Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 349/1995"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 7. október 1999

85/1999

Pétur Bjarnason (Guðni Ásþór Haraldsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

P var tilkynnt um að staða hans hjá Í yrði lögð niður samhliða því að ný lög um grunnskóla nr. 66/1995 gengju í gildi 1. ágúst 1996. Talið var að staða P hefði ekki verið lögð niður fyrr en 1. ágúst 1996 og bæri því að miða réttarstöðu hans, að því er biðlaun varðaði, við lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem gengu í gildi 1. júlí sama árs. Í málinu væri óumdeilt að P hafði tekið við nýju starfi 1. ágúst 1996 og notið hærri launa en í starfinu sem var lagt niður. Uppfyllti hann því ekki skilyrði 2. mgr. 34. gr. laga nr. 70/1996 til biðlauna. Ekki var talið að sú breyting á rétti til biðlaunagreiðslna sem leiddi af lögum nr. 70/1996, að réttur til biðlaunagreiðslna réðist af launamismun eldra og nýs starfs, án tillits til þess hvort það væri hjá ríki eða öðrum aðila, bryti gegn mannréttindaákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í af kröfum P.

...mars 1995 og reglugerð nr. 349/1995 þann 21. júní s.á., hafi orðið straumhvörf á starfi stefnanda, hliðstæð þeim, er hann ráði af bréfi því, sem ritað hafi verið...