Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 386/2019"
2 dómar fundust
H slf. krafði V hf. um bætur úr húftryggingu smábáta vegna þjófnaðar á sex handfærarúllum úr bátnum Gosa KE-102. Deildu aðilar um hvort handfærarúllurnar væru veiðarfæri í skilningi skilmála húftryggingarinnar og féllu þar með ekki undir vátrygginguna. Landsréttur hafnaði því að orðalag 4. töluliðar 6. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða fæli í sér lögskilgreiningu á handfærarúllum sem bindandi væri við skýringu skilmála húftryggingarinnar. Því næst rakti rétturinn ákvæði greina 1.1 og 1.2 í skilmálum smábátatryggingar og taldi að handfærarúllurnar hefðu verið fylgifé bátsins í skilningi greinar 1.1 en handfærin sem sett væru á rúllurnar væru veiðarfæri sem féllu undir grein 1.2. Þar sem brotist hefði verið inn í skorsteinshús bátsins til að losa handfærarúllurnar frá rafmagnstöflu félli atvikið undir orðalag greinar 3.1.7 í skilmálunum en samkvæmt því ákvæði bætti tryggingin tjón á bátnum sem stafaði á beinan hátt af innbroti eða innbrotsþjófnaði. Þá var því hafnað að ábyrgð V hf. hefði fallið niður vegna þess að H slf. hefði ekki gætt varúðarskyldu sinnar samkvæmt grein 9.3 í skilmálunum. Var krafa H slf. um skaðabætur úr hendi V hf. tekin til greina en að teknu tilliti til þess að fullar tjónsbætur ættu ekki að leiða til auðgunar tjónþola var talið rétt að ákvarða þær að álitum 3.000.000 króna. Kröfu H slf. um bætur vegna kostnaðar við rekstur á máli milli aðila fyrir úrskurðarnefnd í vátryggingamálum var hafnað. Var V hf. dæmt til að greiða H slf. 3.000.000 króna ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu en kröfu H slf. um dráttarvexti var vísað frá héraðsdómi.
...414/2018 um strandveiðar fiskveiðiárið 2017/2018 og í reglugerð nr. 386/2019 um strandveiðar fiskveiðiárið 2018/2019. Með hliðsjón af framangreindu ber að líta svo á að vátryggingin taki...
Stefnandi krafði stefnda um greiðslu bóta úr húftryggingu smábáta, vegna handfærarúllna sem fjarlægðar voru af dekki bátsins. Taldi dómurinn að handfærarúllur féllu ekki undir vátryggingu, þar sem þær teldust ótvírætt til veiðarfæra og gætu því ekki talist til fylgifjár bátsins miðað við texta vátryggingarskilmála.
...414/2018 um strandveiðar fiskveiðiárið 2017/2018 og í reglugerð nr. 386/2019 um strandveiðar fiskveiðiárið 2018/2019. 6 Með hliðsjón af framangreindu ber að líta svo á að vátryggingin...