Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 722/2017"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 3. júní 2022

211/2021

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald lögmaður) gegn LxB ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Ágreiningur aðila laut að kröfu L ehf. á hendur SA hf. um greiðslu bóta á grundvelli starfsábyrgðartryggingar byggingarstjóra hjá félaginu vegna byggingar fjölbýlishúss og frágangs lóðar sem liggur að lóð í eigu L ehf., en framkvæmdir þar voru ekki í samræmi við samþykkt hönnunargögn. Byggði L ehf. á því að umrædd frávik leiddu til verðmætisrýrnunar á fasteignum í eigu L ehf. að fjárhæð 18.376.000 krónur. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að byggingarstjóri hefði borið ábyrgð á því að framkvæmdir væru í samræmi við samþykkta uppdrætti og að meta yrði honum það til gáleysis að hafa ekki séð til þess að það yrði gert eða samþykkis aflað fyrir breytingunum sem voru gerðar. Þá var litið til þess að af fyrirliggjandi matsgerð yrði skýrlega ráðið að hæð fyrrnefndrar lóðar hefði verið afgerandi þáttur við mat á tjóni L ehf. Með hliðsjón af framangreindu var fallist á að L ehf. ætti rétt á bótum úr hendi SA hf. að fjárhæð 13.146.000 króna, auk nánar tilgreindra vaxta.

...112/2012 með reglugerð nr. 722/2017, sem tók gildi í júlí 2017, eða ári eftir lokaúttekt Bjarkardals 2. Með þeirri reglugerð bættist við nýr töluliður í gr. 1.2...

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. mars 2021

E-1667/2020

LxB ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. (Ingvar Sveinbjörnsson lögmaður) og og Reykjanesbæ (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)

Stefnda Sjóvá gert að greiða stefnanda, LxB ehf., 13.146.000 krónur á grundvelli ábyrgðartryggingar byggingarstjóra. Stefndi, Reykjanebær er sýkn af kröfum stefnanda.

...112/2012 með reglugerð nr. 722/2017, sem tók gildi í júlí 2017, eða ári eftir lokaúttekt Bjarkardals 2. Með þeirri reglugerð bættist við nýr töluliður í gr. 1.2...