Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 34. gr. laga nr. 95/2000 — Lög um fæðingar- og foreldraorlof

Hæstiréttur birt 28. febrúar 2024

24/2023

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

A höfðaði mál á hendur Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem staðfest var niðurstaða fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna í fæðingarorlofi til A. Taldi A að úrskurðurinn færi í bága við EES-samninginn. A hafði verið búsett og starfandi í Danmörku á 12 mánaða viðmiðunartímabili sem lauk sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Þar sem að A hafði ekki haft neinar tekjur hér á landi á tímabilinu voru henni ákvarðaðar lágmarksgreiðslur samkvæmt þágildandi lögum um fæðingar og foreldraorlof. Undir rekstri málsins í héraði var leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins með spurningum um hvort áskilið væri samkvæmt nánar tilgreindum reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu að EES-ríki reikni greiðslur í fæðingarorlofi eftir viðmiðunartekjum út frá heildarlaunum á vinnumarkaði á öllu svæðinu. Jafnframt hvort það bryti í bága við reglur sem þar gilda að einungis væri tekið tillit til heildarlauna á innlendum vinnumarkaði. Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins sagði að skylda til að koma í veg fyrir að farandlaunþegar yrðu verr settir við það að nýta sér rétt til frjálsrar farar fæli í sér að bætur til þeirra skyldu vera hinar sömu og þær hefðu verið ef launþegi hefði ekki neytt þess réttar. Þar af leiðandi bæri að reikna viðmiðunartekjur launþega, vegna starfstímabils í öðru EES-ríki, út frá áætluðum tekjum launþega í sambærilegri stöðu og með sambærilega starfsreynslu og hæfi og launþegi í því ríki þar sem sótt væri um bæturnar. Hæstiréttur tók fram að þótt að ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins væru ekki bindandi að íslenskum rétti hefðu þau í réttarframkvæmd verið lögð til grundvallar við skýringu á efni EES-reglna. Að baki því væri sú grundvallarregla EES-samningsins að stuðla að samkvæmni í skýringum á EES-reglum og þar með samræmdri framkvæmd EES-samningsins. Þrátt fyrir þetta yrði að fallast á það með héraðsdómi að Fæðingarorlofssjóður hefði ekki getað virt að vettugi skýr og afdráttarlaus fyrirmæli laga nr. 95/2000 við ákvörðun um greiðslu úr sjóðnum til A. Því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2023

E-582/2021

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Stefnandi sem hafði verið í framhaldsnámi í Danmörku og fullu starfi þar, var barnshafandi þegar hún fluttist til Íslands og hóf störf þar. Við ákvörðun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði var einungis miðað við heildarlaun sem hún fékk greidd á innlendum vinnumarkaði, og krafðist stefnandi ógildingar á ákvörðuninni og úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála. Leitað var ráðgefandi álits EFTA dómstólsins sem taldi að miða ætti fjárhæð bóta sem hefði aflað tekna í öðru EES-ríki á því tímabili sem miðað sé við samkvæmt landslögum, við tekjur launþega með sambærilega starfsreynslu og hæfi og sem gegni sviðuðu starfi í því EES-ríki þar sem sótt er um bætur. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. laga nr. 2/1993 um að skýra skuli lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn var ekki talið að ákvæði gæti leitt til þess að litið yrði framhjá skýrum orðum íslenskra laga. Var kröfu stefnanda því hafnað.