Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 56/2004"
3 dómar fundust
Krafa um ógildingu úrskurðar um að nafnleynd tilkynnanda til barnaverndarnefndar skyldi ekki aflétt. Sýkna.
...Í reglugerð nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd, sem sett er með stoð í áðurnefndum lögum, sé lagaákvæðið þó skýrt að nokkru leyti í 13. gr. Þar segir m...
A krafðist þess að B og C yrðu svipt forsjá tveggja barna sinna á grundvelli a- og d- liða 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Héraðsdómur féllst ekki á að framangreindum skilyrðum væri fullnægt og taldi að vægari úrræði hefðu ekki verið fullreynd. Sýknaði héraðsdómur B og C af kröfum A. Fyrir Landsrétti krafðist A ómerkingar héraðsdóms á þeim grundvelli að samkvæmt 1. mgr. 54. gr. barnaverndarlaga og 2. mgr. 2. gr. nr. 91/1991 hefði átt að kveðja til tvo sérfróða meðdómendur við meðferð málsins í héraðsdómi en dómurinn var skipaður tveimur héraðsdómurum og einum sérfróðum meðdómsmanni. Í dómi Landsréttar var vísað til breytinga á 2. gr. laga nr. 91/1991 um að dómari geti kvatt til einn meðdómsmann þegar þess þurfi. Þá var vísað til þess að orðalag 1. mgr. 54. gr. barnaverndarlaga útiloki ekki túlkun til samræmis núgildandi meginreglu 2. gr. laga nr. 91/1991. Var því ekki fallist á ómerkingarkröfu A. Landsréttur taldi að af gögnum málsins yrði ráðið að líkamlegri umhirðu barns B og C hafi verið verulega ábótavant og að daglegum samskiptum þeirra við barnið hafi jafnframt verið alvarlega ábótavant með hliðsjón af aldri þess og þroska. Efnisleg skilyrði a-liðar 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga ættu því við um umönnun barnsins. Ekki hefði á hinn bóginn verið fullreynt að bæta forsjárhæfni B og skortur hafi verið á leiðbeiningum til C sem hafi þurft öflugt inngrip í formi beinnar þjálfunar í umönnun barna. Ekki höfðu verið færðar sönnur á að líkamlegri eða andlegri heilsu barnanna eða þroska þeirra væri hætta búin sökum þess að B væri augljóslega vanhæf til að fara með forsjána, svo sem vegna þeirra skerðinga sem tilgreindar eru í d-lið 1. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga. Með vísan til meðalhófsreglu 2. mgr. 29. gr. barnaverndarlaga var ekki fallist á kröfu A um sviptingu forsjár barna þeirra.
...Nánari fyrirmæli um meðferð barnaverndarmála eru í reglugerð nr. 56/2004 sem sett er með stoð í 2. mgr. 38. gr. barnaverndarlaga. 94 Þegar barnaverndarnefnd telur, að undangenginni rannsókn í...
Barnaverndarnefnd R krafðist þess að K yrði svipt forsjá sonar síns. Með vísan til álitsgerðar dómkvadds matsmanns í öðru máli, þar sem K hafði verið svipt forsjá dóttur sinnar, langrar sögu hennar um geðræna erfiðleika, sem höfðu ásamt langvinnri áfengis- og vímuefnamisnotkun valdið því að hún gæti ekki annast eldri börn sín, var á það fallist að forsjárhæfni K væri verulega skert. Þótti skilyrði d. liðar 29. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 því uppfyllt í málinu. Þá höfðu verið færðar fram nægar vísbendingar um að K væri vegna langvarandi persónuleikaraskana ekki fær um að vinna bug á þeim annmörkum sem drægju úr hæfni hennar til að bera ábyrgð á barni. Var því talið að ekki væri unnt að beita öðrum og vægari úrræðum en forsjársviptingu til að tryggja öryggi og velferð sonar hennar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Var krafa um forsjársviptingu því tekin til greina.
...Stefnda telur samkvæmt framansögðu að málsmeðferð barnaverndaryfirvalda í máli sínu hafi brotið í verulegum atriðum gegn barnaverndarlögum og reglugerð nr. 56/2004 um málsmeðferð barnaverndarlaga. Tilgangur málsmeðferðarreglna í barnaverndarmálum sé...