Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 23/2013"
1 dómar fundust
T krafðist þess að viðurkennt yrði að R bæri greiðsluskyldu á launakostnaði T vegna kennslu- og stjórnunarkostnaðar við kennslu nemenda í framhaldsnámi í hljóðfæraleik og miðstigi og framhaldsstigi í söng nánar tiltekin skólaár. Ágreiningur málsins laut að því hvort sú ákvörðun R að hætta fjárstuðningi við T vegna kostnaðar við kennslu í fyrrgreindu námi hefði verið lögmæt, en sú ákvörðun hefði verið tekin í kjölfar samkomulags Í og S um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Í dómi Hæstaréttar kom fram að 8. og 10. gr. laga nr. 75/1985 um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla yrðu ekki skilin svo að í þeim fælist fortakslaus skylda sveitarfélaga til að fjármagna tónlistarkennslu allra þeirra sem slíkir skólar ákvæðu að veita kennslu og að þeim væri óheimilt að setja nokkrar skorður í þeim efnum. Var R því sýknað af kröfu T.
...Með reglugerð nr. 23/2013 voru settar nánari reglur um framkvæmd þessa. Samkomulagið, sem tók gildi 1. júlí 2011 og gilti í fyrstu til 31. ágúst 2013 en var síðar...