Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 10. gr. laga nr. 96/1997 — Lög um slátrun og sláturafurðir
S hf. krafðist endurgreiðslu eftirlitsgjalds sem félagið hafði innt af hendi vegna heilbrigðisskoðunar við slátrun svína frá október 2014 til október 2018, samkvæmt 2. mgr. 11. gr. þágildandi laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og gjaldskrá settri af ráðherra. Byggði S hf. á því að gjaldtakan væri ólögmæt enda væri gjaldið umfram raunkostnað við eftirlit. Í dómi Landsréttar kom fram að eftirlitsgjaldið sem gilti á umræddu tímabili hefði tekið mið af kostnaði Matvælastofnunar við eftirlit fyrir árið 2011 en ekkert lá fyrir um að sá útreikningur hefði verið umfram raunkostnað við eftirlit. Þó að fyrrnefnd gjaldskrá hefði ekki verið endurskoðuð reglulega á umræddu tímabili, svo sem áskilið var með lögum nr. 96/1997, bentu málsgögn ekki til þess að raunkostnaður stofnunarinnar vegna eftirlits með slátrun svína hefði lækkað á tímabilinu eða að S hf. hefði verið krafið um hærri fjárhæðir en sem námu raunverulegum kostnaði við eftirlitið hjá félaginu. Með vísan til þess og forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sýknu íslenska ríkisins af kröfum S hf.
Stefndi var sýknaður af dómkröfum stefnanda sem byggðu á því að stefnandi hefði sætt ólögmætri töku þjónustugjalda. En sýnt þótti fram á það að gjaldtökuheimildir í stjórnvaldsfyrirmælum hefðu uppfyllt nægilega skilyrði í 2. mgr. 11. gr. laga nr. 96/1997 um raunkostnað sem áskilið viðmið fyrir umþrætt eftirlitsgjald við heilbrigðisskoðun hjá stefnanda.