Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 83/1993"

7 dómar fundust

Héraðsdómur Suðurlands birt 5. janúar 2026

E-445/2024

Guðjón Þórir Sigfússon Jón Þórðarson og Sigfús Kristinsson (Sverrir Sigurjónsson lögmaður) gegn Náttúruhamfaratryggingu Íslands (Hjalti Geir Erlendsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af bótakröfu stefnanda, þar sem ekki þótti sýnt að stefnendur hefðu orðið fyrir meira tjóni af völdum jarðskjálfta sem stefnda bæri að bæta en þegar hafi verið bætt af hálfu stefnda og forvera hans.

...770/2023 og eldri reglugerð nr. 83/1993, um Viðlagatryggingu Íslands, laga um vátryggingasamninga nr. 30/2004 og meginreglna vátryggingaréttar. Einnig er vísað til laga nr. 150/2007 um fyrningu...

Landsréttur birt 6. nóvember 2025

582/2025

Guðjón Þórir Sigfússon Jón Þórðarson og Sigfús Kristinsson (Sverrir Sigurjónsson lögmaður) gegn Náttúruhamfaratryggingu Íslands (Lilja Jónasdóttir lögmaður)

Þar sem meira en átta vikur höfðu liðið frá munnlegum málflutningi til dómsuppsögu í héraði var hinn áfrýjaði dómur, með vísan til dómaframkvæmdar Hæstaréttar, ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.

...770/2023 og eldri reglugerð nr. 83/1993, um Viðlagatryggingu Íslands, laga um vátryggingasamninga nr. 30/2004 og meginreglna vátryggingaréttar. Einnig er vísað til laga nr. 12 150/2007 um...

Landsréttur birt 5. febrúar 2021

772/2019

Diðrik Jóhann Sæmundsson (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður) gegn Náttúruhamfaratryggingu Íslands (Jónas A. Aðalsteinsson lögmaður)
Lykilorð: Stjórnsýsla. Skaðabætur.

D höfðaði mál til heimtu skaðabóta úr hendi N vegna kostnaðar sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna meðferðar stjórnsýslumála hjá N, einkum kostnaðar við lögmannsþjónustu og öflun matsgerða. Átti málið rætur að rekja til tjóns sem varð á tilteknum mannvirkjum á jörð D í jarðskjálfta sem reið yfir á Suðurlandi 29. maí 2008. Í dómi Landsréttar kom fram að veigamiklir annmarkar hefðu verið á málsmeðferð N. Hún hefði verið andstæð málshraðareglu 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með því að mál D hefði ekki verið lagt í þann farveg sem boðinn væri samkvæmt lögum nr. 55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands og þágildandi reglugerð nr. 83/1993. Þá hefði málsmeðferð N einnig falið í sér brot gegn 7. og 10 gr. stjórnsýslulaga. Skilyrðum um saknæmi og ólögmæti var því fullnægt fyrir skaðabótaskyldu N að því er fyrrgreind atriði varðaði. D hefði þó með málatilbúnaði sínum ekki fært fyrir því viðhlítandi rök að fullnægt væri skilyrðum 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 fyrir miskabótum honum til handa. Voru bætur D ákveðnar að álitum.

...55/1992 um Náttúruhamfaratryggingu Íslands og þágildandi reglugerð nr. 83/1993. Þá hefði málsmeðferð N einnig falið í sér brot gegn 7. og 10 gr. stjórnsýslulaga. Skilyrðum um saknæmi og...

Landsréttur birt 8. nóvember 2019

161/2019

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn A (Styrmir Gunnarsson lögmaður)

A krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hans til greiðslu bóta úr hendi S hf. á grundvelli slysatryggingar í frítíma og innbústryggingar A hjá S hf., vegna líkams- og munatjóns sem A varð fyrir þegar hann lenti í snjóflóði. Lagt var til grundvallar að höfuðorsök þess að snjóflóðið fór af stað hafi verið ferð A og félaga hans í hlíðum fjallsins. Var snjóflóðið því ekki talið til náttúruhamfara í skilningi viðkomandi vátryggingarskilmála og tjón A því ekki undanþegið vátryggingunni. Réttur A til bóta úr tryggingunni var því viðurkenndur. Í dómi héraðsdóms var ósamræmi í forsendum dómsins um ákvörðun málskostnaðar og þóknunar lögmanns gjafsóknarhafa. Af þeim sökum var málskostnaður og gjafsóknarkostnaður ákveðinn í einu lagi í héraði og fyrir Landsrétti.

...Vegna þessa sé merking orðsins snjóflóð nánar útskýrt í reglugerð nr. 83/1993 um Viðlagatryggingu Íslands. Í 4. tölulið 1. gr. segi: „Snjóflóð merkir snjóskriðu, sem fellur skyndilega úr fjalli...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2019

E-994/2018

Viðar Kristinsson (Styrmir Gunnarsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson lögmaður)
Lykilorð: Vátryggingarsamningur.
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnandi lenti í snjóflóði sem fór af stað þegar hann og félagi hans voru á skíðum í fjalli, talið að umferð þeirra hafi komið flóðinu af stað. Stefndi hafnaði bótaskyldu vegna slyssins þar sem slysatryggingin tæki ekki til snjóflóða og annarra náttúruhamfara. Viðurkenndur réttur stefnanda til bóta úr hendi stefnda vegna líkams-og munatjóns.

...Vegna þessa sé merking orðsins snjóflóð nánar útskýrt í reglugerð nr. 83/1993 um Viðlagatryggingu Íslands. Í 4. tölulið 1. gr. segi: „Snjóflóð merkir snjóskriðu, sem fellur skyndilega úr fjalli...

Hæstiréttur birt 30. september 2010

501/2010

Viðlagatrygging Íslands (Jónas A. Aðalsteinsson hrl) gegn Fallorku ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var beiðni V um dómkvaðningu matsmanna til að meta nánar tilgreind atriði varðandi stíflumannvirki í eigu F. Úrskurðarnefnd samkvæmt 19. gr. laga nr. 55/1992 um Viðlagatryggingu Íslands felldi úr gildi úrskurð stjórnar V þar sem bótaskyldu vegna tjóns F á stíflumannvirkinu hafði verið hafnað. Með hliðsjón af forsendum og niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndarinnar var fallist á að stjórn V ætti eftir að taka afstöðu til bótafjárhæðar til handa F. Var þannig ekki talið að úrskurður nefndarinnar stæði í vegi fyrir því að stjórn V fengi notað þá heimild sem lög nr. 55/1992 kvæðu á um til að leggja grundvöll að ákvörðun í málinu. Þegar af þessari ástæðu væru ákvæði XII. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki því til fyrirstöðu að V aflaði mats í samræmi við hin sérstöku ákvæði þeirra laga sem hún starfar eftir. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að dómkveðja tvo matsmenn til að framkvæma hið umbeðna mat.

...Gildir um þetta reglugerð nr. 83/1993. Er þar kveðið á um það í 11. grein að stjórn sóknaraðila skuli gera ráðstafanir til að skoða og meta tjón og til...

Hæstiréttur birt 28. október 1999

103/1999

Hafnasamlag Suðurnesja (Sigurmar Kristján Albertsson hrl) gegn Viðlagatryggingu Íslands (Jónas A. Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Í óveðri, sem gekk yfir suðvesturhluta landsins haustið 1995, brotnaði skarð á 20-30 metra kafla í hafnargarðinn í Keflavík. Hafnargarðurinn var í skylduvátryggingu hjá V samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 55/1992 um Viðlagatryggingu Íslands. Stjórn V hafnaði bótaskyldu vegna atburðarins með vísan til þess að tjónið yrði ekki rakið til náttúruhamfara í skilningi 4. gr. laga nr. 55/1992, eins og þær væru nánar skilgreindar í reglugerð nr. 83/1993 um Viðlagatryggingu Íslands, en samkvæmt 5. tl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar merkti vatnsflóð samkvæmt 4. gr. laganna meðal annars það, er flóbylgjur frá sjó gengju á land og yllu skemmdum eða eyðileggingu á vátryggðum munum. Sérstök úrskurðarnefnd, sem starfaði á grundvelli 19. gr. laga nr. 55/1992, staðfesti ákvörðun stjórnar V. Á það var fallist með nefndinni og héraðsdómara, að viðlagatrygging H næði til hvers konar hamfara sjávar, sem teldust til náttúruhamfara eftir almennum skilningi á því hugtaki og óháð því hvort rekja mætti flóðbylgjur til annarra náttúruafla svo sem jarðskjálfta eða snjóflóða. Að virtum niðurstöðum úrskurðarnefndarinnar um veður og ölduhæð á staðnum í umrætt sinn og gögnum um ástand hafnargarðsins var á það fallist með héraðsdómara, að H hefði ekki sýnt fram á, að aðstæður hefðu verið með þeim hætti, að um náttúruhamfarir í skilningi 4. gr. laga nr. 55/1992 hefði verið að ræða. Þá þótti ekki leitt í ljós, að aðrar ákvarðanir stjórnar V um greiðslu bóta vegna sjávarflóða hefðu verið með þeim hætti, að V hefði mismunað H með ákvörðun sinni. Var niðurstaða héraðsdómara um að sýkna V af kröfum H staðfest.

...55/1992, eins og þær væru nánar skilgreindar í reglugerð nr. 83/1993 um Viðlagatryggingu Íslands, en samkvæmt 5. tl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar merkti vatnsflóð samkvæmt 4. gr...