Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur GTAA, vegna þriggja nánar tilgreindra greiðslna flugfélagsins W til GTAA. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindum greiðslum yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslurnar fóru fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var hvorki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga GTAA hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum, né háttsemi W verið svo ámælisverð, að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var GTAA því sýknað af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur J, vegna þriggja nánar tilgreindra greiðslna flugfélagsins W til J. Jafnframt var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á sömu greiðslum. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindum greiðslum yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslurnar fóru fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var hvorki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga J hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum, né háttsemi W verið svo ámælisverð, að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var J því sýknað af kröfum þrotabúsins. Hvað skaðabótakröfu á hendur stjórnendum W varðaði taldi Landsréttur að hinar umdeildu greiðslur hefðu farið fram í raunhæfri viðleitni til að bjarga rekstri W. Því hefði ekki verið tilefni fyrir stjórnendurna til að fara fram á að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta áður en greiðslurnar voru inntar af hendi, og ekki sýnt fram á að þeir hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi. Voru S, L, H og D því sömuleiðis sýknuð af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur RRPF, vegna tilgreindrar greiðslu flugfélagsins flugfélagsins W til RRPF. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindri greiðslu yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslan fór fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var ekki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga málsaðila hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var RRPF því sýknað af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð. nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur E, vegna tilgreindrar greiðslu flugfélagsins W til E. Jafnframt var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á sömu greiðslu. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindri greiðslu yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslan fór fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslan fór fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var hvorki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga E hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum, né háttsemi W verið svo ámælisverð, að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var E því sýknað af kröfum þrotabúsins. Hvað skaðabótakröfu á hendur stjórnendum W varðaði taldi Landsréttur að hin umdeilda greiðsla hefðu farið fram í raunhæfri viðleitni til að bjarga rekstri W. Því hefði ekki verið tilefni fyrir stjórnendurna til að fara fram á að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta áður en greiðslan var innt af hendi, og ekki sýnt fram á að þeir hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi. Voru S, L, H og D því sömuleiðis sýknuð af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur Í, vegna nánar tilgreindra greiðslna flugfélagsins W til Í. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindum greiðslum yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslurnar fóru fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Við mat á skilyrðum 141. gr. sömu laga leit Landsréttur meðal annars til þess að ekki var nauðsynlegt að greiða hin umræddu gjöld á eindaga til að afla tekna og halda rekstri W gangandi. Jafnframt var lagt til grundvallar að ástæða þess að W greiddi gjöldin, hefði verið þær lögbundnu afleiðingar sem vanræksla þess hefði í för með sér, og að þær hefðu leitt til þess að skyldur W gagnvart öðrum kröfuhöfum voru að einhverju leyti vanefndar. Því var fallist á að greiðsla gjaldanna hefði verið ótilhlýðileg og Í til hagsbóta á kostnað annarra kröfuhafa. Við mat á skilyrði lagaákvæðisins um ógjaldfærni taldi Landsréttur sýnt fram á að W hefði ekki getað staðið í fullum skilum við kröfuhafa sína þegar kröfur þeirra féllu í gjalddaga. Á hinn bóginn taldist ekki uppfyllt það skilyrði að á þessum tíma yrði ekki talið sennilegt að greiðsluörðugleikar myndu líða hjá innan skamms tíma, enda stóð þá yfir raunhæf fjárhagsleg endurskipulagning félagsins. Taldist þrotabúið því ekki hafa sýnt fram á að lagaskilyrði 141. gr. laga nr. 21/1991 um ógjaldfærni hefði verið uppfyllt, og var Í því sýknað af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Í málinu var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra flugfélagsins W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á tilgreindri greiðslu W til félagsins T, sem síðar varð SL. Með hinum áfrýjaða dómi hafði greiðslunni verið rift á grundvelli 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. og SL gert að endurgreiða þrotabúinu fjármunina. Voru stefndu S, L, H og D hins vegar sýknuð af skaðabótakröfu þrotabúsins. Eftir að SL áfrýjaði dóminum til Landsréttar greiddi félagið tilgreinda fjárhæð til þrotabúsins og féll frá áfrýjun á grundvelli sáttar við það. Fyrir Landsrétti byggði þrotabúið á því að um greiðslu inn á dómkröfuna hefði verið að ræða, og krafði S, L, H og D um eftirstöðvar hennar. Landsréttur taldi að hin umdeilda greiðsla hefði farið fram í raunhæfri viðleitni til að bjarga rekstri W. Því hefði ekki verið tilefni fyrir stjórnendurna til að fara fram á að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta áður en greiðslurnar voru inntar af hendi, og ekki sýnt fram á að þeir hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi. Voru S, L, H og D því sýknuð af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur ALC, vegna tveggja nánar tilgreindra greiðslna flugfélagsins W til ALC. Jafnframt var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á sömu greiðslum. Riftunarkrafa þrotabúsins byggðist á 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en til vara á 141. gr. sömu laga. Landsréttur leit til þess að W var í fullum rekstri fram á síðasta dag, og að við mat á því hvort greiðslugeta W hefði skerst verulega með ofangreindum greiðslum yrði að horfa til lengra tímabils í rekstri W en þess augnabliks þegar greiðslurnar fóru fram. Taldi Landsréttur, meðal annars með vísan til þeirra gagna og upplýsinga sem lágu fyrir um það fé sem var til ráðstöfunar á þeim tíma sem skipti máli, að þrotabúið hefði ekki sýnt fram á að greiðslugeta W hefði skerst verulega í skilningi 134. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Landsréttur leit jafnframt til þess að vinna við fjárhagslega endurskipulagningu W hefði verið í gangi á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram, og að sú vinna var undir eftirliti Samgöngustofu. Var ekki talið að þrotabúið hefði sýnt fram á að framganga málsaðila hefði vikið svo frá eðlilegum viðskiptaháttum að uppfyllt teldist skilyrði 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. um ótilhlýðileika. Var ALC því sýknað af kröfum þrotabúsins. Hvað skaðabótakröfu á hendur stjórnendum W varðaði taldi Landsréttur að hinar umdeildu greiðslur hefðu farið fram í raunhæfri viðleitni til að bjarga rekstri W. Því hefði ekki verið tilefni fyrir stjórnendurna til að fara fram á að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta áður en greiðslurnar voru inntar af hendi, og ekki sýnt fram á að þeir hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi. Voru S, L, H og D því sömuleiðis sýknuð af kröfum þrotabúsins.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Eaton Vance Management GMA PR, Eaton Vance Management GM PRT, Eaton Vance Management GLOP P, MP Pensjon PK, Kvika eignastýring hf, Peak AM Alternative Investments, SEF SICAV PART II, Rea ehf, Toluma Kreditt AS, GAMMA Capital Management hf og Johannes Bertorp (
Fjölnir Ólafsson lögmaður)
gegn
Skúla Mogensen (
Reimar Snæfells Pétursson lögmaður),
Liv Bergþórsdóttur og Helgu Hlín Hákonardóttur og Davíð Mássyni (
Hörður Felix Harðarson lögmaður) og
dánarbúi Basil Ben Baldanza (
Óttar Pálsson lögmaður)
Stefndu voru sýknuð af bótakröfum stefnenda þar sem ósannað þótti að þau hefðu valdið stefnendum, sem kaupendum skuldabréfa í skuldabréfaútboði, skaðabótaskyldu tjóni.
...60/1998 og reglugerð. nr. 48/2012. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, sem er dagsett 21. september 2018, þremur dögum eftir að skuldabréfaútboði félagsins lauk, boðaði Samgöngustofa viðvarandi eftirlit með...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélahreyflaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunni. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umræddar greiðslur voru inntar af hendi.
...60/1998 og reglugerð. nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur rekstraraðila flugvallar í Kanada vegna greiðslna sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunum. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur breskri ríkisstofnun, HM Revenue and Customs, sem annast um álagningu skatta og opinberra gjalda þar í landi og innheimtu þeirra. Var krafist riftunar á greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Af hálfu bresku ríkisstofnunarinnar var ekki sótt þing. Kröfum á hendur ríkisstofnuninni var vísað frá dómi þar sem mál verði ekki höfðað gegn öðrum þjóðríkjum vegna þeirrar meginreglu þjóðaréttar um úrlendisrétt ríkja að eitt ríki sæti ekki dómslögsögu annars ríkis án samþykkis síns. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila hálfu ári fyrir gjaldþrot. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt og ekki var talið sýnt að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi en á þeim tíma var nýafstaðið skuldabréfaútboð WOW air hf. og fjármunir úr því útboði höfðu verið afhentir félaginu. Var því ekki heldur fallist á að skilyrði 141. gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt og riftun greiðslunnar hafnað. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi forstjóra fælist saknæm háttsemi enda félagið ekki ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi og ósannað að það hafi orðið það vegna greiðslunnar.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslna sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi ALC um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunum. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur Eurocontrol vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Þá var ekki fallist á að Eurocontrol hefði haft hag af greiðslunni í skilningi 141. gr. laganna nema að litlum hluta. Þeim hluta greiðslunnar var rift en Eurocontrol sýknað að öðru leyti. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunnni. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánadrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur flugvélaleigusala félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslan var innt af hendi, grandsemi móttakanda greiðslunnar um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunni. Var móttakanda greiðslunnar því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðsluna með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánadrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Málið var upphaflega höfðað af þrotabúi flugfélagsins WOW air hf. sem riftunarmál á hendur alþjóðlegu fyrirtæki sem veitir þjónustu tengda reikningshaldi og skattamálum. Var krafist riftunar á greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Þegar móttakandi greiðslunnar endurgreiddi þrotabúinu greiðsluna að hluta féll þrotabúið frá kröfum á hendur þeim aðila. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur íslenska ríkinu vegna greiðslna sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots. Ekki var fallist á að skilyrði 134.gr. laga nr. 21/1991 væru uppfyllt. Á hinn bóginn var talið að sýnt hefði verið fram á að félagið hafi verið ógjaldfært þegar greiðslurnar voru inntar af hendi, grandsemi móttakanda greiðslnanna um þá ógjaldfærni og að ótilhlýðilegt hefði verið að taka við greiðslunum. Var móttakanda greiðslnanna því gert að endurgreiða þrotabúi WOW air hf. greiðslurnar með vöxtum og dráttarvöxtum. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. og stjórn félagsins til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Ekki var fallist á að í háttsemi stjórnar eða forstjóra fælist saknæm háttsemi. Í fyrsta lagi segir í 2. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 að ef stjórn láti hjá líða að leita gjaldþrotaskipta á félagi þá beri þeir skaðabótaábyrgð gagnvart lánardrottnum félagsins. Ekki var fallist á að þrotabú slíks félags gæti þannig byggt kröfu um skaðabætur á nefndu lagaákvæði, enda hefði greiðslan til Eurocontrol ekki verið til hagsbóta fyrir stjórnarmennina persónulega. Þar sem erlendum tryggingarfélögum sem selt höfðu WOW air hf. stjórnendatryggingar, var stefnt til réttargæslu var litið svo á með vísan til 3. mgr. 19. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 að tjón teldist ekki bótaskylt nema það yrði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis. Þessu til viðbótar var það mat dómsins að við sakarmat bæri að veita stjórninni nokkurt svigrúm í tilraunum sínum til að bjarga rekstri félagsins. Tæki þannig mælikvarði við mat á því hvort háttsemi stjórnar væri saknæm, mið af slíku svigrúmi. Þá var til þess litið að síðustu fimm mánuðina í rekstri félagsins voru stjórn og stjórnendur í viðræðum við fjárfesta og voru þær viðræður metnar trúverðugar. Var ekki fallist á að sá tími sem stjórn hafði svigrúm til að snúa rekstri félagsins við teldist hafa runnið sitt skeið á enda áður en umrædd greiðsla var innt af hendi. Þá var einnig litið til þess að langstærstur hluti greiðslnanna varðaði greiðslu tryggingagjalds og staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. lög nr. 45/1987 sem kveða á um lagaskyldu til að framkvæmda greiðslnanna, að viðlagðri ábyrgð launagreiðanda. Ekki var talið að saknæmi eða ólögmæti gæti falist í þeirri háttsemi að greiða slík gjöld er undir framangreind lög féllu.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Þrotabú flugfélagsins WOW air hf. höfðaði riftunarmál á hendur eiganda félagsins vegna greiðslu sem WOW air hf. greiddi þeim aðila í aðdraganda gjaldþrots en um var að ræða síðustu greiðslu kaupverðs fyrir hluti í félaginu Cargo Express ehf. sem Títan eignarhaldsfélag hf. hafði selt WOW air hf. nokkru fyrr. Skyldi gjalddagi greiðslunnar vera 30. apríl 2019 og var m.a. fjárhæð greiðslunnar tengd við fjárhæð væntrar arðgreiðslu sem WOW air hf. skyldi sem hluthafi í Cargo Express ehf. móttaka frá því félagi. Þar sem greiðslan var innt af hendi í febrúar 2019 var talið að hún hafi verið greidd of snemma og henni því rift á grundvelli 134. gr. laga nr. 21/1991. Málið var einnig höfðað á hendur forstjóra og eiganda WOW air hf. til greiðslu skaðabóta. Var þar af hálfu þrotabúsins á því byggt að saknæmt og tjónsvaldandi hefði verið að greiða greiðsluna og að hafa ekki gefið félagið fyrr upp til gjaldþrotaskipta. Þó svo að forstjórinn væri eigandi Títans fjárfestingafélags ehf. sem síðan væri eigandi WOW air hf. var ekki fallist á að unnt væri að dæma forstjórann til greiðslu skaðabóta. Í fyrsta lagi væri það ekki á valdi forstjórans eins að krefjast gjaldþrotaskipta á félaginu, sbr. 1. mgr. 64. gr. laga nr. 21/1991 heldur stjórnarinnar allrar. Þó svo að greiðslan hafi verið greidd tveimur mánuðum fyrir gjalddaga og varðaði kaupsamning sem engrar sérstöðu naut og þrátt fyrir að forstjórinn hafi haft sérstakan hag af umræddri greiðslu þá þótti ekkert í gögnum málsins benda til þess að forstjórinn hafi komið að ákvörðun um framkvæmd umræddrar greiðslu til Títan. Ósannað þótti að hann hefði gefið fyrirmæli um að hún skyldi greidd. Þá þótti ekki unnt að taka til skoðunar hvort saknæmi fælist í þeirri háttsemi forstjórans að móttaka greiðsluna fyrir hönd Títans enda væri ekki slíka málsástæðu að finna í stefnu.
...60/1998 og reglugerð nr. 48/2012. Samgöngustofa fundaði tvívegis með stjórnendum félagsins sumarið 2018 og versnaði fjárhagsstaða félagsins á milli fundanna. Í bréfi Samgöngustofu til félagsins, þremur dögum eftir...
Krafist riftunar á ráðstöfunum þrotamanns.
...969/2008 og nú reglugerð nr. 48/2012 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan evrópska efnahagssvæðisins. Samkvæmt reglum þessum sé fjárhagsstaða og rekstrarhæfi umsækjanda um flugrekstrarleyfi eitt af...