Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 485/2004"
2 dómar fundust
G höfðaði mál á hendur Í til heimtu skaðabóta vegna þeirrar ákvörðunar F að veita honum ekki viðbótarkvóta vegna fiskveiðiáranna 2004/2005 og 2005/2006 sem G taldi sig eiga rétt á samkvæmt ákvæði XXXV til bráðabirgða við þágildandi lög nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða, sbr. 2. gr. laga nr. 74/2004. Í lagaákvæðinu var meðal annars kveðið á um að þeir bátar, sem leyfi höfðu til handfæraveiða með dagatakmörkunum samkvæmt fyrirmælum laga nr. 38/1990, skyldu stunda veiðar með krókaflamarki eins og nánar greindi í lögunum frá upphafi fiskveiðiársins 2004/2005. Þar var einnig kveðið á um að miða skyldi úthlutun krókaflahlutdeildar við aflareynslu hlutaðeigandi báts á tilgreindum tíma, en jafnframt mælt fyrir um undanþágu frá þeirri reglu þess efnis að taka bæri tillit til áætlaðrar aflaaukningar báta sem endurnýjaðir hefðu verið á tilgreindu tímabili og ættu þeir kost á tilteknum fjölda sóknardaga fiskveiðiárin 2004/2005 og 2005/2006 en skyldi síðan í upphafi fiskveiðiársins 2006/2007 úthlutað krókaflahlutdeild eftir aflareynslu. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að af ákvörðun F, um að úthluta báti G viðbótaraflahlutdeild og tilsvarandi krókaflamarki á fiskveiðiárinu 2006/2007, yrði ráðið að uppfyllt hefðu verið skilyrði ákvæðis XXXV til bráðabirgða við lög nr. 38/1990 um að báturinn hefði verið endurnýjaður innan þar tilgreindra tímamarka, enda hefði fyrrgreind úthlutun að öðrum kosti ekki verið heimil. Var ákvörðun F samkvæmt því talin ólögmæt. Talið var að G hefði nægilega leitt í ljós að hann hefði orðið fyrir fjártjóni vegna ákvörðunar F og voru skaðabætur ákveðnar með hliðsjón af niðurstöðu matsgerðar dómkvadds manns, en að því gættu að í matsgerðinni hefði ekki verið tekið tillit til þess að G hefði óhjákvæmilega haft nokkurn kostnað af því að nýta sér þá sóknardaga sem um ræddi.
...maí 2006, sem birst hafi á heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins, hafi ráðuneytið kynnt breytingar sem gerðar höfðu verið á reglugerð nr. 485/2004, um úthlutun krókaaflahlutdeildar til sóknardagabáta, með reglugerð nr. 404...
Stefnandi krafðist bóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir þar sem hann fékk ekki úthlutað hámarkasaflaheimildum samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Skilyrði bótaskyldu voru ekki talin vera fyrir hendi og tjónið ekki nægilega sannað. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda í málinu.
...maí 2006, sem birst hafi á heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins, hafi ráðuneytið kynnt breytingar sem gerðar höfðu verið á reglugerð nr. 485/2004, um úthlutun krókaaflahlutdeildar til sóknardagabáta, með reglugerð nr...