Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001 — Lög um opinber innkaup

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. mars 2026 kl. 16:23

E-2753/2025

Sjúkratryggingar Íslands (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) gegn Intuens Segulómun ehf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður), Íslenskri myndgreiningu ehf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður), Læknisfræðilegri myndgreiningu ehf. (Ragnar Þórður Jónasson lögmaður) og Myndgreiningarrannsóknarstöð Hjartaverndar ehf. (Hólmfríður Björk Sigurðardóttir lögmaður)

Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 47/2023, sem var kveðinn upp 1. nóvember 2024 var ógiltur þar sem ekki var talið að stefnandi hefði brotið gegn lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup með kaupum á læknifræðilegum myndgreiningum á grundvelli ótímabundinna samninga sem gerðir voru áður en lögin tóku gildi.

Hæstiréttur birt 2. apríl 2007

555/2006

Reykjavíkurborg (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn GT verktökum ehf (Marteinn Másson hrl)

R krafðist þess að ákvæði í úrskurði kærunefndar útboðsmála 19. apríl 2005, þess efnis að R bæri að greiða GT kostnað af kæru þess síðarnefnda til nefndarinnar, yrði fellt úr gildi. GT beindi kæru til kærunefndar útboðsmála 14. október 2004 vegna útboðs sem fram hafði farið á vegum R og GT hafði verið þátttakandi í. Nefndin hafnaði öllum kröfum GT en féllst þó á að R bæri að greiða honum kostnað hans við að hafa kæruna uppi, þar sem ákveðnir annmarkar hefðu verið á framkvæmd útboðsins. Samkvæmt 3. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001 um opinber innkaup getur kærunefnd útboðsmála ákveðið að sá sem kæra til hennar beinist gegn greiði kæranda kostnað af því að hafa hana uppi. Í lögskýringargögnum varðandi þetta ákvæði kemur fram að slík ákvörðun eigi að jafnaði aðeins að koma til greina ef kærði tapar máli fyrir nefndinni í öllum verulegum atriðum. Þrátt fyrir að kærunefndin hefði talið ákveðna annmarka vera á útboðinu voru kröfur GT fyrir nefndinni í engu teknar til greina. Taldi Hæstiréttur fyrrnefnda ákvörðun nefndarinnar um að leggja kostnað á R því vera í ósamræmi við 3. mgr. 81. gr. laga nr. 94/2001. Var því fallist á kröfu R.

Hæstiréttur birt 17. nóvember 2005

182/2005

Íslenskir aðalverktakar hf og NCC International AS (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn Vegagerðinni (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Við opnun tilboða í gerð Héðinsfjarðarganga kom í ljós að Í hf. og N AS áttu lægsta tilboð í verkið, en boð þeirra var 3,2% yfir kostnaðaráætlun V. Áður en V hafði lýst afstöðu til tilboðanna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar 1. júlí 2003 að fresta verkinu þannig að framkvæmdir gætu „hafist haustið 2006 og nýtt útboðsferli miðað við það“. Að því loknu tilkynnti V bjóðendum í verkið að öllum boðum í það væri hafnað þar sem þensluástand væri í þjóðfélaginu og að stofnunin fengi ekki nauðsynlegt fé til framkvæmdanna. Í hf. og N AS kærðu þessa ákvörðun til kærunefndar útboðsmála. Komst hún að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin hefði verið ólögmæt og áleit að V bæri skaðabótaskyldu gagnvart félögunum, sbr. 2. mgr. 84. gr. laga nr. 94/2001, en taldi ekki tilefni til að taka afstöðu til kröfu þeirra um efndabætur. Þá var V gert að greiða félögunum kostnað við að hafa kæruna uppi. Félögin höfðuðu þá mál til viðurkenningar á rétti þeirra til skaðabóta vegna missis hagnaðar, sem rakinn yrði til ákvörðunarinnar. Í gagnsök krafðist V á hinn bóginn ógildingar á tilteknum liðum í úrskurði kærunefndarinnar. Vísað var til þess að ekki væri sýnt fram á að forsendur þær, sem útboðið hvíldi á, hefðu brostið eftir að það hófst og áður en ákveðið var að hafna öllum tilboðum, sem bárust í verkið, eða að þær ástæður, sem höfnun allra tilboða í verkið byggðist á, hefðu mátt vera bjóðendum ljósar þegar þeir buðu í verkið. Var því fallist á að óheimilt hefði verið að hafna öllum tilboðum í verkið á grundvelli þeirra atriða, sem vísað hafði verið til í bréfi V til bjóðenda. Þá var ekki talið að V hefði sýnt fram á að ekki hefði verið samið við Í hf. og N AS ef orðið hefði af verkinu. Að þessu leyti væri skilyrðum fyrir skaðabótaskyldu V við félögin samkvæmt 2. mgr. 84. gr. laga nr. 94/2001 fullnægt. Enn fremur var talið að þótt óveruleg gögn hefðu verið lögð fyrir um ætlað tjón félaganna væru þau næg til að taka mætti til greina kröfu þeirra um viðurkenningu á skaðabótaskyldu V gagnvart þeim vegna missis hagnaðar. Var því fallist á kröfu Í hf. og N AS í málinu. Varðandi kröfur V í gagnsök var talið hún hefði einungis lögvarða hagsmuni af því að leita ógildingar á ákvörðun kærunefndar um málskostnað og var öðrum atriðum, er kröfugerðin laut að, vísað frá héraðsdómi. Þá var ekki á það fallist að þeir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins fyrir kærunefnd útboðsmála að varðað gætu ógildingu á úrskurði hennar að þessu leyti.