Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 106/2014"
3 dómar fundust
Á og E voru ákærðir annars vegar fyrir fjársvik tengd starfsemi trúfélagsins Z, sbr. 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og hins vegar fyrir peningaþvætti þannig að varði við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 264. gr. almennra hegningarlaga. Í dómi Landsréttar var talið sannað að ákærðu hefðu á árunum 2017 til 2019 blekkt stjórnvöld að því er varðar starfsemi trúfélagsins. Á og E hefðu haft fulla vitneskju um það að þeir meðlimir sem komu inn í trúfélagið í árslok 2015, það er þegar meðlimir félagsins fóru úr því að vera innan við fimm og upp í tæplega 3000, hefðu komið þangað á öðrum forsendum en lágu til grundvallar skráningu trúfélagsins og því ekki verið unnt að telja þá sem meðlimi í trúfélaginu í skilningi laga nr. 108/1999. Í stað þess að gera sýslumanni og Fjársýslunni grein fyrir stöðunni sem uppi var, í samræmi við þær ríku trúnaðarskyldur sem hvíldu á Á sem forstöðumanni trúfélags, styrktu ákærðu og hagnýttu sér þá röngu hugmynd stjórnvalda að trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar, sem leiddi til þess að félagið fékk greiddar í sóknargjöld 84.727.320 krónur, sem það átti samkvæmt lögum ekki tilkall til. Taldi Landsréttur ljóst að sú ákvörðun Fjársýslunnar að greiða út sóknargjöldin byggðist á þeirri villu stjórnvalda að trúfélagið uppfyllti skilyrði skráningar, sem það gerði í reynd ekki. Þá nýttu Á og E hluta þeirra fjármuna er trúfélagið fékk greidda til eigin nota, en stærstan hluta þeirra færðu þeir af reikningi trúfélagsins inn á reikning T LLC. Með því ollu Á og E íslenska ríkinu fjártjóni án þess að unnt væri að slá umfangi þess föstu í ljósi kyrrsettra fjármuna. Þá var því slegið föstu að ákærðu hefðu staðið saman að þessum brotum. Voru Á og E því sakfelldir fyrir fjársvik. Jafnframt voru Á og E sakfelldir fyrir peningaþvætti með eftirfarandi ráðstöfun hinna ólögmætu fjármuna. Við ákvörðun refsingar Á var litið til þess að Á hafði ekki áður sætt refsingu og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár. Við ákvörðun refsingar E var litið til þess að brot hans væru að hluta hegningarauki. Var refsing E hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá var fallist á upptökukröfur á hendur ákærðu, Z, trúfélagi, E ehf. og T LLC.
...145/2013 um flutning verkefna frá innanríkisráðuneytinu til sýslumanna og reglugerð nr. 106/2014 um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga, hefði sýslumanninum verið falið að annast þau verkefni sem innanríkisráðuneytið hefði...
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur eftirlit með því að skráð trúfélög uppfylli ætíð skilyrði laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Snemma árs 2019 taldi sýslumaður að trúfélagið Zuism uppfyllti ekki skilyrði laganna. Hann bað Fjársýslu ríkisins því að stöðva greiðslu sóknargjalda til trúfélagsins í einn mánuð. Þegar sýslumaður hafði í þrígang beðið fjársýsluna að stöðva greiðslur sóknargjalda til trúfélagsins höfðaði það mál á hendur ríkinu til þess að fá sóknargjöldin greidd. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að sýslumaður hefði í öndverðu haft lagaheimild til þess að stöðva greiðslur sóknargjalda til stefnanda. Það var jafnframt niðurstaða dómsins að stefnandi hefði ekki enn sem komið væri veitt sýslumanni fullnægjandi upplýsingar til þess að sýslumaður gæti lagt mat á það hvort stefnandi uppfyllti skilyrði laganna. Skilyrði þess að stefnandi ætti óskoraðan rétt til greiðslu sóknargjalda úr ríkissjóði voru því ekki komin fram. Ríkið var því sýknað af kröfu hans.
...145/2013 og reglugerð nr. 106/2014 og 1152/2014) geti óskað eftir öllum þeim gögnum sem skipta máli við mat á því hvort skilyrðum laganna um skráningu sé fullnægt...
Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu sóknargjalda.
...félagið ekki skilyrði um lágmarksfjölda félagsmanna, sbr. 4. mgr. 3. gr. laganna, sbr. reglugerð nr. 106/2014 um skráningu trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Sá fjöldi félagsmanna sem nú er í félaginu...