Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 698/2014"
3 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem leyst var úr ágreiningi A og B í tengslum við opinber skipti til fjárslita milli þeirra vegna slita á óvígðri sambúð. Landsréttur féllst á niðurstöðu hins kærða úrskurðar um að fjárhagur aðila hefði að miklu leyti verið sameiginlegur, og fjárhagsleg samstaða hafi þannig verið með A og B á sambúðartíma þeirra, en taldi að í ljósi atvika og aðstæðna aðila skyldi virða eignarhlutdeild B í fasteigninni sem þau bjuggu í á sambúðartíma að álitum.
...990/2014 um breytingu á reglugerð nr. 698/2014 um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, sbr. lög nr. 35/2014 um leiðréttingu fasteignaveðlána, sem ráðstafað var eftir...
Fallist var á kröfu A um opinber skipti til fjárslita vegna loka óvígðrar sambúðar hans og B, sbr. 100. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl.
...Því hafi varnaraðila verið heimilt að taka ákvörðun um þá ráðstöfun á leiðréttingarfjárhæðinni sem hún ákvað, sú ákvörðun hafi verið í samræmi við lögin og reglugerð nr. 698/2014 og...
M krafði K um greiðslu fjárhæðar sem nam þeim hluta svokallaðrar leiðréttingarfjárhæðar sem honum hafði verið ákvörðuð á grundvelli laga nr. 35/2014 um leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána. Höfðu M og K verið skráð í sambúð á leiðréttingartímabilinu, en M tilkynnti Þjóðskrá Íslands um sambúðarslit í mars 2015. Deildu aðilar um það hvort K hefði verið heimilt að samþykkja útreikning leiðréttingafjárhæðarinnar fyrir beggja hönd í desember 2014, en hlutdeild hvors um sig var í kjölfarið ráðstafað til lækkunar á fasteignaveðlánum sem hvíldu á fasteign K í samræmi við 11. gr. laga nr. 35/2014 og 8. gr. reglugerðar nr. 698/2014. Bar M því m.a. við að sambúð hans og K hefði í raun verið slitið er K samþykkti útreikninginn. Í dómi Hæstaréttar kom m.a. fram að skilja yrði málatilbúnað M þannig að dómkrafa hans væri reist á sjónarmiðum um óréttmæta auðgun K á hans kostnað, þar sem hann hefði ekki notið hagræðis af leiðréttingunni svo sem hann hefði átt rétt á með því að allri leiðréttingarfjárhæðinni hefði verið ráðstafað til lækkunar veðlána sem hvíldu á fasteign K. Var ekki talið að M hefði sannað að sambúð hans og K hefði verið slitið fyrir það tímamark er M tilkynnti sambúðarslit til Þjóðskrár Íslands. Hefði framkvæmd leiðréttingarinnar sem M og K var ákvörðuð og ráðstöfun hennar verið í samræmi við ákvæði laga nr. 35/2014 og reglugerða sem settar hefðu verið á grundvelli þeirra. Var ekki talið að K hefði með óréttmætum hætti auðgast á kostnað M og staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu K.
...1160/1014, með breytingu á reglugerð nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána komi fram í 4. mgr. 1. gr., um framkvæmd leiðréttingarinnar, að leiðréttingarfjárhæð...