Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 27/1997"

1 dómar fundust

Hæstiréttur birt 21. júní 2001

40/2001

Stálskip ehf (Gísli Baldur Garðarsson hrl) gegn Otto Wathne ehf (Garðar Garðarsson hrl)

O seldi S skipið OW árið 1994. Á árunum 1997 og 1999 fékk S úthlutað hlutdeild í úthafskarfa og þorskafla í Barentshafi. Var sú úthlutun að hluta byggð á veiðireynslu skipsins á árinu 1993, er það var enn í eigu O. Á þeim tíma voru slíkar veiðar ekki háðar leyfi íslenskra stjórnvalda. Taldi O að sér bæri sú hlutdeild sem rakin yrði til veiðireynslu á árinu 1993. Hann átti þó ekkert skip er hér var komið sögu en úthlutun var bundin við skipseign. Engin réttindi höfðu verið tengd veiðireynslu utan fiskveiðilögsögunnar þegar skipið var selt og var ósannað að þess hefði þá mátt vænta innan skamms tíma. Verðmæti, sem rekja mátti til veiðireynslu O, sköpuðust fyrst tæpum þremur árum eftir undirritun kaupsamnings. Þar sem O glataði þannig engum réttindum við úthlutunina sjálfa var ekki talið að áfrýjandi hefði auðgast á kostnað hans við hana. Þá var ekki fallist á að O ætti einkaréttarlegt tilkall til hlutdeildar í þeim réttindum, sem S var úthlutað, enda var ekki á það minnst í kaupsamningnum hvernig með skyldi fara ef til kæmu önnur réttindi en vitað var um á þeim tíma og bundin væru aflahlutdeild O. Var talið að S hefði haft réttmæta ástæðu til að ætla að með efndum sínum á ákvæðum kaupsamningsins og afsals væri lögskiptum aðila lokið. Var S því sýknaður af kröfu O.

...Með reglugerð nr. 27/1997, er tók gildi 28. janúar 1997, ákvað sjávarútvegsráðherra að frá þeim tíma skyldi íslenskum fiskiskipum óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa án sérstaks leyfis Fiskistofu...