Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 125/2001"
2 dómar fundust
M ehf. krafðist þess að I yrði gert að endurgreiða höfundarréttargjöld sem innheimt voru á árunum 2009 til 2013 á grundvelli 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972, sbr. 2. gr. laga nr. 60/2000, vegna geisladiska sem M ehf. flutti til landsins. Aðilar deildu um hvort I væri heimilt að innheimta gjaldið vegna geisladiskanna, svo og hvort og ef svo væri að hve miklu leyti M ehf. bæri endurgreiðsla á þeim gjöldum sem hann hafði innt af hendi. Hæstiréttur taldi að virtum lögskýringargögnum laga nr. 78/1984, sem leiddu áðurgreinda gjaldtöku í höfundalög, að gengið hefði verið út frá því að gjald fyrir upptöku verka höfunda til einkanota yrði endurgreitt af tækjum og böndum ef sönnur yrðu færðar á að þau væri ekki notuð til upptöku á höfundaréttarvörðu efni. Þá taldi rétturinn að ekki yrði séð að lög nr. 60/2000 hefðu breytt eldra réttarástandi á þann veg að fortakslaust væri kveðið á um gjaldskylduna þannig að ekki bæri að endurgreiða gjald í þeim tilvikum er hlutir, í hvaða formi sem er, væru sannanlega ekki notaðir til upptöku verka höfunda. Vísaði rétturinn til þess að tilgangur höfundalaga væri að vernda höfundarétt og að sú tækni sem leitt hefði til skerðingur á endurgjaldi til höfunda vegna afritunar á höfundaréttarvörðu efni hefði einnig gert það mögulegt að nota sömu tækni til óskyldrar starfsemi, en ekki stæði lagaheimild til að gera síðargreindri starfsemi að bæta höfundum tap vegna einkanota á verkum þeirra. Með því að ágreiningslaust var að geisladiskar þeir sem málið varðaði væru ekki yfirskrifanlegir og yrðu ekki nýttir til upptöku á höfundaréttarvörðu efni bæri M ehf. réttur til endurgreiðslu vegna gjalda sem af honum höfðu verið tekin vegna geisladiskanna á grundvelli 3. mgr. 11. gr. höfundalaga. M ehf. var á hinn bóginn talinn hafa glatað endurkröfurétti sínum vegna áranna 2009 og 2010 sökum þess að hann hafði fyrst gert kröfu um endurgreiðslu um miðbik ársins 2006, sem I hafnaði síðar sama ár, en áfram greitt gjaldið án fyrirvara allt þar til hann setti á ný fram kröfu um endurgreiðslu árið 2011. Var fjárkrafa M ehf. því tekin til greina að hluta.
...Með reglugerð nr. 125/2001, sem sett var 29. janúar 2001 með stoð í 5. mgr. 11. höfundalaga, var höfundaréttargjald á geisladiskum ákveðið það sama og greinir í lögum nr...
Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda um endurgreiðslu höfundagjalda af óáteknum geisladiskum
...Með reglugerð nr. 125/2001, sem sett var 29. janúar 2001 með stoð í 5. mgr. 11. höfundalaga, var höfundaréttargjald á geisladiskum ákveðið það sama og greinir í lögum nr...