Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 416/2003"
3 dómar fundust
Sakarefni, dómstólar, frávísunarúrskurður
...76/2001 og reglugerð nr. 416/2003. Ekki er að sjá að Gísli hafi sótt um slíkt skírteini. Þeir sem eru lögmætir handhafar skírteinis til að vera skipstjóri á skipi...
Ó var sagt upp starfi sínu sem kennari hjá V. Var uppsögnin rökstudd með því að skólinn hefði þurft að skera niður í hagræðingarskyni og að Ó fullnægði ekki lengur hæfniskröfum til kennslu í þeim greinum sem hann hefði haft með höndum hjá skólanum. Ó höfðaði í kjölfarið mál gegn V til heimtu bóta vegna ætlaðrar ólögmætrar uppsagnar. Reisti hann kröfu sína meðal annars á því að V hefði við uppsögnina hvorki gætt fyrirmæla laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins né meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, auk þess sem óheimilt hefði verið að segja honum upp þar sem hann gegndi stöðu trúnaðarmanns og sem slíkur notið verndar 3. mgr. 30. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að þær reglur, sem breytingar á hæfniskröfum V byggðu á, væru almennt orðaðar og gæfu svigrúm til mats á því hvaða hæfniskröfur væru gerðar til kennslu í þeim greinum sem Ó hafði haft með höndum. Var talið að V hefði ekki sýnt fram á að Ó uppfyllti ekki lengur hæfniskröfur í viðkomandi greinum. Þá kom fram að í beinu framhaldi af uppsögn Ó hefði V auglýst stöðu kennara á kennslusviði Ó og ráðið í þá stöðu nokkrum mánuðum síðar. Var talið að í ljósi þeirrar ríku verndar sem Ó hefði notið vegna stöðu sinnar sem trúnaðarmaður hefði V verið rétt að taka til skoðunar hvort komast hefði mátt hjá uppsögn Ó með því að ráða ekki í umrædda stöðu og ná þar með fram því hagræðingarmarkmiði, sem að hefði verið stefnt með uppsögn Ó, og gera viðeigandi ráðstafanir vegna tilfærslu kennslu. V hefði þannig ekki sýnt fram á að því lögmæta markmiði, sem að hefði verið stefnt með uppsögn Ó, hefði ekki verið náð með öðru og vægara móti, sbr. 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Var V því dæmdur til að greiða Ó bætur að álitum vegna fjártjóns hins síðarnefnda. Á hinn bóginn þóttu ekki efni til að dæma V til að greiða Ó miskabætur vegna ólögmætrar meingerðar samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 80/1993.
...76/2001 og reglugerð nr. 416/2003 með síðari breytingum. Til þess að uppfylla þessar kröfur til þess að geta boðið upp á fullnaðarnám í vélstjórn var gæðakerfið ISO innleitt...
Uppsögn
...76/2001 og reglugerð nr. 416/2003 með síðari breytingum. Til þess að uppfylla þessar kröfur til þess að geta boðið upp á fullnaðarnám í vélstjórn var gæðakerfið ISO innleitt...