Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 699/1997"
2 dómar fundust
Lífeyrissjóðurinn LB höfðaði mál gegn stefndu og krafðist breytinga á samkomulagi LB og aðildarfyrirtækja sjóðsins frá 1997, sem gert var í tengslum við setningu laga um einkavæðingu bankanna LÍ og B. Með samkomulaginu, sem byggt var á nánar tilgreindum tryggingarfræðilegum forsendum, skuldbundu aðildarfyrirtækin sig til að inna af hendi viðbótargreiðslu til LB sem skiptist niður á þau hlutfallslega, auk þess sem kveðið var á um hækkun á iðgjaldahlutfalli launagreiðanda. Aðalkrafa og fyrsta og önnur varakrafa LB byggðu einkum á því að samkomulagið hafi verið ósanngjarnt og forsendur þess brostið. Ættu stefndu því, í tilteknum hlutföllum, að inna af hendi viðbótargreiðslu í samræmi við niðurstöðu matsgerðar frá 2017 og að frá 1. janúar 2015 ættu stefndu að bera ábyrgð á skuldbindingum svokallaðrar Hlutfallsdeildar LB umfram eignir á hverjum tíma. Þriðja varakrafa LB laut að því að viðurkennt yrði að stefndi Í bæri ábyrgð frá 1. janúar 1998 gagnvart LB á lífeyrisskuldbindingum þeirra sjóðfélaga í Hlutfallsdeild sem voru starfsmenn LÍ fyrir þann dag. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu LÍ vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að aðalkrafa og fyrsta og önnur varakrafa LB yrðu ekki teknar til greina á grundvelli 36. gr. samningalaga, og að tilvísanir LB til 65. gr. og 72. gr. stjórnarskrárinnar breyttu engu þar um. Með sömu röksemdum var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um að hafna málsástæðum LB fyrir aðalkröfu og tveimur varakröfum hans sem lutu að óskráðum reglum um brostnar forsendur og óréttmæta auðgun, sem og þriðju varakröfu LB. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóm um sýknu stefndu af kröfum LB.
...júní 1997, sem birtar voru sem reglugerð nr. 699/1997 í B-deild Stjórnartíðinda í kjölfar staðfestingar fjármálaráðuneytisins 13. nóvember 1997. Samkvæmt 4. gr. hinna nýju samþykkta skyldi sjóðurinn starfa...
Hafnað var kröfum Lífeyrissjóðs, sem vörðuðu einkum breytingu samnings með vísan til reglna um óréttmæta auðgun, brostnar forsendur og sanngirnissjónarmið samkvæmt 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga.
...júní 1997, sem birtar voru sem reglugerð nr. 699/1997 í B-deild Stjórnartíðinda í kjölfar staðfestingar fjármálaráðuneytisins 13. nóvember 1997. Samkvæmt 4. gr. hinna nýju samþykkta skyldi sjóðurinn starfa...