Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 355/2010"
2 dómar fundust
B og I gerðu með sér lánssamning um lán á framkvæmdartíma samkvæmt VII. kafla laga um húnæðismál nr. 44/1998 vegna byggingar B á hjúkrunarheimili. Deildu aðilar málsins um rétt I til dráttarvaxta en samkvæmt ákvæðum lánssamningsins var gjalddagi samningsins tveimur mánuðum eftir lok „lánssamnings/lokaúttektar.“ Dráttarvaxtakrafa I var reist á því að lokaúttekt á framkvæmdum við umrætt hjúkrunarheimili hefði farið fram 1. nóvember 2012 og á grundvelli hennar hefði verið gefið út viðtökuvottorð. Samkvæmt því hefði gjalddagi lánsins verið 1. janúar 2013. Í dómi Hæstaréttar kom fram að B hefði ekki verið ljós sá skilningur I á lánssamningnum að gjalddaga hans hefði verið 1. janúar 2013 fyrr en með tilkynningu sem barst B um einum og hálfum mánuði eftir að B hefði gert upp lánið 31. janúar 2014. Var fallist á það með B að úttekt í skilningi lánssamningsins hefði ekki legið fyrir fyrr en 5. desember 2013 er framkvæmdum hefði verið að fullu lokið og gjalddagi lánsins því 5. febrúar 2014. Hefði því greiðsla B á höfuðstól skuldarinnar og vöxtum verið innt af hendi fyrir gjalddaga lánsins og krafa I um dráttarvexti því ólögmæt. Þá var talið að synjun I að óska eftir aflýsingu á lánsskjölum vegna framkvæmdarlánsins, vegna ógreiddrar kröfu um dráttarvexti, hefði bakað B tjón með ólögmætum og saknæmum hætti.
...120/2009 né reglugerð nr. 355/2010 sem sett var með heimild í 30. gr. laganna. Ef litið er til þess samnings sem aðilar gerðu sín á milli og undirritaður...
Skylda til samningsgerðar, gjalddagi, endurkrafa dráttarvaxta , skaðabætur
...120/2009 né reglugerð nr. 355/2010 sem sett var með heimild í 30. gr. laganna. Ef litið er til þess samnings sem aðilar gerðu sín á milli og undirritaður...