Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 641/2000"

6 dómar fundust

Hæstiréttur birt 16. maí 2013

15/2013

Síminn hf (Andri Árnason hrl) gegn íslenska ríkinu og til vara Póst- og fjarskiptastofnun (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

S hf. krafði Í um greiðslu dráttarvaxta af framlagi úr Jöfnunarsjóði alþjónustu. Framlag S hf. úr sjóðnum var ákvarðað með úrskurði úrskurðanefndar fjarskipta- og póstmála 10. október 2007, en S hf. fékk greitt úr sjóðnum 26. febrúar 2009. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að með VI. kafla laga nr. 81/2003 um fjarskipti hefði verið komið á kerfi sem í hefði falist innbyrðis jöfnun kostnaðar af alþjónustu milli fjarskiptafyrirtækja. Í 3. málslið 3. mgr. 22. gr. laga nr. 81/2003 væri kveðið á um að yrðu útgjöld hærri en sem næmi jöfnunargjöldum á árinu skyldi gjaldfæra þann mismun á skuldbindingar næsta árs. Yrði ákvæðið skýrt svo að forsenda fyrir greiðslum úr sjóðnum væri sú að til væri fé í sjóðnum af innheimtu jöfnunargjaldi til að standa undir greiðslunum, enda væri það í samræmi við að í fyrirkomulaginu fælist innbyrðis jöfnun kostnaðar milli fjarskiptafyrirtækja. Var Í sýknað af kröfu S hf.

...1356/2007, áður reglugerð nr. 641/2000. Þessar réttarheimildir séu innleiðing á tilskipun nr. 2000/22/EB, um alþjónustu og réttindi notenda. Reglur íslensks réttar um alþjónustu eigi rót að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2011

E-4043/2011

Síminn hf (Stefán A. Svensson hrl) gegn íslenska ríkinu aðallega og Póst- og fjarskiptastofnun, til vara (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu dráttarvaxta af framlagi úr Jöfnunarsjóði alþjónustu.

...1356/2007, áður reglugerð nr. 641/2000.  Þessar réttarheimildir séu innleiðing á tilskipun nr. 2000/22/EB, um alþjónustu og réttindi notenda. Reglur íslensks réttar um alþjónustu eigi rót að...

Hæstiréttur birt 14. apríl 2011

500/2010

Síminn hf (Stefán A. Svensson hrl) gegn Jöfnunarsjóði alþjónustu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

S hf. höfðaði mál gegn sjóðnum J, sem starfaði samkvæmt lögum nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun, og krafðist greiðslu dráttarvaxta af framlagi úr sjóðnum til S hf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af 5. mgr. 17. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála yrði leitt að máli skyldi að meginreglu beint að íslenska ríkinu þótt það varðaði atriði, sem heyrði undir sérstaka stofnun þess, eða sjóð, enda væri ekki mælt á annan veg í lögum eða viðkomandi stofnun eða sjóður lyti sjálfstæðri stjórn. J hefði ekki lögbundið heiti og ekki væru í lögum fyrirmæli um stjórn hans né starfsemi. J gæti því ekki átt réttindi eða borið skyldur í skilningi fyrri málsliðar 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Engu breytti þótt fjárhagur J kynni í reikningshaldi ríkisins að vera skilinn frá Póst- og fjarskiptastofnun eða að hann hefði „sjálfstætt fjárlaganúmer“ eins og S hf. hafði bent á. Eins og málatilbúnaði S hf. var háttað þótti ekki unnt að líta svo á að hann beindi málinu að íslenska ríkinu, enda hefðu varnir J meðal annars gagngert lotið að því að sýkna bæri hann vegna sérstakra aðstæðna sem vörðuðu hann. Málinu var því vísað frá héraðsdómi af sjálfsdáðum vegna brests á aðildarhæfi J.

...1356/2007, áður reglugerð nr. 641/2000. Þessar réttarheimildir séu innleiðing á tilskipun nr. 2000/22/EB, um alþjónustu og réttindi notenda. Reglur íslensks réttar um alþjónustu eigi rót að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júní 2010

E-12659/2009

Síminn hf (Andri Árnason hrl) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hrl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu dráttarvaxta af kostnaði stefnanda af að veita svokallaða alþjónustu, samkvæmt lögum um fjarskipti nr. 81/2003. Fjárhæð kostnaðar af að veita þessa þjónustu hafi verið ákveðin af úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála.

...1356/2007, áður reglugerð nr. 641/2000.  Þessar réttarheimildir séu innleiðing á tilskipun nr. 2000/22/EB, um alþjónustu og réttindi notenda. Reglur íslensks réttar um alþjónustu eigi rót að...

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2009

15/2009

Og fjarskipti ehf (Eva Bryndís Helgadóttir hrl) gegn Símanum hf og Póst- og fjarskiptastofnun (Andri Árnason hrl)

Talið var að O ehf. hefði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því að fá ógiltan úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, þar sem leyst var úr ágreiningi milli S og P um rétt S til greiðslu úr jöfnunarsjóði, samkvæmt 22. gr. laga nr. 81/2003. Var staðfestur úrskurður héraðsdómara um að vísa máli O ehf. gegn S og P frá héraðsdómi.

...81/2003, lúti sérstakri málsmeðferð samkvæmt þeim lögum og reglugerð um alþjónustu, þágildandi reglugerð nr. 641/2000 og að aðrir aðilar eigi ekki rétt á beinni aðild að þeirri málsmeðferð...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2008

E-2788/2008

Og fjarskipti ehf (Eva Bryndís Helgadóttir hrl) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (enginn)

Vísað frá dómi kröfu stefnanda um ógildingu stjórnvaldsúrskurðar, þar sem stefnandi þótti ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að fá dóm um ógildingu úrskurðarins.

...81/2003, lúti sérstakri málsmeðferð samkvæmt þeim lögum og reglugerð um alþjónustu, þágildandi reglugerð nr. 641/2000 og að aðrir aðilar eigi ekki rétt á beinni aðild að þeirri málsmeðferð...