Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 221/2012"
2 dómar fundust
A var skipverji um borð í fiskiskipi í veiðiferð sem hófst 27. september 2020. Veiðiferðinni lauk 20. október sama ár þar sem veikindi vegna heimsfaraldurs Covid- 19 herjuðu á áhöfnina. A höfðaði mál á hendur S, skipstjóra skipsins, E, framkvæmdastjóra útgerðar skipsins og V, útgerðarstjóra, og krafði þá um greiðslu miskabóta vegna heilsutjóns sem hann rakti til háttsemi þeirra í tengslum við veikindi A í veiðiferðinni. Með dómi héraðsdóms var S dæmdur til að greiða A miskabætur en E og V voru sýknaðir af kröfum A. Var niðurstaða héraðsdóms byggð á því að S hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi gagnvart heilsu A og velferð hans með tilgreindri háttsemi en E og V voru hvorki taldir bera ábyrgð á skipverjum um borð í fiskiskipinu né ábyrgð á verkum S. Í dómi Landsréttar var talið að ekki lægi fyrir að S hefði með viðbrögðum sínum við veikindum skipverja, þar á meðal A, sýnt af sér stórfellt gáleysi. Var hann því sýknaður af miskabótakröfu A. Þá var niðurstaða héraðsdóms um sýknu E og V staðfest.
...Landhelgisgæslu Íslands, enda sé sjúkdómurinn tilkynningarskyldur samkvæmt ákvæðum sóttvarnalaga nr. 19/1997, sbr. reglugerð nr. 221/2012. Óumdeilt sé að stefndi Sveinn Geir hafi átt í samskiptum símleiðis við umdæmislækni...
Skipstjóri frystitogara var dæmdur til að greiða skipverja miskabætur fyrir að brjóta gegn sjómannalögum og fyrirmælum sóttvarnaryfirvalda er hann hætti ekki veiðiferð þegar veikindi brutust út um borð. Sjómaðurinn veiktist á fimmta degi veiðiferðarinnar en ekki var haldið til hafnar og áhöfnin skimuð fyrir Covid-19 fyrr en veiðiferðin hafði staðið í 20 daga. Þá kom fram að 22 af 25 skipverjum hefðu smitast af Covid-19.
...Landhelgisgæslu Íslands, enda sé sjúkdómurinn tilkynningarskyldur samkvæmt ákvæðum sóttvarnalaga nr. 19/1997, sbr. reglugerð nr. 221/2012. Óumdeilt sé að stefndi Sveinn Geir hafi átt í samskiptum símleiðis við umdæmislækni...