Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lykilorð: Greiðslukrafa

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. janúar 2020

E-1788/2019

Zuism, trúfélag (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) gegn Ríkissjóður Íslands (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur eftirlit með því að skráð trúfélög uppfylli ætíð skil­yrði laga nr. 108/1999 um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Snemma árs 2019 taldi sýslumaður að trúfélagið Zuism uppfyllti ekki skilyrði laganna. Hann bað Fjársýslu ríkisins því að stöðva greiðslu sóknargjalda til trúfélagsins í einn mánuð. Þegar sýslumaður hafði í þrígang beðið fjársýsluna að stöðva greiðslur sóknargjalda til trúfélagsins höfðaði það mál á hendur ríkinu til þess að fá sóknargjöldin greidd. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að sýslumaður hefði í öndverðu haft lagaheimild til þess að stöðva greiðslur sóknargjalda til stefnanda. Það var jafnframt niðurstaða dómsins að stefn­andi hefði ekki enn sem komið væri veitt sýslumanni fullnægjandi upplýsingar til þess að sýslu­maður gæti lagt mat á það hvort stefnandi uppfyllti skilyrði laganna. Skilyrði þess að stefnandi ætti óskoraðan rétt til greiðslu sóknargjalda úr ríkissjóði voru því ekki komin fram. Ríkið var því sýknað af kröfu hans.