Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 21. gr. laga nr. 94/1976 — Lög um skráningu og mat fasteigna

Landsréttur birt 16. júní 2023

229/2022

Húnabyggð (Jón Jónsson lögmaður) gegn Þjóðskrá Íslands (Ólafur Helgi Árnason lögmaður) og Landsvirkjun (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Sveitarfélagið H höfðaði mál gegn Þ og L og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður Y þar sem staðfestur var úrskurður Þ um fasteignamat stöðvarhúss Blönduvirkjunar. Í hinum áfrýjaða dómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna, voru rakin ákvæði laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna sem og reglugerðar nr. 406/1978 um fasteignaskráningu og fasteignamat. Var þar hafnað þeirri málsástæðu H að Þ og eftir atvikum Y hafi lagt ranga túlkun á ákvæði 3. töluliðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. laganna til grundvallar við fasteignamat stöðvarhússins. Þá var ekki fallist á þá málsástæðu H að fyrrgreint ákvæði færi í bága við 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins um ólögmæta ríkisaðstoð. Ekki var fallist á aðrar málsástæður H sem sneru að því að undirbúningur og ákvörðun Þ og Y á matsverði stöðvarhússins hafi verið haldin annmörkum. Voru Þ og L því sýknuð af kröfum H.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2022

E-2482/2021

Húnavatnshreppur (Jón Jónsson lögmaður) gegn Þjóðskrá Íslands (Ólafur Helgi Árnason lögmaður) og og Landsvirkjun (Guðjón Ármannsson lögmaður)

Hafnað var kröfu Húnavatnshrepps um að úrskurður yfirfasteignamatsnefndar um fasteignamat stöðvarhúss Blönduvirkjunar yrði ógiltur.