Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1255/2018"

4 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2025

E-1944/2024

A, […] (Alexander Hafþórsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Talið var að Sjúkratryggingastofnun hefði verið heimilt að hætta að greiða stefnanda, lækningastofu, þá reikninga sem stefnandi sendi stofnuninni vegna greiðsluþátttöku ríkisins í heilbrigðiskostnaði. Stefndi, íslenska ríkið, var því sýknað af fjárkröfu stefnanda.

...112/2008 um sjúkratryggingar, reglugerð nr. 1255/2018 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratrygg- ingar Íslands, reglugerð nr. 1551/2022 um greiðsluþátttöku...

Landsréttur birt 2. júní 2023

85/2022

Helgi Birgisson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

H höfðaði mál gegn Í og krafðist þess að felld yrði úr gildi ákvörðun SÍ um að hafna umsókn hans um tiltekna greiðsluþátttöku stofnunarinnar á grundvelli reglugerðar nr. 1255/2018 um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við SÍ. Í hinum áfrýjaða dómi var Í sýknað af kröfum H. Í dómi Landsréttar var rakið að niðurstaða héraðsdóms um sýknu Í af kröfum H hafi farið í bága við 111. gr. laga nr. 91/1991. Þar við bættist að með héraðsdómi var ágreiningi málsaðila ekki ráðið til lykta. Var hinn áfrýjaði dómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

...janúar 2019 hafi verið grundvallaðar á reglugerð nr. 1255/2018 og að þær séu bundnar við þá lækna sem voru á samningi þegar framangreindur rammasamningur rann út. Með því að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2022

E-1852/2021

A (Hilmar Magnússon lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands og íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnandi krafði stefnda íslenska ríkið um greiðslu vegna liðskiptaaðgerðar sem hún keypti af einkarekinni læknamiðstöð og taldi að stefndu væri rétt að bæta sér þann kostnað. Ekki var fallist á að stefnandi gæti átt rétt til greiðslu slíks kostnaðar á grundvelli laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, ákvæði 76. gr. stjórnarskrárinnar eða samkvæmt þeim reglum sem teknar hefðu verið inn í EES-samninginn um rétt til að leita heilbrigðisþjónustu erlendis.

...endurgreiðslu kostnaðar vegna sjálfstætt starfandi sérfræðilækna sem starfa án samnings við SÍ, sbr. reglugerð nr. 1255/2018. Sú reglugerð var sett til að viðhalda óbreyttu ástandi eftir að rammasamningar SÍ...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. nóvember 2021

E-7988/2020

A (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda íslenska ríkið um skaðabætur fyrir fjárútlát vegna liðskiptaaðgerðar sem hann keypti af einkarekinni læknamiðstöð og taldi að stefnda væri rétt að bæta sér þann kostnað. Stefnandi sýndi ekki fram á að hann hefði ekki átt þess kost að fá slíka aðgerð gerða á sjúkrahúsi á kostnað stefnda innan tilhlýðilegra tímamarka og var ekki talinn hafa axlað sönnunarbyrði sína fyrir því að skilyrði bótaskyldu væru fyrir hendi. Var íslenska ríkið því sýknað af skaðabótakröfu hans.

...Samkvæmt reglugerð nr. 1255/2018, um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands, taki þátttaka sjúkratrygginga í kostnaði við þjónustu sérgreinalækna sem reki...