Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 755/2007"

4 dómar fundust

Landsréttur birt 16. október 2020

360/2019

Annata ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og Rarik ohf. (Bjarni Aðalgeirsson lögmaður) og Rarik ohf. (Bjarni Aðalgeirsson lögmaður) gegn Annata ehf. (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður)

Ríkiskaup buðu A ehf. og AD ehf. að taka þátt í lokuðu samningskaupaferli um gerð orkureikningakerfis fyrir R ohf. Eftir að bjóðendur skiluðu endanlegum verðtilboðum var A ehf. tilkynnt að tilboð AD ehf. hefði verið valið sem fjárhagslega hagstæðasta tilboðið samkvæmt matsforsendum. A ehf. kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála. Nefndin hafnaði því að fella úr gildi ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboði AD ehf. þar sem endanlegur samningur hefði komist á við AD ehf. en komst að þeirri niðurstöðu að R ohf. og Ríkiskaup væru skaðabótaskyldir gagnvart A ehf. A ehf. höfðaði mál á hendur Í og R ohf. og krafðist viðurkenningar á rétti til skaðabóta úr hendi þeirra óskipt, aðallega vegna missis hagnaðar en til vara vegna kostnaðar sem A ehf. lagði út fyrir við þátttöku í samningskaupaferlinu. Í dómi Landsréttar kom fram að A ehf. hefði ekki tekist að sýna fram á að tilboð hans hafi í raun verið hagkvæmara en tilboð AD ehf. og rétt hefði verið að taka því. Voru Í og R ohf. því sýknaðir af aðalkröfu A ehf. Landsréttur tók næst til úrlausnar varakröfu A ehf. Rétturinn taldi að R ohf. og Ríkiskaup hefðu brotið gegn skyldu sinni um að veita A ehf. fullnægjandi rökstuðning innan lögmæltra tímamarka. Var A talinn hafa átt raunhæfa möguleika á því að vera valinn til samningsgerðar og R ohf. þótti ekki hafa sýnt nægilega fram á að möguleikar A ehf. hefðu á engan hátt skerst við það að val R ohf. og Ríkiskaupa var ekki rökstutt með viðhlítandi hætti innan lögmæltra tímafresta. Var varakrafa A ehf. tekin til greina.

...2004/17/EB, samanber reglugerð nr. 755/2007 um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og fjarskipti (veitutilskipunin). Að loknu forvali var tveimur aðilum boðið að taka þátt í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. apríl 2019

E-1298/2018

Annata ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og Rarik ohf. (Bjarni Aðalgeirsson lögmaður)

Deilt um rétt til bóta vegna höfnunar tilboðs.

...2004/17/EB, samanber reglugerð nr. 755/2007 um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orku­veitu, flutninga og fjarskipti (veitutilskipunin). Að loknu forvali var tveimur aðilum boðið að taka þátt...

Hæstiréttur birt 2. desember 2010

714/2009

Fálkinn hf (Othar Örn Petersen hrl, Hjördís Halldórsdóttir hdl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Eiríkur Elís Þorláksson hrl, Arnar Þór Stefánsson hdl)

O óskaði eftir tilboðum í miðlægar skólphreinsistöðvar sem félagið hugðist reisa ásamt tilheyrandi dælubrunnum. Í útboðslýsingunni kom meðal annars fram að um opið EES útboð væri að ræða og um það giltu lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða. Alls bárust fjögur tilboð í verkið, þar af þrjú frá F og eitt frá V. Tvö tilboðanna frá F voru frávikstilboð og annað þeirra var hið lægsta þeirra tilboða sem bárust. Næstlægsta tilboðið átti V. Öll tilboðin voru yfir kostnaðaráætlun O og ákvað félagið að hafna þeim öllum, en gekk síðar til samninga við V. F krafði O um greiðslu skaðabóta og í málinu var einkum deilt um þá málsástæðu F að samkvæmt 30. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup hafi O verið skylt að bjóða kaupin út að nýju í stað þess að semja við V. O taldi að sér hafi verið óskylt að efna til útboðsins og verið heimilt að semja við V eftir að hafa hafnað öllum tilboðum, enda hafi lög nr. 84/2007 ekki tekið til útboðsins, að undanskildum reglum í XIV. og XV. kafla þeirra um kærunefnd útboðsmála og fleira. Í dómi Hæstaréttar er vísað í athugasemdir með frumvarpi sem varð að lögum nr. 84/2007 þar sem meðal annars hafi sérstaklega verið fjallað um tilefni þess að frumvarp til nýrra laga um opinber innkaup hafi verið flutt. Þar kæmi meðal annars fram að breytingarnar sem frumvarpið fæli í sér kæmu fyrst og fremst til af breytingum á reglum EES-samningsins, annars vegar um svonefnda útboðstilskipun nr. 2004/18/EB og hins vegar um svonefnda veitutilskipun nr. 2004/17/EB. Í síðari tilskipuninni væri fjallað um samræmingu reglna um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Samkvæmt 12. gr. útboðstilskipunarinnar væru þessir aðilar, sem heyra undir veitutilskipunina, undanþegnir útboðsskyldu og í málinu væri hafið yfir vafa að O og sú starfsemi sem um væri deilt félli undir hina síðarnefndu tilskipun. Samkvæmt þessu væri í 7. gr. laga nr. 84/2007 í þremur málsgreinum fjallað um samninga þessara aðila og þar tilgreint hvaða reglur giltu fyrir þá. Vísað var í athugasemdir með frumvarpinu og samkvæmt yfirlýstum tilgangi þar væri ljóst að samningum eins og um ræddi í málinu væri ætlað að falla utan meginreglu um útboðsskyldu opinberra aðila samkvæmt 30. gr. laga nr. 84/2007. Samanburður á orðalagi í 1. og 3. mgr. ákvæðisins og yfirlýstum tilgangi með innleiðingu tilskipunar nr. 2004/17/EB gæfi á hinn bóginn til kynna að draga mætti í efa að lögin væru að þessu leyti í samræmi við tilganginn, og orðalaginu stefnt í gagnstæða átt við yfirlýstan tilgang þeirra. Það var því talið að við þessar aðstæður yrði ekki hjá því komist að líta svo á að 1. mgr. og 3. mgr. 7. gr. laga nr. 84/2007 gætu ekki komið til frekari athugunar við úrlausn málsins. Niðurstaðan réðist því af 2. mgr. sömu greinar og samkvæmt henni ætti einungis XIV. og XV. kafli laganna við um þá starfsemi O sem greindi í útboðinu. Málsástæðu F sem laut að því að O hafi verið skylt að bjóða verkið út samkvæmt ákvæði 30. gr. laga nr. 84/2007 var því hafnað. Kröfur F um skaðabætur var jafnframt hafnað með vísan til 13. og 12. gr. laga nr. 65/1993. Var O því sýknað af kröfum F í málinu.

...Hið sama eigi við um reglugerð nr. 755/2007 um innkaup stofnana sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og fjarskipti, sem sett hafi verið með heimild í lögunum. Eldri reglugerð nr...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. september 2009

E-7966/2008

málinu nr. E-7966/2008 Fálkinn hf (Sigurður Júlíusson hdl) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Arnar Þór Stefánsson hdl)
Lykilorð: Skaðabætur. Tilboð.

Stefndi efndi til útboðs í maí 2007 vegna áforma um að reisa fjórar miðlægar skólphreinsistöðvar í Borgarfirði. Stefnandi var meðal bjóðenda og var frávikstilboð hans lægst, en vafi lék á um gildi tilboðsins. Stefndi hafnaði öllum tilboðum og gekk síðar til samninga við einn bjóðenda. Stefnandi krafðist skaðabóta og taldi að stefnda hefði borið að bjóða út innkaupin að nýju. Talið var að lög um opinber innkaup nr. 84/2007 hefðu ekki gilt um innkaup stefnda á þeim tím er útboð fór fram, og var stefndi sýknaður af öllum kröfum stefnanda.

...705/2001, né reglugerð nr. 755/2007, heldur einvörðungu ákvæði XIV. og XV. kafla laga nr. 84/2007. Því standist ekki sú niðurstaða kærunefndar útboðsmála að stefndi hafi brotið gegn...