Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 299/1975"

3 dómar fundust

Héraðsdómur Austurlands birt 10. október 2006

S-84/2006

Ákæruvaldið (Helgi Jensson lögreglustjóri) gegn Elnar Holm (Egill Þorvarðarson hdl) og Vagnar Joensen (Gísli M. Auðbergsson hdl)

E, skipstjóri á færeysku fiskveiðiskipi, var fundinn sekur um að hafa stundað ólöglegar veiðar innan íslensku efnahagslögsögunnar. E var einnig sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með þvi að hafa óhlýðnast fyrirmælum varðskipsins Óðins og tálmað varðskipsmönnum uppgöngu í skipið. Refsing ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi og sekt að fjárhæð 600.000. Einnig var andvirði afla og veiðarfæra gert upptækt. Kröfum ákæruvalds á hendur V, stýrimanni á sama skipi, var vísað frá dómi þar sem verknaðarlýsingu í ákæru var áfátt.

...og 16. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands nr. 79/1997, sbr. reglugerð nr. 299/1975 um fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. lög nr. 44/1948, sbr. nú lög um veiðar...

Hæstiréttur birt 18. nóvember 2004

221/2004

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl, Sigurður R. Arnalds hdl) gegn Loðnuvinnslunni hf (Kristján Þorbergsson hrl, Jóhannes Bjarni Björnsson hdl)

Aflaheimildir. Aflahlutdeild. Fiskveiðistjórn. Stjórnarskrá. Jafnræðisregla. Vanreifun. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. Ekki var fallist á með L að það hafi verið andstætt jafnræðisreglu stjórnarskrár að láta ákvörðun aflahlutdeildar í norsk-íslenska síldarstofninum ráðast af veiðireynslu sökum þess áskilnaðar að skip, sem hana mynduðu, hafi frá árinu 1996 þurft að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands. Þá þóttu ekki efni til að líta svo á að brotið væri gegn jafnræðisreglu með því að miða við veiðireynslu alls tímabilsins frá 1994 til og með 2001, við úthlutun veiðiheimilda úr stofninum, en ekki t.d. þriggja bestu veiðitímabila á undangengnum sex veiðitímabilum. Varakröfu L um ógildingu á úrskurði sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem staðfest var ákvörðun Fiskistofu um að taka ekki mið af töfum skips L frá veiðum á árinu 2001 við úthlutun aflahlutdeildar, var svo vanreifuð af hendi L að óhjákvæmilegt var að vísa þeirri kröfu sjálfkrafa frá héraðsdómi.

...Eins og þar kemur fram var fiskveiðilandhelgi Íslands færð út í 200 mílur með reglugerð nr. 299/1975 um fiskveiðilandhelgi Íslands, sem tók gildi 10. október 1975. Var í kjölfarið...

Hæstiréttur birt 12. desember 2002

250/2002

Ákæruvaldið (Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari) gegn Lodve Gjendemsjö (Sigurmar Kristján Albertsson hrl)

L var gefið að sök að hafa veitt 600 tonn af loðnu í íslenskri lögsögu norðvestur af Horni, en ranglega gefið upp að aflinn hafi fengist í grænlenskri lögsögu, sem skipið hafi aldrei farið inn í á umræddu tímabili nema samkvæmt handfærðum og breyttum skráningum í afladagbók. Fóru tilkynningar L um ferðir skipsins út úr og inn í íslenska lögsögu í bága við upplýsingar um staðsetningu skipsins sem bárust Landhelgisgæslu Íslands um sjálfvirkt fjareftirlitskerfi. L undi sakfellingu samkvæmt héraðsdómi en krafðist þess fyrir Hæstarétti að refsing hans yrði lækkuð þar sem brot hans hafi verið framið af gáleysi en ekki ásetningi. Sú viðbára þótti haldlaus og ljóst af málsgögnum að um skýlaust ásetningsbrot væri að ræða. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu L staðfest með vísan til forsendna hans, svo og um fjárhæð sektar. Þá var kröfum L sem lutu að upptöku á andvirði afla hafnað. Þóttu lögskýringargögn með lögum nr. 22/1998 eða öðrum lögum, sem heimila upptöku sjávarafla vegna fiskveiðibrota, ekki benda til að stefnt hafi verið að því að sérregla skyldi gilda um fjölda matsmanna á þessu sviði, þannig að þeir væru ætíð tveir eða fleiri óháð umfangi viðfangsefnis þeirra hverju sinni, líkt og L hafði haldið fram.

...erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2001/2002 nr. 457, 2001, sbr. reglugerð nr. 299, 1975 um fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. lög nr. 44, 1948, sbr. nú lög um veiðar...