Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 484/1992"
2 dómar fundust
Sveitarfélagið F höfðaði mál á hendur Í og krafðist endurgreiðslu hluta virðisaukaskatts sem lagður hefði verið á sölu hitaveitu F á heitu vatni til hitunar húsa og laugarvatns á árunum 2005 til 2010. Málsatvik voru þau að mælt hafði verið fyrir um heimild til slíkrar endurgreiðslu í 4. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 60. gr. laga nr. 11/1992, þar til heimildin var felld brott með 11. gr. laga nr. 163/2010. Í ákvæðinu hafði fjármálaráðherra verið fengin heimild til að setja nánari ákvæði um framkvæmd endurgreiðslunnar í reglugerð, að fenginni tillögu iðnaðarráðherra. Á þeim grundvelli setti fjármálaráðherra reglugerð nr. 484/1992, en í 2. gr. hennar var að finna upptalningu á orkufyrirtækjum sem rétt áttu til endurgreiðslu virðisaukaskatts og var þar jafnframt ákveðið hversu hátt hlutfall af álögðum virðisaukaskatti skyldi endurgreitt til hvers fyrirtækis. Hitaveita F var ekki þar á meðal, en hún tók til starfa árið 2005. Hæstiréttur tók fjárkröfu F til greina með vísan til þess að löggjafinn hefði ekki framselt fjármálaráðherra vald til að taka bindandi ákvörðun um hvaða orkufyrirtæki meðal þeirra, sem fullnægðu almennum skilyrðum til endurgreiðslu, ættu að fá að njóta hennar, enda hefðu fyrirmæli 4. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988 verið án nokkurrar aðgreiningar af þeim toga. Taldi Hæstiréttur að með 2. gr. reglugerðar nr. 484/1992 með síðari breytingum hefði F verið svipt tilkalli til greiðslu úr hendi Í, sem F hefði notið lögbundinnar heimildar til, og hefði fjármálaráðherra bakað F skaðabótaskyldu vegna tjóns sem rakið yrði til þessa. Í var á hinn bóginn sýknað af hluta kröfu F um vexti sökum fyrningar.
...Á þeim grundvelli setti fjármálaráðherra reglugerð nr. 484/1992, en í 2. gr. hennar var að finna upptalningu á orkufyrirtækjum sem rétt áttu til endurgreiðslu virðisaukaskatts og var þar jafnframt...
Skattamál
...Iðnaðarráðuneytið hefur látið gera nýja útreikninga samkvæmt reglugerð nr. 484/1992, um endurgreiðslur virðisaukaskatts af sölu á heitu vatni og rafmagni til hitunar húsa og laugarvatns, og kom þá í...