Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 847/2010"
1 dómar fundust
D ehf. sótti um úthlutun byggðakvóta fyrir bát sinn fiskveiðiárið 2011/2012 fyrir Kópasker en D ehf. var með skráð heimilisfang á Húsavík. Skömmu áður hafði sveitarfélagið Norðurþing óskað eftir breytingu á því skilyrði almennra úthlutunarreglna byggðakvóta til fiskiskipa fyrir umrætt fiskveiðiár, að fiskiskip sem sótt væri um byggðakvóta fyrir væri í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. desember 2011. Laut beiðni sveitarfélagsins að því að fullnægjandi væri að eigandi viðkomandi skips hefði heimilisfang innan sveitarfélagsins. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hafði samþykkt slíka breytingu fyrir fiskveiðiárið á undan og hafði D ehf. þá fengið úthlutað hluta af byggðakvóta Kópaskers þrátt fyrir að vera ekki með heimilisfang þar. Ráðuneytið hafnaði aftur á móti beiðni sveitarfélagsins þar sem ekki var talin hætta á að ekki næðist að úthluta byggðakvóta Kópaskers, eins og verið hefði fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Þar af leiðandi var umsókn D ehf. hafnað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki fyrrgreint skilyrði um heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi. Í málinu krafðist D ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í á tjóni D ehf. vegna höfnunar á úthlutun byggðakvóta Kópaskers fiskveiðiárið 2011/2012 fyrir bát D ehf. Byggði D ehf. kröfu sína meðal annars á því að höfnun ráðuneytisins á beiðni Norðurþings um breytingu á reglum um heimilisfesti útgerða hafi verið ólögmæt stjórnvaldsákvörðun. Niðurstaða Landsréttar var að umrædd ákvörðun hafi átt sér fullnægjandi lagastoð, mat ráðuneytisins hafi verið málefnalegt og gætt hafi verið að ákvæðum stjórnsýslulaga. Þá hefði D ehf. ekki getað haft réttmætar væntingar til þess að fá úthlutað byggðakvóta þar sem ráðuneytið hafði þegar hafnað beiðni Norðurþings um breytingu á skilyrði um heimilisfesti. Þá var D ehf. ekki talinn hafa lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um lögmæti úthlutunar byggðakvóta til annarra útgerða sem uppfylltu almenn skilyrði til slíkrar úthlutunar. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í af kröfum D ehf. því staðfest.
...sé utan kvóta Þorskígildi grásleppunnar komi einungis fram í reglugerð um veiðigjald, sbr. reglugerð nr. 847/2010, en til að reikna veiðigjald þurfi þorskígildisstuðul. Í 1. mgr. 4. gr. sé...