Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 621/1997"
3 dómar fundust
Þóra, Guðmunda Karlsdóttir, Margrét, Guðríður Karlsdóttir, Guðrún, Vilborg Karlsdóttir og Ásdís Sæmundsdóttir (
Björn Jóhannesson hrl)
gegn
Hólmbergi ehf (
Bjarni Hauksson hrl)
Hreppsnefnd S samþykkti í október 2007 að verða við umsókn H um leyfi til að reisa vélageymslu á tilgreindri lóð í S og gaf byggingarfulltrúi út byggingarleyfi degi síðar. Byggingarleyfið var hið þriðja sem S hafði gefið út til H fyrir vélageymslu á lóðinni, en fyrsta leyfið var gefið út í mars 2005 og hið næsta í júní 2007, en bæði voru felld úr gildi eftir að hafa gilt um sinn. Þegar byggingarleyfið var gefið út í þriðja sinn í október 2007 hafði H þegar reist vélageymsluna sem var nánast fullgerð að utan á því tímamarki. Þ, M, G og Á, sem eiga sumarhús fast við umrædda lóð, kærðu leyfisveitinguna frá því í október 2007 til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála samkvæmt 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Með úrskurði nefndarinnar í málinu var hið kærða byggingarleyfi fellt úr gildi. Niðurstaða nefndarinnar var reist á skýringu hennar á ákvæði 3. töluliðar til bráðabirgða í lögum nr. 73/1997 varðandi áskilin meðmæli Skipulagsstofnunar. Taldi nefndin að meðmæli þyrftu að liggja fyrir áður en sveitarstjórn gæti heimilað þær framkvæmdir, sem um væri sótt, en af því leiddi að ekki væri unnt að leggja áðurnefnt lagaákvæði til grundvallar við afgreiðslu umsóknar um leyfi fyrir þegar byggðu mannvirki. Talið var að orðalag fyrrgreinds ákvæðis studdi ekki þessa túlkun úrskurðarnefndarinnar. Framkvæmdir H á fyrri stigum hafi stuðst að mestu við útgefin byggingarleyfi frá S og yrði því ekki lagt til grundvallar að hann hafi reist vélageymsluna í heimildarleysi. Hæstiréttur staðfesti því niðurstöðu héraðsdóms um að fella úrskurð nefndarinnar úr gildi. Með vísan til þess að framkvæmdir við grunn vélageymslunnar vorið 2007 hafi verið hafnar nokkru áður en byggingarleyfi var gefið út í annað sitt, og sú framkvæmd verið óheimil, sem og í ljósi atvika máls, var hver aðili látinn bera kostnað af málinu í héraði og fyrir Hæstarétti.
...73/1997, reglugerð nr. 621/1997 og 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Stjórnsýslukæra sé réttarúrræði aðila máls til að fá stjórnsýsluákvarðanir endurskoðaðar ef lagagrundvöllur þeirra er rangur eða formskilyrða...
Úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála um niðurfellingu byggingarleyfis fyrir vélaskemmu felldur úr gildi.
...73/1997, reglugerð nr. 621/1997 og 26. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Stjórnsýslukæra sé réttarúrræði aðila máls til að fá stjórnsýsluákvarðanir endurskoðaðar ef lagagrundvöllur þeirra er rangur eða formskilyrða...
J og S kröfðust þess að lagt yrði fyrir sýslumann að leggja lögbann við yfirvofandi framkvæmdum sveitarfélagsins M við gerð göngustígs um lóð varnaraðila með bökkum Varmár á svæði, sem J og S höfðu sjálf lýst yfir að þau hlíttu umferð almennings um, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd. Af hálfu M var gert ráð fyrir að göngustígurinn yrði 80 til 120 cm breiður og gerður úr trjáspæni og malarefni. Var samkvæmt þessu talið að vandkvæðalítið yrði að afmá stíginn og ummerki eftir hann ef komist yrði að þeirri niðurstöðu í dómsmáli milli aðilanna að M væri óheimilt að leggja hann. J og S voru því ekki talin hafa gert sennilegt að réttindi þeirra myndu fara forgörðum eða verða fyrir teljandi spjöllum þótt dóms væri beðið um ágreining þeirra og M. Var því staðfestur úrskurður héraðsdóms um höfnun lögbannskröfunnar.
...73/1997, reglugerð nr. 621/1997 um úrskurðarnefnd skv. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, eldri skipulagslögum nr. 19/1964, skipulagsreglugerð nr. 400/1998, sbr. einnig eldri skipulagsreglugerð...