Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 11. gr. laga nr. 99/2004 — Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa
Fasteignasalan A ehf. og Á ehf. gerðu með sér samning um einkasölu A ehf. á fasteigninni Álftamýri 1-5 í febrúar 2015 en fasteignin var eina eign Á ehf. Í ársbyrjun 2016 keypti R IX ehf. alla hluti í Á ehf. fyrir 680.000.000 króna án milligöngu fasteignasölunnar og greindi A ehf. og R IX ehf. í kjölfarið á um rétt A ehf. til sölulauna vegna sölunnar. Í maí 2017 tók RS ehf. svo við réttindum og skyldum R IX ehf. vegna fasteignarinnar. Landsréttur hafnaði kröfu A ehf. um ómerkingu héraðsdóms á grundvelli þess málatilbúnaðar að hinn áfrýjaði dómur kvæði á um réttindi til handa aðila sem ekki hefði verið til að lögum þegar dómurinn hefði verið kveðinn upp. Þótt R IX ehf. hefði vanrækt að upplýsa dómara málsins og gagnaðila um að nýr aðili hefði tekið yfir þá hagsmuni sem deilt væri um í málinu og formleg aðilaskipti hefðu af þeim sökum ekki orðið í málinu í héraði varnarmegin, gæti það eins og ástatt væri ekki varðað ómerkingu héraðsdóms, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Að því er varðaði ágreining málsaðila um söluþóknun var með vísan til samskipta aðila ráðið að söluumboð A ehf. hefði hvort tveggja náð til þess að selja fasteignina Álftamýri 1-5 og félagið Á ehf., þrátt fyrir að í umboðinu væri aðeins rætt um sölu á fasteigninni. Taldi Landsréttur að það stæði RS ehf. nær að sanna að áhugi félagsins á að eignast fasteignina hefði vaknað, óháð kynningu starfsmanns A ehf. á fasteigninni og að hann hefði ekki átt þátt í að viðskiptin komust á. RS ehf. hefði ekki lánast sönnun um það. Á hinn bóginn var ekki talið að A ehf. ætti kröfu til óskertrar 1,5% þóknunar af söluverði fasteignarinnar úr hendi RS ehf., eins og kveðið hafði verið á um í söluumboðinu, heldur taldi rétturinn í ljósi atvika, þar á meðal þeirrar vinnu sem A ehf. hefði innt af hendi í söluferlinu, A ehf. eiga kröfu til um helmings þeirrar þóknunar.