Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 945/2000"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 5. október 2006

85/2006

Kópavogsbær (Þórður Clausen Þórðarson hrl) gegn Sigurþór Hallbjörnssyni og Áróru Gústafsdóttur (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Deilt var um hvort K væri heimilt að skattleggja húsnæði S og Á samkvæmt b. lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga eða hvort skattleggja bæri húsnæðið samkvæmt a. lið sama ákvæðis. Fallist var á að raunveruleg notkun fasteignar ráði flokkun hennar með tilliti til fasteignaskatts og var talið sannað að umrætt húnæði hefði verið nýtt sem íbúð. Ekki var talið að sjónarmið K, sem byggðust m.a. á skipulagi sveitarfélagsins og skráningu fasteignarinnar, girtu fyrir rétt S og Á til að greiða fasteignaskatt í sama gjaldflokki og eigendur annars íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu. Var því talið að skattleggja bæri húsnæði S og Á samkvæmt a. lið 3. mgr. 3. gr. laganna og K gert að endurgreiða þeim þá fjárhæð sem hafði verið ofgreidd.

...4/1995 né í reglugerð nr. 945/2000 að finna reglu eða sjónarmið um flokkun fasteigna milli a- og b-liða 3. mgr. 3. gr. laganna. Því verði að túlka...

Hæstiréttur birt 9. febrúar 2006

351/2005

Landsafl hf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Gunnar Eydal hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Deilt var um skyldu L til greiðslu fasteignaskatts til R af þeim hluta húseignar félagsins sem leigður var skólanum T. L byggði á því að húsnæðið væri undanþegið fasteignaskatti samkvæmt þágildandi ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Ágreiningslaust var að T félli undir hugtakið skóli í merkingu ákvæðisins, en R taldi undanþáguna aðeins taka til húsnæðis þar sem eignarhald að fasteign er í höndum þess er skólann rekur. Í ljósi þess að andlag skattlagningarinnar var fasteignin sem slík eftir afnotum hennar, óháð eignarhaldi, var talið að skilja yrði undanþáguákvæðið svo að það tæki til fasteignar væri hún til þeirra nota eða af þeirri gerð sem þar greindi. Ekki var talið að nokkuð í orðalagi ákvæðisins bindi undanþáguna skilyrðum er lytu að eignarhaldi að viðkomandi eign. Þar sem óumdeilt var að skóli í merkingu ákvæðisins var rekinn í því húsnæði sem ágreiningur aðila laut að var talið að húsnæðið væri samkvæmt beinu orðalagi ákvæðisins undanþegið fasteignaskatti. Var aðalkrafa L því tekin til greina.

...4/1995 að ekki sé gerður áskilnaður um eignarhald þess sem undanþágu njóti í reglugerð nr. 945/2000. Það séu eftir sem áður einungis skólastofnanir sem geti notið undanþágunnar. Sá...