Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1400/2020"
3 dómar fundust
ÓA og ÓIÓ höfðuðu mál á hendur Í, LÍ og V hf. og kröfðust þess að viðurkennd yrði óskipt skaðabótaskylda stefndu vegna tjóns þeirra er ein hryssa drapst og fjögur hross veiktust og lömuðust tímabundið. Í héraði byggðu ÓA og ÓIÓ meðal annars á því að samkvæmt skýrslu dýralæknis mætta rekja dauða eins hross og veikindi hinna til þess að þau hefðu komist í gamalt og mengað hey og mengað vatn á svæði við ratsjárstöðina á Stokksnesi. Þá byggðu þeir einnig á skýrslu Matvælastofnunnar um að veikindi hrossanna mætti rekja til bráðrar áleitrunar sem hrossin hefðu orðið fyrir við að éta mengað hey á Stokksnesi. Með dómi héraðsdóms voru Í, LÍ og V hf. sýknuð af kröfum ÓA og ÓIÓ þar sem ekki hefði tekist sönnun á því að dauði og veikindi hrossanna mætti rekja til þess að þau hefðu komist í úrgangshey og olíumengaðan jarðveg með áburðarblöndu. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti öfluðu ÓA og ÓIÓ matsgerðar dýralæknis og jarðefnafræðings. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstöður matsmanna bentu til þess að mælingar á háum álgildum í rannsókn Matvælastofnunnar mætti rekja til þess að notuð hefðu verið sýnatökuglös sem ekki hentuðu til álmælinga og drógu niðurstöður matsmanna því mjög úr gildi þeirra ályktana sem settar voru fram í skýrslu Matvælastofnunnar um að rekja mætti veikindi hrossanna til þess að þau hefðu étið hey sem mengað var af áli. Með vísan til þess en að öðru leyti með vísan til forsendna dóms héraðsdóms var hann staðfestur um sýknu Í, LÍ og V hf.
...Að mati sérfræðinga sem komið hafi að framkvæmdinni hafi verið um að ræða meðhöndlun á menguðum jarðvegi sem reglugerð nr. 1400/2020 um mengaðan jarðveg taki til, en ekki mengaðan...
Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda þar sem að ósannað þótti að meta bæri það starfsmanni stefnda til gáleysis, eins og á stóð, að hann hafði aftengt rakanema til þess að unnt væri að dæla díselolíu á eldsneytisstöð stefnanda. En auk þess þá taldi dómurinn jafnframt að helstu orsakir þess tjóns sem stefnandi varð síðan fyrir eftir að barki rofnaði og olía lak út væri einkum að rekja til þess að engin stöðug þjónusta var tryggð við stöðina af hálfu stefnanda.
...884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi á landi, reglugerð nr. 1400/2020 um mengaðan jarðveg, byggingarreglugerð nr. 112/2012, reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og...
Stefndu voru sýknaðir af dómkröfum stefnenda þar sem ekki þótti vera nægilega sannað í málinu að dauði eins hross og veikindi fjögurra annarrra hrossa í eigu stefnenda hefðu orðið af þeim ástæðum er stefnendur byggðu á í málinu og töldu vera á ábyrgð stefndu.
...Að mati sérfræðinga sem komið hafi að framkvæmdinni hafi verið um að ræða meðhöndlun á menguðum jarðvegi sem reglugerð nr. 1400/2020 um mengaðan jarðveg taki til, en ekki mengaðan...