Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 404/2008"
3 dómar fundust
Á, sem I ohf. hafði vísað úr starfsþjálfun til flugumferðarstjóra, höfðaði mál á hendur I ohf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns af völdum brottrekstursins og miskabóta vegna þess hvernig staðið hefði verið að honum. Talið var að ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993 giltu um töku ákvarðana I ohf. um rétt eða skyldu manna innan hlutaðeigandi verksviðs. Þá var talið að Á hefði ekki staðist þær prófkröfur sem gerðar voru til árangurs í verklegum æfingum á námstímanum samkvæmt þeirri þjálfunaráætlun sem um nám hans gilti og að það úrræði að vísa Á úr námi af þeirri ástæðu hefði átt sér stoð í lögum. Í ljósi þeirra skilmála er giltu um námið og ástæðna sem lágu til grundvallar námslokum Á voru ekki talin skilyrði til að dæma honum bætur fyrir fjártjón. Á hinn bóginn var lagt til grundvallar að vegna þess hvernig staðið hefði verið að brottvísun Á úr náminu hefði hann orðið fyrir miska sem veitti honum rétt til bóta samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og voru þær ákveðnar 600.000 krónur.
...1044/2013 um skírteini flugumferðarstjóra og starfsleyfi þjálfunarfyrirtækja, sem leysti af hólmi eldri reglugerð nr. 404/2008, tók Samgöngustofa við þessum verkefnum af Flugmálastjórn Íslands. Þjálfun áfrýjanda annaðist samkvæmt áðurgreindu...
Brottvísun úr starfsþjálfun. Bótakröfu hafnað.
...Sama dag sendi lögmaður stefnanda bréf til Flugmálastjórnar Íslands og benti á að stefndi væri með starfsleyfi frá stofnuninni samkvæmt reglugerð nr. 404/2008 til að annast þjálfun nema í...
A krafði Í um greiðslu á kjarasamningsbundinni skírteinistryggingu í kjölfar afturköllunar Flugmálastjórnar á skírteini hennar til starfa sem flugumferðarstjóri. Byggði A á því að hún uppfyllti skilyrði innlausnar tryggingarinnar en samkvæmt nánari ákvæðum gildandi kjarasamnings tók tryggingin m.a. að fullu til veikinda sem voru að uppruna sálræns eðlis. Í málinu lágu fyrir fjögur læknisvottorð um að A hafði glímt við slík veikindi. Talið var að A hefði ekki verið svipt réttindum sínum vegna veikinda, líkt og áskilið var í kjarasamningi aðila, heldur á grundvelli þess að hún hefði veitt rangar upplýsingar um heilsufar sitt og lyfjanotkun í umsóknum sínum um heilbrigðisvottorð á fjögurra ára tímabili. Þeirri ákvörðun Flugmálastjórnar hafði A ekki skotið til úrlausnar æðra stjórnvalds né hafði hún höfðað mál til að hnekkja henni. Þar sem skilyrði kjarasamnings til innlausnar tryggingarinnar voru ekki uppfyllt í málinu var Í sýknað af kröfu A.
...Vísaði stofnunin í því efni meðal annars til greina 6.5.2.1 og 6.5.2.2 í reglugerð nr. 404/2008 um skírteini flugumferðarstjóra, en í þeim er...