Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 110/1992"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 1. desember 2016

78/2016

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Banönum ehf (Gísli Guðni Hall hrl)

Í málinu krafðist B ehf. endurgreiðslu ætlaðra oftekinna gjalda vegna innflutnings félagsins á grænmeti og ávöxtum á nánar tilgreindu tímabili, en málsaðila greindi á um lögmæti svonefnds eftirlitsgjalds sem var innheimt á grundvelli reglugerðar nr. 525/2007 um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að draga yrði þá ályktun af forsögu gjaldtökuheimildarinnar sem og þær reglur er giltu um álagningu þjónustugjalda að ráðherra væri heimilt að ákveða fjárhæð eftirlitsgjaldsins með reglugerð þannig að tekjur af gjaldinu stæðu undir kostnaði við alla vinnu sem væri í nánum efnislegum tengslum við þær eftirlitsaðgerðir sem kveðið væri á um í reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum. Á hinn bóginn yrði greiðendum gjaldsins ekki gert að standa straum af kostnaði við vinnu sem félli utan þess sem síðastgreind reglugerð mælti fyrir um. Með hliðsjón af tilhögun gjaldtökunnar og að virtu því að umþrætt eftirlitsgjald hefði staðið alfarið undir starfsemi plöntueftirlits, sem hefði einnig tekið til annarra þátta en innflutnings á plöntum og plöntuafurðum, var fallist á með B ehf. að gjaldtakan sem kveðið hefði verið á um í reglugerð nr. 525/2007 ætti sér ekki lagastoð. Var Í því gert að greiða B ehf. umkrafða fjárhæð.

...Á grundvelli þessarar lagaheimildar setti ráðherra reglugerð nr. 110/1992 um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna. Þar var kveðið á um að við innflutning á vörum sem féllu undir nánar...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. nóvember 2015

E-5045/2014

Bananar ehf (Gísli Guðni Hall hrl) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Íslenska ríkinu var gert að endurgreiða innflutningsfyrirtæki oftekin eftirlitsgjöld þar sem gjaldtakan átti sér ekki viðhlítandi lagastoð.

...Á grundvelli þessarar lagaheimildar setti ráðherra reglugerð nr. 110/1992 um innheimtu eftirlitsgjalds af innflutningi plantna. Þar var kveðið á um að við innflutning á vörum sem féllu undir nánar...