Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 763/2000"
5 dómar fundust
Aðilar málsins deildu um hvort lög nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu heimiluðu S að greiða A miskabætur á grundvelli a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Tilefni þess var ágreiningur um hvort læknir á Landspítala sem framkvæmdi kviðarholsspeglun á A þar sem báðir eggjastokkar hennar voru fjarlægðir hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi við framkvæmd aðgerðarinnar. S byggði á því að skilja yrði orðalag 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 á þann veg að þar væri eingöngu vísað til I. kafla skaðabótalaga. A byggði aftur á móti á því að samkvæmt orðalagi ákvæðisins væri vísað til reglna skaðabótalaga í heild sinni. Hæstiréttur vísaði til markmiðs og forsögu laga nr. 111/2000 og að þeim hafi verið ætlað að bæta rétt sjúklinga og annarra sem nýti sér heilbrigðisþjónustu meðal annars með því að gera sök ekki að skilyrði greiðslu bóta. Hæstiréttur tók fram að samkvæmt orðum 1. mgr. 5. gr. laganna væri eingöngu vísað til þess að ákvörðun um fjárhæð tjóns færi eftir reglum skaðabótalaga en ekki að bótaréttur ákvarðaðist eftir reglum þeirra laga. Yrði því að skilja málsgreinina þannig að í henni fælust fyrirmæli um ákvörðun fjárhæðar bóta án tillits til sakar samkvæmt nánari fyrirmælum laganna. Þá væri sá bótagrundvöllur sem mælt er fyrir um í 26. gr. skaðabótalaga sérstaks eðlis. Komst Hæstiréttur því að þeirri niðurstöðu að bætur sem ákvarðaðar væru á grundvelli mats á ásetningi eða stórfelldu gáleysi samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga féllu ekki undir að vera ákvörðun bótafjárhæðar í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000. Var S því sýknaður af kröfum A.
...Um það var sett reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. 31. Sett hafa verið ný lög um sjúklingatryggingu nr...
Hafnað var kröfu Þ um viðurkenningu á bótaskyldu T og á bótarétti Þ úr lögbundinni sjúklingatryggingu læknis hjá T vegna tjóns sem Þ taldi að rekja mætti til læknisaðgerðar. Þ hafði sýnt fram á að mistök hefðu orðið, né heldur að rétt hefði verið að beita annarri aðferð.
...Lögunum til fyllingar standi reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Stefndi telur rétt að hafa í huga að stefnandi...
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að viðurkenndur yrði réttur til bóta úr sjúklingatryggingu tveggja lækna vegna líkamstjóns sem byggt var á að stefnandi hefði orðið fyrir í skurðaðgerð.
...Lögunum til fyllingar sé reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Þó svo að lögin setji sérstakar og almennt vægari...
H krafðist viðurkenningar á því að hún ætti rétt á fébótagreiðslu úr ríkissjóði á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna liðbandaaðgerðar sem Gunnar Þór Jónsson bæklunarlæknir gerði 12. september 2001 á hægri ökkla hennar. Í dómi héraðsdóms var staðfest að læknirinn væri bótaskyldur gagnvart H og var þeirri niðurstöðu ekki áfrýjað. Læknirinn hafði ekki keypt lögboðna tryggingu samkvæmt lögum nr. 111/2000 og byggði H á því að Í hefði haft eftirlitsskyldu með því að svo væri og bæri af þeim sökum bótaábyrgð á tjóni H. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að í lögum nr. 111/2000 og reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, sé ekki kveðið á um eftirlitsskyldu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins með því að vátryggingarskyldu samkvæmt þessum lagaheimildum sé gætt. Sé því ekki að finna lagagrundvöll fyrir eftirlits- og aðgerðarskyldu ríkisins vegna framkvæmdar laga nr. 111/2000. Var Í því sýknað af kröfu H.
...111/2000 og reglugerð nr. 763/2000 um vátryggingu þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu, sé ekki kveðið á um eftirlitsskyldu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins með...
Viðurkennd bótaábyrgð sjálfstætt starfandi sérfræðilæknis vegna afleiðinga skurðaðgerðar á ökkla. Íslenska ríkið sýknað af kröfu um viðurkenningu bótaábyrgðar vegna þess að ekki hefði verið gætt að því að læknirinn keypti sér lögboðna vátryggingu (sjúklíngatryggingu).
...september 2001 eins og skylt hafi verið samkvæmt lögum nr. 111/2000, sbr. reglugerð nr. 763/2000. Verði sjúklingur fyrir bótaskyldu tjóni vegna meðferðar sjálfstætt starfandi sérfræðilæknis sem ekki sé...