Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 237/2014"

5 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. desember 2024

E-7763/2023

A (Hildur Helga Kristinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Viðurkennt var að vinnuslys stefnanda væri bótaskylt úr ábyrgðartryggingu vinnuveitanda hennar vegna slyss sem hún varð fyrir við starfsþjálfun. Var slysið rakið til þess að renna hafi verið of sleip sem hafi stuðlað að of miklum hraða þeirra sem rennu sér niður hana. Um þessa hættueiginleika hafi vinnuveitandinn vitað enda höfðu orðið ítrekuð slys í og við rennuna næstu mánuðina á undan án þess að gripið hafi verið til fullnægjandi öryggisráðstafana.

...965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara sem innleidd var með reglugerð nr. 237/2014. 41 Framangreindar skyldur sem hvíla á flugrekanda til að tryggja rétta...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. desember 2024

E-7756/2023

A (Hildur Helga Kristinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Viðurkennt var að vinnuslys stefnanda væri bótaskylt úr ábyrgðartryggingu vinnuveitanda hennar vegna slyss sem hún varð fyrir við starfsþjálfun. Var slysið rakið til þess að renna hafi verið of sleip sem hafi stuðlað að of miklum hraða þeirra sem rennu sér niður hana. Um þessa hættueiginleika hafi vinnuveitandinn vitað enda höfðu orðið ítrekuð slys í og við rennuna næstu mánuðina á undan án þess að gripið hafi verið til fullnægjandi öryggisráðstafana.

...965/2012 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara sem innleidd var með reglugerð nr. 237/2014. 44 Framangreindar skyldur sem hvíla á flugrekanda til að tryggja rétta...

Hæstiréttur birt 3. maí 2018

620/2017

A (Karl Ólafur Karlsson lögmaður) gegn B ehf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Í byrjun mars 2015 réði A sig tímabundið til starfa sem flugmaður hjá B ehf. og hóf í kjölfarið þjálfun sína. Í nóvember sama ár var A sagt upp störfum eftir að hún hafði mælst með of lágan blóðþrýsting og ekki fengið gefið út heilbrigðisvottorð. Höfðaði A í kjölfarið mál á hendur B ehf. og krafðist annars vegar greiðslu launa í veikindaforföllum og hins vegar skaðabóta er næmu ígildi svokallaðrar skírteinistryggingar flugmanna samkvæmt kjarasamningi. Í héraðsdómi var fallist á að A ætti rétt til launa í veikindaforföllum og undu báðir aðilar þeirri niðurstöðu. B ehf. var á hinn bóginn sýknað af skaðabótakröfu hennar í héraði og fyrir Hæstarétti. Ástæðan var fyrst og fremst sú að A hefði ekki uppfyllt það skilyrði fyrir skírteinistryggingunni að hafa öðlast „full starfsréttindi“, en það hefði falið í sér að flugmenn, sem kjarasamningurinn tók til, hefðu lokið svonefndu leiðarflugsprófi á vegum B ehf. sem A hafði sannanlega ekki gert þegar hún lét af störfum. Þá hefðu yfirlýsingar flugrekstrarstjóra B ehf. um að allir flugmenn félagsins myndu halda vinnu sinni yfir vetrarmánuðina og að þeir allir væru vátryggðir gegn skírteinismissi verið bundnar þeirri óorðuðu forsendu að þeir uppfylltu þetta tiltekna skilyrði.

...og reglugerð nr. 237/2014, sem innleiddi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB) nr. 965/2012, um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varðar flugrekstur samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 212/2008...

Hæstiréttur birt 26. apríl 2016

172/2016

Jóhannes Arason Fossdal (Kristján Stefánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Kærumál. Frávísunarúrskurður staðfestur. Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli J gegn Í var vísað frá dómi. Krafðist J viðurkenningar á því að Í hefði bakað sér skaðabótaskyldu með því að hafa ekki samþykkt tilnefningu flugfélagsins E á honum í stöðu yfirmanns þjálfunar áhafna samkvæmt ráðningarsamningi hans við flugfélagið. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var talið að J hefði hvorki leitt nægilegar líkur að því að hann hefði orðið fyrir tjóni né hver tengsl þess væru við atvik máls, eins og áskilið væri samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

...1263/2008, en sú reglugerð hafi verið leyst af hólmi með reglugerð nr. 237/2014, um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, sem tekið hafi gildi 8. apríl...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. febrúar 2016

E-2840/2015

Jóhannes Arason Fossdal (Jón Bjarni Kristjánsson hdl) gegn Samgöngustofu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl, Postholder Crew Training)

Máli vísað frá dómi.

...1263/2008, en sú reglugerð hafi verið leyst af hólmi með reglugerð nr. 237/2014, um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara, sem tekið hafi gildi 8. apríl...