Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 673/1994"
2 dómar fundust
Bátur í eigu Ó, sem vátryggður var hjá C fyrir 5.000.000 kr., fórst eftir að Ó setti fram beiðni um hækkað tryggingamat bátsins. Sýnt þótti að ekki hafi verið kominn á samningur milli aðila um hækkun vátryggingarverðmætis bátsins; ekki hafði verið greitt iðgjald vegna slíkrar hækkunar og ekki hafi verið lögð fyrir umboðsmann C gögn, sem gátu verið grundvöllur hækkunar. Kröfum Ó um hærri bætur en þær 5.000.000 kr., sem hann hafði þegar móttekið, var því hafnað.
...Samkvæmt reglugerð nr. 673/1994, sem sett hafi verið með stoð í nefndum lögum, skyldu sérstakir skoðunar- og virðingarmenn meta fiskiskip til fjár. Það matsverð hafi síðan verið grundvöllur vátryggingarverðs...
Skipið H, sem húftryggt var hjá vátryggingafélaginu T, varð vélarvana og kom L skipinu til hjálpar og dró það frá landi á skipi sínu A, sem húftryggt var hjá vélbátaábyrgðarfélaginu G. Voru aðilar sammála um að liðsinni L hefði falið í sér björgun í merkingu þágildandi 1. mgr. 164. gr. siglingalaga nr. 34/1985, en ágreiningur reis um það hvort greiðslu til L fyrir björgunina skyldi ákveða á grundvelli reglna siglingalaga um björgunarlaun eða reglu þágildandi 14. gr. laga um bátaábyrgðarfélög nr. 18/1976. Talið var að greiðsla björgunarlauna skips yrði ekki ákveðin eftir sérreglu 14. gr. laga um bátaábyrgðarfélög þegar skip, sem bjargað var, hefði verið tryggt hjá öðru vátryggingafélagi en bátaábyrgðarfélagi. Bar því að greiða L björgunarlaun á grundvelli ákvæða siglingalaga. Var eiganda skipsins H gert að greiða L björgunarlaun, en krafa L um viðurkenningu sjóréttar í H var talin fyrnd og var henni hafnað.
...376/1976 var leyst af hólmi með reglugerð nr. 673/1994 um skylduvátryggingu fiskiskipa. Með lögunum og reglugerðinni 1976 var landinu öllu skipt í 8 svæði, auk Vestmannaeyja, og var...