Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 536/2001"
3 dómar fundust
Þ höfðaði mál á hendur M og krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu M gagnvart honum vegna hagnýtingar M á grunnvatni úr vatnsbólinu Laxnesdýjum innan marka jarðarinnar Laxnes I í Mosfellsbæ. Bæði Þ og M voru meðal eigenda jarðarinnar. Byggði Þ á því að M hefði með vatnstöku sinni skert með ólögmætum hætti stjórnarskrárvarin eignarréttindi Þ sem sameiganda að jörðinni án þess að greiða bætur fyrir þá hagnýtingu, auk þess sem hagnýting M á vatninu hefði haft í för með sér verulegar og íþyngjandi takmarkanir á hagnýtingu Þ á jörðinni. Með dómi héraðsdóms var M sýknað af kröfum Þ. Í dómi Landsréttar var rakið að samkvæmt 1. mgr. 26. gr. vatnalaga nr. 15/1923 ætti Þ ekki tilkall til endurgjalds vegna hagnýtingar M í þágu vatnsveitu sveitarfélagsins heldur einungis rétt á bótum ylli vatnstakan Þ tjóni. Var málsástæðum Þ varðandi endurgjald fyrir hagnýtingu M því hafnað. Þá vísaði rétturinn til þess að M væri sem sameiganda að jörðinni Laxnesi heimil sú ráðstöfun og nýting sem ekki skerti jafngóðan rétt annarra eigenda til að njóta eignarinnar og ylli þeim ekki meiri óþægindum en vænta mætti miðað við allar aðstæður. Var ekki talið að Þ hefði sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna hagnýtingar M eða takmarkana sem sameigendur í Laxnesi I sættu vegna vatnsverndarkvaða. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu M af kröfum Þ.
...jörðina. Í kringum vatnsbólið Laxnesdý séu afmörkuð svokölluð brunnsvæði, grannsvæði og fjarsvæði, sbr. reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 796/1999 um varnir gegn...
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda vegna hagnýtingar sveitarfélagsins á grunnvatni úr jörðu sem málsaðilar eiga í óskiptri sameign.
...jörðina. Í kringum vatnsbólið Laxnesdý séu afmörkuð svokölluð brunnsvæði, grannsvæði og fjarsvæði, sbr. reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 796/1999 um varnir gegn...
S og H kröfðu P um greiðslu skaðabóta í tengslum við kaup þeirra á sumarhúsi af P. Krafan var að mestu tekin til greina.
...Það var niðurstaða matsmanns að efnagreining á vatnssýnum sem tekin voru úr umræddri borholu leiddi í ljós að styrkur járns væri yfir viðmiðunarreglum samkvæmt reglugerð nr. 536/2001 um neysluvatn...