Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 786/1999"
2 dómar fundust
Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda reikning vegna hreinsunar á lóð hans.
...Hefur það verið gert með reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit. Samkvæmt 29. gr. reglugerðarinnar er hámark dagsekta 500.000 krónur á dag. Kostnaður við hreinsun lóðarinnar nam 1.245...
Umhverfismat. Starfsleyfi. Stjórnsýsla. Aðild. Áfrýjunarheimild. Frávísun máls að hluta frá héraðsdómi. Frávísun máls að hluta frá Hæstarétti. Gjafsókn. Í málinu var deilt um lögmæti umhverfismats og veitingar starfsleyfis álvers í Reyðarfirði. Höfðu áætlanir verið uppi um að reist yrði álver í tveimur áföngum með 420.000 tonna framleiðslugetu á ári, ásamt rafskautaverksmiðju og hafði farið fram lögboðið umhverfismat vegna þeirrar framkvæmdar. Fallið var frá þessum áformum áður en starfsleyfi hafði verið gefið út og ákveðið að óska eftir að fá að reisa álver með 322.000 tonna framleiðslugetu á ári og falla frá áformum um að reisa rafskautaverksmiðju. Komst Skipulagsstofnun að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti að fara fram nýtt umhverfismat vegna hinna breyttu áforma. Kærði H þá niðurstöðu til umhverfisráðherra sem staðfesti niðurstöðuna með úrskurði. Umhverfisstofnun veitti starfsleyfi vegna framkvæmdarinnar og freistaði H þess einnig að kæra þá ákvörðun en umhverfisráðherra vísaði kæru hans frá. Krafðist H þess meðal annars fyrir dómi að fá þessum tveimur ákvörðunum umhverfisráðherra hnekkt. Héraðsdómur hafði í efnisdómi vísað frá dómi öðrum kröfum H en sú niðurstaða hafði ekki verið kærð til Hæstaréttar í samræmi við reglur XXIV. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Gátu þær kröfur því ekki komið til álita við áfrýjun og var vísað frá Hæstarétti. Um fyrri kröfuna var tekið fram að starfsleyfi hafi ekki verið gefið út vegna upphaflegra áætlana um byggingu álvers með 420.000 tonna framleiðslugetu, þótt undirbúningur leyfisveitingar hafi verið á lokastigi. Því hafi skilyrði ekki verið fyrir hendi til að verða við beiðni um að nýtt umhverfismat þyrfti ekki að fara fram á grundvelli 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 13. lið 2. viðauka við lögin, sem byggð hafi verið á því að ekki væri um nýja framkvæmd að ræða heldur breytingu á framkvæmd, sem þegar hafi verið fyrirhuguð. Var og tekið fram að nota hafi átt að einhverju leyti aðra tækni við framleiðslu í álverinu en upphaflega hafi verið áætlað og taka hafi átt á mengandi útblæstri með allt öðrum hætti. Að auki hafi verksmiðjan verið verulega breytt í útliti. Var því talið að umhverfismat hefði þurft að fara fram að nýju. Varðandi síðari kröfu H var talið að samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir mætti kæra ákvarðanir Umhverfisstofnunar um veitingu starfsleyfis til umhverfisráðherra. Ekki væri í lagagreininni tekið fram hverjir nytu aðildar að slíkum kærum og þótti verða að skýra ákvæðið með hliðsjón af reglum stjórnsýslulaga en almennt væri viðurkennt samkvæmt stjórnsýslurétti að aðilar máls gætu þeir einir verið sem hafi verulegra og einstaklegra hagsmuna að gæta af stjórnavaldsákvörðun. H átti heimilisfesti í Fjarðarbyggð en heimili hans var langt frá hinu fyrirhugaða álveri og taldist hann því ekki geta reist aðild sína á reglum grenndarréttar og ekki var talið að hann hefði sýnt fram á að hann ætti annarra einstaklegra og verulegra hagsmuna að gæta um byggingu álversins. Ekki breytti neinu í þessu sambandi að H hafi notið réttar samkvæmt lögum nr. 7/1998 til að gera athugasemdir við tillögur Umhverfisstofnunar um starfsleyfi. Var því staðfesti niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu H um ógildingu á þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að vísa frá kæru H vegna veitingar starfsleyfisins.
...Samkvæmt ákvæði 3.20 í reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit er þynningarsvæði „sá hluti viðtaka þar sem þynning mengunar á sér stað og ákvæði starfsleyfis kveða á um að...