Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 707/2008"
5 dómar fundust
Stefnda var gert að efna framvirka samninga um kaup á hlutabréfum.
...laganna og reglugerð nr. 707/2008, en það hafi hann ekki gert. Þá sé jafnframt upplýst með dómi í málinu S-207/2013 að það samrýmist ekki ákvæðum laga um...
F var ákærður fyrir innherjasvik með því að hafa í fimm aðskilin skipti á árinu 2008 selt hlutabréf sín í G hf. þrátt fyrir að búa í öllum tilvikum yfir innherjaupplýsingum um lausafjárstöðu bankans sem hann varð áskynja um í starfi sínu sem forstöðumaður millibankamarkaðar í fjárstýringu bankans. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu F samkvæmt ákæru og var lagt til grundvallar að hann hefði verið í stöðu tímabundins innherja í skilningi 2. töluliðar 121. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Við ákvörðun refsingar vísaði Hæstiréttur til þess að brot F hefðu varðað verulega fjárhæð, falið í sér trúnaðarbrot og beinst gegn mikilvægum hagsmunum. Á hinn bóginn hefði F ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og hefðu nærri fjögur ár liðið frá því að brotum F lauk þar til ákæra hefði verið gefin út, en ekki var talið að fram hefði komið haldbær skýring á þeim drætti. Var refsing F ákveðin fangelsi í níu mánuði, en frestað var fullnustu sex mánaða skilorðsbundið í tvö ár. Þá var F gert að sæta upptöku hagnaðar af brotum sínum, að því gættu að samkvæmt ákæru hefði F ekki verið talinn hafa gerst sekur um innherjasvik við sölu hlutabréfa í G hf. 14. maí 2008 og hefði hagnaður hans vegna þriggja brota sem framin voru fyrir þann tíma því ekki getað numið hærri fjárhæð en mismuninum á þeirri fjárhæð sem hann fékk í raun fyrir hlutina og þeirri sem hann hefði getað fengið fyrir þá í það sinn.
...upplýsingar höfðu ekki verið gerðar opinberar í samræmi við 120. gr. vvl., sbr. reglugerð nr. 707/2008, þegar ákærði seldi hlutabréf sín í Glitni. Þvert á móti voru opinberar upplýsingar...
Ákærði var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir innherjasvik og til að sæta upptöku.
...upplýsingar höfðu ekki verið gerðar opinberar í samræmi við 120. gr. vvl., sbr. reglugerð nr. 707/2008, þegar ákærði seldi hlutabréf sín í Glitni. Þvert á móti voru opinberar upplýsingar...
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins í tengslum við ákæru á hendur X þar sem honum voru gefin að sök innherjasvik með því að hafa selt hlutabréf sín í banka sem hann starfaði hjá þrátt fyrir að búa yfir innherjaupplýsingum um lausafjárstöðu bankans. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki væri nauðsynlegt að leita svara EFTA-dómstólsins við spurningu er laut að því hvort einstaklingur í ákveðinni aðstöðu teldist innherji í skilningi tiltekins ákvæðis tilskipunar nr. 2003/6/EB. Vísað var til þess að X væri ákærður sem tímabundinn innherji í skilningi 2. töluliðar 121. gr. laga nr. 108/2007 og að með dómi hefði Hæstiréttur skýrt það hugtak. Varðandi spurningu X um saknæmisskilyrði ákvæða fyrrnefndrar tilskipunnar var talið að næg leiðsögn fælist í tilteknum dómi Evrópustólsins og því væri ekki þörf á að bera spurninguna undir EFTA-dómstólinn. Var hið sama talið eiga við um þrjár aðrar spurningar X. Loks var ekki fallist á að bera fram spurningu er laut að mismunandi orðalagi laga nr. 108/2007 og tilskipunar 2003/6/EB.
...upplýsingar höfðu ekki verið gerðar opinberar í samræmi við 120. gr. vvl., sbr. reglugerð nr. 707/2008, þegar ákærði seldi hlutabréf sín í A. Þvert á móti voru opinberar upplýsingar...
Kröfu ákærða um að leitað verði ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins var hafnað.
...upplýsingar höfðu ekki verið gerðar opinberar í samræmi við 120. gr. vvl., sbr. reglugerð nr. 707/2008, þegar ákærði seldi hlutabréf sín í Glitni. Þvert á móti voru opinberar upplýsingar...