Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 157/2001"
4 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli T og M á hendur Í var vísað frá dómi. T og M höfðu aðallega krafist þess að viðurkennt yrði að Í væri óheimilt að krefjast greiðslu á nokkrum hluta heildarlántökukostnaðar í merkingu tiltekins lagaákvæðis af tilteknu húsnæðisláni Í til T og M. Til vara kröfðust þau viðurkenningar þess að Í hefði verið óheimilt að krefjast greiðslu á nokkrum hluta heildarlántökukostnaðar vegna sama láns sem fælist í verðbótum af láninu á grundvelli vísitölu neysluverðs. Í dómi Hæstaréttar kom fram að kröfugerð T og M fæli í sér að dómstólar skýrðu tilgreind ákvæði laga án þess að það tengdist úrlausn um ákveðið sakarefni. Bryti hún því í bága við 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
...Á árinu 2003 gilti reglugerð nr. 157/2001 um húsbréf og húsbréfaviðskipti með síðari breytingum. Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. hennar skyldi fasteignaveðbréf endurgreiðast með jöfnum greiðslum vaxta og afborgana...
Lánssamningur - Frávísun frá héraðsdómi
...Á árinu 2003 gilti reglugerð nr. 157/2001 um húsbréf og húsbréfaviðskipti með síðari breytingum. Samkvæmt 3. mgr. 12. gr. hennar skyldi fasteignaveðbréf endurgreiðast með jöfnum greiðslum vaxta og afborgana...
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að Í hefði verið óheimilt að krefja N ehf. um bankaábyrgð til tryggingar á greiðslu tiltekinna lána, sem N ehf. hafði sótt um hjá Í, þar sem ekki hafði verið kveðið á um það skilyrði í reglugerð frá ráðherra á þeim tíma. Var talið að Í yrði að bera skaðabótaábyrgð á fjártjóni N ehf. sem af þessu leiddi og var sjóðnum gert að greiða N ehf. skaðabætur sem námu kostnaði félagsins af því að afla bankaábyrgðarinnar.
...Áður var í gildi reglugerð nr. 157/2001 um húsbréf og húsbréfaviðskipti þar sem sagði í 32. gr. að byggingaraðilar gætu fengið frumbréfum skipt fyrir húsbréf gegn því að leggja...
Talið var að stefnda, Íbúðalánasjóði, hefði verið óheimilt að setja það skilyrði fyrir lánveitingu til stefnanda að hann legði fram ábyrgðaryfirlýsingu frá fjármálafyrirtæki. Á það var fallist að stefnda bæri að bæta stefnanda þann kostnað sem hlotist hefði af því að afla ábyrgðaryfirlýsingarinnar.
...Áður var í gildi reglugerð nr. 157/2001 um húsbréf og húsbréfaviðskipti þar sem sagði í 32. gr. að byggingaraðilar gætu fengið frumbréfum skipt fyrir húsbréf gegn því að leggja...