Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 464/2007"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 23. október 2019

17/2019

ÞG verktakar ehf (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Landhlíð ehf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður)

Þ ehf. höfðaði mál á hendur L ehf. og krafðist greiðslu að fjárhæð 49.652.855 krónur fyrir eigin vinnu og útlagðan kostnað við verk sem fólst í undirbúningi fyrir verklegar framkvæmdir á lóð að Hlíðarenda 1-7 sem L ehf. hafði lóðar- og byggingarrétt yfir. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt hluthafasamkomulagi sem gert var samhliða kaupum A ehf., systurfélags Þ ehf., á öllu hlutafé í L ehf. hefði verið áskilið að samþykki beggja stjórnarmanna í L ehf. þyrfti til svo kostnaður yrði felldur á félagið. Af því sem fram hefði komið í málinu yrði ekki ráðið að Þ ehf. hefði aflað samþykkis L ehf. fyrir umræddum kostnaði. Talið var að ekki skipti máli þótt L ehf. hefði verið ljóst að Þ ehf. stofnaði til kostnaðar vegna framkvæmdanna og ekki var fallist á að á þeim grunni hefði komist á munnlegur samningur um þá verkþætti sem ráðist var í. Þá var hvorki fallist á að L ehf. hefði með tómlæti sínu samþykkt tiltekinn reikning né að krafa Þ ehf. gæti náð fram að ganga á öðrum grunni. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu L ehf.

...nóvember sama ár var þeirri beiðni hafnað þar sem uppsetning á slíkum krana færi í bága við reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli þar sem hann skagaði upp í aðflugsflöt...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2018

E-3477/2017

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) gegn Isavia ohf (Ragnar Árnason lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu um greiðslu gjalda af launum tveggja starfsmanna sinna til stefnanda, sem er stéttarfélag. Stefndi hafði þegar greitt gjöld vegna launa þeirra til annars stéttarfélags á grundvelli kjarasamnings.

...Kjarasamningur stefnda og stefnanda taki samkvæmt grein 18.1 í samningnum til félagsmanna stefnanda sem starfa á flugvöllum í flokki 1 samkvæmt reglugerð nr. 464/2007 og eru löggiltir/fullnuma...