Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 271/2014"
2 dómar fundust
Stefnandi, stéttarfélag, lét endurhanna húsnæði sem hann keypti undir starfsemi sína. Framkvæmdin var boðin út. Skömmu eftir að starfsemi hófst í húsnæðinu fór gólfefnið, parket, að belgjast upp frá gólfinu. Stefnandi stefndi hönnuði endurbótanna, seljanda gólfefnisins og verktaka að endurbótunum, sem og tryggingafélögum þeirra til greiðslu skaðabóta vegna tjónsins á gólfefninu. Talið var að hönnuðurinn, seljandi parketsins og verktakinn væru sérfræðingar, hver á sínu fagsviði. Talið var að þeim hefði öllum orðið á saknæm mistök, hverjum á sínu sérsviði og að orsakatengsl væru á milli mistaka þeirra og þess tjóns sem varð á gólfefni í húsnæði stefnanda. Fallist var á bótaskyldu þeirra sem og greiðsluskyldu tryggingarfélaganna sem höfðu selt þessum stefndu atvinnurekstrartryggingu.
...Trygging meðstefnda ASK arki- tekta hjá stefnda Verði sé lögboðin ábyrgðartrygging samkvæmt reglugerð nr. 271/2014 um starfsábyrgðartryggingar hönnuða og byggingarstjóra. Sú trygging sé beintengd löggildingu hönnuða samkvæmt lögum nr...
H höfðaði mál gegn G, S hf., R ehf., HH ehf. og V hf. til heimtu skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna meintra galla á sameign fjöleignarhúss. Sakarefni málsins laut að því hvort gallar hefðu verið á sameigninni og að hvaða marki G, S hf., R ehf., HH ehf. og V hf. gætu borið ábyrgð á tjóni sem yrði rakið til þeirra. Í dómi Landsréttar var rakið að frágangur á yfirborði bílageymslu og þaki hennar hefði ekki verið í samræmi við byggingarreglugerð nr. 112/2012 og að H hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa. Taldi Landsréttur að R ehf. sem eigandi hússins og seljandi íbúða í húsinu og HH ehf. sem byggingaraðili og byggingarstjóri bæru skaðabótaábyrgð vegna tjóns H. Aftur á móti voru G sem annar hönnuða hússins og S hf. þar sem hönnuðurinn var með starfsábyrgðartryggingu sýknaðir af kröfum H þar sem ekki hafði verið sýnt fram á að G gæti borið sakarábyrgð á tjóni H. Með vísan til matsgerðar dómkvadds matsmanns, sem ekki hafði verið hnekkt, var R ehf., HH ehf. og V hf., vegna starfsábyrgðartryggingar byggingarstjóra, gert að greiða nánar tilgreinda fjárhæð vegna frágangs á þaki og yfirborði bílageymslu. Þá var R ehf. jafnframt gert að greiða kostnað við úrbætur vegna galla á gólfi bílageymslu, niðurfalli af þaki og þakbrún.
...160/2010 og reglugerð nr. 271/2014 um starfsábyrgðartryggingar hönnuða og byggingarstjóra. Samkvæmt vátryggingarskírteini nam vátryggingarfjárhæð 13.173.000 krónum í hverju tjóni á tímabilinu 23. febrúar 2015 til 31...