Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 440/2010"

1 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júlí 2020

E-3026/2019

H (Ingvar S. Birgisson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu A (Sigurður Sigurjónsson lögmaður) og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Vegna veikinda hafði stefnandi ritað undir lausnarlaunasamning við sveitarfélagið þar sem hann var kennari. Þegar hann hafði náð sér af veikindunum sótti hann um annað kennarastarf hjá sama sveitarfélagi. Skólastjóri skólans, þar sem stefnandi sótti um starf, og undanþágunefnd grunnskóla túlkuðu ákvæði 13.2.4.2 í kjarasamningi þannig að með því að rita undir lausnarlaunasamning hefði stefnandi lýst yfir því að hann væri varanlega óvinnufær vegna veikinda og því mætti ekki ráða hann í starfið. Að mati dómsins var ekki hægt að túlka ákvæði kjarasamningsins á þann veg sem skólastjórinn og undanþágunefnd grunnskóla gerðu. Fallist var á að það hefði verið ólögmætt og saknæmt að ráða annan en stefnanda í starfið. Dómurinn taldi að athafnir beggja, skólastjórans sem sveitarfélagið ber ábyrgð á og undanþágunefndarinnar sem starfar á ábyrgð ríkisins, hefðu verið nauðsynlegt skilyrði þess að gengið var fram hjá stefnanda við ráðningu í starf grunnskólakennara. Því var viðurkennd óskipt bótaskylda sveitarfélagsins og ríkisins vegna þess tjóns stefnanda sem af því hlaust.

...Um störf og starfshætti undanþágunefndar grunnskóla gildi reglugerð nr. 440/2010. Ekkert hafi staðið því í vegi að undanþágunefndin gæti tekið umsókn skóla- stjóra K-skóla til umfjöllunar og sé...