Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 539/2000"
2 dómar fundust
Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð BB á tjóni sem hann hefði sem framkvæmdastjóri valdið við búrekstur B ehf. Ekki var fallist á frávísunarkröfu BB á þeim grunni að dómkröfu B ehf. væri ábótavant eða að félagið skorti lögvarða hagsmuni af úrlausn hennar. Þá var litið svo á að málshöfðun B ehf. fullnægði skilyrðum 2. mgr. 109. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög og því var ekki fallist á frávísun á þeim grundvelli. Tók Landsréttur undir þau sjónarmið héraðsdóms að BB hefði verið ábyrgur fyrir því að rekstur búsins væri í löglegu horfi og hann hefði vanrækt starfsskyldur sínar. Þá hefði sú ráðstöfun að selja allan bústofn í eigu B ehf. fallið utan heimilda framkvæmdastjóra samkvæmt 2. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994 og komið endanlega í veg fyrir að B ehf. fengi tekjur af starfseminni.
...tilvitnaðra laga og reglugerð nr. 539/2000. Á búinu hafi legið fyrir skráning á notkun lyfja og rekjanleiki til einstakra dýra, sem fengið hefðu lyfjagjöf sem hafi verið í andstöðu...
Viðurkennt er að stefndi beri skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda.
...tilvitnaðra laga og reglugerð nr. 539/2000. Á búinu hafi legið fyrir skráning á notkun lyfja og rekjanleiki til einstakra dýra, sem fengið hefðu lyfjagjöf sem hafi verið í andstöðu...