Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 16. gr. laga nr. 94/1976 — Lög um skráningu og mat fasteigna
Sveitarfélagið H höfðaði mál gegn Þ og L og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður Y þar sem staðfestur var úrskurður Þ um fasteignamat stöðvarhúss Blönduvirkjunar. Í hinum áfrýjaða dómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna, voru rakin ákvæði laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna sem og reglugerðar nr. 406/1978 um fasteignaskráningu og fasteignamat. Var þar hafnað þeirri málsástæðu H að Þ og eftir atvikum Y hafi lagt ranga túlkun á ákvæði 3. töluliðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. laganna til grundvallar við fasteignamat stöðvarhússins. Þá var ekki fallist á þá málsástæðu H að fyrrgreint ákvæði færi í bága við 1. mgr. 61. gr. EES-samningsins um ólögmæta ríkisaðstoð. Ekki var fallist á aðrar málsástæður H sem sneru að því að undirbúningur og ákvörðun Þ og Y á matsverði stöðvarhússins hafi verið haldin annmörkum. Voru Þ og L því sýknuð af kröfum H.
Hafnað var kröfu Húnavatnshrepps um að úrskurður yfirfasteignamatsnefndar um fasteignamat stöðvarhúss Blönduvirkjunar yrði ógiltur.