Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 301/2008"

6 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2026 kl. 16:38

E-3533/2025

A (Grímur Már Þórólfsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Íslenska ríkið var talið bera bótaábyrgð á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnatöku sem stefnandi gekkst undir. Ekki var fallist á að hann hefði sjálfur valdið eða stuðlað að aðgerðum lögreglu þannig að rök stæðu til þess að fella niður eða lækka bætur til hans.

...DrugWipe-próf hafi verið í notkun í tvo áratugi og gert ráð fyrir því í reglugerð nr. 301/2008 um töku sýna og rannsókn vegna aksturs undir áhrifum vímuefna. 16...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júlí 2025

E-7533/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Stefndi, íslenska ríkið, sýknað af kröfu stefnanda um miskabætur vegna handtöku og töku lífsýnis. Talið var að stefnandi hefði sjálfur valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem hann reisti kröfu sína á.

...áhrifum einhverra efna og hún muni því, eins og henni er skylt skv. reglugerð nr. 301/2008, leggja frekara mat á ástand hans. Við það sá lögregla að sjáöldur hans...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2025

E-6387/2024

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Sóley Ragnarsdóttir lögmaður)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda sem krafðist bóta vegna aðgerða lögreglu.

...Stefndi kveðst telja að fullt tilefni hafi verið til aðgerðanna og þær hafi verið í samræmi við reglugerð nr. 301/2008 um töku sýna og rannsókn vegna aksturs undir áhrifum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2025

E-2297/2024

A (Hreiðar Eiríksson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar miskabætur á grundvelli hlutlægrar reglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnistöku sem hann var látinn sæta er akstur hans var stöðvaður við almennt umferðareftirlit en lögreglumálið var síðar fellt niður. Í málinu reyndi m.a. á þýðingu þess að stefnandi skýrði lögreglu frá því á vettvangi að hann tæki amfetamínskylt lyf (Elvanse) að læknisráði.

...fyrrnefnda reglugerð nr. 301/2008, er ekki þar með sagt að ökumaður með slík einkenni verði með réttu talinn hafa valdið eða stuðlað að þeim þvingunaraðgerðum sem hann er látinn...

Landsréttur birt 12. desember 2024

363/2024

Íslenska ríkið (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (Leó Daðason lögmaður)

A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.

...50/1987 setti ráðherra nánari reglur um töku sýna og rannsókn á þeim, vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna, með reglugerð nr. 301/2008 og er hún enn í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. janúar 2024

E-3962/2023

A (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Stefndi sýknaður af kröfu um bætur vegna handtöku og rannsóknaraðgerða lögreglu í tengslum við umferðareftirlit.

...Við samtal við stefnanda höfðu lögreglumenn til hliðsjónar þau atriði sem mælt er fyrir um í reglugerð nr. 301/2008 um töku sýna og rannsókn vegna aksturs undir áhrifum vímuefna...