
Ákærðu hefur greint á um hver hafi átt upptökin af árásinni á Einar Rúnar. Ákærður Ágúst Már kvað ákærða Ívar Aron hafa átt frumkvæðið að árásinni og hann neitað að taka þátt í henni, en ákærður Ívar Aron benti honum á, að þeir gætu með því fengið pening fyrir fíkniefnum og hann þá samþykkt það, þar sem hann hafði neytt talsvert af fíkniefnum fyrr um kvöldið og verið tilbúinn að fá meira. Hann kvað upptökin þau að þeir hafi fyrst gefið sig á tal við Einar Rúnar, en ákærður Ívar Aron þá verið með leiðindi við hann og byrjað að hóta honum og málin þá þróast í það að þeir hafi ráðist á Einar.
Ákærður Ívar Aron sagði fyrst að Einar Rúnar hafi verið að rífa kjaft við þá ákærðu og þeir þá ákveðið að ganga í skrokk á honum. Síðar sagði hann þá hafa séð Einar Rúnar vera að rífast við einhvern annan mann og þeir þá ákveðið að ráðast á Einar og kenna honum lexíu. Þetta fær ekki stoð í framburði Einars. Ákærður Ívar sagði ekki hafa verið í huga þeirra við fyrstu að ræna Einar Rúnar, en sú hugmynd hafi vaknað fljótlega og hafi það verið hugmynd ákærða Ágústs Más, sem spurt hafi Einar Rúnar hvort hann væri með einhverja peninga og hann neitað því. Ákærðu ber nokkuð saman um að þá hafi ákærður Ívar Aron kýlt manninn í andlitið og svo hafi Ágúst skallað hann í andlitið og hann þá fallið á jörðina og beðist vægðar. Þegar í ljós hafi komið að hann hafi ekki verið með neina peninga heldur greiðslukort, kvað ákærður Ívar Aron þá hugmynd hafa kviknað hjá þeim báðum, að fara með hann að hraðbankanum og freista þess að ná út peningum. Ákærður Ágúst Már kvað ákærða Ívar Aron hafa í framhaldi af því að Einar Rúnar féll í jörðina heimtað peninga af honum, og er í ljós hafi komið að hann var einungis með kort meðferðis, hafi hann fengið hugmyndina um að fara með Einar í hraðbankann.
Einar Rúnar Magnússon bar vitni í málinu og lýsti atvikum mjög á sama veg og hjá lögerglu. Vitnið hélt fast við að það hafi verið tekið hálstaki og þannig að það hafi misst andann og svo hafi hann verið annaðhvort sleginn eða snúinn niður í jörðina. Vitnið kvaðst hafa fengið högg í andlitið, en gat ekki sagt til um hvort það var skallað. Það kvað það ekki rétta staðhæfingu sem fram kom í frumskýrslu lögreglu að það hafi ekki verið beitt ofbeldi. Það kvaðst hafa verið með skrámur á hálsi og marbletti í andliti eftir árásina, en hafði ekki farið til læknis út af því.
Ákærðu skýrðu frá atvikum hér fyrir dómi í meginatriðum á sama veg og hjá lögreglu, þó að þeir fegri hlut sinn og hvor um sig haldi því fram, að annar hafi haft sig minna í frammi en hinn.
Ákærður Ágúst Már var nú ekki viss hvort hann hafi hitt Einar, er hann skallaði til hans og sagðist nú hafa ógnað Einari meir með augnaráði.
Ákærður Ívar Aron kvaðst muna lítið, en játa sök og það kvað meðákærða Ágúst Má hafa skallað Einar í upphafi og hann hafi síðar dregið Einar að hraðbankanum og skipað honum að taka út.
Í málinu þykir sannað með framburði ákærðu og vætti Einars Rúnars sem og rannsóknargögnum málsins að ákærðu ráðast að Einari og fá hann með líkamsmeiðingum og hótunum um að beita þeim til að hann afhendi þeim fémæti sem hann var með og jafnframt fengu þeir hann til að reyna að taka út peninga úr hraðbankanum svo sem lýst er í ákæru dskj. nr. 80-A og hafa með því gerst brotlegur við 252. gr. almennra hegningarlaga.
XIV. Ákærðu Ágúst Már, Ívar Aron og Stefán Blackburn saman.
- Árás á Arnþór Loga Arnarson á Brúnavegi við Kleifarveg í Reykjavík.
Þriðjudaginn 31. október 2006 var óskað aðstoðar lögreglu vegna yfirstaðins ráns gagnvart Arnþóri Loga Arnarsyni, í Austurbrún 2, Reykjavík. Arnþór tjáði lögreglunni, að hann hafi verið á Brúnavegi við Kleifarveg og verið að laga blaðberabúnað sem hann var með, þegar þrír strákar hafi komið aftan að honum og hann verið sleginn. Hann hafi svo verið spurður hvort hann væri með eitthvað fémætt á sér og einn strákanna hafi sagt að ef hann hlýddi ekki mundu þeir drepa hann. Á meðan á þessu stóð hefðu tveir aðrir strákar komið að. Hann kvað þá alla hafa verið frekar rólega meðan þetta gekk yfir þó einn þeirra sem hann taldi að hafi slegið hann og spurst hafi um fémæti hafi verið æstur. Arnþór sagðist ekki hafa beint óttast strákana sem réðust á hann og laust höggið á hnakkann gefið til kynna að þeir væru meira að hóta honum. Hann hafði látið þá fá farsímann sem hann var með, höggheldan Nokia síma af minni gerð og þeir þá farið á brott allir fimm saman og farið í bifreið á bifreiðastæði Hrafnistu sem svo var ekið á brott. Hann sagði að sá sem hann hélt að hefði slegið sig og verið æstur og haft sig mest í frammi hafi verið 180-183 sm. á hæð með stuttklippt brúnt hár, sólbrúnn og verið í hvítri skyrtu með röndum eða hugsanlega köflótt. Sá sem hótað hafi honum lífláti hafi verið um 170 sm. á hæð, búlduleitur, brúnhrokkinhærður og hugsanlega í blárri peysu.
Eftir að lögreglan hafði kannað notkun á farsíma Arnþórs og svo farsíma úr öðru ránsmáli, vaknaði grunur um að ákærður Ívar Aron hafi staðið að árásinni á Arnþór, en rakin var notkun hans á farsíma úr síðara málinu.
Hann neitaði í fyrstu allri aðild að þessu máli, en skýrði svo frá við skýrslutöku hjá lögreglu fimmtudaginn 30. nóvember sl. að þeir hafi verið saman fimm strákar og kærasta hans, ákærða Jóna Björk og þau verið í bifreið eins strákanna, Stefáns að nafni sem var með þeim og ók. Hann vissi ekki föðurnafnið hjá Stefáni, sem hann kallaði Stebba og var úr Keflavík, en hin hafi verið ákærður Ágúst Már og Stefán Blackburn og strákur að nafni Róbert Óskar Friðriksson úr Sandgerði. Þau hafi öll verið frá Suðurnesjunum nema Stefán Blackburn og hafi þau verið að skemmta sér í Reykjavík og verið öll í neyslu nema ökumaður. Svo hafi þau verið búin með öll fíkniefni og alla peningana og þau þá ákveðið að aka um og reyna að finna einhvern sem væri á ferðinni og ræna hann. Um þetta hafi þau verið öll sammála nema ákærða Jóna Björk, sem hafi verið mikið á móti þessu. Þeir hafi svo ekið um Reykjavík og verið í Laugaráshverfinu er þeir hafi séð fyrstu manneskjuna sem var á ferðinni og stokkið á hana og rænt hana. Þetta hafi verið karlmaður sem var að bera út blöðin. Þeir hafi verið fjórir sem stukku á hann. Þ.e. hann , ákærðu Stefan Blackburn og Ágúst Már og svo Róbert Óskar, en ökumaðurinn og ákærða Jóna Björk hafi verið eftir í bifreiðinni. Maðurinn hafi ekki verið með neina peninga, svo þeir hafi tekið af honum síma (farsíma). Þetta hafi verið höggheldur sími, sem hann hafi notað sama dag, en svo hafi hann lánað hálfsystur sinni hann, en hann sagðist hafa tekið símann handa sér. Nánar spurður hver hafi átt hugmyndina um að ræna blaðburðarmanninn mundi hann það ekki, sagði þetta hafa dottið einhvern veginn upp, en vildi þó meina að það hafi verið þeir fjórir sem réðust á hann.
Ákærður Stefán Blacburn lýsti atvikum á svipaðan hátt hjá lögreglu. Þau hafi verið fimm saman, þ.e. hann, ákærður Ívar og ákærða Jóna Björk og svo einhverjir strákar sem hann þekkti ekki. Hann kvað þau hafa vantað eitthvað að drekka en þau hafi verið búin með allt áfengi og alla peninga og þau því ákveðið að ræna blaðburðarmanninn til að ná í peninga. Hann kvað þá Ívar Aron hafa farið út úr bifreiðinni og ráðist á blaðburðarmanninn. Hann kvað þau hafa hálf frosið þegar þau komu að honum, en hann hörfað aftur á bak en þeir haldið að hann ætlaði að ráðast á þá. Stefán kvaðst hafa öskrað, "komdu með peningana, eða ég stúta þér eða drep þig," allavega hafi hann hótað honum. Blaðburðarmaðurinn hafi sagt að hann væri ekki með neina peninga og þeir þá sagt honum að koma með það sem hann væri með og hann þá látið þá fá símann sinn og þeir forðað sér. Ákærður Stefán kvaðst hafa átt hugmyndina að ráninu og sagt ökumanninum að stoppa þegar hann sá blaðburðarmanninn við Laugarábíó og hann hlaupið út og ákærður Ívar komið honum til hjálpar. Hann sagði að Gústi og hinn strákurinn hafi ekki tekið þátt í ráninu, þeir hafi bara staðið þarna, án þess að gera neitt.
Ákærða Jóna Björk sagði að hún hafi verið með ákærðu Ívari Aroni, Ágústi Má og Stefáni Blackburn og svo Róbert sem hún vissi ekki föðurnafn á né á Stefáni sem hafi verið ökumaður og eigandi bifreiðarinnar sem þau voru á. Þau höfðu verið á rúntinum og verið búin að rúnta lengi, þegar ákærðu Ívar Aron, Ágúst Már og Stefán Blackburn hafi farið út úr bifreiðinni, en hún og ökumaður hafi verið í bifreiðinni og hafi Stefán ekið áfram, en svo snúið við og þau þá séð að þeir Ívar, Stefán og Gústi voru að ræna einhvern náunga. Hún sagðist þá hafa farið út úr bifreiðinni og öskrað á þá að hætta þessu og þeir þá komið til baka með einhvern farsíma, sem þeir tóku af náunganum. Hún sagðist ekki vita hver hafi átt hugmyndina að þessu ráni, en það hafi ekki verið hún, en hún mundi segja ákærðu Ívar, Ágúst og Stefán Blackburn. Hún mundi ekki hvort Róbert hafi tekið þátt í ráninu eða farið út úr bifreiðinni.
Ákærður Ágúst sagði þau sex sem áður er getið hafa verið saman í grænni BMW bifreið sem Stefán Þröstur Sigurjónsson hafi ekið og verið búinn að rúnta um Keflavík og Reykjavík í nokkurn tíma. Þau hafi verið peningalaus og ætlað að ná sér í peninga fyrir fíkniefnum. Þegar þau hafi séð þennan blaðbera á Brúnavegi hafi þau stoppað bifreiðina og farið fimm út úr bifreiðinni og hann, ákærður Ívar og Stefán Blackburn og svo Róbert, en Jóna hafi staðið álengdar og hafi ekki tekið þátt í árásinni. Hann sagði ákærða Ívar hafa komið aftan að honum og slegið hann í höfuðið með hnefanum eða lófanum og hann ætlað að snúast til varnar og slegið til hans, en hann ýtti honum frá sér. Þeir hafi svo gengið fyrir hann fjórir og ákærður Ívar spurt hvort hann væri með peninga, en hann neitað því og ákærður Ívar því spurt hann hvort hann væri með eitthvað annað. Hann hafi sagst vera með síma og Ívar þá sagt honum að koma með hann og blaðberinn rétt honum hann og þeir farið í burtu. Hann sagðist ekki hafa heyrt neinar hótanir. Hann sagði að ákærðu Ívar og Stefán Blackburn hafi átt hugmyndina að ráninu, en þau samt öll talað um þetta, en hann viljað komast hjá þessu, en hann orðið að taka þátt og ákærðu Ívar og Stefán talað þá til. Ákærður Ívar hafi ráðist á blaðberann, en þau hin tekið þátt í ráninu án þess að ráðast á blaðberann.
Þau Róbert Óskar Friðriksson, Hörðalandi 6, Reykjavík og Stefán Þröstur Sigurjónsson gáfu og skýrslu hjá lögreglu og kom fram hjá Stefáni að hann hafi ekið Róberti og ákærðu Ívari, Stefáni, Ágústi og Jónu um Keflavík og Reykjavík. Hann kvað þau allt í einu hafa stokkið öll út úr bifreiðinni í hverfi sem hann þekkti ekki og sagðist hann ekki hafa fylgst með og vissi ekki hvað þau voru að gera né sagðist hann hafa hlustað á það sem þau voru að tala um í bifreiðinni.
Róbert Óskar skýrði frá mjög á sama veg um ferðir bifreiðarinnar og fram hefur komið hér að framan. Hann sagðist ekkert hafa orðið var við áform um að þau hafi ætlað að ræna einhvern og ekki tekið þátt í því. Hann sagðist hafa ekið um í bifreiðinni með Stefáni ökumanni og ekki farið út fyrr en ránið var afstaðið og strákarnir voru að koma til baka. Hann kvaðst hafa heyrt inni í bifreiðinni að ákærður Ívar hafi átt hugmyndina að ráninu og ráðist á blaðburðarmanninn og Gústi fylgt honum eftir. Hann kvaðst ekki vita hvort ákærður Stefán Blackburn hafi líka átt hugmyndina að ráninu.
- Árás á Halldór Bjarka Ipsen við Hjallaland í Reykjavík.
Þriðjudaginn 31. október 2006 kl. 09:59 var framangreindur Halldór Bjarki fyrir árás og var hann rændur GSM síma. Hann var þá að vinna við blaðburð og kom fram í tilkynningu hans til lögreglu að um hafi verið að ræða fimm til sex menn á svörtum BMW, sem ekið hafi brott af vettvangi. Halldór tjáði lögreglunni að hann hafi verið að bera út Morgunblaðið og verið staddur í Hjallalandi skammt austan við Hörgsland, er hann hafi heyrt í mönnum fyrir aftan sig og orðið var við að einhver hljóp upp aftan að honum og kýldi hann í andlitið hægra megin og því fylgt eftir af öðrum aðila. Hann hafi séð þann sem sló hann í andlitið og hefði hann eftir þetta rifið í hálsmálið á honum, en sá hafi verið um 175 sm á hæð, klæddur grárri peysu, í svörtum buxum og með svarta derhúfu á höfði. Hann hafi skipað honum að afhenda sér veskið. Hann svarar því til að hann væri blaðburðarmaður og ekki með veski, en hann þá skipað honum að afhenda sér gsm síma hans, ella myndi hann drepa hann. Halldór sagðist hafa verið skelfingu lostinn og afhent honum símann Sony Ericson - 4150, sem væri að verðmæti um krónur 40.000. Hann hafði svo séð á eftir mönnunum, þar sem þeir hlupu út Hjallaland að svörtu BMW bifreiðinni, sem lagt hafði verið við innkeyrslu við gatnamót Hjallalands og Hörgslands og hefðu þeir beðið þar tvær til þrjár mínútur og þeir svo ekið á brott í bifreiðinni. Halldór var rauður á hálsi og smá roði var við munnvik og leitaði hann síðar þennan dag á slysa- og bráðadeild Landspítalans Fossvogi og segir svo í samantekt um meiðsli hans í vottorði Ásu Elísu Einarsdóttur, sérfræðilæknis „um er að ræða 26 ára gamlan mann, sem varð fyrir árás fimm manna við störf sín sem blaðberi Morgunblaðsins um kl. 06:00 komudag. Kemur á slysa- og bráðadeild Landspítalans níu tímum síðar. Hann reyndist vera með væg áverkamerki á hálsi og höfði. Áverkar samrýmast sögu.“
Áverkunum er lýst svo í vottorðinu að um sé að ræða fimm rispur á hálsi vinstra megin, það er svo roði neðan við vinstra eyra og vinstri vanga 1-2 x 4 sm á stærð.
Í ljós kom, að þessu ráni stóðu sömu menn og lýst er í lið 1 hér að framan og var það framkvæmt með svipuðum hætti.
Ákærður Ívar Aron sagði hjá lögreglu að þetta rán hafi verið nákvæmlega eins og fyrra ránið og ástæðan sú sama. Þeir hafi verið svekktir að hafa ekki náð í neina peninga í fyrra ráninu og verið að aka um Fossvogshverfi er þau hafi séð mann bera út og þeir stokkið fjórir á hann, þeir sömu og í fyrra skiptið og þeir stolið af honum síma, þar sem hann hafi ekki verið með neina peninga. Hann kvað þá hafa sagt það sama við þennan blaðburðarmann og þann fyrri, komdu með peningana eða við stútum þér. Hann sagði að eins og í fyrra málinu hafi þeir sem réðust á blaðburðarmanninn átt hugmynd að ráninu þ.e. hann, Stefán Blackburn, Ágúst og Róbert. Hann kvaðst hafa tekið símann og eignað sér hann.
Ákærðu Stefán Blackburn, Ágúst Már og Jóna Björk og svo Róbert Óskar og Stefán Þröstur báru við skýrslutöku hjá lögreglu um atvik með svipuðum hætti og í sambandi við fyrra málið. Þeir hafi verið allir saman um þetta og að ákærða Jóna Björk hafi ekki tekið þátt í ráninu. Ágúst Már sagði eins og við fyrra málið, að ákærðu Ívar og Stefán hafi átt hugmyndina að ráninu en þeir svo talað hann og Róbert til. Ákærður Stefán kvað þá alla hafa ákveðið þetta rán, og sagði fyrst að hann hafi átt hugmyndina að því en síðar kom fram að ákærði Ívar ætti og hlut að máli en Gústi og Róbert hafi staðið hjá án þess að gera neitt. Hann sagðist hafa verið búinn að drekka töluvert á þessum tíma og farið að svífa mikið á hann en hann kvaðst þó muna að hafa kýlt gaurinn.
Róbert Óskar sagðist hafa farið þarna út úr bílnum, en snúið við eftir að strákarnir voru komnir nokkuð frá og farið aftur inn í bifreiðina. Hann kvað þau Jónu hafa séð lítið af þessu. Hann sagði sem fyrr að ákærður Ívar hefði átt hugmyndina að ráninu og ráðist á blaðburðarmanninn, en Gústi hafi fylgt honum eftir, en þetta hafi hann ekki séð, en heyrt um í bifreiðinni. Hann sagðist ekki vita hvort þau hafi öll staðið að ákvörðuninni um þetta rán. Hann hafði verið búinn að drekka bjór og Morgan og var sæmilega fullur.
Ákærða Jóna Björk lýsti atvikum svo, að strákarnir hafi séð einhvern blaðburðarmann, á stað sem hún þekkti ekki og bifreiðinni þá verið lagt og strákarnir farið út á milli húsa og komið aftan að blaðburðarmanninum. Ákærður Ívar hafi slegið hann í höfuðið með hnefanum og tekið af honum símann. Hún kvað þá ákærðu, Ágúst Má, Ívar Hill og Stefán Blackburn hafa farið út úr bifreiðinni, en mundi ekki hvort Róbert hafi tekið þátt í ráninu. Hún var á því að hugmyndina að ráninu hafi átt ákærðu Ívar Aron, Ágúst Már og Stefán Blackburn.
Stefán Þröstur sagðist muna eftir þessu ráni. Ákærða Jóna hafi hringt í hann og beðið hann að koma í götuna fyrir neðan til að taka þau inn í bílinn og hann þá séð hvað var í gangi. Þeir hafi verið utan í einhverjum manni og hann séð að Ívar kýldi hann og annar sparkaði í hann, en sá ekki hver það var, en hann hafði séð fótlegg fara fram að manninum. Þau hafi öll virst taka þátt í þessu, staðið öll rétt við manninn nema Jóna sem hafi staðið um 3 metrum frá og verið að tala í síma. Þegar þau hafi svo komið aftur í bifreiðina til hans hafi hann öskrað og skammast út í þau og heimtað að fara heim, og þau viljað fara á fleiri staði, en hann ekið þeim til Keflavíkur. Eftir seinna ránið hafi þau verið með síma, sem þau hafi talað um að væri rándýr. Hann vissi ekki hver hafði átt hugmyndina að ráninu, en taldi það geta verið rétt, að ákærður Ívar hafi fengið hana.
Fram kom hjá Halldóri Ipsen, að hann hafi orðið mjög hræddur og haldið að þeir ætluðu að fara með hann eitthvað í burtu. Hann hafi rifið sig lausan, þegar tekið var í peysuna hans og hafi hann rispað sig á hálsinum. Hann hafi farið að skjálfa og liðið mjög illa. Hann sagðist hafa óttast um líf sitt meðan á ráninu stóð. Hann sagði að sér brygði við allt núna þ.e. 31/10 ´06 og væri skíthræddur að fara í blaðburð daginn eftir, þar sem hann væri hræddur við að þeir kæmu aftur.
Í málinu báru bæði Arnþór Logi Arnarson og Halldór Bjarki Ipsen vitni og lýstu atvikum mjög á sama veg og hjá lögreglu og var vitnið Arnar visst um að einu þeirra sem réðust að honum hafi hótað honum lífláti og lýsir honum eins og hjá lögreglu.
Halldór Ipsen kvaðst og hafa orðið fyrir líflátshótunum, en taldi að sá sem slegið hafi hann í andlit hafi og verið með þessa hótun.
Ákærðu Ágúst Már, Ívar Aron og Stefán Blackburt hafa gefið skýrslu hér fyrir dómi og vitni báru Jóna Björk og Stefán Þröstur Sigurjónsson og er framburður þeirra í meginatriðum í samræmi við skýrslur þeirra hjá lögreglu sem raktar voru hér að framan.
Fram kom hjá Jónu Björk, að ákærður Ívar Aron hafi kýlt í bæði skiptin, en hún hafi ekki séð ákærða Stefán Balckburn slá í síðara skiptið en hann hafi sparkað. Hún hafði ekki heyrt neinar líflátshótanir.
Vitnið Stefán Þröstur bar að í síðara skiptið hafi það séð að blaðberinn var kýldur og sparkað var í hann. Það hafði ekki greint hver hafi kýlt hann, en það hafi ekki verið ákærði Stefán Blackburn og mundi ekki hvort hann hafi sparkað í hann.
Ákærður Ívar Aron kvaðst nú í fyrra skiptið hafa komið aftan að blaðberanum, stokkið á hann og tekið hann niður, en kannaðist nú ekki við að hafa slegið hann. Hann kvað árásina í síðara skiptið hafa verið með svipuðum hætti. Hann mundi ekki eftir að hafa slegið blaðberann þá, en hann hafi verið sleginn, en kvaðst þó muna lítið núna og mundi ekki til þess að hann hafi slegið blaðberann í höfuðið. Hann kvaðst vita, að ákærður Stefán Blackburn hafi ekki verið með líflátshótun í fyrra skiptið og mundi ekki til þess, að hann hafi sparkað í síðara skiptið, en gat ekki fullyrt að hann hafi ekki gert það.
Ákærður Ágúst Már kvað ákærða Ívar Aron hafa átt hugmyndina að ráninu og í bæði skiptin stokkið á eftir blaðberanum og verið með hótanir í annað skiptið og ákærður Stefán hótað einhverju illi í síðara skiptið. Í síðara skiptið hafi meðákærðu slegist og dottið niður í runna, en það staðið hjá.
Ákærður Stefán Blackburn kannaðist við að í fyrra skiptið hafi hann, Ívar Aron og Stefán og ráðist að blaðberanum til að taka af honum símann með valdi og þeir allir tekið fullan þátt í því, en hann þó ekki séð meðákærða Ívar Aron slá blaðberann í höfuðið. Hann kannaðist nú ekki við að hafa hótað blaðberanum lífláti og skýrði játningu sína hjá lögreglu þar um á því, að hann hafi verið í mjög annarlegu ástandi er hann gaf skýrsluna, en hann kvað blaðberanum hafa verið gert skiljanlegt að það væri betra fyrir hann að afhenda allt sem hnn væri með, annars yrði hann beittur ofbeldi. Hann kannaðist ekki við að neinn annar hafi verið með líflátshótanir. Hann kvað ákærða Ágúst Má hafa staðið við hliðina á þeim, en ekkert aðhafst.
Hann kvað árásina í síðara skiptið hafa verið með svipuðum hætti og sú fyrri. Hann kannaðist ekki við að hafa kýlt blaðberann og neitaði að hafa sparkað í hann, né að hafa séð annan gera það. Hann hafði ekki séð Ívar slá eða sparka í blaðberann. Hann kvað engu ofbeldi hafa verið beitt og blaðberanum verið gert ljóst, að ef hann léti þá ekki fá það sem hann væri með, yrði að fara hina leiðina, að beita ofbeldi.
Í málinu er sannað með framburði ákærðu, vætti vitna og rannsóknargögnum að ákærðu veittusst tvívegis að blaðberunum og fá þá með líkamsmeiðingum og ógnandi framkomu til að afhenda þeim þau verðmæti sem þeir voru með. Ekki þykir í ljós leitt að Ágúst Már hafi haft sig mikið í frammi en byggt er á því að ákærður Ívar Aron hafi slegið báða blaðberana og að ákærður Stefán Balckburn hafi hótað Arnþóri Loga lífláti.
Ákærðu hafa með þessu brotið gegn 252. gr. almennra hegningarlaga.
XV. Ákærðu Birgir Rúnar, Emil Freyr og Stefán Blackburn saman.
Rán í versluninni 10-11 við Setberg í Hafnarfirði.
Sunnudaginn 25. mars sl. kl. 02:42 barst lögreglunni tilkynning um þrjá grímuklædda menn, sem væru að fara inn í verslunina 10-11 í Setbergi í Hafnarfirði og svo í framhaldi af því hafi borist árásarboð frá versluninni. Þeir sem höfðu tilkynnt um þetta voru á staðnum og sáu sömu menn hlaupa út úr versluninni og fara í bifreið, sem lagt var austan megin við verslunina og var bifreiðinni svo ekið þaðan á brott. Lýsing var gefin á bifreiðinni og stuttu síðar var akstur bifreiðarinnar YK-161, Toyota Avensis, sem samræmdist lýsingunni stöðvaður. Vitni sem voru á vettvangi er brotið átti sér stað, tjáðu lögreglunni, að mennirnir sem grunaðir voru um ránið úr versluninni hefðu ekið á bifreiðinni YK-161, sem væri af tegundinni Toyota Avensis. Í bifreiðinni voru ákærðu Birgir Rúnar, Emil Freyr og Stefán Blackburn sem voru í framhaldi af þessu handteknir og færðir á lögreglustöð. Við frumathugun lögreglu á brotastað, kom í ljós, að þarna hafði vopnað rán átt sér stað og höfðu tveir mannanna verið grímuklæddir, þ.e. með lambhúshettu á höfði, svo að ekki sást í andlitið og hafi þeir báðir verið með dúkahníf, sem þeir hafi ógnað með.
Menn frá rannsóknardeild og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu komu á staðinn og rannsökuðu vettvang. Þá voru upptökur og eftirlitsmyndavélar skoðaðar varðandi það myndskeið er ránið átti sér stað á, en þrettán myndavélar voru til staðar í versluninni og hafa myndir úr upptökuvélunum verið lagðar fram í málinu. Þá voru ljósmyndir teknar í versluninni og af rannsóknargögnum.
Eftir því sem fram kom á vettvangi hafði atburðarásin við ránið verið sú, að maður með rauða derhúfu hafði komið gangandi inn í verslunina og voru starfsmenn hennar þá að raða hlutum í hillur. Maðurinn hafði gengið að afgreiðsluborði númer 1 sem var innst í versluninni og hafði þá einn starfsmanna Mjölnir Gunnarsson gengið að til að aðstoða hann. Í því höfðu tveir grímuklæddir menn með dúkahnífa í hendi komið inn í verslunina. Annar þeirra otaði hnífnum að Mjölni og hafði svo tekið í hann og skipað honum að opna peningaskúffu á afgreiðsluborði númer 1. Eftir að hann hafði opnað skúffuna hafi maðurinn tekir peninga úr sjóðvél og vindlinga úr skúffu sem er þar fyrir neðan, en hinn grímuklæddi maðurinn hafði tekið fjármuni og vindlinga úr afgreiðsluborði númer 2. Fram kom að grímuklæddu mennirnir höfðu verið í hettupeysum og með lambhúshettu yfir andlitinu með gati fyrir augun. Grímuklæddu mennirnir höfðu gefið starfsmönnum fyrirmæli um að setjast á gólf verslunarinnar og höfðu svo hlaupið út. Á myndum úr eftirlitsmyndavélum, sést er mennirnir koma inn í verslunina og er þeir fara úr henni, og einnig hegðun þeirra inni í versluninni þ.á.m. er einn mannanna með dúkahníf á lofti.
Ákærðu hafa hjá lögreglu og hér fyrir dómi viðurkennt að hafa staðið saman að framangreindu ráni og hafa sammælst um það. Þeir höfðu fyrst ætlað að ræna verslun 11-11 við Skúlagötu í Reykjavík, en hætt við það, sennilega vegna þess að móðir ákærða Emils vann þar, þó að hún væri ekki á vakt og svo var mikil umferð þarna. Þá var ákveðið að ræna verslunina 10-11 í Setbergi í Hafnarfirði en þar var minni umferð. Ákærðu höfðu hittst heima hjá ákærða Birgi Rúnari kvöldið fyrir ránið og höfðu frá kl. 22:00 verið við neyslu á rivotril, sem er flogaveikislyf sem hafa róandi áhrif, til að koma sér í vímu og tóku þrjár til fimm töflur hver, nema Stefán kannaðist ekki við lyfjaneyslu. Ákærðu voru peningalausir, en eftir að þeir, allavega Emil og Birgir voru komnir í vímuástand eftir neyslu rivotrils, sóttust þeir eftir meiri vímuáhrifum og var þá ákveðið að ræna einhvern stað, til að fá peninga fyrir fíkniefnum. Fram kom hjá ákærða Birgi að hann hafi verið með tvo dúkahnífa í skál heima hjá sér sem ákærðu Emil og Stefán hafi tekið. Hann kvaðst ekki hafa hulið andlit sitt, en það hafi Emil og Stefán gert með húfum sem þeir höfðu á höfði. Emil sagðist hafa verið í dökkbrúnum anorakkjakka og verið með svarta húfu á höfði, sem var með götum fyrir augu, og hafði hann klippt þessi göt löngu áður. Hann hafði verið með sólgleraugu og sett húfuna þar yfir. Stefán sagðist og hafa verið með svarta húfu með götum fyrir augun, sem hann hafði klippt löngu áður og svo var hann í svartri hettupeysu. Þeir höfðu báðir verið með dúkahníf er þeir fóru inn í verslunina og ákærður Stefán sagðist hafa haldið á honum í hendinni. Ákærðu ber saman um að tilgangur með því að taka dúkahnífana hafi verið að leggja áherslu á að um rán væri að ræða og að þeir yrðu teknir alvarlega, og að ránið gengi fljótara fyrir sig, hins vegar hafi ekki verið ætlunin að beita hnífunum eða valda fólki skaða.
Ákærður Birgir lýsti atvikum svo að er þeir hafi komið inn í verslunina hafi Emil og Stefán tekið upp dúkahnífana og hafi þeir ógnað starfsmönnum verslunarinnar með dúkahnífunum, með því að setja þá upp að líkama þeirra og gerði hann ráð fyrir að þeir hafi verið eitthvað ógnandi. Kallað hafi verið til starfsmanna að þeir ættu að opna sjóðvélarnar og taldi hann Stefán hafa fengið starfsmann til að opna sjóðvél 1. Birgir sagðist hafa kallað til starfsmanns og sagt honum til að drullast til að opna sjóðvél 2, en þar var ekkert að gerast og hafði starfsmaðurinn opnað sjóðvélina og hann tekið þar nokkra 500 króna seðla, sennilega þrjá 5.000 króna seðla og smámynt. Hann vissi þó ekki hve mikla peninga hann hafði tekið, en var ekki búinn að telja þá er ákærðu voru handteknir. Hann hafði og tekið tvo vindlingapakka, en eftir þetta höfðu þeir farið út úr versluninni og ekið á brott. Hann kannaðist ekki við að starfsmönnum eða viðskiptavinum hefði verið hótað að það yrði skorið á háls, það eina sem kallað hafi verið var „opnið peningakassana“.
Honum voru sýndar myndir úr eftirlitsvélum verslunarinnar og kannaðist við sig og meðákærðu.
Ákærður, Emil Freyr sagði hjá lögreglu að hann og meðákærðu Birgir Rúnar og Stefán Blackburn hafi allir gengið saman inn í verslunina og hann farið milli afgreiðslukassa 1 og 2, en þar hafi staðið starfsmaður verslunarinnar. Í fyrstu hafi hann staðið fyrir framan starfsmann og sagt, "heldurðu að þetta sé eitthvað grín, opnaðu kassann." Næst hafi hann tekið í axlir stafsmannsins með annarri hendinni og gefið honum skipanir um að opna peningaksssann. Hann mundi ekki hvort hann hafi verið með dúkahnífinn í höndunum eða vasanum, en taldi að hann gæti fullyrt að hann hafi ekki otað hnífnum að starfsmanninum, sem gengið hafi eitthvað illa að opna afgreiðslukassa 1, en þegar það tókst hafði hann séð nokkra 500 króna og 1000 króna seðla og smámynt. Hann hafði tekið seðlana og eitthvað af smámyntinni úr afgreiðslukassanum og sett í úlpuvasa sinn og svo tekið nokkra vindlingapakka, sem voru við sjóðvélina. Hann hafði ekki fylgst með meðákærðu Birgi og Stefáni meðan á þessu stóð, átt nóg með sig. Hann hafði svo gefið skipanir til starfsmanna verslunarinnar að þeir ættu ekki að hreyfa sig og allir ákærðu svo hlaupið út og ekið á brott. Það kom honum á óvart að haft var eftir vitni að hann hafi beint opnum hnífi að starfsmanni, en taldi samt að það væri rétt og ekki vildi hann þræta fyrir að vera ógnandi og að hafa haldið á dúkahnífnum í andlitshæð, en það kæmi fram á myndbandsupptökunum úr versluninni.
Hann kannaðist ekki við að hafa ógnað viðskipavini með opnum dúkahníf né að hafa sagt við hann, að ef hann hreyfði sig yrði hann skorinn á háls, né heyrði hann meðaákærðu Birgi eða Stefán viðhafa þessa hótun. Hann bar kennsl á sig og meðákærðu Birgir og Stefán á myndum úr myndbandsupptökukerfi verslunarinnar.
Ákærður Stefán sagðist hafa farið inn í verslunina á sama tíma og meðákærðu Birgir og Emil Freyr og hann ekki haft neitt sérstakt hlutverk nema að ræna búðina með þeim og labba svo út. Hann kvaðst hafa gengið að fyrsta starfsmanninum sem hann sá og skipað honum að leggjast niður, sem starfsmaður hafi gert. Þetta hafi verið við Coca Cola kælinn og hann haldið á hnífnum í hendinni og taldi hann að maðurinn hafi hlýtt vegna þess að hann hafi séð, að hann ætti enga möguleika. Hann hafði litið aftur fyrir sig en þá séð að ákærður Birgir stóð yfir einhverjum öðrum starfsmanni og Emil hafi verið að tæma peningaskúffu á einum afgreiðslukassanum sjálfur eða lét starfsmann gera það fyrir sig, Hann hafði ekki séð hversu margir peningakassar voru tæmdir, en hafði beðið eftir því að kallað yrði í hann að drífa sig út og þegar kallið kom hafi hann flýtt sér með meðákærðu út úr versluninni og þeir ekið á brott. Hann kannaðist ekki við að hafa ógnað viðskiptavini verslunarinnar með gráum opnum dúkahníf og hótað að skera hann á háls ef hann hreyfði sig né kvaðst hann hafa heyrt meðákærðu viðhafa þessa hótun.
Ákærða voru sýndar myndir úr öryggismyndavélakerfi verslunarinnar og kannaðist við sig á myndunum.
Hjá lögreglu gáfu skýrslu vitnin Pétur Þór Haraldsson, kt. 000000-0000, Vallhólma 20, Kópavogi, Mjölnir Gunnarsson, kt. 000000-0000, Bogahlíð 11, Reykjavík, starfsmenn verslunarinnar og Eysteinn Halldór Einarsson, kt. 000000-0000, Fögruhlíð 3, Hafnarfirði og Birkir Brynjarsson, kt. 000000-0000, Háuhæð 10, Garðabæ, sem voru viðskiptavinir verslunarinnar og voru staddir inni í versluninni er ránið átti sér stað og var Eysteinn að hjálpa þar til. Símaskýrsla var tekin af öðrum starfsmönnum og viðskiptavinum, er samræmi í megindráttum í skýrslu þeirra.
Mjölnir sagðist hafa verið að fylla kæli með gosflöskum þegar ránið átti sér stað og þrír menn komu inn. Tveir mannanna höfðu verið með húfu á höfði og huldu andlit sín, en sá hafi ekki verið með neitt á höfði og huldi ekki andlit sitt og lýsti hann útliti þeirra þannig:
Aðili 1, hafi verið með svarta skíðahúfu með göt fyrir augu, en lokað fyrir munninn, klæddur í dökkan anorak og dökkar buxur. Hann var í dökkum buxum, með svarta snjóbrettahanska á höndum og með sólgleraugu á höfði. Hann hélt á hvítum dúkahníf með hnífsblaðið úti ca 3-5 sm. Nokkuð breiðvaxinn eða klæddur í mikinn fatnað, hæð um 180 sm. Ljóst er af því, sem fram er komið í málinu, að hér er um að ræða ákærða Emil Frey.
Aðili 2, hafi og verið með svarta skíðahúfu með götum fyrir augu og munn. Taldi hann hafa verið í hönskum og verið með svipaða líkamsbyggingu og aðili 1 og um 180 sm á hæð og á þessi lýsing við ákærða Stefán Blackburn.
Aðili 3, hafivar vfrið dökkhærður ca 180 sm og 25-30 ára. Hann var með rauða derhúfu, dökkklæddur og virkaði skítugur og er hér um að ræða ákærða Birgir Rúnar.
Þegar rakið verður úr skýrslu Mjölnis hér á eftir verða aðilarnir tilgreindir með nöfnum.
Mjölnir sagðist fyrst hafa séð ákærða Birgi og boðið honum gott kvöld. Hann hafi virst stressaður eins og eitthvað væri að fara að gerast. Rétt á eftir hafi hinir tveir komið inn. Ákærður Birgir hafi þá gengið að endakassa 3 (aftan við). Ákærður Emil Freyr hafði gengið að Mjölni milli kassa 1 og 3 og ákærði Stefán fylgt á eftir á milli afgreiðslukassa. Mjölnir hafði hörfað aftur og hafði þá Emil tekið með höndum um fatnað hans þ.e. brjóst og öxl og ýtt við honum. Mjölnir hafði þá séð að Emil var með dúkahníf í hægri hendi og glitti vel í hnífsblaðið. Mjölnir hafði reynt að spyrna aðeins við þegar Emil ýtti honum aftur á bak. Emil hafði beint að honum hnífnum og þeir farið að hlið kassa 1. Þá hafði Emil sleppt hægri hendi af fatnaði hans, en haldið honum með vinstri hendi. Mjölnir sagði að Emil hafi sett olnboga sinn aftur eins og hann væri að gera sig líklegan til að stinga hann og hann þá haldið hnífnum í ca 30-40 sm frá líkama hans í andlitshæð. Mjölnir hélt að Emil hafi sagt hættu á að streitast á móti. Mjölnir hafði þá séð, að best var að fara að vilja mannsins, sem farið hafi með hann að afgreiðslukassa 1-2 og beðið hann að opna peningaskúffur. Mjölnir hafði stimplað vitlaust númer í kassann vegna þess hve stressaður hann var og Emil þá kallað "fljótur, fljótur, heldurðu að þetta sé eitthvað grín". Mjölnir hafði þá opnað peningaskúffuna og Emil tekið peningana úr skúffunni, um 15-23 þúsund krónur og svo hafi hann tekið 4-6 pakka af Marlboro vindlingum. Mjölnir hafði ekki fylgst með ákærðu Stefáni og Birgi, en hafði þó séð Birgi Rúnar taka peninga úr afgreiðslukassa 2, sem Pétur Þór hafði opnað fyrir honum, en þar áttu að vera um 40.000 krónur. Emil hafi svo skipað honum að leggjast niður, en hann ekki orðið við því þar sem honum fannst það skrýtið, en þó gerði hann sig líklegan til að beygja sig. Þegar ákærðu voru að fara út hafði Birgir Rúnar sagt með rólegri röddu ,,ef þið eltið okkur", en ekki lokið við setninguna þar eð þeir hafi strax svarað að þeir ætluðu ekki að elta þá. Hann taldi ránið hafa tekið eina til eina og hálfa mínútu. Hann sagðist hafa orðið verulega hræddur og óttast ákærðu. Honum fannst árásin beinast að honum, þegar honum var hótað með hnífnum og hann óttast að Emil myndi stinga hann með hnífnum.
Eysteinn Halldór skýrði svo frá, að hann væri kunningi Mjölnis og kæmi oft í verslunina og hjálpaði þá til, þó að hann væri ekki starfsmaður. Hann sagðist hafa verið skammt frá Coka Cola kælinum, sem væri skammt frá afgreiðslukössunum. Hann hafi þá séð tvo menn koma inn í verslunina, sem voru með dökkar húfur á höfði og hafi ekkert sést í andlit mannanna, en göt hafi verið á húfunum fyrir augu og munn. Mennirnir hafi talað með hárri og skipandi röddu. Annar mannanna hafi gengið til hans og verið í um eins meters fjarlægð. Hann hafi haldið á gráum dúkahníf og hnífsblaðið á honum verið út um 3-5 sm. Hann hafi staðið beint á móti honum og haldið hnífnum að honum og var á móts við maga hans í 20-40 sm fjarlægð frá honum. Maðurinn hafi verið ógnandi og skipað honum að fara niður. Hann hafði á þessum tíma staðið upp við kæli eða klakabox, en ekki getað hörfað aftur á bak. Hann hafði lyft höndum frá líkanum til merkist um að hann ætlaði ekki að gera neitt, en hafði samt farið niður á gólfið. Maðurinn hafði þá sagt við hann. "Ef þú hreyfir þig, þá sker ég þig á háls." Maðurinn hafði svo gengið að afgreiðslukössunum, en hann mundi ekki hvorum. Hann gat heldur ekki nefnt nein einkenni á manninum eða sagt til um hæð hans, en hann hafi verið dökkklæddur og með hanska. Hann hafði séð hinn manninn mjög stuttan tíma og vissi ekki hvort hann var með hníf eða berhentur. Hann vissi ekki hvernig mennirnir opnuðu peningakassann og sagðist ekki hafa verið með gott sjónsvið yfir mennina og ekki séð þegar þeir fóru út úr versluninni.
Honum hafði liðið heldur illa meðan á þessu stóð og óttaðist mennina. Hann hafði orðið mjög hræddur þegar honum hafi verið hótað af öðrum manninum að hann yrði skorinn á háls og farið að skjálfa af hræðslu. Honum fannst árásin beinast að honum og taldi því að mennirnir væru til alls líklegir og gætu gert honum mein.
Í máli þessu liggur að mestu leyti fyrir játning ákærðu og hafi þeir komið fyrir dóm og lýst atvikum mjög á sama veg og hjá lögreglu.
Ákærður Birgir Rúnar kvað dúkahnífana hafa verið notaða til að fylgja eftir því að peningakassarnir yrðu opnaðir. Hann mundi ekki hver hafi stungið upp á ráninu eða hvort það var sameiginleg ákvörðun. Hann kvaðst ekki hafa haft í hótunum við starfsmenn verslunarinnar og mundi ekki eftir því að hafa heyrt þá hótun frá ákærða Stefáni Balckburn, "ef þú hreyfir þig, þá sker ég þig á háls."
Fram kom hjá Birgi, að hann hafi verið búinn að vera í mikilli neyslu, en verið edrú síðustu 7-8 mánuðina, hann hafi fallið í lyfjaneyslu með meðákærðu.
Ákærður Emil mundi lítið eftir atvikum núna, en kannaðist við að hafa verið með ákærðu. Hann sagðist ekki hafa opnað dúkahnífinn. Hann kvaðst hafa tekið í starfsmann verslunarinnar og sagt honum að opna kassann og þá haldið á hnífnum. Hann hafði ekki heyrt líflátshótun frá ákærða Stefáni Blackburn.
Ákærður Stefán Blackburn kvaðst hafa verið með dúkahníf sem hafi verið nær því lokaður, haldið á honum og sýnt hann fólkinu, sem var að vinna í versluninni, en ekki beint eða otað honum að því, en látið það vita að honum væri alvara. Hann kvaðst ekki hafa hótað starsmanni að skera hann á háls og aðrir sem voru með honum ekki verið með slíkar hótanir.
Í málinu báru vitni starfsmennirnir Pétur Þór Haraldsson, Mjölnir Gunnarsson og viðskiptavinurinn Eysteinn Halldór Einarsson og lýstu þeir atvikum mjög á sama veg og kemur fram hér að framan. Vitnið Eysteinn heldur fast við að honum hafi verið hótað að hann yrði skorinn á háls ef hann hreyfði sig og blaðið verið úti á dúkahnífnum hjá þeim sem viðhafði hótunina.
Vitnið Mjölnir Gunnarsson hafði ekki heyrt líflátshótun, en því verið sagt frá henni eftir á. Það kvað manninn sem veittist að því hafa haldið hnífnumn í andlitshæð og otað honum að því.
Vitnið Pétur Þór hafði heldur ekki heyrt líflátshótunina. Það lýsti atvikum nánar þannig að fyrst hafi komið inn í verslunina maður, sem hafi staðið þar, án þess að gera nokkuð og ekki sagt neitt. Eftir að samstarfsmaður þess, Mjölnir hafði farið til að athuga hvort hann gæti afgreitt manninn hafi komið tveir aðrir menn inn, klæddir hettuúlpum og með hulið yfir höfuðið og voru með hníf. Þeir hafi ýtt starfsmanni að einum afgreiðslukassanum, en annar hafi gengið fram hjá kassanum að Eysteini, þar sem hann var að raða upp í kæli. Þeir hafi svo sagt að þetta væri ekkert grín, heldur ekta rán. Mjölnir hafi opnað peningakassa eftir smá basl við það. Vitnið var hálfvankað smá stund og fór svo að hinum kassanum og ætlaði að ýta á viðvörunarhnappinn, en varð fyrir truflun og bakkað frá. Það hafði svo farið aftur að kassanum og sett niður viðvörunarhnappinn og opnað kassann, en þá hafi komið að, sá sem fyrstu kom inn og hafi hann tæmt kassann. Mennirnir hafi svo gengið að dyrunum og sagt þeim að leggjast á gólfið og hlaupið út. Það kvaðst hafa séð a.m.k. einn dúkahníf, þetta hafi verið venjulegur dúkahnífur og blaðið á honum verið úti um 2-3 bil. Það kvað manninn sem kom fyrst inn hafa ekki verið hettuklæddan og gengið inn sem venjulegur viðskiptavinur og sagt mjög lítið.
Með framburði ákærðu, vætti vitna, rannsóknargögnum málsins er sannað að ákærðu þvinguðu starfsmenn verslunar 10-11 í Hafnarfirði til að opna peningakassa verslunarinnar með því að ógna þeim með dúkahnífum, sem þeir héldu á lofti og otuðu í átt að starfsmönnum og auk þess að ógna þeim á annan hátt, en þeir tóku úr kössunum þá peninga sem í þeim voru auk nokkra pakka af vindlingum.
Ákærði Birgir Rúnar var þó ekki vopnaður né grímuklæddur og hafði sig minna í frammi, en tók samt þátt í ráninu.
Framburður vitnisins Eysteins Halldórs Einarssonar, um að ákærður Stefán Blackburn hafi verið með líflátshótanir við hann, fær ekki stoð í framburði annarra vitna og gegn neitun ákærða Stefáns þykir það ekki nægilega sannað.
Ákærðu hafa með þessum verknaði gerst brotlegir við 252. gr. almennra hegningarlaga.
XV. Refsingar, skaðabætur o.fl. Við refsiákvörðun í málinu verður að líta til þess í sambandi við auðgunarbrotin, að ákærðu eru í sumum tilfellum margir saman sem er metið til refsiþyngingar og einnig er um margítrekuð brot að ræða, þannig að til álita kemur 255. gr. almennra hegningarlaga. Sumir ákærðu hafa borið fyrir sig að þeir hafi neytt flogaveikislyfsins rivotril með áfengi og öðrum fíkniefnum og orðið við það mjög kærulausir og skeytingarlausir um athafnir sínar. Þetta afsakar ekki brot þeirra, en er til skýringar í málinu. Í málinu verður nú vísað til sakaferils ákærðu í sambandi við refsimatið.
Ákærði Davíð Þór sem er 19 ára og hefur frá 15. febrúar 2006 hlotið 4 dóma, þar sem honum hefur verið gerð refsing fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og hefur hann í allt verið dæmdur til að sæta fangelsi í 18 mánuði, greiða 60.000 krónur í sekt og verið sviptur ökurétti í 8 mánuði. Í síðasta dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 23. febrúar s.l. var ákærður dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir brot gegn 244. gr., sbr. 20. gr. , 249. gr. og 248. gr, 1. mgr. 259. gr. og 1. mgr. 159. gr. almennra hegningarlaga og brot á umferðarlögum og var í dómnum dæmdur upp skilorðsbundin hluti samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 29. september 2006, 6 mánaða fangelsi, en refsingin í heild var 9 mánaða fangelsi fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga. Brot þau sem ákærður er nú sakfelldur fyrir eru öll framin fyrir uppkvaðningu dóms frá 23. febrúar s.l. og verður refsing hans því ákveðin með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga og með tilliti til hinna ítrekuðu tíðu brota á 244. gr. almennra hegningarlaga, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 19 mánuði og komu gæsluvarðhaldsvist hans frá 12. janúar 2007 til 2. júlí 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Sigurbjörn Adam sem nú er 21 árs gamall hefur frá 2003 hlotið 5 dóma fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og hefur verið í heild dæmdur til að sæta fangelsi í 19 mánuði. Síðasti dómurinn er dómur Héraðsdóms Reykjaness frá 23. febrúar 2007, þar sem ákærður er dæmdur til að hlíta fangelsi í 18 mánuði fyrir brot á 244. gr., 248. gr., 1. mgr. 259. gr. og 217. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Í dómnum var dæmd upp skilorðsbundin refsing skv. dómnum frá 20. nóvember 2006 á 2ja mánaða fangelsi, fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga og samkvæmt dómi frá 5. desember 2006, 4 mánaða fangelsi fyrir brot á 244. gr. og 1. mgr. 259. og 257. gr. almennra hegningarlaga, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
Brot þau sem ákærður er nú sakfelldur fyrir eru framin fyrir uppkvaðningu dóms frá 23. febrúar s.l. og verður refsing ákærða því ákveðin með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga og með tilliti til þess að ákærður fremur mörg þjófnaðarbrotin í félagi með öðrum, en þau eru tíð og mörg sem sýni harðan brotavilja og að ákærður hefur verið ósamvinnuþýður við rannsókn málsins, þykir refsing hans hæfilega metin fangelsi í 21 mánuð og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 30. janúar 2007 til 3. apríl 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Andri Freyr er 17 ára og hlaut ákærufrestun skilorðsbundna í 2 ár 8. desember 2005 og dóm 16. apríl 2006, þar sem ákvörðun refsingar var frestað skilorðsbundið í 2 ár.
Brot þau sem ákærður er nú sakfelldur fyrir voru framin fyrir 16. apríl 2006 og er ekki um skilorðsrof að ræða, en með vísun til 60. gr. almennra hegningarlaga er málið frá 16. apríl 2006 dæmt upp og þykir refsing nú með hliðsjón af 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði, en þegar hafður er í huga ungur aldur ákærða og langt er liðið frá því brotin voru framin þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum 2 árum haldi ákærður almennt skilorð skv. 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður Jón Einar er nú 25 ára og hefur frá árinu 1998 hlotið 6 dóma, þar sem honum hefur í allt verið gert að sæta fangelsi í allt 30 mánuði og 15 daga og greiða 30.000 krónur í sekt fyrir brot á almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Síðasti dómurinn er dómur Héraðdóms Reykjaness frá 23. febrúar s.l., en þá var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði fyrir brot á 244. gr. og 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og 48. gr. umferðarlaga, en 23. nóvember 2006, hafði hann við sama dómstól verið dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir brot á sömu lagagreinum, auk brota á 217. og 248. gr. almennra hegningarlaga, öðrum ákvæðum umferðarlaga og lögum um ávana- og fíkniefni. Brot þau sem ákærður er nú sakfelldur fyrir eru framin fyrir uppkvaðningu dóms 23. febrúar s.l. og verður nú ákveðin með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga og þegar tekið er tillit til þess, að ákærður fremur sum þjófnaðarbrotin í félagi með öðrum, og hin tíðu brot sýna einbeittan brotavilja og tilraun hans til að stela hraðbankanum er stórfellt brot og þykir refsing hans nú hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði.
Ákærður Ívar Aron er 21 árs og hafa verið gerðar við hann 2 sáttir fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og honum gert að greiða 134.500 krónur í sekt 20. janúar 2004 og 40.500 krónur 31. janúar 2004.
Refsing ákærða í máli þessu er ákveðin með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og verður það metið til refsiþyngingar að ákærður var í félagi með fleirum við sum brotin, þátttakan í tilrauninni til að stela hraðbankanum er stórfellt brot sem og ránsbrotin og þykir refsing hans að þessu virtu hæfilega ákveðin fangelsi í 30 mánuði og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 30. janúar 2007 til 2. júlí 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Pétur Ingi er 22 ára og hefur frá árinu 2002 hlotið 5 dóma fyrir brot á almennum hegningarlögum o.fl. og í heild verið dæmdur í 6 mánuði og 10 daga fangelsi. Síðasti dómurinn er frá 21. febrúar 2005, 100 daga fangelsi skilorðsbundið í 2 ár fyrir brot á 244.gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og með fjársvikabroti því sem ákærður er sakfelldur fyrir nú hefur hann rofið skilorð frá 21. febrúar 2005 og verður sá dómur nú dæmdur upp og honum ákveðin refsing fyrir bæði málin í einu lagi og þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði og þykir mega fresta fullnustu á 4 mánuðum af þeirri refsingu og falli hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærður almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærða Jóna Björk er 19 ára og hefur ekki áður hlotið dóm fyrir brot á refsilögum en lögreglustjórasátt fyrir fíkniefnalagabrot. Refsing hennar er ákveðin með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og við refismatið þykir rétt að líta til þess að hún er ekki virkur aðili í brotunum, heldur lætur meir leiðast til þeirra með ákærðu og ákærða hefur greitt umkrafðar bótakröfur undir rekstri málsins og þykir refsing hennar að þessu virtu hæfilega ákveðin 6 mánuðir í fangelsi og þykir með með vísun til ungs aldurs hennar og að hún hefur að mestu játað sök greiðlega mega fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærða almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður Pétur Áskell er 27 ára gamall og hefur frá árinu 1996 hlotið 4 dóma þar sem honum er í allt gert að sæta fangelsi í 11 mánuði og 20 daga, aðallega fyrir brot á 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og svo fyrir brot á 244., 263. og 257. gr. sömu laga. Þá hefur honum verið gerð nokkrum sinum refsing fyrir brot á lögum nr. 65/1974 og einnig umferðarlarögum og þykir refsing hans með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga hærilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði.
Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond er 23 ára gömul og var í Héraðsdómi Reykjaness þann 23. febrúar s.l. dæmd til að sæta fangelsi í einn mánuð skilorðsbundið í 2 ár.
Brot þau sem ákærða er nú sakfelld fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu þessa dóms og verður nú þessi dómur með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga dæmdur upp og ákvörðuð refsing í einu lagi fyrir bæði brotin og þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð samkvæmt 57. gr. almennra hegningarlaga sbr. lög nr. 22/1955.
Að auki greiði ákærða 70.000 krónur í sekt og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4ra vikna.
Þá skal hún samkvæmt 4. mgr. 102. gr. umferðarlaga sbr. lög nr. 66/2006, svipt ökurétti í 3 mánuði frá birtingu dómsins.
Ákærður Stefán Blackburn er 15 ára og hlaut dóm fyrir Héraðsdómi Suðurlands 22. júní s.l., þar sem refsiákvörðun var frestað skilorðsbundið í 2 ár fyrir brot á 244. gr. 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga og fíkniefnalagabrot. Með vísun til 60. gr. almennra hegningarlaga verður málið samkvæmt dómi þessum dæmt upp og bæði málin dæmd í einu lagi. Það verður metið til þyngingar refsingunni að ákærður fremur flest brotin í félagið með öðrum, ránsbrotin og tilraun til að stela hraðbankanum eru alvarleg brot, þar sem fram kemur einbeittur brotavilji hjá ákærða, en til lækkunar kemur ungur aldur ákærða. Að öllu virtu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 20 mánuði og kemur gæsluvarðhald frá 25.-28. mars s.l. til frádráttar refsingunni. Ákærður kveðst hafa verið í óhóflegri fíkniefnaneyslu allt frá 12 ára aldri og kveðst aldrei hafa farið í meðferð. Hann er nú í gæsluvarðhaldi vegna alvarlegrar líkamsárásar og eru ekki skilyrði þrátt fyrir ungan aldur til að skilorðsbinda refsinguna.
Ákærður Birgir Rúnar er 27 ára og hefur frá árinu 1997 hlotið 10 dóma fyrir brot á almennum hegningarlögum, aðallega 244. gr. laganna, en einnig fyrir brot á 245. gr., 252. gr., 217. gr. 1. mgr. 218. gr., 257. gr. og 259. gr. sem og fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og refsing í heild verið ákveðin 25 mánuðir og 15 dagar. Síðasti dómurinn er frá 18. apríl 2007, 8 mánaða fangelsi fyrir brot gegn 217. gr. 244., 245. gr. og 259. gr. almennra hegningarlaga og lög um ávana- og fíkniefni. Brot þau sem ákærður er nú sakfelldur fyrir voru framin fyrir uppkvaðningu dómsins frá 18. apríl 2007 og verður því höfð hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingarinnar sem þykir miðað við að um vopnað rán var að ræða, sem ákærði tók þátt í, en samt verður litið til þess að hann var sjálfur óvopnaður og ekki grímuklæddur og þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 9 mánuði og komi til frádráttar gæsluvarðhaldsvist hans frá 25. mars 2007 til 28. mars 2007.
Ákærður Emil Freyr er 18 ára og hefur tvívegis verið gert að greiða sekt, annars vegar 10. apríl 2006 31.000 krónur fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og 26. apríl 2007 250.000 króna sekt fyrir brot á 1. sbr. 45. gr. umferðarlaga og var ákærði þá sviptur ökurétti í 2 ár og 3 mánuði og þykir refsing hans með hliðsjón af því að um vopnað rán er að ræða framið af mörgum, hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði og komi gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 25. mars 2007 til 3. maí 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Ágúst Már er 20 ára og hefur einungis verið gert að greiða sekt 10. september 2004 fyrir umferðarlagabrot, 50.000 krónur.
Refsing ákærða verður ákveðin með hliðsjón af 77. gr.almennra hegningarlaga, en um er að ræða þrjú ránsbrot og þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði og eru ekki skilyrði til að skilorðsbinda refsinguna.
Samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 ber ákærði Sigurbjörn Adam að hlíta upptöku á 0,23 g af hassi og ákærður Ívar Aron á 4,88 g af amfetamíni og 25 skt. af fíkniefninu L.S.D.
Samkvæmt 101. gr. umferðarlaga sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 ber að svipta ákærða Sigurbjörn Adam ökurétti í 3 mánuði frá dómsbirtingu.
.
Í málinu eru gerðar eftirfarandi skaðabótakröfur.
Einar Logi Vilhjálmsson, Skessugili 5, Akureyri hefur gert kröfu um 28.975 krónur í bætur frá ákærða Davíð Þór og Andra Frey, sbr. dskj. 2-II.
Staðreynt var í skýrslu lögreglu að hægri framrúða bifreiðarinnar UT-285 var brotin og fylgir kröfunni reikningur vegna rúðuskiptanna. Fallist er á að þetta er kostnaður sem ákærðu bera ábyrgð á og er krafan tekin til greina.
Olíufélagið hf., kt. 000000-0000, gerir kröfu á hendur ákærða Davíð Þór um bætur að fjárhæð 4.936 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá tjónsdegi 19. desember 2006, þar til að mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags, sbr. dskj. nr. 13-VII.
Ákærður hefur játað þetta brot og krafan í samræmi við brot hans og er tekin til greina. Krafan var ekki birt á rannsóknarstigi og er upphafstími dráttarvaxta því miðaður við þingfestingu málsins 30. mars 2007.
Hagkaup hf., kt. 000000-0000, gerir kröfu á hendur ákærða Davíð Þór um bætur að fjárhæð 24.990 krónur, auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 25. ágúst 2006 til 3. september 2006, er krafan var kynnt ákærða og dráttarvexti skv. 9. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærður hefur samþykkt þessa kröfu og er hún tekin til greina.
Áróra Gústafsdóttir vegna Stefáns Más Þorsteinssonar, Barónsstíg 16, Reykjavík gerir kröfur að fjárhæð 69.200 krónur á hendur ákærða Sigurbirni Adam fyrir verðmæti sem tekin voru úr íbúð að Barónsstíg 16, sbr. dskj. nr. 28-X. Krafan er ekki nema að litlu leyti í samræmi við það sem ákærður Sigurbjörn Adam er sakaður um í ákæru og vísað frá að öðru leyti en að fallist er á 15.000 krónur, sem voru í peningakassa, sem ákærður er sakfelldur fyrir að hafa tekið.
Í málinu eru gerðar eftirfarandi kröfur á hendur ákærða Ívari Aroni í sambandi við fjársvik þau sem hann er sakfelldur fyrir sbr. ákærulið XXVI á dómskjali nr. 28.
Halla Hafbergsdóttir, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Samkaups Hyrnunnar, kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 5.360, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Kristberg Jónsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Langholts ehf. Kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 6.990, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Kristinn Guðmundsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Staðarskála, kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 8.180, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Pétur H Stefánsson, kt. 000000-0000 gerir kröfu f.h. Kaupfélags Skagfirðinga, kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 16.008, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Guðný Ketilsdóttir, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Tiger ehf., kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 4.400.
Bragi Elfsen, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Elfsen ehf., kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 14.200, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Markús Gústafsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Netten, kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 24.600, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Ásdís Björk Ásmundsdóttir, kt. 000000-0000 gerir kröfu f.h. Bifreiðastöðvar Oddeyrar, kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 13.400, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Helgi Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. HP-veitinga ehf., kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 9.930, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Sævar Freyr Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Pennans hf., kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 36.515, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Hallur Geir Heiðarsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Samkaupa hf., kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 12.184, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Sigurður Óli Sveinsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. 10-11 hf., kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 21.184, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Róbert Ólafsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Bónusvídeós ehf., kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 7.190, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Kjartan Sigurðsson, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Olíufélagið ehf., kt. 000000- 0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 5.594, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Hafrún Elma Símonardóttir, kt. 000000-0000, gerir kröfu f.h. Kaffi Amor ehf., kt. 000000-0000, um skaðabætur að fjárhæð kr. 36.000, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá tjónsdegi, en svo dráttarvaxta samkvæmt 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags.
Allar þessar kröfur miðast við þær fjárhæðir sem ákærða Ívari Aroni tókst að taka út í vörum o.fl. með framvísun á greiðslukortinu og eru nú teknar til greina, en upphafstími vaxta skv. 8. gr. vaxtalaga miðast við 29. janúar 2007, en upphafstími dráttarvaxta við 23. mars 2007, en þá var mánuður liðinn frá því að honum voru birtar kröfurnar.
Landsbanki Íslands, Austurstræti 11, Reykjavík gerir kröfu á hendur ákærða Jóni Einari og Stefáni Blackburn að fjárhæð 207.800 krónur vegna viðgerðar á hraðbanka Landsbankans að Kletthálsi 1. Bótakrafan er ekki studd neinum reikningum heldur aðeins áætlun og er vísað frá dómi vegna vanreifunar.
Arnþór Logi Arnarson, Austurbrún 2, Reykjavík gerir kröfu um bætur að fjárhæð 6.197 krónur á hendur ákærðu Ágústi Már, Ívari Aroni og Stefáni Blackburn vegna skemmda sem urðu á símkorti, heyrnartóli og hulstri farsímans sem hann var með er á hann var ráðist. Kröfu þessari er í hóf stillt og verða skemmdir þessar raktar til árásarinnar og er krafa þessi tekin til greina.
Halldór Bjarki Ipsen, Hörðalandi 6, Reykjavík gerir kröfu á hendur ákærðu Ágústi Má, Ívari Aroni og Stefáni Blackburn að fjárhæð 500.000 krónur í miskabætur auk vaxta skv. 16. gr. skaðabótalaga frá 31. október 2006 til 1. mars. 2007, en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludag. Þá er krafist 62.250 króna í lögmannsþóknun að meðtöldum virðisaukaskatti.
Fallist er á að árásin hafi verið hrottafengin og ógnvekjandi og valdið brotaþola verulegu andlegu áfalli. Hins vegar verður ekki án frekari gagna fallist á hærri miskabætur en 200.000 krónur og 62.250 krónur í lögmannsþóknun.
Í málinu ber að dæma ákærðu til að greiða skipuðum verjendum sínum málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjendastörf á rannsóknarstigi sem hér segir:
Ákærður Davíð Þór Gunnarsson, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. málsvarnarlaun og verjandalaun á rannsóknarstigi sem ákveðast 1.050.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Pétur Áskell Svavarsson greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. sem ákveðast 130.000 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Andri Freyr Hólm, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. málsvarnarlaun og verjandalaun á rannsóknarstigi sem ákveðast 80.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Jón Einar Randversson, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. málsvarnarlaun og verjandalaun á rannsóknarstigi sem ákveðast 800.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson, greiði skipuðum verjanda sínum Guðjóni Ægi Sigurjónssyni hrl. málsvarnarlaun sem ákveðast 620.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson greiði Hilmari Ingimundarsyni hrl. þóknun fyrir verjandalaun á rannsóknarstigi sem ákveðast 160.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærða Bryndís Gwenhufyar Bond, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. málsvarnarlaun sem ákveðast 80.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Pétur Ingi Pétursson, greiði skipuðum verjanda sínum Ásbirni Jónssyni hdl. málsvarnarlaun sem ákveðast 105.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Ívar Aron Hill Ævarsson, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjandalaun á rannsóknarstigi sem ákveðast 690.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Pétur Áskell Svavarsson, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. málsvarnarlaun sem ákveðast 130.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Stefán Blackburn, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. málsvarnarlaun sem ákveðast 230.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Stefán Blackburn, greiði áður skipuðum verjanda sínum Guðmundi B. Ólafssyni. málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjandastörf á rannsóknarstigi sem ákveðast 160.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Birgir Rúnar Benediktsson, greiði skipuðum verjanda sínum Sveini Andra Sveinssyni hrl. málsvarnarlaun sem ákveðast 280.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Emil Freyr Júlíusson, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjandastörf á rannsóknarstigi sem ákveðast 520.000 krónur með virðisaukaskatti.
Ákærður Ágúst Már Sigurðsson, greiði skipuðum verjanda sínum Kristjáni Stefánssyni hrl. málsvarnarlaun sem ákveðast 320.000 krónur með virðisaukaskatti.
Dóm þennan kveður upp Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari.
DÓMSORÐ
Ákærður, Davíð Þór Gunnarsson sæti fangelsi í 19 mánuði og kemur gæsluvarðhaldisvist ákærða frá 12. janúar 2007 til 2. júlí 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Andri Freyr Hólm sæti fangelsi í 3 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður Jón Einar Randversson, sæti fangelsi í 14 mánuði.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson sæti fangelsi í 21 mánuð og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 30. janúar 2007 til 3. apríl 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond sæti fangelsi í 2 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum 2 árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ennfremur greiði hún krónur 70.000 í sekt og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan 4 vikna.
Ákærður Pétur Ingi Pétursson sæti fangelsi í 6 mánuði, en fresta skal fullnustu á 4 mánuðum af refsingunni og falli hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður Ívar Aron Hill Ævarsson sæti fangelsi í 30 mánuð og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 30. janúar 2007 til 2. júlí 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Stefán Blackburn sæti fangelsi í 20 mánuði og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 25. mars 2007 til 28. mars 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærða Jóna Björk Jóhannsdóttir sæti fangelsi í 6 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og niður skal hún falla að liðnum 3 árum haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 22/1955.
Ákærður Pétur Áskell Svavarsson sæti fangelsi í 6 mánuði.
Ákærður Ágúst Már Sigurðsson sæti fangelsi í 14 mánuði.
Ákærður Birgir Rúnar Benediktsson sæti fangelsi í 9 mánuði og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 25. mars 2007 til 28. mars 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærður Emil Freyr Júlíusson sæti fangelsi í 12 mánuði og komi gæsluvarðhaldsvist hans frá 25. mars 2007 til 28. mars 2007 til frádráttar refsingunni.
Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond skal svipt ökurétti í 3 mánuði frá birtingu dómsins.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson skal sviptur ökurétti í 3 mánuði frá birtingu dóms þessa.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson sæti upptöku á 0,23 g af hassi.
Ákærður Ívar Aron Hill Ævarsson, sæti upptöku á 4,88 g af amfetamín og 25 stk. af vímuefninu LSD.
Ákærður Davíð Þór Gunnarsson greiði eftirtöldum aðilum bætur:
- Davíð Þór og Andri Freyr greiði saman Einari Loga Vilhjálmssyni, Skessugil 5, Akureyri 28.975 krónur.
- Olíufélaginu hf., kt. 000000-0000 4.936 krónur auk vaxta skv. 8. gr. laga nr. 39/2001 frá 19. desember 2006 til 30. mars 2007, en dráttarvaxta skv. 9. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.
- Hagkaupum hf., kt. 000000-0000, 24.990 krónur og vexti skv. 8. gr. laga nr. 39/2001 frá 25. ágúst s.l. til 3. september s.l., en dráttarvaxta skv. 9. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson, greiði Stefáni Má Þorsteinssyni, Barónsstíg 16, Reykjavík 15.000 krónur.
Ákærður Ívar Aron Hill Ævarsson, greiði eftirtöldum aðilum þessar bætur:
- Samkaupum vegna Hyrnunnar, kt. 000000-0000, 5.360 krónur.
- Langholti ehf. kt. 000000-0000, 6.990 krónur.
- Staðarskála, kt. 000000-0000, 8.180 krónur.
- Kaupfélagi Skagfirðinga, kt. 000000-0000, 16.008 krónur.
- Tiger ehf., kt. 000000-0000, 4.400 krónur.
- Elfsen ehf., kt. 000000-0000, 14.200, krónur.
- Netten, kt. 000000-0000, 24.600 krónur.
- Bifreiðastöð Oddeyrar, kt. 000000-0000, 13.400 krónur.
- HP-veitingum ehf., kt. 000000-0000, 9.930 krónur.
- Pennanum hf., kt. 000000-0000, 36.515 krónur.
- Samkaupum hf., kt. 000000-0000, 12.184 krónur.
12. 10-11 hf., kt. 000000-0000, 21.184 krónur.
- Bónusvídeó ehf., kt. 000000-0000, 7.190 krónur
- Olíufélaginu ehf., kt. 000000-0000, 5.594 krónur.
- Kaffi Amor ehf., kt. 000000-0000, 36.000 krónur.
Allar kröfurnar bera vexti skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 frá 29. janúar s.l. til 23. mars s.l. en dráttarvexti skv. 9. gr. laganna frá þeim degi til greiðsludags.
Bótakröfu Landsbanka Íslands, Austurstræti 11, Reykjavík, að fjárhæð 207.800 krónur er vísað frá dómi.
Ákærðu Ágúst Már, Ívar Aron og Stefán Blackburn greiði Arnþóri Loga Arnarsyni, Austurbrún 2, Reykjavík 6.197 krónur.
Ákærðu Ágúst Már, Ívar Aron og Stefán Blackburn greiði Halldóri Bjarka Ipsen, Hörðalandi 6, Reykjavík 200.000 krónur auk 62.250 krónur í lögmannsþóknun og greiði vexti skv. 16. gr. skaðabótalaga af fjárhæðinni frá 31. október 2006 til 1. mars 2007 en dráttarvexti frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærður Davíð Þór Gunnarsson, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. í málsvarnarlaun og verjandalaun á rannsóknarstigi 1.050.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Pétur Áskell Svavarsson greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. 130.000 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Andri Freyr Hólm, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. í málsvarnarlaun og verjandalaun á rannsóknarstigi 80.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Jón Einar Randversson, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. í málsvarnarlaun og verjandalaun á rannsóknarstigi 800.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson, greiði skipuðum verjanda sínum Guðjóni Ægi Sigurjónssyni hrl. í málsvarnarlaun 620.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Sigurbjörn Adam Baldvinsson greiði Hilmari Ingimundarsyni hrl. í þóknun fyrir verjandalaun á rannsóknarstigi 160.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærða Bryndís Gwenhwfyar Bond, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. í málsvarnarlaun 80.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Pétur Ingi Pétursson, greiði skipuðum verjanda sínum Ásbirni Jónssyni hdl. í málsvarnarlaun 105.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Ívar Aron Hill Ævarsson, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. í málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjandalaun á rannsóknarstigi 690.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Pétur Áskell Svavarsson, greiði skipuðum verjanda sínum Hilmari Ingimundarsyni hrl. í málsvarnarlaun 130.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Stefán Blackburn, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. í málsvarnarlaun 230.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Stefán Blackburn, greiði áður skipuðum verjanda sínum Guðmundi B. Ólafssyni. málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjandastörf á rannsóknarstigi 160.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Birgir Rúnar Benediktsson, greiði skipuðum verjanda sínum Sveini Andra Sveinssyni hrl. í málsvarnarlaun 280.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Emil Freyr Júlíusson, greiði skipuðum verjanda sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni hdl. í málsvarnarlaun og þóknun fyrir verjandastörf á rannsóknarstigi 520.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærður Ágúst Már Sigurðsson, greiði skipuðum verjanda sínum Kristjáni Stefánssyni hrl. málsvarnarlaun 320.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Guðmundur L. Jóhannesson Rétt endurrit staðfestir.
Héraðsdómi Reykjaness 12.7.2007.