Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1151/2014"
3 dómar fundust
2011.85.4 2011.85.6
...1. janúar sl. tilheyrir embætti sýslumannsins í Reykjavík embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, sbr. reglugerð nr. 1151/2014. Sóknaraðili gaf skýrslu í málinu. III Málsástæður og lagarök sóknaraðila Af hálfu sóknaraðila...
G bar undir dómstóla lögmæti fjárnáms sem gert var í eignarhluta hans í fasteign fyrir kröfu Í hf. á grundvelli skuldabréfs. Deila aðila laut að lögmæti og skuldbindingargildi verðtryggingarákvæðis í skuldabréfinu, en fjárhæð þess var bundin vísitölu neysluverðs samkvæmt heimild í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Höfðu mótmæli G við fjárnámsgerðina verið reist á því að verðtryggingarákvæði skuldbréfsins væri ólögmætt og í andstöðu við 36. gr. og 36. gr. a. til c. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, sbr. tilskipun ráðsins nr. 93/13/EBE um óréttmæta skilmála í neytendasamningum. Undir meðferð málsins í héraði lét EFTA-dómstóllinn í té ráðgefandi álit í málinu um skýringu á tilskipunum 93/13/EBE og 87/102/EBE um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með hliðsjón af 2. mgr. 1. gr. fyrrnefndu tilskipunarinnar og að virtum VI. kafla laga nr. 38/2001, lögum nr. 12/1995 um vísitölu neysluverðs og reglum Seðlabanka Íslands um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, yrði að staðfesta þá niðurstöðu hins kærða úrskurðar að 36. gr. og 36. gr. a. til c. laga nr. 7/1936 gætu aðeins tekið til skilmála um þá þrjá þætti í lánssamningi sem aðilum hans væri að lögum frjálst að semja um að því er varðaði verðtryggingu með vísitölu neysluverðs, nánar tiltekið hvort fjárhæð lánsins skyldi yfirleitt vera háð verðtryggingu að hluta eða öllu leyti, hvort þar yrði miðað við vísitölu neysluverðs eða hlutabréfavísitölur samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laga nr. 38/2001 og hver grunnvísitalan skyldi vera. Taldi Hæstiréttur að engin efni væru til að líta svo á að skilmálar um þessi þrjú atriði í skuldabréfinu hefðu strítt gegn góðum viðskiptaháttum og raskað til muna jafnvægi milli réttinda og skyldna G í óhag, þannig að þeir yrðu taldir ósanngjarnir í skilningi 3. mgr. 36. gr. c. laga nr. 7/1936, skýrðrar til samræmis við 1. og 2. mgr. 3. gr. tilskipunar 93/13/EBE, sbr. 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið. Hins vegar kæmi til álita hvort lánveitandinn hefði látið hjá líða að veita G upplýsingar um efni og áhrif skilmála um verðtrygginguna í þeim mæli að það yrði talið ósanngjarnt af Í hf. eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera þá fyrir sig samkvæmt 36. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. c. laga nr. 7/1936. Með hliðsjón af þeirri greiðsluáætlun sem G undirritaði samhliða skuldabréfinu og yfirliti sem fylgdi henni, taldi Hæstiréttur að upplýsingaskyldu hefði verið fullnægt sem á honum hvíldi samkvæmt þágildandi lögum nr. 121/1994 um neytendalán. Við úrlausn málsins var enn fremur litið til þess að tilskipun 87/102/EBE hefði ekki haft lagagildi hér á landi og gæti lögskýring með hliðsjón af 3. gr. laga nr. 2/1993 ekki leitt til annarrar niðurstöðu um túlkun ákvæða laga nr. 121/1994, sbr. meðal annars dóm Hæstaréttar 9. desember 2010 í máli nr. 79/2010. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.
...1. janúar sl. tilheyrir embætti sýslumannsins í Reykjavík embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, sbr. reglugerð nr. 1151/2014. Skýrslur fyrir dómi gáfu sóknaraðili og Heiðrún Erika Guðmundsdóttir, starfmaður Hagstofu Íslands. III...
Skuldabréf. Verðtrygging. Óréttmætur skilmáli. Neytendaréttur. Ráðgefandi álit. Fjárnám.
...1. janúar sl. tilheyrir embætti sýslumannsins í Reykjavík embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, sbr. reglugerð nr. 1151/2014. Skýrslur fyrir dómi gáfu sóknaraðili og Heiðrún Erika Guðmundsdóttir, starfmaður Hagstofu Íslands. III...